Tíminn - 25.04.1987, Blaðsíða 15
Laugardagur 25. apríl 1987
Tíminn 15
Flugleiðir:
Aldrei fleiri
ferðamöguleikar
Flugleiðir eru nú að setja í gang
splunkunýja sumaráætlun sem hefur
það að markmiði að fjölga öllum
ferðum og ferðamöguleikum.
Sveinn Sæmundsson hjá Flugleiðum
sagði að frá og með 8. júní verði
farnar 41 ferð til Akureyrar, til
Egilsstaða verði farnar 17 á viku, 6
tii Hornafjarðar, ferðum til Húsa-
víkur fjölgi mikið, 17 á viku til
ísafjarðar, 2 til Norðfjarðar, 6 til
Sauðarkróks, og 28 til Vestmann-
aeyja.
Ferðamöguleikarnir hafa aldrei
verið fleiri. Boðið er upp á alls kyns
pakka og hægt er að semja um
nánast allar tegundir af hoppum og
stökkum. Sérferðir eru ótal margar
og boðið er upp á hringferðir og
hálfhringi.
Egilsstaðir eru nú komnir í beint
samband við útlönd, með tengingu
við Færeyjar, Skotland og Noreg.
Austurland býður upp á marga
möguleika og er lítið nýttur landsh-
luti.
Húsavík er lykilstaður á Norður-
landi, t.d. við Ásbyrgi, Dettifoss,
Hljóðakletta og fleiri og fleiri staði.
Hvað sérferðir varðar standa 4
staðir upp úr.
1. Akureyri. Þar eru 4 möguleik-
ar.
a) Mývatnsferð. Hefðbundin ferð
sem allir ættu að þekkja nú orðið.
b) Eyjafjarðarferð. Farið er um
Eyjafjörðinn vestanverðan, komið
við á Dalvík, siglt til Hríseyjar og
snædd Galloway- steik. Farið yfir
fjörðinn til Svalbarðseyrar, farið inn
austanverðan Eyjafjörð og komið til
Akureyrar síðdegis.
c) Miðnætursólarferð. Farið frá
Akureyri til Ólafsfjarðarmúla og
horft á sólarlag. Síðan haldið til
Ólafsfjarðar og drukkið kaffi.
d) Grímseyjarferð. Farið frá
Reykjavík til Ákureyrar, þaðan með
Flugfélagi Norðurlands til Grímseyj-
ar og skoðað.
Akureyrarferðirnar eru skipulagðar
í samvinnu við Ferðaskrifstofu Ak-
ureyrar.
2. Vestmannaeyjar. Þá erfariðfrá
Reykjavík klukkan 8 um morgun-
inn, farið í skoðunarferð um eyjarn-
ar, bátsferð í hellana, smá tími í
bænum og að sjálfsögðu farið í
Sædýrasafnið, safnið sem aldrei
lokar, og lokaði ekki einu sinni í
gosinu 1973. Þessar ferðir eru unnar
í samvinnu við Pál Helgason og
Ferðaskrifstofu Vestmannaeyja.
3. ísafjörður. Farið er með morg-
unvél og dagurinn frjáls til 14.00. Þá
er skoðunarferð um bæinn og síðan
haldið til Hnífsdals og skoðuð hák-
arlskæsing og síðan haldið til Bol-
ungarvíkur. Samvinna er með
Ferðaskrifstofu Vestfjarða.
4. Egilsstaðir. Farið er með morg-
unflugi til Egilsstaða og þaðan í
Hallormsstað. Þar er spásserað og
jafn vel stoppað í Atlavíkinni frægu.
Ekið er í mynni Fljótsdals, út með
Leginum hinum megin, komið í
Skriðuklaustur og farið út Fell og til
Egilsstaða.
Hringflug er nýjung fyrir íslend-
inga, þó erlendir ferðamenn hafi
notfært sér þessa þjónustu Flugleiða.
Hringurinn sem um ræðir er Reykja-
vík - ísafjörður - Akureyri - Egils-
staðir - Flornafjörður - Reykjavík.
