Tíminn - 08.05.1987, Side 2
2 Tíminn
Föstudagur8. maí 1987
Gert ráð fyrir 85 milljónum til viðgerða á malbiki:
Bróðurpartur skemmda
rakinn til nagladekkja
Ökumenn trassa að setja sumardekk undir bíla
Nú, eftir 1. raaí, er óheimitt að
aka um á nagladekkjum og lögreglan
í óða önn að vara ökumenn við, sem
enn hafa ekki sett sumardekk undir
bíla sína. Óskaplegur fjöldi bílstjóra
í Reykjavík hefur trassað þá sjálf-
sögðu kröfu.
Helstu umferðaræðar í og úr
Reykjavík hafa orðið fyrir
skemmdum, sem nú verður hafist
handa um að laga. Gert er ráð fyrir
að veita 85 milljónum króna til þess.
Mest er um hjólfaraskemmdir og á
löngum köflum, en helsti skaðavald-
urinn er talinn vera nagladekkin.
Góð færð hefur verið í vetur, sem
hefur haft í för með sér, að nagla-
dekkin hafa valdið meiri skemmdum
en ella, auk þess sem meiri umferð
er um götur þegar þær eru auðar. Þá
hefur fjölgað verulega í bílaflota
Reykvíkinga og um leið aukist
umferð.
ræðingur hjá gatnamálastjórn. „Pað
er líka spurning burtséð frá að
nagladekk skemmi götur hvort þau
gefi ekki falskt öryggi og menn aki
hraðar um hálar götur en menn
ættu.“ þj
Vegna hjólfaraskemmda þarf að
fræsa upp úr vegum og leggja nýtt
„teppi" sem svo er kallað. Það er því
líklegt að bróðurpartur fjármagns,
sem veitt verður til viðgerða, fer til
þessa, sem aftur er rakið að mestu
til aksturs í góðu færi á nagladekkj-
um.
{ gatnamálastjórn hefur óform-
lega verið rætt um, að meta skemmd-
ir sem verða af völdum naglanna.
Því hefur lítillega verið hreyft hvort
bæri að banna nagladekk, líkt og
gert var í Þýskalandi, en trygginga-
félögin hafa lagst gegn því og við
vissar aðstæður, svo sem ísingu á
götum, eru nagladekkin öruggasti
kosturinn.
„Það veit maður ekki hvað slíkar
aðstæður verða oft á vetri,“ sagði
Sigurður Skarphéðinsson, verkf-
Tilboð varðandi
skemmdir á malbiki:
Götumálning
og malbik
spænist upp
Innkaupastofnun Reykjavík-
urborgar fundaði um öndverðan
apríl um tiíboð í malbiksviðgerðir
og umferðarmálningu. Vegna
aukinnar umférðar og sérstaklega
akstur á nagladekkjum í góðri
færð spænist umferðarmálning
upp og hverfur. Þess vegna þarf
strax að hefja gatnamálun og
samþykkti Innkaupastofnun að
taka tilboði Málningar hf. um
kaup á málningu. Gatnamálun
fékk Vegmerking sf. sem bauð
hana á kr. 579.300.
f malbiksviðgerðir verður ráð-
ist í tvennu lagi. Innkaupastofnun
leggur til við borgarráð að tilboði
næstlægstbjóðanda, Loftorku
hf., verði tekið í viðgerðir A, þar
sem lægstbjóðandi hefur ekki
orðið við réttmætum tilmælum
gatnamálastjóra um framkvæmd
á hliðstæðu verki og hér um
ræðir. Næstlægsta boðið hljóðar
á kr. 18.888.975.
í viðgerðir B er lagt til við
borgarráð að tilboði lægstbjóð-
anda, Miðfells hf., verði tekið,
kr. 12.528.493.
Vert er að minnast þess í
þessari upptalningu, að hitaveitur
þurfa af og til að grafa upp
malbikaðar götur til að komast
að eigin skemmdum og lagfæra.
Eftir slíkt umrót verður að sjálf-
sögðu að lagfæra malbikið aftur
og er reiknað með slíku í fjár-
hagsáætlun veitunnar. þj
Þær eru Ijótar sumar holurnar
sem komnar eru í gatnakerfi
höfuðborgarinnar og hvimleiðar
yfir að aka. Tímamynd Pjetur
Aöalfundur KEA:
Hjörtur E. hættur
Jóhannes Sigvaldason kosinn formaður
Á aðalfundi Kaupfélags Eyfirð-
inga á Akureyri í gær gaf Hjörtur E.
Þórarinsson á Tjörn ekki kost á sér
til endurkjörs í stjórn félagsins.
