Tíminn - 12.11.1987, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 12. nóvember 1987
Fimmtudagur 12. nóvember 1987
Tíminn 11
íþróttir :^':''r!:l!i;i!il:!iíil-l!N:i:i':';!11llili'llliril'Nill|!!i''"Tilll:;:l:'-::':l!il!Í;iJ!'|!|illi!iiiliN!;:llil'llilik::mili;iiM!r:;i:!ii;liil|i::;;;Jlllll;i:li:.:i;il:N1:!U;li!j!ll|-l;i;i:xiliili^^ ........................................ íþróttir lllllililllllllllllllllllllllliilllllllllllllllllllllllilllllB
Englendinjgar,
Danir og Irar
í úrslitin
Reuter
Danir, Englendingar og írar tryggðu sér í gærkvöldi
rétt til að keppa í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í
knattspymu sem verður í V- Þýskalandi á næsta ári.
Tékkar unnu Walesbúa 2-0 í Tékkósióvakíu í síðasta
leiknum í 6. riðli og tryggðu Dönum þannig sigurinn í
riðlinum og sæti í úrslitum. Englendingar tryggðu sér
sjálfir úrslitasæti með stórsigri á Júgóslövum í 4. riðli, 4-1.
Peter Beardslcy, John Barnes, Bryan Robson og Tony
Adams skoruðu mörk Englendinga. Þá sigruðu Skotar
Búlgara og sendu íra þannig í úrslitin úr 7. riðli.
Coventry-Wimbledon ... 1
Einhvern veginn finnst inér að
Wimbledon fái stig úr þessum
leik, og þó. Heimavöllurinn er
alltaf sterkur.
Everton-West Ham........ 1
Everton hefur tapað einum
heimaleik í vetur. Það skeður
ckki aftur strax.
Newcastle-Derby.........X
Tvö lið ncðan miðju í deildinni,
Derby ofar en Newcastle á
heimavelli, hvað er hægt annað
en að spá jafntefli?
Norwich-Arsenal.......... 2
Arsenal hefur unnið síðustu fjóra
útileiki og lætur þriðja neðsta
liðið væntanlega ekki breyta því.
Notth.Forest-Portsmouth 1
Hér segja öll rök 1, topplið heima
gegn botnliði.
SheffieldWed.-Luton ... 1
Siggi Jóns er á samningi hjá
Sheffleld Wed. Einn vegna þess
ef ekki vill betur.
Southampton-Oxford ... X
Ugla sat á kvisti... Þessi getur nú
cndað hvcrnig sem er.
Tottenham-QPR ........... 1
QPR mistókst að skjótast á topp-
inn þcgar færi gafst um síðustu
helgi og voru þeir þó heima á
gervigrasinu þá. Tottenham
vinnur.
Watford-Charlton.........2
Botnslagur, Watfordmenn enn í
skýjunum eftir jafnteflið við
QPR: útisigur.
Middlesbro-Hull .......... 1
Toppbaráttan í 2. deild í algleym-
ingi. Heimasigur er eins líklegur
og hvað annað.
Reading-Man. City........2
Manchester City vann botnlið
Huddersfíeld ' 10-1 um síðustu
helgi. Reading er líka neðarlega
í deildinni.
WBA-lpswich .............. 1
Nú versnar í því. Annars finnst
mér síðustu þrir leikirnir svo oft
fara 1-2-1 að einn verður niður-
staðan.
