Tíminn - 12.04.1986, Blaðsíða 12
12Tíminn
SLYSAVARNA
FÉLAG
ÍSIANDS
iiijn
I BÚÐAHAPPDRÆTTI
ÍBÚÐAVINNINGAR KOMU
Á EFTIRTALIN NÚMER:
11231 117336 132917 146387
187263 190464 199381
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
A
Kópavogsbúar
- Kópavogsbúar
Athugiö aö umsóknarfrestur um sumarstörf hjá
Kópavogskaupstaö rennur út mánudaginn
14. apríl
Félagsmálastjóri
Orðsending til félagsmanna
Mjólkurfélags Reykjavíkur
Aðalfundir félagsdeilda
M.R. fyrir árið 1985 verða haldnir
sem hér segir:
Reykjavíkur-, Bessastaöa-, Garða- og
Hafnarfjarðardeildir
Fimmtudaginn 17. apríl kl. 20.30 í skrif-
stofu félagsins Laugavegi 164
Innri- Akraness-, Skilmanna-, Hval-
fjarðarstrandar-, Leirár- og Mela-
sveitardeildir
Föstudaginn 18. apríl kl. 14.00 í
félagsheimilinu Fannarhlíö
Vatnsleysustrandar-, Gerða- og
Miðnesdeildir
Laugardaginn 19. apríl kl. 14.00 í
Iðnsveinafélagshúsinu Tjarnargötu 7,
Keflavík.
Mosfells- og Kjalarnesdeildir
Mánudaginn 21. apríl kl. 15.00 í
félagsheimilinu Fólkvangi, Kjalarnesi.
Suðurlandsdeild
Miðvikudaginn 23. apríl kl. 14.00 aö Ing-
hóli, Selfossi
Kjósardeild
Föstudaginn 25. apríl kl. 14.00 í
félagsheimilinu Félagsgaröi
Aðalfundur Félagsráðs
verður haldinn laugardaginn 3. maí að
Hótel Sögu og hefst kl. 12.00 á hádegi.
Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur
Laugardagur 12. apríl 1986
llllllllllllllllllllillllll SKÁK lllllllllllllllllllllllllillllll^
Smejkal hinn opinberi
sigurvegari á stór-
mótinu í New York
Séð yfir einn fjölmargra keppnissala í New York. Þarna fóru síðustu
umferðimar fram. Ef grannt er skoðað má þekkja margan þekktan kappann.
Lombardy, Suszu Polgar, Jón L., Karl, Sosonko, Alburt, Larsen, Ftacnik
og ýmsa fleiri.
fslenskir skákmenn settu nýtt að-
sóknarmet á opna New York mótið
sem lauk í upphafi þessarar viku.
Við vorum fjórir sem stefndu skón-
um á heimsborgina, auk undirritaðs
þeir Margeir Pétursson, Jón L.
Árnason og Karl Þorsteins. Tæplega
100 skákmenn tefldu í efsta flokki en
hátt á annað þúsund keppendur
hófu taflmennsku í flokkunum sjö.
Keppnin í efsta flokki vakti að
'vonum mesta athygli en staðreynd-
in er sú að í raun og veru er oft ekki
minni von í verðlaun í neðri flokkun-
um enda er það þekkt fyrirbæri í
bandarísku skáklífi að tiltölulega
sterkir skákmenn kalla fram á sjálf-
um sér stórkostlegan niðurskurð
skákstiga með afleitri frammistöðu í
einu móti og fá þannig að tefla í
neðri flokkum og sitja þar að hinum
ágætustu verðlaunum.
Efsta flokknum svipaði mikið til
síðasta Reykjavíkurmóts. Stiga-
mörkin voru þau sömu, 2400 Elo-stig
og þar yfir, en þeir sem voru á milli
2200-2400 stig gátu einnig fengið að
vera með með því að greiða himinátt
þátttökugjald.
Nokkra góða gesti úr síðasta
Reykjavíkurmóti mátti finna í
hópnum. Fyrstan skal telja Bent
Larsen og flestir bandarísku stór-
meistararnir voru þarna með, Florin
Gheorghiu kom beint frá Lugano
þar sem hann lenti fæstum á óvart í
hinu magnaðasta deilumáli. Austan-
tjaldsþjóðimar mættu betur á þetta
mót ef Sovétmenn eru undanskildir.
