Tíminn - 12.11.1987, Blaðsíða 15

Tíminn - 12.11.1987, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 Tíminn 15 LEIKLIST Leikir um firringu Alþýduleikhúsið, Hlaðvarpanum: EINS- KONAR ALASKA og KVEÐJUSKÁL. eftir Harold Pinter. Þýðendur: Jón Viðar Jónsson og Sverrír Hólmarsson. Leik- mynd og búningar: Guðrún Svava Svav- arsdóttir. Leikstjóri: Inga Bjarnason. Það er mikil kúnst að semja ein- þáttunga. Þá list hefur Harold Pinter á valdi sínu. Báðir þessir þættir sem Alþýðuleikhúsið sýndi á laugardag- inn eru áhrifaríkir, hvor með sínum hætti, snjöll leikhúsverk. Þetta sætir nú varla tíðindum því að Pinter er, eins og leikhúsáhugamenn vita, í fremstu röð leikskálda á enska tungu. Það er vissulega vel ráðið hjá Alþýðuleikhúsinu að gefa okkur kost á að sjá þá, við hinar frumstæðu aðstæður í Hlaðvarpanum sem leikhúsið býr nú við. Það má furðu gegna hversu vel fer um sýninguna í þessu húsnæði, sem raunar er tvískipt, enda umgerð einþáttung- anna næsta ólik. Einskonar Alaska var sýnt í sjón- varpinu í fyrra, í breskri uppfærslu. Kveikja leiksins ver bók frá 1973 eft- ir breskan lækni sem fjallar um ein- kennilegan sjúkdóm, nokkurs konar svefnsýki þar sem sjúklingar voru árum saman eða áratugum saman sviptir möguleikum til sambands við umheiminn. Konan í leiknum, De- borah, er slíkur sjúklingur, féll í dá ung stúlka og vaknar upp 29 árum síðar. Og þá er allt breytt umhverfis, en sjálf er hún sama unga stúlkan - í eigin huga. Þetta er einskonar Þyrnirósusaga. Nema að heimur ævintýrsins er hvergi nærri, í staðinn komin firring nútímamanns, angistin sem því fylg- ir að lokast inni í eigin hugarheimi. Og sú angist er átakanleg því að eng- in vinarhönd nær þá til manns, ekk- ert nema dauði og eyðing blasir við. Og dauðinn er hér „hreinn og hvítur snjór“ eins og hjá Jónasi forðum, „einskonar Alaska“. í samræmi við þetta er hin hvíta leikmynd þáttarins, stílhreint verk í alla staði. En yfirbragð sýningarinn- ar er auðvitað fyrst og fremst verk Ingu Bjarnason leikstjóra. Húnerað minni hyggju einn okkar næmasti leikstjóri. Pegar ég segi næmasti á ég við að hún virðist skynja einkar vel tilfinningalegan hljómbotn þeirra verka sem hún fæst við. Allar sýning- ar hennar sem ég man eftir hafa verið á litlu sviði, í nákomnu andrúmi svo að þessi skynjunarháttur hefur feng- ið að njóta sín. Hvernig væri að hún fengi að reyna sig á stærra sviði? Þarf Þjóðleikhúsið ekki á slíkum leik- stjóra að halda? Aðalhlutverkið í Einskonar Al- aska er Deborah og fer María Sig- urðardóttir með það. María skilar hlutverkinu fallega, með góðri hjálp leikstjórans. Hún nýtir sér sviðslega möguleika sem eru nokkrir þótt kon- an sé rúmliggjandi mestallan í Kveðjuskál er ekki rökrætt um eitt eða neitt. Arnar Jónsson og Margrét Ákadóttir. tímann. Samræðustíllinn milli henn- ar og Hornby sem Þröstur Guð- bjartsson lék var léttvígur, einnig þegar Pauline, Margrét Ákadóttir, kom til sögunnar systirin sem orðin er framandi manneskja. Það sem helst skorti á hér var að angistin næði nógu djúpt, leikur Maríu þótt smekklegur væri og sýndi vandaða vinnu hennar og leikstjóra náði ekki niður í þau sálardjúp sem áhorfand- inn á að gruna. Þröstur Guðbjartsson var þekki- legur í hlutverki Hornbys, læknisins sem fórnað hefur öllu til að vaka yfir Deboru. Ef til vill má segja um hann og Maríu, og Margréti Ákadóttur einnig, en það breytir því ekki að sýningin lifir á sviðinu, sem stemmning, ljóðkynjuð mynd úr heimi sálarinnar, ef maður má taka svo hátíðlega til orða. Jón Viðar Jónsson hefur þýtt leikinn, af auð- heyrilegri alúð og smekkvísi. Eftir hlé er komið í allt annan heim - og þó. Einnig hér er fjallað um firringu manns frá manni, þá firr- ingu sem birtist í hinni ýtrustu mynd, pyndingum. Kveðjuskál er máttug áminning, hryllingsmynd af skefja- Þymirós vaknar í Alaska. Margrét Ákadóttir, María Sigurðardóttir og Þröst- ur Guðbjartsson. lausri grimmd og niðurlægingu, hryllileg vegna þess hversu raunsæi- lega er haldið á málum. Pyndinga- meistarinn Nicolas gæti verið hvaða valdsmaður sem er, í þjóðfélagi sem búið er að snúa baki við