SMJÖRLÍKISGERÐ
SÍMI 96-21400 -AKUREYRI
Heimasigrar voru það sem gilti á síðasta getraunaseðli enda voru
66 með 12 rétta. Hver þeirra hlaut kr. 21.935.- Vinningur fyrir 11 rétta
féll niður. Spá fjölmiðlanna fyrir 12. leikviku er þessi:
LEIKVIKA 12 Leikir 14. nóvember 1987 Tíminn Mbl. > Q > *o 'O nT Dagur > o DC Bylgjan CvJ »o :0 œ Stjarnan
1. Coventry-Wimbledon 1 1 1 1 1 1 1 1 1
2. Everton-West Ham 1 1 1 1 1 1 1 1 1
3. Newcastle-Derby X 1 1 2 1 1 1 1 X
4. Norwich-Arsenal 2 2 2 2 2 X 2 X X
5. Nott’m Forest-Portsmouth 1 X 1 1 1 1 1 1 1
6. Sheffield Wed.-Luton 1 X 1 1 X X X X 1
7. Southampton-Oxford X 1 1 2 1 1 1 1 1
8. Tottenham-Q.P.R. 1 1 1 1 1 1 2 1 2
9. Watford-Charlton 2 X 1 1 1 1 1 1 1
10. Middlesbro-Hull 1 1 1 2 1 1 1 1 1
11. Reading-Man City 2 2 2 2 2 2 2 2 2
12. W.B.A-lpswich 1 1 2 2 X 2 1 1 1
Staðan: 51 61 66 60 59 57 62 57 63
Sund:
Unglingalandsliðið
var valið um helgina
Unglingalandslið íslands í sundi
var valið að loknu sundmeistaramóti
unglinga í Sundhöllinni um síðustu
helgi. Liðið er skipað eftirtöldum
sundmönnum:
Piltar: Ársæll Gunnarsson ÍA, Karl
Pálmason Ægi, Hannes Már Sig-
urðsson Bolungarvík, Svavar Þór
Guðmundsson Oðni, Arnar Birgis-
son KR, Eyleifur Jóhannesson ÍA,
Ævar Öm Jónsson UMFN, Þor-
steinn H. Gíslason Ármanni, Þor-
bergur Viðarsson ÍA. Stúlkur: Ingi-
björg Arnardóttir Ægi, Pálína
Björnsdóttir Vestra, Alda Viktors-
dóttir ÍA, Hugrún Ólafsdóttir HSK,
Arna Þórey Sveinbjörnsdóttir Ægi,
Elín Sigurðardóttir SH, Björg Jóns-
dóttir UMFN, Bima Björnsdóttir
SH, Lóa Birgisdóttir Ægi.
Unglingalandsliðið keppir á NM
unglinga í Sundhöll Reykjavíkur 21.
og 22. nóvember.
Sú villa slæddist í grein um sund-
meistaramótið í Tímanum í gær að
Hannes Már hefði sett íslandsmet
en það er ekki rétt eins og mátti
reyndar lesa neðar.
- HÁ
Laugarvatnshlaupið:
Frímann og Margrét
komu fyrst í mark
Frímann Hreinsson FH og Mar-
grét Brynjólfsdóttir UMSB urðu sig-
urvegarar ■ Laugarvatnshlaupinu
sem fram fór um síðustu helgi. Urslit
í cinstökum flokkum urðu þessi:
Karlaflokkur (7km): mín.
1. Frímann Hroinsson FH........ 23:22
2. Johann Ingibergsson FH...... 23:36
3. Kristján S. Ásgeirsson ÍR... 23:47
Kvennaflokkur (7km):
1. Margrót Brynjólfsd. UMSB... 30:24
2. Guðbjörg Finnsdóttir ÍKÍ.... 37:01
3. Ingigerður Stefánsd. ÍKÍ... 37:01
Sveinaflokkur (2,5km):
1. Ástvaldur Ó. Ágústss. HSK .. 8:22
2. Arnaldur Gylfason ÍR....
3. Árni Ólason HSK.........
Meyjaflokkur (2,5km):
1. Guðrún E. Gísladóttir HSK .
2. Berglind Sigurðard. HSK ..
3. Solma Sigurjónsdóttir HSK .
12 ára og yngri (lkm):
1. Anton T. Haraldsson UBK . .
2. Jóhannos Baldursson HSK .
3. Gunnar Ólason HSK ......
12 ára og yngri (lkm):
1. Margrót Guðjónsdóttir UBK
2. Linda Magnúsdóttir UBK ..
3. Vigdís Torfadóttir HSK ....
. 8:50
. 9:20
. 9:21
10:20
11:27
. 3:59
. 4:24
. 4:31
. 4:23
. 4:38
. 4:39
- HÁ
Kaupstaður styrkir ÍR
Kaupstaður og handknattleiks-
deild IR hafa endurnýjað samning
sinn þess efnis að Kaupstaður sjái
öllum flokkum deildarinnar fyrir
keppnisbúningum merktum Kaup-
stað á næsta keppnistímabili. Þá
munu ÍR-ingar einnig sjá um að
aðstoða viðskiptavini Kaupstaðar
um helgar við að setja vörur í poka
við búðarkassa. Kaupstaður styrkir
handknattleiksdeild ÍR einnig á
margvíslegan annan hátt.
Á myndinni hér að ofan má sjá
meistaraflokksmenn úr ÍR að störf-
um í Kaupstað.
Grrrr... Það má ekki á milli sjá hvor er illilegri á svipinn Júlíus Jónasson í sókninni hjá Val eða Hermundur Sigmundsson í vörninni hjá
Stjörnunni. Aftur á móti skiluðu þeir báðir þessum stöðum með ágætum í gærkvöldi. Tímamynd Pjetur
íslandsmótiö í handknattleik, 1. deild:
GARDBÆINGAR
LÁGU í VALNUM
- Valsmenn tóku forystuna strax í upphafi leiks og unnu Stjörnuna með 22 mörkum gegn 14
Valur vann Stjörnuna með 22 mörkum
gegn 14 í leik liðanna í 1. deild karla á
Islandsmótinu í handknattleik í gærkvöldi.
