Tíminn - 12.04.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 12.04.1986, Blaðsíða 7
Laugardagur 12. apríl 1986 Tíminn 7 VETTVANGUR Halldór Þórðarson, Laugalandi: Vont er þeirra réttlæti Reglugerð hefur verið klambrað saman og mjólkurbændur hafa séð sinn skerf reiddan skv. henni. Mér heyrist að allir séu mjög óánægðir með sinn skammt. Mætti því ætla að jafnt væri að öllum búið. Svo er þó ekki. Óánægjan virðist af tvennum toga. Annars- vegar eru þeir sem framleiddu skefjalaust tvö síðustu ár og eiga mesta sök á þeim vanda sem við er að etja. Þeir eru óánægðir með að fá ekki þá framleiðsluaukningu aila staðfesta sem fullvirðisrétt. Þeir, sem af ýmsum ástæðum framleiddu undir búmarki og drógu í bili úr vandanum sem hinir ollu, eru að vonum sárir yfir því að ábyrg afstaða þeirra er notuð til að valda þeim varanlegu tjóni. Ég nefndi í smágrein um þessi mál, að bændur hafi undanfarin ár vitað að heildarframleiðsla mjólk- ur og kjöts var meiri en hægt var að selja innanlands, þeir vissu að framleiðsla mátti ekki aukast s.l. ár og enn síður á þessu verðlagsári. En það var fleira sem þeir vissu í þessum málum. Þeir vissu um sitt búmark. Þeir vissu að búmarkið var grunnur að fullvirðisrétti, og þeir vissu að búmarkið fylgdi jörð- inni. Allt þetta vissu þeir vegna þess að þannig var þetta fram- kvæmt af valdhöfum. Þeir höfðu fulla ástæðu til að treysta því, að það búmark sem jörð þeirra átti, stæði áfram. Eldri menn drógu saman í trausti þess að nýr ábúandi fengi óskert búmark jarðarinnar. Bændur fækkuðu búfé í erfiðu ári, í trausti þess að þeir gætu fjölgað Þeir sem af ýmsum ástæöum framleiddu undir búmarki og drógu í bili úr vandanum sem hinir ollu, eru aö vonumsáriryfir aö ábyrg afstaða þeirra er notuð til að valda þeim varan- legu tjóni. 'VJ þegar betur áraði. Þeir vissu að með því að nota ekki rétt til fulls, drægju þeir úr offramleiðslu, þó ekki væri um endanlegt réttarafsal að ræða. Þetta vissu þeir m.a. af framkvæmd reglnanna. Enn eru ótaldir þeir sem fóru að tilmælum forráðamanna, sýndu þegnskap, og minnkuðu framleiðsluna. Á öll- um þessum mönnum er nú brotið freklega. Strax eftir að leiðréttingu búmarks lauk byrjuðu ráðamenn okkar að veita stóraukið búmark þeim er þess óskuðu. Með þeini verknaði var hlaðið upp viðbótar framleiðslurétti, langt um meiri en áður hafði þekkst. Aukning bú- marks var ekki miðuð við einhver vísitölubú. Menn með tvö eða þrefalda bústærð fengu hækkun ekki sfður en aðrir, enda mun hlutur stórbúanna hafa vegið þyngst í aukningunni - og þá einkum aukningu tveggja síðustu ára. Segja má að aukningin frá 1980 sé sá vandi sem við stríðum við í dag. Fáir munu álíta fært að svipta menn búmarksaukningu sem búið var að úthluta til þeirra sem grunni að fullvirðisrétti. Bú- mark hverrar jarðar var til síðustu vikna grunnur framleiðsluréttar, hvort sem sá réttur var notaður eða ekki, og jörðin átti réttinn. Með reglugerðinni er farin ný leið sem hæpið er að standist lagalega, frek- ar en kjarnfóðurskatturinn um árið. Þeim sem framleiddu skefjalaust síðustu árin er launað Í Ef vit á að vera í stjórn kjötframleiðslu, verður sú stjórn að ná yfir alla fram- leiðsluna, þannig að hver kjötframleiðandi fái búmark og skipti þá ekki máli hvaða tegund kjöts hann framleiddi. '%1J með auknum fullvirðisrétti, sem tekinn er af þeim sem drógu úr framleiðslu. Rétturinn ertekinn af þessum mönnum vegna þess að þeir minnkuðu sína framleiðslu. Ef svona „réttlæti" særir ekki réttlætiskennd manna, þá skil ég ekki málið. Það minnsta réttlæti sem hægt er að fara fram á, er að