Hjörtur hefur verið formaður KEA
í 15 ár, en alls hefur hann setið í
stjórninni í 21 ár. í stað Hjartar var
Jóhannes Geir Sigurgeirsson kosinn
í stiórnina.
A stjórnarfundi í gær skipti stjórn-
in þannig með sér verkum að for-
maður er Jóhannes Sigvaldason til-
raunastjóri. Hann var áður varafor-
maður og hefur setið í stjórninni frá
1975. Jóhannes Geir var hins vegar
kosinn varaformaður, og ritari var
endurkjörinn Arnsteinn Stefánsson.
Heildarvelta KEA á síðasta ári
var 4,6 miljarðar, en að meðtalinni
veltu samstarfsfyrirtækja varð hún
6,2 miljarðar. Launagreiðslur urðu
775 miljónir, en starfsmenn voru að
meðaltali 1365 hjá félaginu og sam-
starfsfyrirtækjum þess. Tekjuaf-
gangur á rekstrarreikningi var 1,46
miljónir, og bókfærðar fjárfestingar
á árinu 102,7 miljónir. Eiginfjár-
staða félagsins er mjög sterk, því að
eiginfjárhlutfall á efnahagsreikningi
var 51% í árslok, samanborið við
50,6% í lok ársins 1985.
KEA átti hundrað ára afmæli á
síðasta ári, og það vekur athygli að
á rekstrarreikningi félagsins er sér-
stakur liður, kostnaður vegna af-
mælishalds, sem er að upphæð 7,1
miljón króna. -esig
Hólmavík:
Skipstjórnarmenn útskrifast
Eins og áður hefur komið fram
hér í blaðinu hefur hópur skipstjórn-
armanna frá Hólmavík og Drangs-
nesi setið á skólabekk í vetur. Þann
1. maí lauk þessari skólagöngu að
sinni með úrskrift 10 skipstjórnar-
manna, sem þar með öðluðust rétt-
indi á 200 tonna báta, en áður höfðu
nokkrir til viðbótar lokið námi til
réttinda á 80 tn báta.
Útskriftarathöfnin 1. maí var
haldin í grunnskólanum á Hólma-
vík, en þar fór kennslan fram. Þor-
kell Jóhannsson, skólastjóri grunn-
skólans og umsjónarmaður réttinda-
námsins, afhenti nemendum próf-
skírteini og gerði grein fyrir árangri
námsins. Lauk hann lofsorði á á-
stundun og námsárangur nemenda.
Hæstu einkunn á lokaprófinu hlaut
Jón Ólafsson, 9,27, en annar í röð-
inni var aldursforsetinn Kjartan
Jónsson með 9,04.
Kennsla á námskeiðinu var að
mestu í höndum heimamanna og
lögðu þar margir hönd á plóginn.
f tali manna í lokahófinu kom
fram, að mikill hugur væri nú í
útgerðarmönnum við Steingríms-
fjörð. Veiði á innfjarðarrækju brást
að mestu sl. vetur, en síðustu ár
hefur hún verið undirstaða útgerðar-
innar á vetrum. Svar útgerðarmanna
við þessu hlýtur að vera aukin sókn
í bolfisk, úthafsrækju og fleira. Slík
útgerð krefst stærri og öruggari báta,
og með auknum réttindum skip-
stjórnarmanna opnast nýir mögu-
leikár á því sviði.
Sjómenn á Hólmavík höfðu unnið
að því um nokkurt skeið, að fá
réttindanámskeið haldið í héraðinu.
Því var merkum áfanga náð með
þessu námskeiðshaldi. Við skólaslit- hafið að vaxandi fullorðinsfræðslu á
in kvaðst Þorkell skólastjóri gera sér Hólmavík.
vonir um, að námskeiðið yrði upp- Stefán Gíslason
Nýútskrifaðir skipstjórnarmenn á Hólmavík ásamt nokkrum kennara sinna
(sitjandi). Ttmamynd: S.G.
Þjóðarflokkurinn:
Landsfundur
Þjóðarflokkurinn heldur lands-
fund sinn um helgina. Hefst fund-
urinn klukkan 10:30 á morgun og
stendur fram til klukkan 15 á
sunnudag. Fundarstaðurinn er að
Bjargi við Buggðustíg 1 á Akur-
eyri.
Eitt meginmál fundarins verður
að ákveða hvort halda eigi áfram á,
þeirri braut sem mörkuð var með
framboði til alþingiskosninga.
Fulltrúar flokksins í öllum kjör-
dæmum landsins mæta og er búist
við fjölmennum fundi að sögn
þjóðarflokksmanna. Aðgangur að
fundinum er öllum opinn. Kaffi-
samsæti verður á sunnudag, á Hót-
el KEA, klukkan 15:30 þar sem
velunnurum er boðið að koma.