Tíminn - 12.04.1986, Blaðsíða 4
4Tíminn
SPEGILL
llllllllll!
þursabitið
Svissneska skautadrottningin
Denise Biellmann vann heims-
meistaratitil 1982. Síðan hellti hún
sér út í atvinnumennskuna og hefur
þar af leiðandi verið bannað að
taka þátt í heimsmeistarakeppni.
Denise hefur svo sem ekki sett
fyrir sig þetta bann. Hún hefur gert
áhugamál sitt að atvinnu og er alls
staðar eftirsótt og miklar summur
í boði, því að allir vilja sjá Denise
leika listir sínar, sem sumir vilja
meina að aðrir leiki ekki eftir,
heimsmeistarar eða ekki heims-
meistarar. Það var þess vegna tekið
vel eftir því þegar Denise hvarf af
skautasviðinu á tímabili í vetur.
En Denise er komin í leitirnar
og hefur gefið skýringu á hvarfi
sínu í vetur. Hún varð skyndilega
altekin þursabiti, rétt eins og kem-
ur fyrir hvern annan kyrrsetu-
manninn og er það nógu slæmt, en
fyrir skautadrottningu þýðir það
Denise fékk þursabit og maður
hennar gerði það sem hann gat til
að lina þjáningamar.
„Kóngatásveifla“ Denise Bielimenn er heimsfræg og
hefur einu sinni fært henni heimsmeistaratitil. Kannski
gerir hún það aftur eftir tvö ár.
LÁNIÐ
LÉK VIÐ
ÞAU!
-fundu „Halley-egg“ og
fágætt frímerki
Ef steikta eggið ykkar verður eins í laginu og Halley-halastjarnan gæti vel verið að eitthvert
eggjafyrirtæki væri fúst til að borga ykkur vel fyrir, skv sögunni af ensku stúlkunni!
Halley halastjarnan heimsækir
okkur jarðarbúa á 76 ára fresti sem
kunnugt er. Stundum og kannski í
hvert skipti, hefur gosið upp sá
kvittur að hænur hafi tekið upp á
því að verpa eggjum sem apa eftir
lögun Halley stjörnunnar. Fregnir
af slíkum fyrirbærum má lesa í
blöðum frá 1910 þegar stjarnan
sást síðast frá jörðu.
Nú hefur heyrst orðrómur frá
Englandi þar sem segir að ung
stúlka hafi einmitt fundið þannig
egg í ár. Það var á bóndabæ í
Studley sem Linda Franklin fann
slíkt egg. Stórt eggjafyrirtæki laun-
aði henni ríkulegu fyrir fundinn!
Og þá var hann ekki síður hepp-
inn frímerkjasafnarinn sænski sem
keypti pakka af notuðum frímerkj-
um, eitt kíló að þyngd, af eintómu
bríaríi. Þegar hann fór að gramsa í
frímerkjunum rakst hann á mikið
fágæti, sem kallað er „Gscheidle"
frímerki og er að verðmæti um 885
þús. krónur.
Saga þessa frímerkis er sú að í
tilefni Ólympíuleikanna í Moskvu
hugðust þýsk póstyfirvöld gefa út
sér frímerki. Síðan fór sem fór að
Þjóðverjar létu ekki sjá sig í
Moskvu í mótmælaskyni við innrás
Rússa í Afganistan og ekkert varð
að frímerkjaútgáfunni. Hins veg-
ar varð konu póstmálastjórans,
Kurts Gscheidle, það á óvart að
taka örfá þessara frímerkja til
handargagns og líma þau á
póstkort, sem hún síðan sendi
vinum og kunningjum. Þeir hafa
síðan væntanlega ekki gert sér
grein fyrir því hvílíkt dýrmæti þeir
höfðu þar á milli handanna.
Laugardagur 12. apríl 1986
ÚTLÖND
FRETTAYFIRLIT
MOSKVA — Stjórnvöld í
Sovétríkjunum skýrðu form-
lega frá því í gær að þau hefðu
aflétt átta mánaða banni sínu
á tilraunir með kjarnorkuvopn.
Tilkynning Sovétstjórnarinnar
fylgdi í kjölfarið á tilrauna-
sprengingu Bandaríkjamanna
í Nevadaeyðimðrkinni í fyrra-
dag.
BONN — Helmut Kohl kansl-
ari Vestur-Þýskalands sagðist
hafa vitneskju um að Líbýu-
stjórn hefði verið viðriðin
sprenginguna á skemmti-
staðnum í Vestur-Berlín. Hann
varaði þó Bandaríkjastjórn við
að hefja hernaðaraðgerðir
gegn Líbýu.
BEIRÚT — Talsmaður
bandaríska háskólans í Beirút
(AUB) sagði í gær að yfirvöld
skólans væru að rannsaka
fréttir um að írski kennarinn
Brian Keenan væri ( haldi hjá
múhameðstrúarmönnum í
Vestur-Beirút.
LUNDUNIR — Verka-
mannaflokkurinn breski vann
sinn fyrsta sigur í 29 ár yfir
Ihaldsflokknum í aukakosning-
um í Lundúnum. Talsmenn
flokksins sögðu sigurinn fyrsta
merki þess að Ihaldsflokkur
Margrétar Thatchers myndi
tapa í næstu kosningum.
JÓHANNESARBORG
— Bardagar milli stríðandi fylk-
inga Zulu-ættbálksins í Suður-
Afríku ollu dauða sex manna í
gær. Átökin milli fylkinganna
áttu sér stað nálægt hafnar-
borginni Durban.
VIN — Stuðningsmenn for-
setaframbjóðendanna Kurts
Waldheim og Kurts Steyrer
töldu báðir sinn mann hafa
betur í rökræðum mannanna
tveggja í fyrrakvöld. Þarneitaði
Kurt Waldheim enn einu sinni
að hafa verið nasisti í seinni
heimsstyrjöldinni.
LAHORE, Pakistan -
Benazir Bhutto leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í Pakistan
sagði flokk sinn hafa getað
tekið völdin í fyrradag, degi
eftir komu hennar til landsins.
Hún sagðist aftur á móti vera
. hlynnt friðsamlegum stjórnar-
skiptum.
V
IISÉ*
PARIS — Stjórnvöld í Frakk-
landi skýrðu frá því í aær að
enn væri of snemmt að svara
orðum Davids Lange forsætis-
ráðherra Nýja-Sjálands. Lange
lét að því liggja að stjórn sín
væri reiðubúin til þess að
sleppa úr haldi tveimur Frökk-
um sem haldið er vegna spren-
gingar þeirrar sem varð í Rain-
bow Warrior, skipi Geen-
peacesamtakanna.
OSLÓ — Rúmlega 20 þús-
und Norðmenn hafa misst
vinnu sína, a.m.k. um stundar-
sakir, vegna vinnudeilu þeirrar
sem nú stendur yfir í Noregi.
Rúmlega 100 þúsund aðrir
launaþrælar eru í vinnubanni.