Tékkar skörtuðu sínum bestu mönn-
um Ftacnik og Smejkal, Júgóslavar
áttu nokkra fulltrúa og frá Ungverja-
landi kom hinn harðskeytti Guyla
Sax.
Mér þótt sýnt að affarasælast væri
að tefla ekki á neina tvísýnu og kom
á daginn að þétta mat reyndist rétt
þó ef til vill hafi ég gengið of langt í
varkárninni. Eftir sex umferðir var
ég einn efstur með fjórum öruggum
sigrum og tveimur jafnteflum. í
sjöttu umferð mætti ég einhverjum
eftirtektarverðasta keppanda
mótsins, Jay Bonin. Hann hafði þá
unnið stórmeistarana Alburt og
Gheorghiu með laglegum fléttum og
einnig sigrað landa sinn Kogan og
gert jafntefli við Benjamin og De-
Firmian. Lagleg flétta í hróksenda-
tafli gerði út um taflið í þessari skák:
B
11 1
■ B 0 111
A 1
11
1 ■
Helgi-Bonin.
Hvítur stendur augljóslega betur
þar sem peð hans eru komin lengra
og hrókurinn sker svarta kónginn.
Þar sem samgang vantar milli peð-
anna getur verið erfitt að vinna.
Staðan er þó unnin en vinningsleiðin
er þó fremur vandfundin en jafn-
framt lærdómsrík.
47. Ke6 He2t
48. Kf5 Hf2t
49. Kg6 Hg2t
50. Kh7!
(Lykilleikurinn, h6 - peðið skýlir
kónginum. Nú er d - peðið hvíta þess
albúið að taka á rás.)
50. .. Hd2
(50. - Hf2 kom einnig til greina en
hvitur vinnur eftir 51. d6! Hxf6 52.
Ha8t Kf7 53. d7 o.s.frv.)
51. d6!
(Kjarninn í áætlun hvíts. Svartur á
ekkert betra en að taka peðið).
51. .. Hxd6
52. Kg6
- og hér lagði svartur niður vopnin.
52. -Ke8 er best svarað með 53. Kg7
og 52. - Hd8 strandar á 53. Hh7!
o.s.frv.
f lokaumferðunum gerði ég þrjú
stutt jafntefli og deildi þriðja sætinu
með Federowicz, Barlov og Djuric.
Sax og Smejkal náðu að sigra í
síðustu umferð en sennilega hefðu
þeir báðir samið jafntefli í síðustu
umferð hefði Benkö ekki hafnað
jafntefli gegn Sax í mjög tvisýnni
stöðu. Þeir hlutu því 7 vinninga en
við 6Vi. Daginn eftir tefldu þeir
léttar skákir um hver yrði hinn
opinberi sigurvegari New York-
mótsins og varð Smejkal hlutskarp-
ari.
Umsjón:
Helgi Ólafsson
stórmeistari
Jón L. Ámason náði 6 vinningum
með góðum endaspretti, sigmm í
tveim síðustu umferðunum. Tafl-
mennska hans var með nokkuð svip-
uðum hætti og á Reykjavíkurmót-
inu, mjög góð á köflum en gloppótt
inn á milli.
Margeir Pétursson hlaut 5V5
vinning. Á viðkvæmu augnabliki í
mótinu tapaði hann óverðskuldað
og náði sé ekki á strik eftir það þó
frammistaða hans geti talist sómas-
amleg.
Karl Þorsteins hlaut 5 vinninga.
Eftir sjö umferðir hafði hann hlotið
4Vi vinning en fékk afar harðsnúna
andstæðinga í tveim síðustu umferð-
unum, þá Alburt og Aforjan.
Þeir þremenningamir tefldu ekki
af því öryggi sem þarf til að ná einu
af efstu sætunum. Eitt tap er stóri
dómur fyrir mönnum í svo stuttu
móti. Því til staðfestingar má benda
á þá staðreynd að aðeins Djuric
tapaði skák af sex efstu mönnum.
