Tíminn - 27.03.1986, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 27. mars 1986
Tíminn -17
GULUBETRI
Umsjón: Þórmundur Bergsson, Heimir Bergsson:
Sjónvarpsrisarnir
segja nú stopp
- Bandarísku sjónvarpsstöðvarnar töpuöu í heildina á íþrótta-
útsendingum sínum á síöasta ári og neita nú að verða við kröfum
um svimandi háar fjárupphæðir fyrir sýningarrétt
H
>.elstu íþróttir þcirra Banda-
ríkjamanna, hornabolti, amerískur
fótbolti, körfuboltiogfrjálsaríþrótt-
ir gætu átt eftir að líða fyrir vanda-
mál sem nú herjar, ellegar fer að
herja á keppnir þeirra bestu í
þessum greinum.
Vandamálið er ekki þetta venju-
lega þ.e. misnotkun á áfengi og
öðrum eiturlyfjum meðal íþrótta-
mannanna eða borganir undir borð-
ið til þeirra. Nei, raunar er málið
alvarlegra því það snýst um hvort
keppnir á borð við NBA (körfu-
boltakeppnina bandarísku) og NFL
(helstu deildarkeppnina í ameríska
fótboltanum) haldi áfram að vera til
í svipuðum stíl og þeim hefur verið
haldið uppi síðustu árin.
Vandamálið er að sjálfsögðu í líki
peninga og aðalpersónur þess eru
sjónvarpsrisarnir þrír í Bandaríkj-
unum ABC, CBS og NBA. Þessar
stöðvar hafa undanfarin ár þurft að
greiða svimandi háar fjárupphæðir
til gráðugra mótshaldara og eigenda
keppnisliða. Hafa fjárupphæðimar
farið síhækkandi á síðustu árum. Nú
eru hlutirnir hins vegar farnir að
breytast nokkuð skyndilega. Sjón-
varpsrisarnir þrír hafa nefnilega sagt
þvert „nei" við meiri hækkunum.
Ástæðan? Jú, sjónvarpsstöðvarn-
ar eru farnar að tapa á íþróttaútsend-
ingum sínum, nokkuð sem fæstum
datt í hug fyrir aðeins tveimur árum
síðan þegar ABC kom út með 70
milljón dollara gróða eftir Ólympíu-
leikana í Los Angeles en þar réð
ABC yfir sýningarréttinum.
Reyndar kom vel í Ijós minnkandi
fjárhagsgeta sjónvarpsstöðva í garð
íþrótta þegar samið var um sýningar-
réttinn frá Ólympíuleikjunum í Seo-
ul 1988. Forráðamenn þeirra lcikja
höfðu vonast eftir að geta sclt sýn-
ingarréttinn á allt uppí milljarð doll-
ara. Þegar upp var staðið urðu
forráðamennirnir hins vcgar að sætta
sig við „litlar" 300 milljónir dollara
frá bandarísku sjónvarpsstöðinni
NBC.
Á síðasta ári töpuðu allir banda-
rísku sjónvarpsrisarnir reyndar á
íþróttaútsendingum sínum og sumir
miklu. Stöðvarnir töpuðu t.d. sam-
tals um 45 milljónum dollara á út-
sendingum frá NFL og í raun var
það aðeins körfuboltinn scm gaf
stöðvunum eitthvað í sinn hlut.
Já, veislan virðist vera á enda fyrir
þá sem rckið hafa keppnisdeildirnar
bandarísku sem og alþjóðaíþrótta-
mót út um allan heim með snjöllu
peningaviti. Nú verða sumar íþrótta-
greinarnar að sætta sig við minna
ellegar eiga á hættu að hverfa af
skjánum.
Ástæðan fyrir minnkandi gróða
sjónvarpsstöðvanna af útsendingum
sínum frá íþróttaviðburðum cr sú að
auglýsendur hafa í auknum mæli
snúið sér annað með auglýsingar
sínar. Áður fyrr gátu sjónvarps-
stöðvarnar krafist mikilla peninga
frá auglýsendum sem fylla vildu
hléin í íþróttakappleikjunum. ABC
gat t.d. krafist sem samsvarar rúm-
um sjö milljónum króna fyrir 30
sekúndna auglýsingu á mánudags-
kvöldum er stöðin sýnir beint frá
einum leikja fótboltadeildarinnar
bandarísku NFL.
En af hverju hafa auglýsendurnir
snúið sér að öðrum þáttum í sjón-
varpi með auglýsingarsínar: Ekki er
um að kenna fjölda þeim scm horfir
á íþróttir í sjónvarpi því á síðasta ári
jókst hann þó nokkuð hjá öllum
bandarísku sjónvarpsrisunum. Þetta
ár byrjaði einnig vel hjá stöðvunum
og t.d. horfðu alls um 120 milljónir
mánna á úrslitaleik bandaríska fót-
boltans (Supcr bowl) scm fram fór í
New Orleans. Það ku vera mcsti
áhorfcndafjöldi að einum sjónvarps-
þátt í sögunni.
Nei, það er ekki áhorfcndafjöld-
inn í sjálfu sér sem gert hefur
auglýsendur afhuga íþróttunum.
Hér er öllu frekar um að ræða
breyttar sjónvarpsvenjur hjá banda-
rísku þjóðinni. Auglýsendum finnst
nú þeir ná betur til þess fólks scm
þeir eru að höfða til með því t.d. að
auglýsa í hinu svokallaða MTV eða
músíkvídeói. Ungir karlmenn hafa
ávallt verið stærsti hluti þess hóps
sem reglulega horfir á íþróttir og því
hafa bjór- og bílaauglýsingar ávallt
verið mjög fyrirferðamiklar á skján-
um þcgar kappleikjum er sjónvarp-
að. Nú eru hinsvegar tímarnir
breyttir og konur eru nærri eins
líklegar til að festa kaup á bíl og
karlmenn. Ergó, bílaframleiðendur
auglýsa nú vöru sína víðar en í
íþróttaþáttum. Það eru slíkar breyt-
ingar á þjóðfélaginu ásamt öðru sem
lfklega eiga eftir að draga úr þeim
miklu fjárupphæðum sem sjónvarp-
ið hefur hingað til þurft að greiða
fyrir sýningarrétt af íþróttaviðburð-
um.
(Byggt á Sports Illustrated).
Minnki sjónvarps-
stöðvarnar banda-
rísku greiðslur sín-
ar verulega til
þeirra sem stjórna
deildum á borð við
NFL, bandarísku
fótboltadeildina,
mun það koma
endanlega niður á
buddu leikmanna
sjálfra.
Körfuboltinn stóð
fyrir sínu á síðasta
ári og gaf sjón-
varpsrisunum
bandarísku fullt af
peningum enda
með skemmtilegri
sjónvarpsíþróttum.