Tíminn - 11.05.1986, Qupperneq 19
Sunnudagur 11. maí 1986
Tíminn
Rússakeisari mælti svo fyrir
árið 1863 að finnska skyldi vera
jafnrétthátt mál í Finnlandi og
sænska og í kjölfar þess hófst
mikið starf rithöfunda, vísinda-
manna og blaðamanna við að
skapa finnskt ritmál og finnskan
orðaforða í samræmi við kröfur
tímans. Árangurinn varð nú-
tíma finnska sem á orð yfir
„allt sem er hugsað á jörðu“. í
nútíma finnsku finnast varla al-
þjóðleg orð, sem eru oftast þau
sömu í flestum Evrópumálum.
Þannig er háskóli á finnsku ekki
universitet, heldur yliopisto,
sími ekki telefon heldur puhelin,
veitingahús ekki restaurant,
heldur ravintola. Hliðstæður við
þessa málþróun finnast varla í
öðrum málum en íslensku og
hebresku.
Eitt orð í 200 myndum
Finnska hefur atkvæðasam-
setningu, sem gerir það með
öllu ómögulegt að aðhæfa fram-
andi orð, sem ekki passa í bygg-
ingu málsins. Þetta þýðir m.a.
að samhljóðarnir, a,o og u geta
ekki komið fyrir í orðum sem
innihalda samhljóðana y,a og ö.
Aðeins e og i geta komið fyrir í
öllum orðum, burtséð frá því
hvaða sérhljóða aðra þau inni-
halda. Þetta þýðir m.a. að Finn-
ar eiga mjög erfitt með að bera
fram orð eins og olympisk og
dínamýt. Finnar þekkja ekki
hljóð eins og b,f og g í norrænum
málum og þeir eiga erfitt með að
bera fram hljóðið d.
Finnsk nafnorð beygjast í 15
föllum og við hverja fallmynd
má bæta 6 endingum, sem gefa
til kynna eiganda. Þannig getur
hvert finnsk nafnorð birst í yfir
200 myndum. Sagnorð geta haft
mörg hundruð birtingarmyndir.
Nýjar uppgötvanir
um Finna
Gátan um uppruna Finna hef-
ur lengi verið torráðin, en menn
hafa lengi hallast að því að þeir
væru upprunnir í Asíu, en hefðu
á aldalöngu flökkulífi blandað
blóði við germanskar og norræn-
ar þjóðir, jafnt í hvílum sínum,
sem á vígvöllunum. En nýjar
uppgötvanir erfðafræðinga hafa
sýnt fram á að þeir eru dæmi-
gerðir Evrópumenn.
Fyrir 5 árum voru gerðar
rannsóknir á blóðflokkum
Finna, Eistlendinga og Letta.
Niðurstöðurnar urðu þær að
þessar þjóðir höfðu sérstaka eig-
inleika sameiginlega, sem hrein-
iega fundust ekki í öðrum Evr-
ópuþjóðum. 25-50% hins
„erfðafræðilega arfs“ Finna er
af baltneskum uppruna. Rann-
sóknunum er ekki lokið, en nú
giska menn á að Finnar séu
25-50% baltneskir, 25% síber-
ískir og 25-50% germanskir.
Norðurlandabúar sem ferðast
um Finnland, jafnvel hina mest
finnsku hluta þess, þar sem þeir
skilja ekki eitt einasta orð í
tungumálinu, geta því eigi að
síður verið vissir um það að þeir
eru innan um frændur sína, að
einum fjórða eða allt upp í 50%.
Byggt á Illustreret videnskab.
Grísk-orþódoxa kirkjan i Helsinki.
Nýjar myndir frá
myndböndum
Stórgóð fjölskyldumynd
með Mickey Rooney
Kom út 9. maí.
PHI7/TS HONOR
SGnit,;:.>u:K KXfVUHS Vi ilM'.l', • MHföfólliiií]
Mttv M.i.V .ViííTtí itt.vrr.,. ..rílt é'.^atth', VV'/,!.■})HÍÍ't'íM i\\ '<\K
st t,«uj.v.y ív\i;t rhapíi
Foui. !(.<• »t.,v.<t I.X !<i< .'MAtfiMKATv t.V l’.x..i.;< tsH.y joiix Httti'A?AN
ffy !»«»-1..; in »HiS Ht »N -
\\V Vti»ni>\ PþTÍ'UFS Tt.'.ví,!'-,
V T *U\ HtfliÁiAN Hi<»»! VTJ*)X
,tt 't ÞtttN tltS'PtV i-'jt.M-
Ný mynd, tilnefnd
til 8 óskarsverðlauna.
Kemur út 16. maí.
Mini serían
Stórkostleg mynd sem heldur
uppi spennu frá upphafi til
enda. Kemur út 15. maí.
myndbönd, Bíldshöfða 18
Símar: 686545 - 687310