Eina skilyrðið er að ekki má líða
meir en 30 dagar frá fyrstu ferð til
hinnar síðustu. Byrja má hvar sem
er og fara hvort sem er réttsælis eða
rangsælis. Hringferðin er ótrúlega
ódýr ferðamáti, kostar aðeins 10.000
krónur.
t samvinnu við B.S.Í. er pakkinn
Flug og langferðabíll. Flogið er aðra
leið og keyrt hina. Staðirnir sem um
ræðir í þessu sambandi eru:
a) Reykjavík - Patreksfjörður.
b) Reykjavík - ísafjörður
c) Reykjavík - Akureyri. Valkostur
er hvort keyrt er hefðbundna leið
eða farið Sprengisand.
d) Reykjavík - Egilsstaðir. Valkost-
ur um suðurleið eða norðurleið.
e) Reykjavík - Hornafjörður. Val-
kostur er um hefðbundna leið eða
Fjallabaksleið.
f) Egilsstaðir - Akureyri.
f þessum ferður eru börn með
50% afslátt og það sama gildir um
þetta og hringferðirnar að ferðin má
ekki taka meir en 30 daga.
Mikil aukning hefur orðið á
ferðamannastraumi hér á landi og
má segja að þetta sé einn liður
Flugleiða í að dreifa ferðamönnum
um landið. Margir bjóða upp á
ódýra gistingu út á landi og mikil
vakning er meðal íslendinga. Sveinn
sagði að allar opinberar heimsóknir
væru af hinu góða, því þær væru
mikil landkynning. Okkur væri
nauðsynlegt að hrista af okkur kot-
ungsbraginn og koma okkur inn í
hringiðuna. Hann vitnaði að lokum
í þýskan blaðamann sem sagði: „Þið
íslendingar eruð að tölunni eins og
smábær, en lifið lífinu eins og millj-
óna þjóð“.
-SÓL
Tæknigarði hf. er ætlað að reisa
og reka hús sem hýsir tæknigarð
fyrir rafeinda-, tölvu- og upplýsinga-
tækni. Þetta er meginmarkmið nýs
hlutafélags, Tæknigarðs hf. sem
stofnað var 15. apríl s.l. af Þróunar-
félagi íslands, sem leggur fram 2
milljónir í hlutafé, Reykjavíkur-
borg, sem leggur fram 1 milljón,
Háskóla íslands, sem leggur fram 1
milljón, Tækniþróun hf. sem leggur
fram 750 þúsund og Félag íslenskra
iðnrekenda sem leggur fram 250
Friðarráöstefna Framsóknar:
Friður ekki einkamál
stjórnmálamanna
„Friðarmál eiga ekki að vera
einkamál stjórnmálamanna heldur á
allur almenningur að láta þau sig
varða. Eitt það mikilverðasta í
sambandi við framþróun friðarmála
er friðaruppeldi barna."
Þetta kom meðal annars fram á
friðarráðstefnu sem Framsóknar-
flokkurinn hélt á Hallveigarstöðum
síðastliðinn skírdag.
Erindi á fundinum fluttu:
Guðrún Alda Harðardóttir sem
ræddi um friðarhreyfingar og friðar-
mál almennt.
Sigurhanna Sigurjónsdóttir sem
ræddi meðal annars um friðarupp-
eldi en hún talaði fyrir hönd Friðar-
hóps fóstra.
Steinunn Harðardóttir talaði fyrir
hönd Menningar og friðarsamtaka
íslenskra kvenna og rakti meðal
annars sögu friðarstarfs á íslandi.
Páll Einarsson talaði fyrir hönd
samtaka íslenskra eðlisfræðinga
gegn kjarnorkuvá og ræddi hann
meðal annars um afleiðingar hugsan-
legs kjarnorkustríðs.
Halla Eiríksdóttir talaði fyrir
hönd Framsóknarflokksins og talaði
um friðarmál frá sjónarhóli stjórn-
mála.
Að loknum framsöguræðum var
stutt kaffihlé og síðan almennar
umræður.
Miklar umræður spunnust um
heim andstæðnanna, það er að segja
hinn tilfinningalega- og efnislega
heim sem við lifum í.
Að umræðum loknum fluttu Anna
Pálína og Aðalsteinn nokkur lög við
mjög góðar undirtektir fundar-
manna.
Fundarstjóri var Anna Margrét
Valgeirsdóttir.
þúsund krónur. Hlutafé er því samt-
als 5 milljónir króna.
