Tíminn - 24.10.1986, Side 3
Miðvikudagur 22. október 1986
Tíminn 3
15. þing Sjómannasambandsins:
Kostnaðarhlutdeild útgerðar
komi aftur til hlutaskipta
- er aðalkrafa í komandi samningum, segir Óskar Vigfússon
„Af þeim kostnaðarhlut sem tek-
inn var framhjá skiptum á árinu 1983
hefur litlum hluta verið skilað til
baka inn í hlutaskiptin. Nú í dageru
13% af brúttóverði enn tekin
framhjá skiptum af þeim kostnað-
arhlut sem tekinn var með lögum
1983.
í Ijósi breyttra aðstæðna hlýtur
því aðalkrafa komandi samninga að
vera að sjómenn fái hlutdeild í
batnandi afkomu útgerðar með því
Leikfélag Akureyrar
frumsýnir Marbletti:
Finninn Einar Jón og íslendingurinn, María Árnadóttir hittast á Norður-
landaráðsþingi Mynd: HÍÁ
að endurheimta hluta af því sem
áður hefur verið af þeim tekið. Þetta
þing hlýtur því að móta þá stefnu
sem höfð verður að leiðarljósi í
þessum efnum í komandi samning-
um.“ Þetta sagði Óskar Vigfússon
formaður Sjómannasambands ís-
lands í setningarræðu sinni á 15.
þingi Sjómannasambandsins, sem
hófst í gær.
Þau lög sem formaðurinn er hér
að vitna til eru lög urn sérstakan
29% kostnaðarhlut, sem útgerðin
fékk af fiskverði og kom ekki til
skipta. Þegar þessi lög voru sett var
vísað til erfiðrar stöðu útgerðarinn-
ar, einkum ntikils olíukostnaðar. Á
dagskrá þingsins í gær voru til um-
ræðu kjaramái og kom þar fram sú
almenna skoðun að sjómenn hafi
með þessum kostnaðarhlut verið
látnir greiða með launum sínum
hluta af vanda útgeröarinnar, sem
hafi vcrið slæmt 1983, en sé orðið
gjörsamlega óþolandi í dag þegar
hagur útgerðarinnar hefur vænkast
mjög. Umræðan um kjaramúl var
mjög fjörug og kom m.a. fram
tillaga um uppsagnarfrest sjómanna
og rædd voru drög að kjaramála-
ályktun þingsins. í þeim drögum er
að finna kröfur um að komið verði
á staðgreiðslu á sköttum, leiðrétt-
ingu á aflahlut sjómanna á frystiskip-
um, frítt fæði fyrir sjómenn og lýst
er yfir stuðningi við kröfur far-
manna, auk aðalkröfunnar um að
sjómenn fái sinn hlut í kostnaðar-
hlutdeildinni. Benda sjómenn jafn-
framt á að ótækt sé að ríkisvaldið
fari að innheimta af útgerðinni 600
milljón króna olíuskatt úður en sjó-
menn fái til baka sinn hlut í kostnað-
arhlutdeild og njóti þannig fyrstir
batnandi hags útgerðar.
Af öðrum ntálum en kjaramálum,
sem rædd voru á þinginu í gær bar
einna hæst umræður um öryggis- og
tryggingamál, en jafnframt voru á
dagskrá umræður um fyrirhugaðar
breytingar á Rikismati sjávarafurða
og stofnum fiskmarkaðar.
Við þingsetninguna í gærmorgun
ávörpuðu sérstakir gestir þingið, en
þeir voru Halldór Asgrímsson sjáv-
arútvegsráðherra, Ásmundur Stef-
ánsson forseti ASÍ og Harald Hols-
vik framkvæmdastjóri Farmanna- og
fiskimannasambandsins.
í dag verða nefndarstörf og Jón
Sigurðsson forstööumaður Þjóö-
hagsstofnunar mun flytja erindi.
Þinginu lýkursíðan á morgun. -BG
Akureyringar
hnekkja
heimsmeti
í neikvædni
- og gera upp við ’68
kynslóðina
Frá fréttaritara Tímans á Akureyri, Halldóri
Inga Ásgeirssyni.
í kvöld klukkan 20.30 frumsýnir
Leikfélag Akureyrar revíukabarett-
inn Marbletti eftir hina og þessa. Að
sögn Péturs Einarssonar leikstjóra,
þýðanda, höfundar, leikmynda- og
búningahönnuðar Marbletta er
verkið tilraun til að leysa stærstu og
erfiðustu vandamálin sem sífellt eru
að þvælast fyrir okkur í daglega
lífinu.
Marblettir leysa m.a. vandamál
þeirra karlmanna sem orðið hafa
undir í jafnréttisbaráttunni. Kynnt
eru störf Norðurlandaráðs og hvað á
sér í rauninni sér stað á Norður-
landa-þingum. Marblettir innihalda
uppgjör við ’68 kynslóðina, nýja
útgáfu af Nallanum auk þess sem
heimsmetinu í neikvæðni er hnekkt.
Marblettir „tipla“ varfærnislega á
þeim vandamálum sem upp geta
komið í rúminu.
Pétur sagði að Marblettir væru að
miklu leyti þýðing og staðfæring á
revíunni Morkis eftir Finnann Bengt
Alfors. Mörgu hefði orðið að sleppa
vegna þess að það ætti ekki erindi til
íslendinga vegna sérstöðu. Þess í
stað hafa þeir Pétur Einarsson og
Kristján frá Djúpalæk samið leik-
þætti og söngva sem frekar ættu að
höfða til fslendinga.
Hlutverk í Marblettum eru fjöl-
mörg og eru þar leikararnir Marta
Árnadóttir, Einar Jón Briem, Skúli
Gautason, Marínó Þorsteinsson,
Inga Hildur Haraldsdóttir og Sunna
Borg sem skipta þeim bróðurlega á
milli sín. Aðalheiður Þorsteinsdóttir
annast undirleik, lýsingu hannar
Ingvar Björnsson, Hallmundur
Kristinsson smíðar leikmynd og
Freygerður Magnúsdóttir sá um
búninga.
,0-5 dyra - 5 gíra
Verð kr. 569.000.-
E3IMISSAN
NISSAN
AÐEINSÆTLAÐUR'
(Og þeir sem eru ekki vandiáiir fyrj\,
verða það eftir að hafa ekið j
NISSAN BLUEBIRD)