Tíminn - 25.04.1987, Síða 3
Laugardagur 25. apríl 1987
Tíminn 3
Þrjú hundruð hross
send með leiguskipi
-til Noregs, Danmerkur og Belgíu og Frakklands
Um 300 íslenskir hestar, flestir
þeirra reiðhestar, voru ferjaðir um
borð í skip í Þorlákshöfn í gær.
Skipið siglir með hestana til Fred-
rikstað í Noregi, Esbjerg í Dan-
mörku og Gent í Belgíu. Búvöru-
deild SIS tók erlent skip á leigu til
þessara flutninga og er skipið sér-
staklega hannað til gripaflutninga.
Að sögn Magnúsar G. Friðgeirs-
sonar koma hestarnir alls staðar að
af landinu og nokkrir þeirra séu
mjög góðir reiðhestar. Meðalverð
fyrir alla hestana er á bilinu 70 til 80
þúsund en inn í þeirri tölu eru um 65
sláturhross sem lækka meðaltals-
töluna talsvert.
Sláturhrossin fara öll til hafnar í
Belgíu. Nokkrir reiðhestar fara til
hafnar í Belgíu en áfangastaður
þeirra er síðan Frakkland.
Þetta mun vera stærsti reiðhesta-
farmur sem hefur verið sendur út í
einu, en Magnús sagði að áætlað
væri að senda annað skip með haust-
inu og í raun væri ætlunin að senda
tvö skip á ári að jafnaði, það fyrra
að vori en hið seinna að hausti.
„Þetta hefur verið að vaxa nokkuð
núna en hrossasala var nærri fallin
niður vegna þess að flutningsleiðir
voru svo dýrar. Islensk fæddu hross-
in voru orðin of dýr miðað við þau
hross sem fædd voru erlendis. Við
fundum leið fyrir tveimur árum síð-
an með því að leigja svona skip því
með því lækkar flutningskostnaður-
inn umtalsvert. Til þess að það gengi
upp að leigja svona skip þurfti að
senda bæði sláturhross og reiðhesta
með sömu ferðinni. Með þessu sam-
starfi við Félag hrossabænda hefur
okkur tekist að auka þessi viðskipti
töluvert á síðustu árum", sagði
Magnús.
Um 0,65% hækkun
byggingarvísitölu
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkaði aðeins um 0,65% milli
mars og apríl, sem jafngilda mundi
um 8% verðbólgu á heilu ári. Um
helmingur hækkunarinnar stafaði
af taxtahækkunum pípulagningar-
og dúklagningarmanna en hinn
helmingurinn af verðhækkunum
byggingarefnis.
Hækkun byggingarvísitölu og
lánskjaravísitölu síðustu 3 mánuði
svarar til um 16-18% verðbólgu á
heilu ári. Lánskjaravísitalan fyrir
maí verður 1662 sem er 1,16%
hækkun milli mánaða, en 3ja mán-
aða hækkun er tæplega 4,3%. Báð-
ar hafa þessar vísitölur hækkað í
kringum 16% á síðustu 12 mánuð-
um.
-HEI
NISSAN
SUNNY
Voru á gangi
til byggða
Mennirnir tveir sem björguðust
þegar lítil eins hreyfils flugvél nauð-
lenti í Smjörfjöllum á áttunda tíman-
um á miðvikudagskvöldið, voru á
gangi til byggða, þegar TF-SIF,
þyrla Landhelgisgæslunnar fann þá
tæpa tvo kílómetra frá slysstaðnum.
Það var klukkan 19.33 sem flug-
maður vélarinnar TF-KEM tilkynnti
Flugmálastjórn að upp væri komin
hreyfilbilun og örfáum mínútum síð-
ar heyrði Fokkervél Flugleiða dauft
neyðarkall, sem álitið var að væri frá
vélinni og var þá strax hafin leit.
Hafði vélin þá nauðlent í Smjörfjöll-
um, milli Vopnafjarðar og Hérðas-
flóa. Halldór Bergsson, flugmaður
og Hannes Snorri Helgason, starfs-
maður RARIK höfðu þá sloppið
ómeiddir og voru á leið til byggða,
þegar þeir fundust, eins og áður
hcfur komið fram.
Nokkrar skemmdir urðu á vélinni,
kannski ekki að furða, þar sem
frekar grýtt er í Smjörfjöllum. Mesta
mildi var samt að ekki skyldi verr
fara. -SÓL
54ra manna dómnefnd bílagagnrýnenda
í Japan kaus einróma
NI5SAN 5UNNY
BÍL ÁRSINS 1987
Bílasýning
laugardag og sunnudag kl. 14-17
Sýningin Sumariö 78:
Trodið hús
frá opnun
Garðurinn vekur mesta athygli
„Það er eins og fólk flýi til okkar
í veðrinu. Þetta var stórkostleg
byrjun. Það voru yfir 4.000 manns á
opnunardaginn" sagði Guðmundur
Jónsson, framkvæmdastjóri sýning-
arinnar Sumarið ’87 aðspurður um
hvernig sýningin gengi.
„Fólk er mjög hrifið af garðinum,
en hefur náttúrlega mismunandi
áhugamál. Einnig var mikið staldrað
við hjá ferðaskrifstofunum. Hermir-
inn hafði ekki við, honum lá við að
springa," sagði Guðmundur enn-
fremur.
Sýningin opnar í dag kl. 13.00 og
verður opin til kl. 22.00. Miðaverð
fyrir fullorðna er kr. 300 og 200 fyrir
börn.
Skemmtiland verður að sjálfsögðu
opið og tískusýningar verða í dag kl.
14.30, 18.00 og 20.30. -SÓL
Vinnuþjarkur sem kann sitt fag
Vorum að fá NISSAN 1200 Pick-up, Long body
á frábæru verði
★ Fisléttur í snúningum.
★ Sparneytin vél.
★ Tvöfaldar hiðar á palli.
■II Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni
tvj 1957-1987N/
% 30 p.