Tíminn - 08.05.1987, Side 6
6 Tíminn
Föstudagur8. maí 1987
Utanríkisráðuneytið að útvega bíla og skrifstofur:
Sextán sendinef ndir
NATO-ríkja til íslands
Afvopnunarmál og eldflaugar í Evrópu líkleg umræðuefni á fundinum
Utanríkisráðherrafundur Atlants-
hafsbandalagsins verður í Reykjavík
fimmtudag og föstudag, 11. og 12.
júní nk. Utanríkisráðuneytið ís-
lenska hefur allan veg og vanda af
undirbúningi, enda hefð að gestgjafi
hafi umsjón með framkvæmdaatrið-
um slíkra funda. Löggæsla verður í
höndum lögreglunnar, en í nánu
samráði við ráðuneytið. Starfsmenn
NATO munu þó sjá um framkvæmd
á fundinum sjálfum, svo sem túlkun
o.fl. Sumarið 1968 var síðast fundur
Atlantshafsbandalagsins á fslandi og
var þá haldinn í Háskólanum.
í þetta sinn verður fundurinn á
Hótel Sögu og er þar bókstaflega
hver krókur og kimi nýttur undir
hann. Hótelið og næsta umhverfi
þess verður lokað almenningi á með-
an og vegna 40 ára afmælis fram-
leiðsluráðs verður hópferð fyrir þá
þjónustu hótelsins, sem ekki verður
þörf á fundinum, til Rínarlanda.
Hugmyndir um að halda fundinn
hér á landi komust fyrst verulega á
skrið á haustfundi utanríkisráðherra
NATO í desember 1985 og tóku
Hjálmar W. Hannesson og sam-
starfsmenn hans í utanríkisráðu-
neytinu þegar til starfa við að bóka
gistirými fyrir þann skara fundar-
manna og fréttamanna, sem búist er
við til landsins. Hátt á fjórða hundr-
að manns auk maka koma til að sitja
fundinn og þar við bætist fjöldi
fréttamanna. Talið er að hann verði
ekki nema lítið brot af þeim skara
fréttamanna sem kom hingað til að
fylgjast með leiðtogafundinum, -
jafnvel ekki nema um tíundi hluti
hans. Að öllum líkindum verða þeir
þó á annað hundrað talsins. Sendi-
nefndir aðildarríkja gista á hótelum
víða um borgina.
„Leiðtogafundurinn veitti okkur
mikilvæga reynslu og var vissulega
góð lokaæfing fyrir þennan fund,“
sagði Hjálmar W. Hannesson hjá
utanríkisráðuneytinu. Fréttamið-
stöð og kynning á landi og þjóð
verður, svo sem á leiðtogafundinum,
í Hagaskóla.
Setningarathöfn fundar utanríkis-
ráðherra aðildarríkja NATO fer
fram í Háskólabíói á fyrsta fundar-
degi. Daginn áðurhefurborgarstjóri
haft móttöku fundarmanna að Kjar-
valsstöðum.
Við setningarathöfnina verða
utanríkisráðherrarnir sextán, að
meðtöldum heiðursforseta ráðsins,
sem nú er Andreotti frá Ítalíu,
forsætisráðherra íslands og Carring-
ton lávarður, framkvæmdastjóra.
í>eir þrír munu flytja stutt ávörp við
athöfnina. Heiðursforseti verður því
ekki viðstaddur lokaorusturnar í
kosningabaráttunni í sínu heima-
landi, en kosið er til þings á Ítalíu
hinn 14. júní.
Ráðherrum, alþingismönnum,
borgarstjórnarfulltrúum og öðrum
embættismönnum verður boðið að
vera viðstaddir setningarathöfnina.
Þar verða m.a. túlkaklefar, sem
utanríkisráðnuneytið sér um að
verði settir upp. Einnig er á herðum
þess að útvega skrifstofur og bifreið-
ir fyrir allar sendinefndirnar.
Dagskrá fundarins hefur enn ekki
verið gefin út, en vorfundir banda-
lagsins eru ekki með sama formlega
hætti og haustfundir þess í Brússel.
Búist er við, að afvopnunarmálin og
tillögur um skamm- og langdrægar
eldflaugar í Evrópu verði í brenni-
depli auk annars sem efst hefur verið
á baugi í milliríkjasamskiptum að
undanförnu.
þj
Hjólreiða-
keppni gruiin-
skólanna
Síðastliðna helgi fóru fram úrslit í
Ujólreiðakeppni grunnskólanna á
höfuðborgarsvæðinu úrslitin fóru
fram eftir að nemendur 12 ára bekkj-
ar um allt land höfðu tekið þátt í
árlegri umferðarfræðslu og svarað
spurningum úr henni. Þeir sem best-
um árangri náðu fengu að taka þátt
í hjólreiðakeppni á Laugardalsvell-
inum.
í fyrsta sæti lenti Axel Axelsson
Ölduselsskóla.
Þannig var skipað í hin sætin:
2. sæti Heiðar Gottskálksson Öldu-
selsskóla.
3. sæti Valdimar Guðbjörnsson Víf-
ilsstaðaskóla.