Staðan í leikhléi var 13 mörk gegn 8 Val í
hag. Leikurinn var á köflum ágætlega
leikinn en ekki spennandi, til þess voru
yfirburðir Vals allt of miklir. Þetta var
fimmti heimaleikur Valsmanna á Hlíðar-
enda sem virðist ætla að verða æði sterkur
heimavöllur, a.m.k. hefur Valsliðið hvorki
tapað þar stigi né fengið á sig fleiri en 18
mörk.
Valsmenn byrjuðu leikinn af krafti og
koniust í 3-0. Var það einkum að þakka
markvörslu Einars Þorvarðarsonar sem
opnaði ekki markið fyrr en eftir 12 mínútna
leik. Mótlætið virtist slá Stjörnumenn nokk-
uð út af laginu en þeir tóku sig þó á og náðu
að minnka muninn í 5-4. Það varð minnsti
munurinn í leiknum og góður kafli Valsm-
anna sfðari hluta fyrri hálfleiks gerði út um
leikinn.
Sókn Stjörnumanna var alls ekki nægi-
lega góð í þessum leik. Sterk vörn Vals-
manna og góð markvarsla Einars hafði þar
mikil áhrif en misheppnaðar sendingar fyrir
utan og fleiri klaufaleg mistök höfðu ekkert
með það að gera. Þá var Sigmar Þröstur
aldrei slíku vant ekki í stuði í markinu. Það
má virða Stjörnumönnum til vorkunnar að
þeir eru til þess að gera nýkomnir úr
Sigur hjá Val
ogStjörnunni
Valur vann Þrótt 30-16 (16-9) í 1. deild
kvenna í handknattleik í gærkvöldi. Erna
Lúðvíksdóttir skoraði 10(6) mörk fyrir Val
og Kristín Arnþórsdóttir 6 en María Ingi-
mundardóttir og Ásta Stefánsdóttir voru
markahæstar hjá Þrótti með 4 mörk.
Stjarnan vann Víking 21-15. Ingibjörgog
Guðný gerðu 7 mörk fyrir Stjörnuna en
Eiríka skoraði 8 fyrir Víking.
erfiðum Evrópuleik en munurinn var meiri
en það. Munurinn var sá að Valsmenn eru
með lið sem hefur alla burði til að enda í 1.
sæti í vor. Stjörnumenn eru með lið sem
hefur burði til að gera það sama eftir 1 eða
2 ár.
Einar Þorvarðarson markvörður var
bestur í jöfnu Valsliði en sérstaklega varði
hann vel í upphafi leiksins. Vörnin var í
heild sterk og enginn bar af öðrum í
sókninni. Hjá Stjörnunni má einna heist
nefna Gylfa Birgisson sem skoraði falleg
mörk fyrir utan en aðrir hafa oft leikið
betur.
Nokkrar helstu tölur úr leiknum: 3-0, 5-2, 5-4, 8-5,
9-7, 13-7, 13-8 - 16-10, 17-12, 19-12, 20-13, 20-14,
22-14.
Mörkin, Valur: Júlíus Jónasson 6, Valdimar Gríms-
son 5, Þórður Sigurðsson 4(1), Jakob Sigurðsson 3,
Geir Sveinsson 2, Gísli Óskarsson 2. Einar Þorvarðar-
son varði 14(2) skot. Stjarnan: Gylfi Birgisson 5,
Hermundur Sigmundsson 3(2), Hafsteinn Bragason 2,
Skúli Gunnsteinsson 2, Einar Einarsson 1, Sigurjón
Guðmundsson 1. Sigmar Þröstur óskarsson varði 3(1)
skot og Höskuldur Ragnarsson 3.
Valsmenn voru utan vallar í 4 mínútur en enginn
Stiörnumaður var rekinn af leikvelli.
