Tíminn - 12.04.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.04.1986, Blaðsíða 5
Laugardagur 12. apríl 1986 ÚTLÓND Samskipti Bandaríkjanna og Líbýu: Vaxandi ólga nú við Líbýustrendur Bandarísk sjónvarpsstöö segir þaö einungis vera spurningu um tíma hvenær sjötti floti Bandaríkjahers gerir atlögu aö skotmörkum í Líbýu Washington-Keuter. Að sögn bandarísku sjónvarps- stöðvarinnar NBC hefur Banda- ríkjastjórn í hyggju að gera „skamm- tímaárásir" á líbýsk skotmörk. Re- agan Bandaríkjaforseti var sagður bíða komu tveggja sinna helstu sam- starfsmanna áður en lokaákvörðun verður tekin um árásina, sem gera á í hefndarskyni vegna grunaðrar þátt- töku Líbýustjórnar í sprengingunum tveimur í Evrópu er ollu dauða fimm Bandaríkjamanna Samstarfsmennirnir tveir, þeir George Bush varaforseti og Caspar Weinberger varnarmálaráðherra, eru báðir væntanlegir til Washington nú um helgina. Stuðningur við hefndaraðgerðir Bandaríkjahers hefur aukist mjög meðal stjórnmálamanna í Banda- ríkjunum nú síðustu daga þó deilur séu uppi hvernig best verði staðið að þeim. Sjötti floti Bandaríkjahers siglir nú að venju um Miðjarðarhaf og eru í þeim hópi tvö flugmóðurskip sem samtals flytja um 170 herflugvélar. Þetta eru skipin „Ameríka" og „Kóralhafið“ og í fylgd þeirra eru ein 30 bandarísk herskip. Sjónvarpsstöðin bandaríska sagði að helstu skotmörkin yrðu fjórir eld- flaugaskotpallar sem eru á Miðjarð- arhafsströnd Líbýu. Einnig áætluðu Reagan og sljórn hans að gera árás á þrjá herflugvelli í Líbýu. Nú er saumað að Gaddafi úr öllum áttum en Líbýuleiðtoginn neitar öllum tenglsum við sprengjutilræði þau semvaldið hafa dauða fimm Bandaríkjamanna í Evrópu. Gaddafi er meinilla við starfsemi sjötta flota Bandaríkjahers (innfellda myndin) á Miðjarðarhafi og lái honum það enginn. Bretland: HEATHROW TIL SÖLU Helstu flugvellir landsins verða seldir einkaaöilum Lundúnir-Reuter Breska þingið samþykkti nú í vikunni tillögu sem heimilar ríkis- stjórninni að selja sjö helstu flugvelli Bretlands til einkaaðila. ÓÞÆGUR ÞUMALL Hong Kong-Reuter Maður einn frá Hong Kong hefur kennt þumalfingri hægri handar sinnar um endurteknar og ósæmandi árásir sínar á bak- hluta kvenfólks. Að sögn manns- ins hefur hann ekki getað stjórn- að þumalfingri sínum síðan hann var barn að aldri. Hinn 33 ára gamli Cheung Yun-Fuk sagði fyrirrétti í vikunni að hann hefði aldrei náð stjórn yfir hægri þumalfingri sínum ag því hefði það ekki verið hans sök er hann kleip í afturenda konu einnar á degi heilags Valentínus- ar. Cheung kleip konuna eftir að hafa hjálpað henni út úr leigubíl. Útskýring Cheungs kom hon- um þó að litlu gagni í réttarsaln- um og reyndar þótti Michael Hill dómara lítið til sögu hans koma. Hill dæmdi Cheung í níu mánaða fangelsi eftir að hafa heyrt að hann hefði áður klipið þessa sömu konu í bakhlutann og reyndar komið sex sinnum fyrir dómstól vegna svipaðs athæfis. Stjórnvöld vonast eftir að fá sem samsvarar um 290 milljörðum ís- lenskra króna í sinn hlut með því að selja bresku flugvallarstofnunina (BAA) til einkaaðila. Þingsályktunartillagan sem sam- þykkt var gerði ráð fyrir að BAA yrði selt sem eitt fyrirtæki og væru eigendurnir ábyrgir fyrir rekstri flug- vallanna. Meðal þessara flugvalla eru Heathrow og Gatwick sem báðir þjóna Lundúnum. Pravda, daglað sovéska kommún- istaflokksins, kom út í fyrsta skipti í gær á þýsku. Blaðið kom út vafið í pappír með auglýsingu frá banda- rískum sígarettuframleiðanda. Blaðið kostar sem samsvarar sex- tíu krónum og er því fjórum sinnum dýrara en vestur-þýsk dagblöð. Áður hefur blaðið komið út á frönsku og ítölsku í löndum Vestur- Evrópu. „Seljist blaðið jafnvel og í