Tíminn - 12.04.1986, Qupperneq 20
íslandsmótið í vaxtarrækt:
BESTVAXNA
FÓLKIÐ
Sjá nánar á íþróttasíðu
.
Tímirin
Laugardagur 12. apríl 1986
ÞRIGGJA MÁNADA KJARA-
BÓTUM EYTT Á 5 VIKUM
„Kjarabættir“ íslendingar keyptu 1760 nýja bíla á þeim tíma
Þaö tók íslcnska launþcga aðcins
örfáa daga aö „kaupa sér kjarabæt-
ur“ fyrir allar nýfcngnu kjarabæt-
urnar. Á rúmum mánuði (scm
bílaumboðin koma til mcð að
muna cftir) kcyptu þcir alls 1.760
nýja bíla.
Miðað viö aöcins 340 þús. króna
meðalverð á bíl hefur þessi floti
kostað um 600 milljónir króna (700
millj. miðað viö 400 þús. mcðal-
verð). Sú 5% kauphækkun sem
samið var um hcfði átt að skila
öllum íslenskum launþcgum sam-
tals rúmlega 200 milljóna kaup-
hækkun í mars. Þær þreföldum
þessum kjarabótum tókst íslending-
um að cyða í kaup á nýjum bílum
á aöeins 5 vikum, frá 3. marstil 10.
apríl. Samt heyrist að margir bíði
nú eftir nýjum bílum crlendis frá
sem þeir eru búnir aö panta og
jafnvcl borga, cn umboðin hafa
ekki annað að flytja til landsins
ennþá.
Til að nefna íbúðakaupendum
dæmi um stærð upphæðarinnar má
nefna að hér er um a.m.k. 150
millj. króna hærri upphæð að ræða
en þeim tókst að kría út úr Hús-
næðisstofnun í G-lán vegna kaupa
á um 2 þús. íbúðum á öllu árinu í
fyrra. Sjómönnum þykir kannski
fróðlegt að 600 milljónir jafngilda
rösklega þriðjungi af útflutnings-
verðmæti allra sjávarafurða á álíka
löngu tímabili.
Fyrstu þrjá mánuði ársins 1985
keyptu íslendingar aðeins 1.239
nýja bíla og voru ekki komnir í
nema 3.087 á miðju ári. Fimm
vikna sala nú slagar því vel upp í
hálfs árs sölu 1985.
En menn hafa ekki aðeins keypt
„nýjar kjarabætur". Á þessum
sömu 5 vikum létu 5.460 manns
skrá fyrir sig bíl hjá Bifreiðaeftirlit-
inu, þar af um 3.400 sem létu sér
nægja að skipta gamla bílnum
sínum fyrir annan væntanlega nýrri
og betri.
Þetta svarar til að um 55 þús.
rnundu kaupa eða skipta um bíl á
einu ári, sem samsvarar meira en
helmingi allra bíleigenda í landinu.
Samkvæmt því ættu fáir að hafa
farið varhluta af þeim „kjarabót-
um“ sem felast í bílakaupum þegar
líður á árið. -ES/HEI
Flak TF-ORM í Ljósufjöllum:
Fjarlægt af
síysstaðnum
- ef veður leyfir
Þrettán manns frá Flugbjörgunar-
sveitinni í Reykjavík ætla að freista
þess að ná flaki TF-ORM úr Ljósu-
fjöllum af slysstað í dag. Veður á
staðnum mun þó ráða úrslitum um
hvort reynt .erðurað fjarlægja flug-
vélarflakið.
Ingvar Valdimarsson formaður
Flugbjörgunarsveitarinnar í Rcykja-
vík hefur yfirumsjon með aðgerðinni
og sagði hann að fyrirhugað væri að
fara mcð snjóbíl sveitarinnar upp að
flakinu og nota hann til þess að slaka
því niður. Þetta er sami snjóbíllinn
og kom fyrstur að flakinu þegar
leitað var að því. „Þegar komið
verður niður á sléttlcndi verður
flakið drcgið frant dalinn alveg niður
að snjólínu. Þar mun þyrla Land-
helgisgæslunnar taka flakið í þrcmur
pörtum og flytja það niður á veg,“
sagði Ingvar.
Vélin verður síðan flutt á vörubíl
til Reykjavíkur þarsem rannsóknar-
nefnd flugslysa mun hefja rannsókn
á flakinu.