búmarkið verði virt sem eini grunn- ur fullvirðisréttar, ekki síst hjá þeim sem hafa framleitt undir bú- marki, það er ekki rétt að sparka í lappirnar á þcim sem ekki fullnýttu sitt búmark, þó einhverjar nefndir hafi ausið út meiri búmarksaukn- ingu en þiggjendur komust yfir að nota, það er bara eins og þegar einhver stelur meiri mjólk og kjöti, en hann og hans nánustu komast yfir að éta. Það er réttlætismál að undanþiggja vísitölubúið allri skerðingu, hjá þeim sem ekki liufa fastar aukatekjur, og sanngjarnt að annað vísitölubúið taki á sig smáskerðingu. sem aukist við hver 50 eða 100 ærgildi og ég sé fulla ástæðu til að þau bú sem eru stærri en tvö vísitölubú, taki alla skerð- ingu sem þá er eftir og þá stighækk- andi. Ef vit á að vera í stjórn kjötframleiðslu, verður sú stjórn að ná yfir alla framleiðsluna þannig að hver kjötframleiðandi fái bú- mark og skipti þá ekki máli hvaða tegund kjöts hann framleiddi. Skerðing framleiðslu á afurðum grasbíta, en láta aðra framleiðslu óhefta, þjónar vafasömum til- gangi. Æskilegt væri að hafa með svæðabúmarki, áhrif á byggðaþró- un, hvernig eða hvort það er framkvæmanlegt er annað mál. Jaðarbyggðir eru og verða unt fyrirsjáanlega framtíð fjarri fóður- stöðvum loðdýra, og eiga ekki völ á þeirri búgrein. Hitt er svo gamalt mál og nýtt að grávöruframleiðsla hefur hingað til verið valtari en flest annað sem íslendingar hafa íengist við. Nú heyri ég í útvarpi og les í blöðum viðtöl við loðdýra- bændur, sem ætla að lifa þetta árið án launa fyrir sína vinnu. Sjálfsagt fer eftir holdafari hvernig það tekst en mín megrun yrði úr hófi ef ég ætti að lifa heilt ár án launa, hvað sem um aðra er. 10.03. H.Þ. 1986. FISKIRÆKT Nýlega var haldin í Reykjavík á vegum Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva fræðslufundur um einstaka þætti í rekstri fiskeldis- stöðva og þjónustu opinberra stofn- ana og fyrirtækja við fiskeldi í fram- tíðinni. Einna athyglisverðast, sem fram kom á fundinum, var hversu skipti í tvö horn um stöðu þessar mála. Annars vegar bjóða margar stofnanir fram samskonar þjónustu. Á hinn bóginn skortir ýmsar grund- vallarrannsóknir í fiskeldinu sjálfu, þó að sumir þættir þess hafi fengið góða kjölfestu, eins og klak-seið- aeldi og hafbeitarstarfsemimeð lax, eins og Kollafjarðarstöðin er ljós vottur um. Haltu mér, slepptu mér Þá kom fram í umræðunni að menn töldu að „kerfið“ eins og afskipti opinberra aðila eða afskipta- leysi er kallað, hafi verið þrándur í götu þessara mála. Þar ber fyrst að nefna skilningsleysi á þörfum þessar- ar nýju atvinnugreinar um fjármagn, bæði til rannsókna og annarrar upp- byggingar fiskeldis. Þá má nefna afskipti, sem fyrst og fremst eru vegna ákvæða laga um hina ýmsu þætti, sem varða fiskeldisstarfsemi beint eða óbeint. Á hinn bóginn kom einnig fram, að menn töldu að eftirlit þyrfti að koma til sögu með fiskfóðri og gæðaeftirlit þ yrfti að vera á seiðaframleiðslunni, sérstak- lega varðandi gönguseiði og önnur seiði, sem ættu að fara í sjókvíar. Sem dæmi um aðila, sem bjóða fram samskonar þjónustu og ráðgjöf. má nefna Iðntæknistofnun, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknarstofnun landbúnaðar- ins, Háskóli Islands, Hafrannsókn- arstofnun og Orkustofnun. Hins vegar eru þessir aðilar einnig með þjónustu á sínu sérsviði, ef svo má segja. Þannig er Orkustofnun sterkasti aðili hérlendis á sviði jarðhita- og vatnsorkumála og hefur í því efni mikla og víðtæka reynslu, eins og kunnugt er. Hjá Iðntæknistofnun eða forvera hennar hefur trúlega lengst verið unnið að efnagreiningu á vatni til klaks- og eldis. Auk þess býður stofnunin fram þjónustu vegna efnagreiningar á fóðri og gæðaeftirlit með þeirri framleiðslu, ráðgjöf í sambandi við eldisker, smíði þeirra og gerð, stýribúnað fyrir eldísstöðvar, reksturinn sjálfan og fleira. Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar- ins getur veitt þjónustu í sambandi við fóður. Forstjóri stofnunarinnar tók þó sérstaklega fram, að ekki yrði látin í té ráðgjöf um fóðrun eða samsetningu fóðurs. Heldur væri þar um að ræða efnagreiningu á fóðri og gæðaeftirlit á fiski. Hið sama má reyndar segja um Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins í Keldnaholti. Fram kom að þessir aðilar hafa haft með sér samstarf á vissum sviðum. Óhætt er að segja, að mestur völlur hafi verið á seinast- nefndu stofnuninni í sambandi við þessi mál, ef marka má það, sem í boði getur verið á sviði rannsókna og þjónustu, ef stofnun fær til þess fjárstuðning. Háskóli íslands hefur í vaxandi mæli haslað sér völl á sviði þjónustu- starfsemi og reynir sífellt að tengjast betur atvinnulífinu. Nýlega var ákveðið í ráði Háskólans að stofna sérstaka rannsóknarþjónustu í þágu atvinnulífsins til að gera hann hæfari til átaka á þessu sviði. Hingað til hafa ýmsar stofnanir á vegum Há- skólans unnið mikilvægt starf í ýms- um greinum m.a. sem tengjast fisk- eldi. Þar má nefna Tilraunastöðina að Keldum, Líffræðideildina og Raunvísindadeild. Líffræðideild býður t.d. fram, að hún geti tekið að sér gæðaeftirlit með seiðaframleiðsl- unni. Hafrannsóknarstofnun býr yfir Fiskeldisstöð íslandslax h.L, Grindavík. (Mynd Einar llunne.ssnn) þekkingu á þeim sviðum, sem varða hafið umhverfis landið, hitastig, seltu, strauma og fleira. Þar er unnt að fá efnarannsóknir, athugun á þörungagróðri og fleira. Veiðimálastofnun hefur það hlut- verk lögum samkvæmt að veita ráð- gjöf og leiðbeiningar á sviði fiskeld- is. Auk þess er í lögum gert ráð fyrir því, að hún veiti fiskeldisstöðvum viðurkenningu, eftir að ákveðnum skilyrðum sé fullnægt. Þessum verk- efnum hefur verið sinnt eftir því, sem frekast hefur verið kostur, og hafa margir leitað til stofnunarinnar eftir slíkri aðstoð, sem áður var nefnd, Laxeldisstöð ríkisins í Kolla- firði hefur verið það tæki, sem veitt hefur þessu starfi aukið gildi. Ljóst er eftir fræðslufund Lands- sambands fiskeidis- og hafbeitar- stöðva að fiskeldismenn hafa aðgang að margvíslegri þjónustu á fyrrgreind- um sviðum og tækniþekkingu í sambandi við hönnun og byggingu fiskeldisstöðva. Um það vitna marg- ar verkfræðistofur, sem eru að sinna þessum málum. Hins vegar er mörg- um spurningum ósvarað um hvernig haga skuli fiskeldisstarfsemi svo að í flestu tilliti sé staðið rétt að málum. Þar koma m.a. við sögu ýmsir líf- fræðilegir þættir í sambandi við hina fjölþættu starfsemi sem fiskeldið er hér á landi. Er sýnt, eins og málin eru að þróast, að viss hluti af upnbyggingu og framtíðaráætlunum fiskeldi kemur til með að byggjast á beinum framkvæmdum án undanfarandi til- rauna og rannsókna. Þannig kemur þekking og reynsla, sem unnt verður að reisa atvinnugreinina á. Hins vegar er ljóst, að íiskeldi þegar til lengri tíma er litið verður að grund- vallast á rannsóknunt. Sú leið, sem nú er farin er tvímælalaust mun dýrari heldur en að leggja fjármagn í grundvallarrannsóknir. En menn láta sig hafa það, að haga málum með þessum hætti. Norðmenn hafa að verulegu leyti hagað vinnubrögð- um í fiskeldinu á þennan hátt, en sú leið er ekki fær til frambúðar, eins og áður greinir. eh

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.