En koma tímar. Ekki var að heyra
annað en að menn hefðu fullan hug
á að mæta aftur til New York að ári.
Karpov sigraði
glæsilega í Brússel
Þrátt fyrir hrakspár ýmsar er ljóst
að fyrmm heimsmeistari í skák,
Anatoly Karpov er ekki af baki
dottinn og er í raun til alls líklegur í
komandi einvígi við Kasparov í
sumar. Um síðustu helgi lauk í
Brússel geysisterku 12 manna móti
sem fjármögnunarfyrirtækið SWIFT
stóð fyrir. Karpov var þar í féiags-
skap þekktra stórmeistara eins og
Viktor Kortsnoj, Jan Timman, Yass-
er Seirawan, Oleg Romanishin, Lu-
bomir Ljubojevic svo nokkur nöfn
séu nefnd, og hann sigraði með
miklum glæsibrag, hlaut 9 vinninga
úr 11 skákum og varð 2 vinningum
fyrir ofan næsta mann, Viktor
Kortsnoj.
Karpov er sennilega einn mesti
mótaskákmaður allra tíma en hann
getur hinsvegar ekki státað af mörg-
um sigrum í stíl Fischers og Kaspar-
ovs sem höfðu það fyrir sið, einkum
sá fyrmefndi, að rúlla upp mótum
með óheyrilegum yfirburðum. Þvert
á móti hefur Karpov látið sér nægja
nauma sigra, sjaldnast hefur munað
meira en Vi til einum vinningi á
honum og næstu mönnum.
Það leit heldur ekki út fyrir að
Karpov myndi stinga aðra keppend-
ur af. Eftir fimm umferðir hafði
hann aðeins hlotið 3 vinninga. Mikla
athygli vakti viðureign hans í 3.
umferð við Hollendinginn Van der
Wiel. Byrjunarleikimirféllu þannig:
Hvítt: Karpov. Svart: Van der Wiel
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rc6 5. Rb5 d6 6. c4 Rf6 7. Rlc3 a6
8. Ra3 d5 (Leikur Kasparovs í
einvíginu sl. haust) 9. exd5 exd5 10.
cxd5 Rb4 11. Be2 Bc5 12. Be3!
Mögnuð endurbót sem Karpov fann
of seint þegar hann tefldi við Kaspar-
ov. Eftir 12. - Bxe3 13. Da4f! er
svartur í raun glataður. Van der
Wiel reynd 13. - Rd7 14. Dxb4 Bc5
og tókst flestum til mikillar undrunar
að hanga á jafntefli. En varla reynir
Kasparov aftur þennan sama leik. Á
tímabilinu 1.-5. umferð tókst Karp-
ov að vinna Timman í 105 leikjum
en frá og með sjöttu umferð var
hann hinsvegar óstöðvandi, vann
allar þær skákir sem eftir vom.
Dæmigerður var sigur hans yfir Lju-
bojevic í 6. umferð:
Hvítt: Karpov. Svart: Ljubojevic.
Frönsk vöm.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5
Rfd7 5. c3 c5 6. f4 Rc6 7. RdO Db6
8. g3 a5 9. a4 cxd410. cxd4 Bb4t 11.
Kf2 g5 12. h3 f613. Be3 0-014. Hcl
Hf7 15. Hh2 Bf8 16. Dd2 Db4 17.
Dxb4 axb4 18. b3 Ra5 19. Hbl gxf4
20. gxf4 Bh6 21. Bd3 b6 22. Hg2-Kh8
23. Re2 Ba6 24. Bxa6 Hxa6.
u
1 4 1 1 i
I ■I i 1 1
'M i 01 1
& ■ 101 0
1111 A III H 11 A
1 111 Ós 3 n 11
1 5 11111 1
25. f5 Bxe3 26. Kxe3 b5 27. axbS
Hb6 28. Hbgl hS: 29. Rf4 Cxe5 30.
Rg6t Kh7 31. Rg5t Kh7 32. Rxe5
Rxe5 33. Rxf7- Kxf7 34. faeS -
Svartur gefst upp.