4. -5. sæti Hlynur Atlason Fossvogs-
skóla og Sigurjón Hákonarson Hóla-
brekkuskóla.
Úrslitin fyrir landsbyggðina í heild
fyrir utan höfuðborgarsvæðið fer
fram á Akureyri laugardaginn 9.
maí. Vegleg verðlaun verða í boði.
Fyrir fyrsta sæti verður reiðhjól af
nýjustu gerð mcð fullkomnum ör-
yggisbúnaði. Fyrir annað sæti verður
skíðanámskeið í Kerlingafjöllum og
fyrir þriðja sætið verður vandað
Útvarpstæki. - starfskynning/AÞ.ÖS.KH.
Einbcittir keppendur á Laugardalsvelli í úrslitum hjólreiðakeppni Umferðar-
ráðs. (Tímamynd: Pjetur)
VEIÐIHORNIÐ lllllllllllllllljLUrnsjón: Eggert Skúlason
PfP
Kvennalistinn í erlendum tímaritum:
Fer stefna hinnar hagsýnu
húsmóður sigurför um heim?
Aldrei var það nú svo að Kvenna-
listinn kæmist á forsíðu Time eins og
heyrst hafði fleygt manna á meðal.
Ekki skal úr athyglinni draga en
Time birtir einungis litla klásúlu um
árangur flokksins í kosningunum á
meðal frétta af baráttu gegn klámi í
Frakklandi og herþjálfun Boris
Becker, þýska tennisgoðsins.
í fréttinni kemur fram að Kvenna-
listinn sé sá flokkur sem raunveru-
lega ráði hverjir komi til með að
stjórna á Fróni og muni flokkurinn
líklega verða hlúti af mið-hægri
stjórnarmynstri. Þarna er tekið eilít-
ið forskot á sæluna varðandi sann-
leiksgildi, því fleiri geta stjórnar-
mynstrin orðið. Þá verður Kvenna-
listinn ekki með sanngirni kallaður
fyrsti kvennabaráttuflokkurinn með
fulltrúa á Alþingi, því á árunum upp
úr 1922 átti Bandalag kvenna full-
trúa á Alþingi.
Safaríkasti partur fréttarinnar er
sá að Kvennalistinn standi fyrir
stefnu hinnar hagsýnu húsmóður,
„policy of the practical housewife",
á sviði efnahagsmála. Þetta mun
vafalaust hrista upp í kvennabaráttu-
liði um víða veröld, því þarna virðist
loksins fundinn hinn efnahgaslegi
þáttur kvennahugmyndafræðinnar,
sem allir feministar geta sameinast
um.
Þá er eins víst að stjórnmála-
fræðingar muni rjúka upp til handa
og fóta því að þetta hugtak hefur
aldrei fundist í þeirra kokkabókum.
Nú megum við eiga von á því að
auglýstar verði alþjóðlegar ráðstefn-
ur sem fjalli um „stefnu hinnar
hagsýnu húsmóður".
Að vísu verða þcir áhugasömu að
bíða enn um sinn eftir nánari út-
færslu á stefnu þessari þar sem hún
virðist enn vera í mótun í „æðstu
valdastofnunurn" Kvennalistans.
ÞÆÓ
Silungsveiðin
róleg í byrjun
Veiðimenn úr Reykjavík og ná-
grenni hafa síðustu daga reynt fyrir
sér i vötnum í nágrenninu. Veiði í
Elliðavatni var dræm fyrstu dagana
en hefur heldur verið að glæðast
síðustu daga. Urriðinn er farinn að
gefa sig, eins og algengt cr í maí.
Helluvatniö hefur verið áberandi
besti veiðistaðurinn fram til þessa.
Hálfur dagur í Elliðavatni kostar
280 krónur og heill dagur 420
krónur. Hægt er að kaupa sumar-
kort fyrir 3900 krónur.
í Meðalfellsvatni hefur verið
reynt og scgir Gísli Ellertsson
bóndi á Meðalfelli að beint neðan
undir bænum hafi menn vcrið að fá
hann. Vcrð á veiðileyfum í Meðal-
fellsvatni er 400 krónur fyrir hálfan
dag og 700 krónur fyrir heilan.
Gtsli sagði sjóbirtingsvciðina í.
Laxá í Kjós hafa verið mjög lélega
og að menn hefðu flúið upp í vatn
og þar með bjargað veiðiferðinni.
Verð á veiðileyfum hefur ekki
verið ákveðið í Þingvallavatni og
sömu sögu er að segja um Úlfljóts-
vatn. Veiðileyfi í þessum tveimur
vötnum hefur yfirleitt haldist í
hendur og verður svo áfram.
Urriðasvæðið t Ytri-Rangá, fyrir
ofan Árbæjarfoss, er nú opið. Þær
upplýsingar fengust í Hellinum á
Hellu, sem selur veiðileyfin, að
ekki hafi verið reynt enn við
svæðið. Dagurinn kostar á urriða-
svæðið 800 krónur og hálfur dagur
400 krónur. Sjóbirtingsveiði hefur
verið sáralítil á veiðisvæði Stanga-
veiðifélags Rangæinga. Kenna
menn um veðráttu. Áin var grugg-
ug og vatnsmikil.
- ES