Snjóbíll þeirra llugbjörgunar-
sveitarmanna hefur enn ekki hlotið
nafn, en nú hefur verið auglýst eftir
hugmyndum. Þeir sem hafa hug-
myndir um hentugt nafn geta haft
samband við Flugbjörgunarsveitina.
-ES
Fyrsti okurdómurinn:
Skatturinn fylgist
með framtalsskilum
Verkfall
Jóhannes Stefánsson framkvæmdastjóri Veitingahallarinnar varð sjálfur að vaska upp í gærdag. Ófaglært
starfsfólk í vcitingahúsum gerði verkfall á hádegi. Hann varð sjálfur að skafa matarleifar af diskunum og hreinsa
til eftir gesti. Verkfallið stendur til hádegis í dag.
Tímamynd: Sverrir
- þeirra sem dæmdir veröa
Skattrannsóknarstjóri mun
rannsaka framtalsskil þeirra 123ja
einstaklinga sem nú eiga yfir höfði
sér dóm vegna okurmálsins. Garð-
ar Valdimarsson skattrannsóknar-
stjóri sagði í samtali við Tímann í
gær að einnig yrði kannað hvaðan
þeir peningar sem voru lagðir í
okurlánastarfsemina, væru
komnir.
Fyrsti dómur í okurmálinu svo-
kallaða var birtur í gær. Það var
Ásmundur Vilhjálmsson bæjarfóg-
eti Akranesi sem kvað upp dóminn
og var hann birtur viðkomandi í
gær. Dómurinn segir að viðkom-
andi skuli greiða 176 þúsund krón-
ur í sekt innan fjögurra vikna, ella
sæta fimm mánaða varðhaldi.
Einnig var hinum dæmda gert að
greiða allan sakarkostnað, sektin
rennur í ríkissjóð.
Fullsannað þótti að viðkomandi
hefði lagt Hermanni Björgvinssyni
til fé, og fengið í kringum fjörutíu
þúsund krónur í vexti umfram það
sem leyfilegt var á þeim tíma.
Sektin sem dæmd var er fjórföld sú
upphæð.
Ásmundur Vilhjálmsson bæjar-
fógeti á Akranesi sagði í samtali
við Tímann f gær að annar dómur
hefði verið kveðinn upp, en þar
sem hann hefur ekki verið birtur
viðkomandi vildi Ásmundur ekki
fjölyrða um efni hans. Ásmundur
vildi ekki láta uppi nafn mannsins
vegna ættingja hans.
Skemmtun í stað basls
Velta þjónustugreina jókst um
rúm 46% milli 1984 og 1985 á sama
tíma og framfærslu- og launavísitala
hækkuðu um 33-34%. Hér er átt við
veitinga-, gisti- og skemmtistaði,
hárgreiðslu- og snyrtistofur, kvik-
myndahús, ljósmyndstofur, efna-
laugar, bílaviðgerðir og fleira.
Þjóðhagsstofnun telur veltu þess-
ara greina hafa numið 9.450 milljón-
um króna á árinu, sem svarar til um
40 þús. krónum á landsmann, eða
um 144 þús. á vísitölufjölskylduna.
Veltuaukningin umfram verðlags-
hækkanir er um 870 milljónir, eða
um 3.600 kr. á hvern landsmann.
Veltuaukning heildsölu- og
smásöluverslunar varð rúmlega 40%
á sama tíma, samkvæmt söluskatts-
framtölum. Smásöluverslunin er tal-
in hafa velt um 30.890 milljónum
króna á árinu. Það samsvarar um
129 þús. á hvern landsmann eða um
470 þús. á vísitölufjölskylduna (3,66
manns). f því sambandi má nefna að
um helmingur þess sem er í vísitölu-
grundvellinum eru vörur úr smásölu-
verslun þannig að ársgrundvöllurinn
1985 gæti verið um 940 þús. að
meðaltali.
Veltuaukning smásöluverslunar-
innar umfram verðlagshækkanir er
um 1.680 milljónir niilli ára, sem
bendir til um 6 þús. króna aukinnar
neyslu á hvern landsmann.
Velta byggingarvöruverslana
jókst hins vegar aðeins um 26%, eða
verulega minna en verðlagshækkun-
um nam og sala bifreiða og varahluta
aðeins um 17%. Á þessum liðum
hafa landsmenn sparað sér um 900
milljóna króna útgjöld miðað við
1984, eða nær sömu upphæð og þeir
eyddu meira í kaup á þjónustunni en
sem verðhækkunum nam.
-HEI