- HÁ
HASARIHOLUNNI
- FH-ingartryggðusérsigurgegn Víkingumásíöustumínútunum-Áhorfendurtroðfylltu Laugardalshöll
- Enn ráðastúrslit í ÍR-leikeftiraðleiktímalýkur-KR-ingarhöfðusiguráæsispennandi lokamínútum
- Hörmungarhandbolti í Digranesi
FH-ingar sigruðu Víkinga með 27
mörkum gegn 23 í toppleik gær-
kvöldsins í 1. deildinni í handknatt-
leik. FH-ingar gerðu síðustu flmm
mörkin í þessum hörkuleik sem sló
öll met í áhorfendafjölda. ÍR-ingar
náðu öðru stiginu á Akureyri þegar
Vigfús Þorsteinsson markvörður
þeirra varði vítaskot K A-manna eftir
að leiktíma lauk, þriðji leikurinn ■
röð sem IR-ingar fá stig úr á elleftu
stundu. Lokaspretturinn hjá KR og
Fram var æsispennandi en KR náði
að tryggja sér sigurinn.
Víkingur-FH 27-23 (15-14)
Víkingar höfðu yfir í hálfleik 15-
14 og voru yfir 23-22 en FH-ingar
skoruðu 5 síðustu mörkin og tryggðu
sér þar með sigurinn. Héðinn Gils-
son var markahæstur FH-inga með 7
mörk, Óskar Ármannsson og Þorgils
Óttar Mathiesen gerðu 5 hvor. Hjá
Víkingum skoraði Bjarki Sigurðsson
6 mörk, Guðmundur Guðmundsson
og Karl Þráinsson 5 hvor.
Kristján Sigmundsson fékk knött-
inn í andlitið snemma í leiknum og
kom Sigurður Jensson í stað hans í
mark Víkinga og varði stórkostlega.
Magnús Árnason varði einnig gífur-
lega vel í marki FH.
Leik Víkinga og FH lauk ekki fyrr
en seint í gærkvöld og af þeim
sökum sér Tíminn sér því miður
ekki fært að fjalla nánar um hann.
Fram-KR 19*21 (9-12)
Lokamínútumar í viðureign Fram
og KR voru æsispennandi svo ekki
sé meira sagt, KR-ingar höfðu leik-
inn í hendi sér og voru yfir 20-15
þegar skammt var til leiksloka. Þá
lokaði Guðmundur A. Jónsson hinn
þétti markvörður Framara markinu
vel og þeir bláklæddu gengu á lagið.
Staðan skyndiiega orðin 19-20 en
a1 Ik
W NBA
Úrslit leikja í bandaríska atvinn-
umannakörfuknattleiknum á
mánudags- og þriðjudagskvöld:
Boston Celtics-NY Knicks 96-87
Ind. Pacers-Detr. Pistons 121-118
Chicago Bulls-Atl. Hawks 105-95
Milw. Bucks-Wash. Bullets 115-100
LA Lakers-San Antonio Spurs 133-124
Phoenix-Golden St. Warriors 123-109
Houston Rockets-Portland 118-111
Sacr. Kings-Denver Nuggets 134-123
Dallas Mav.-Seattle Supers. 117-101
LA Clippers-Utah Jazz 100-88
Los Angcles Lakers og Boston
Celtics eru þá einu taplausu liðin,
hafa unnið alla þrjá leiki sína til
þessa. - HÁ
Guðmundur Albertsson átti loka-
orðið, skoraði og tryggði KR-ingum
sigur 21-19.
Staðan í hálfleik var 12-9 fyrir KR
og raunar héldu þeir forskotinu út
allan leikinn þó naumt hafi það verið
skjóta, beitti sér fyrst af krafti í
síðari hálfleik.
Það kom greinilega fram í þessum
leik að liðin tvö verða að berjast
grimmilega fyrir veru sinni í deild-
inni.
Atli Hilmarsson reynir hér línusendingu á Birgi Sigurðsson en sá er ekki í
aðstöðu til að grípa eitt eða neitt enda rífinn niður af hörku. Myndin er úr
leik Fram og KR. Tímamynd Pjetur
í lokin.
Markvarsla Gísla Felix Bjarna-
sonar og stórleikur Konráðs Olavs-
sonar urðu til þess að KR-ingar
sigruðu í þessum leik. Konráð skor-
aði átta mörk og brást varla bogalist-
in úr horninu. Gísli Felix varði vel
að vanda, tæp fimmtán skot.
Framarar eru ekki í formi og allt
gengur þeim á móti. Liðið sem hafði
burði til að vera í toppbaráttunni er
komið í bullandi fallhættu. Meiðslin
sem lykilleikmerinirnir Hannes
Leifsson, Atli Hilmarsson, Birgir
Sigurðsson og Egill Jóhannesson
hafa átt við að stríða há þeim
verulega enn. Þar að auki var Júlíus
Gunnarsson alltof ragur við að
Mörkin: KR: Konráð Olavsson 8(2), Stefán
Kristjánsson 4, Sigurður Sveinsson 3, Guð-
mundur Albertsson 3, Jóhannes Stefánsson
2(2) og Guðmundur Pálmason 1.