Frakk- landi og á Ítalíu getum við grætt á útgáfunni,“ sagði Manfred Klutm- ann sem ábyrgur er fyrir þýsku útgáfunni. Nicholas Ridely samgöngumála- ráðherra sagði neðri deild þingsins að reglur um verðlag kæmu í veg fyrir að minni flugvellir yrðu undir í samkeppninni en það hefur verið áhyggjuefni margra eftir að fréttist af væntanlegum einkarekstri. Margrét Thatcher og ríkisstjórn hennar hafa haft það að einu helsta markmiði sínu að koma þjóðreknum fyrirtækjum í einkaeign og er flug- vallasalan þáttur í þeirri viðleitni. Klutmann sagði fyrirtækið Societe Mega Medias í París, sem gefur út allar vestur-evrópsku útgáfurnar, hafa átt viðræður við yfirvöld í A-Þýskalandi um að fá að selja þýsku útgáfuna á þarlendum blað- sölustöðum. Hið þýska Pravda í gær var í rauninni þýðing á sovéska eintakinu frá 18. mars síðastliðnum og var þar meðal annars grein um fimm ára áætlunina á forsíðunni, gagnrýni á afvopnunartillögur Bandaríkja- stjórnar og veðurspáin fyrir Moskvuborg 18. til 20. mars-skýjað en þurrrt. Pravda vinsælt í Vestur-Evrópu Kom út á þýsku í fyrsta skipti í gær Bonn-Reuter Tíminn 5 Fargjaldastyrkur Bæjarsjóöur Hafnarfjaröar tekur þátt í fargjaldakostnaðir nemenda úr Hafnarfirði, sem stunda nám í framhalds- og sérskólum á höfuðborgarsvæöinu, utan Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Rétt á fargjaldastyrk eiga þeir sem stunda nám í framhalds- og sérskólum, þar sem námiö stendur yfir a.m.k. eitt skólaár og lýkur með prófi. Miðað er við fullt nám. Nemendum er bent á að snúa sér til bæjarskrifstofunnar, Strandgötu 6 og fá þar umsóknareyðublöð, sem fylla þarf út og fá staðfest hjá viðkomandi skóla. Umsóknum um fargjaldastyrk fyrir vorönn skal skila eigi síðar en 5. maí 1986. Sérstök athygli er vakin á breyttum úthlutunarreglum. Nýjar reglur liggja fram á bæjarskrifstofunni, Strandgötu 6, 2. hæð. Bæjarritarinn í Hafnarfirði Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Droplaugarstaðir heimili aldraðra, Snorrabraut 58 Starfsfólk óskast til sumarafleysinga: Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á hjúkrunardeild heimilisins Starfsfólk í eldhús, ræstingu, þvottahús o.fl. Sjúkraþjálfara í 2-3 mánuði Lausar stöður frá og með 1. maí 1986: Hjúkrunarfræðings á vistdeild, dagvinna virka daga. Skrifstofumanns, 75% starf Upplýsingar gefur forstöðumaður á staðnum eða í síma 25811 á skrifstofutíma, virka daga. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Staða yfirljósmóður á Fæðingadeild er laus til umsóknar Staðan er laus frá 1. júlí nk. Umsóknarfrestur er til 15. maí 1986. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96-22100. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri Reykjavík í myndlist sýning á Kjarvalsstöðum á Listahátíð 1986 Stjórn Kjarvalsstaða býður starfandi myndlistar- mönnum að taka þátt í sýningunni, sem haldin er í tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Óskað er eftir listaverkum þar sem Reykjavík er yrkisefnið eða fyrirmyndin. Móttaka listaverka verður á Kjarvaisstöðum mánudaginn 21. apríl n.k. kl. 10:00 til 18:00. Æskilegt er að hver listamaður afhendi dómnefnd þrjú til fimm verk. Sýningin verður í vesturhelming Kjarvalsstaða í júní og júlí í sumar, samtímis sýningu á verkum Picasso, sem verður í Kjarvalssal. Kjarvalsstöðum, 11. apríl 1986 Til sölu Ford 3600 dráttarvél árg. 79, Nalli 62 hö„ rúllubindivél, sturtuvagn. Sekurasnjóblásari, heytætlaog ýmsaraðrarheyvinnuvélar. Ennfrem- urkelfdarkvígur. Óskasttil kaups: K.R. baggatína.færiband, þrískera plógur og þriggja fasa rafmótor 13-18 hö. Upplýsingar í síma 96-43607 og 96-43635

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.