Hluti hússins verður leigður fyrir-
tækjum á sviði upplýsingaiðnaðar og
tölvutækni. Einnig verður í húsinu
Reiknistofnun Háskólans og fleiri
aðilar sem munu skapa hagstætt
umhverfi fyrir rannsóknir og þróun
á sviði upplýsinga-, rafeinda- og
tölvutækni. Þannig er ætlunin að
mynda sambýli sem stuðli að aukinni
nýsköpun í þessum greinum og verði
til þess að fleiri fyrirtæki verði stofn-
uð á þessum sviðum.
Rekstur hússins verður með nokk-
uð nýstárlegum hætti. Allir sem í
húsinu verða, munu greiða fyrir það
markaðsleigu. Það á jafnt við um
fyrirtækin og stofnanirnar. Leigu-
tekjurnar verða notaðar til að greiða
rekstrargjöld, fjármagnskostnað svo
og stofnkostnað að hluta. Þann hluta
af stofnkostnaði sem tekjur félagsins
hrökkva ekki til, mun Háskólinn
greiða. Þannig mun Háskólinn smátt
og smátt eignast húsið á hagstæðum
kjörum.
Sem fyrr segir er hlutafé félagsins
5 milljónir. Auk þess samþykkti
Reykjavíkurborg að lána allt að 49
milljónum til byggingar hússins. Á
móti munu aðilar atvinnulífsins
leggja fram lánsfé allt að 16 milljón-
um króna, þannig að nægilegt fé er
tryggt til byggingarinnar.
Ráðgert er að reisa húsið á árun-
um 1987 og 1988 og halda byggingar-
tíma eins stuttum og unnt er. Til að
tryggja sem lægstan byggingarkostn-
að og stystan byggingartíma verða
kannaðar nýjar leiðir, eins og t.d.
hvort hagkvæmt sé að bjóða húsið út
í heild, með hönnun og teiknivinnu.
- SÓL
KOSNINGASJÓÐUR
BORGARAFLOKKSINS
Hægt er að senda framlög
á tékkareikning
nr. 1234
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS
LAUGAVEGUR 105 - 105 REYKJAVÍK
BORGARA
HOKKVRINNi
flokkurmeðhamtíó
Sk*Han 7. Póstnr. 106 Rsykjavfk. Slml 01-68 96 29 Nnr. »438-6160
kC
VNNlW
íö
F.v. Guðmundur Magnússon, fyrrverandi Háskólarektor, Víglundur Þor-
steinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda, Ólafur Davíðsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, Davíð Oddsson, borgarstjóri og
Sigmundur Guðbjarnason, Háskólarektor.
TÆKNIGARDUR
HÁSKÓLANS
með 5 milljón króna hlutafé
Verkamanna-
félagið Dagsbrún
Orðsending
TekiÓ'verður á móti umsóknum um dvöl í orlofs-
húsum félagsins í sumar frá og með mánudeginum
27. apríl 1987 á skrifstofu félagsins að Lindargötu
9, 2. hæð. Þeir sem ekki hafa áður dvalið í
húsunum ganga fyrir með úthlutun til og með 30.
apríl.
Húsineru: 5 hús í Ölfusborgum
2 hús í Svignaskarði
1 hús í Vatnsfirði
2 hús á lllugastöðum
2 hús á Einarsstöðum
2 íbúðir á Akureyri
Vikuleiga er kr. 4.000 sem greiðist við pöntun.
Stjórnin
Útboð
Slitlög og yfirlagnir á
Suðurlandi 1987
Vegagerð ríkisins óskar etir tilboðum í ofangreint
verk. »
Klæðing 81.000 ferm. yfirlögn 55.000 ferm. og
hjólfarafylling 31.000 ferm.
Verki skal lokið fyrir 1. september 1987.
VEGAGERÐIN Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með
27. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 11. maí 1987.
Vegamálastjóri
f
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Droplaugarstaðir heimili aldraðra, Snorrabraut 58
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga: Hjúkrunar-
fræðingar og sjúkraliðar á hjúkrunardeild heimilis-
ins. Starfsfólk á vistdeild og í eldhús, ræstingu,
þvottahús o.fl. Upplýsingar gefur forstöðumaður í
síma 25811 milli kl. 9-12 f.h. virka daga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Athugið
Til sölu Benz 913 5 tonna kassabíll árg. '74 góður
bíll á góðu verði ef samið er strax. Upplýsingar í
síma 91-33344.