Fram: Atli Hilmarsson 4(1), Júlíus Gunn-
arsson 3, Hannes Leifsson 3(1), Pálmi Jóns-
son 3, Birgir Sigurðsson 2, Egill Jóhannesson
2(2), Sigurður Rúnarsson 1 og Hermann
Bjömsson 1.
KA-ÍR 17-17 (10-7)
ÍR-ingar eru ekkert fyrir það að
láta úrslitin í leikjum sínum ráðast
of snemma. í gærkvöld var þriðji
leikur þeirra í röð þar sem úrslit
ráðast eftir að leiktíma lýkur. Nú var
það Vigfús Þorsteinsson markvörður
sem bjargaði stiginu með því að
verja vítakast eftir að klukkan var
komin á núllið og fóru ÍR-ingar því
með annað stigið suður.
Leikurinn var í heild afskaplega
slakur og þá einkum sóknarleikur-
inn. KA-menn höfðu lengst af undir-
tökin en þegar staðan var 15-12 þeim
í hag varð einskonar vendipunktur í
leiknum. KA fékk þá boltann tvíveg-
is en kaus að flana í hraðaupphlaup
í stað þess að róa leikinn og varð
niðurstaðan úr því sú að ÍR dró á.
Frosti Guðlaugsson var drjúgur í
liði ÍR, einkum í lokin og Bjarni
Bessason lék einnig vel. Þá varði
Vigfús Þorsteinsson vel og sýndi að
maður kemur í manns stað en Hrafn
Margeirsson aðalmarkvörður ÍR
meiddist í upphitun. Enginn einn
bar af í liði KÁ.
Mörkin, KA: Guðmundur Guðmundsson 4,
Erlingur Kristjánsson 3(2), Eggert Tryggva-
son 3(2), Axel Bjömsson 2, Pétur Bjamason
2, Friðjón Jónsson 1, Hafþór Heimisson 1,
Svanur Valgeirsson 1. ÍR: Bjarni Bessason 6,
Frosti Guðlaugsson 6, Finnur Jóhannsson 2,
Guðmundur Þórðarson 1, Magnús Ólafsson
1, ólafur Gylfason 1.
Ágætir dómarar leiksins vom Ami Sverris-
son og Aðalsteinn örnólfsson.
UBK-Þór 21-19 (7-8)
Blikarnir máttu þakka fyrir sigur
gegn Þór frá Akureyri í Digranesi í
gærkvöldi. Lokatölur urðu 21-19 en
það var ekki fyrr en á síðustu
mínútunum sem Blikar náðu að
snúa á norðanmenn og komast yfir.
Þegar um sex mínútur voru eftir var
staðan 18-18 en þá skutu Þórsarar í
stöng en Blikar svöruðu með marki.
Þá var leikurinn úti.
Af tveimur afspyrnuslökum liðum
í gær þá voru Blikarnir heldur sterk-
ari í síðari hálfleik og með Guðmund
markvörð á bak við sig náðu þeir að
kreista fram sigur. Guðmundur
varði ein 15 skot í leiknum og
munaði það miklu fyrir Blikana.
Staðan í leikhlé var 8-7 fyrir Þór.
í heild er Blika-liðið heilsteyptara
en Þórsarar. Fleiri leikmenn láta til
sín taka en hjá Þór eru aðeins tveir
menn sem verulega ber á. Þeir
Sigurður Pálsson og Ólafur á miðj-
unni eru þokkalegar skyttur og Sig-
urður þar að auki ágætis boltamaður
en þeir gátu ekki allt. Línuspil
liðsins er í molum. Hjá Blikum var
reyndar allt í molum en sigurinn
bjargaðist þó í lokin.
Björn gerði 5 mörk fyrir Blika,
Aðalsteinn 4 og Ólafur og Jón Þórir
3 hvor. Sigurður skoraði 6 fyrir Þór
en Ólafur 4 í leik sem fer ekki á
spjöld sögunnar.
- hb/jb/þb
Staðaní i.deild
FH 8 7 1 0 236-174 15
Valur .... 8 7 1 0 173-121 15
Breiðablik 8 5 0 3 164-166 10
Stjarnan .. 8 4 1 3 181-192 9
Víkingur .. 8 4 0 4 196-188 8
ÍR 8 3 2 3 167-179 8
KA ■■■■■■■■■■■■■■ 8 2 2 4 154-132 6
KR 8 3 0 5 168-183 6
Fram 8 1 1 6 178-202 3
Þór 8 0 0 8 156-201 0
Getraunahaninn
Knattspyrna, Evrópukeppnin:
- HÁ