öllum höml- um á því sem stjórnvöld mega gera til að halda andstæðingum sínum í skefjum. Formaður íslandsdeildar Amn- esty International, Ævar Kjartans- son, skrifar stutta grein í leikskrá. Þar kemur fram að ýmsar heimildir og frásagnir þeirra sem sætt hafa of- sóknum vegna stjórnmálaskoðana sinna séu ótrúlega líkar þeirri sögu sem Harold Pinter segir í þessu verki. Leikþátturinn er hið besta til þess fallinn að vekja fólk til vitundar um þennan skelfilega veruleika sem viðgengst „í einu af hverjum þremur ríkja heims,“ segir í grein Ævars. Kveðjuskál er sett saman úr nokkrum atriðum þar sem pyndinga- meistarinn þjarmar að Victor og konu hans Gilu, og barn þeirra Nikki, kemur einnig hér fram. Þetta er hrottalegt sjónarspil og leiðir með nærgengum hærri í ljós dýrslega grimmd. Samt er þessi handhafi valdsins að yfirbragði sem menntað- ur og siðfágaður maður. Og það ger- ir verkið einmitt svo ágengt. Hér er ekki verið að rökræða eitt eða neitt, við vitum jafnvel ekkert um „sök“ fórnarlambsins, hvað hann hefur að- hafst svo að stjórnvöld telji sig þurfa að brjóta hann niður. Við vitum ekki hvar verkið á að gerast, - við fáum aðeins upp í andlitið mynd niðurlæ- gingar ofbeldis. Og það er nóg. Arnar Jónsson ber uppi sýning- una, eins og fleiri sýningar upp á síð- kastið. Nicolas er sá sem er gerand- inn og sá sem talar. Arnar leikur á ýmsa strengi og fer létt með sem vænta mátti. Vald hans á rödd sinni og hreyfingum er með ólíkindum. f leik hans er einhver demón sem gerir herslumun í leikhúsi. Aðrir leikend- ur, Þór Tulinius og Margrét Áka- dóttir, sem hin hrjáðu hjón, fóru af hófstillingu með hlutverk sín, og Oddný Arnarsdóttir stóð sig vel sem Nikki litli. Sverrir Hólmarsson hefur þýtt leikinn, áreiðanlega er svona bein- skeyttur texti erfiður viðfangs. En orðræðan er hvarvetna lipur. Alþýðuleikhúsið sannar enn er- indi sitt í leiklistarlífinu. Enn vantar það aðstöðu. Á svo búið að standa lengi enn? 28. kjördæmisþing framsóknarfélaganna á Vesturlandi verður haldið í félagsheimilinu í Ólafsvík laugardaginn 14. nóv. og hefst kl. 10. Dagskrá: Kl. 10.00 Þingsetning, Guðrún Jóhannsdóttir Kjör starfsmanna: Þingforseta Ritara Kjörbréfanefndar Uppstillingarnefndar Skýrsla stjórnar og reikningar: Guðrún Jóhannsdóttir Reikningar Magna: Gunnar Kristjánsson Umræður og afgreiðsla Kl. 11.15 Framsögumenn um byggða- og atvinnumál Kl. 12.15 Hádegisverður Kl. 13.30 Ávörp: Alexander Stefánsson Steingrímur Hermannsson Fulltrúar SUF og LFK. Almennar umræður. Kl. 16.00 Kaffihlé. Kl. 16.20 Almennar umræður. Kl. 17.00 Nefndarstörf: Stjórnmálanefnd Byggða- og atvinnumálanefnd. Kl. 18.00 Ályktanir: Umræður Afgreiðsla. Kosningar Kl. 19.30 Þingslit - kvöldverður. Rútuferð verður frá framsóknarhúsinu, Akranesi kl. 7 og framsóknar- húsinu Borgaresi kl. 7.30. Stjórnin Vesturland Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633 og sími utan skrifstofutíma 51275. Stjórnin Launþegaráð - Vesturland Aðalfundur launþegaráðs framsóknarmanna á Vesturlandi verður haldinn i Snorrabúð Borgarnesi, fimmtudaginn 12. nóv. kl. 20.30. Stjórnin. Borgarnes - nærsveitir Spilum félagsvist í samkomuhúsinu Borgarnesi föstudaginn 13. nóv. kl. 20.30. Fyrsta umferð í þriggja kvölda keppni, góð verðlaun. Framsóknarfélag Borgarness l í f rE? á í 32. kjördæmisþing framsóknar- félaganna í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldið í Hrafnagilsskóla Eyjafirði dagana 13. og 14. nóv. n.k. og hefst kl. 20.30 á föstudagskvöld. Sérmál þingsins verða heilbrigð- ismál. Erindi flytja: Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingaráðherra. Sigurður Halldórsson, héraðslæknir Kópaskeri. Margrét Tómasdóttir, brautarstjóri við Háskólann á Akureyri. Regína Sigurðardóttir, fulltrúi sjúkrahúss Húsavíkur. Halldór Halldórsson, yfirlæknir Kristnesspítala. Gestir þingsins: Steingrímur Hermannsson, Sigurður Geirdal, Unnur Stefánsdóttir, Gissur Pétursson. Þinginu lýkur á laugardagskvöld með sameiginlegum kvöldverði og dansleik á Hótel KEA. Formenn eru hvattir til að tilkynna þátttöku til skrifstofu KFNE, sími 21180. Þingið er opið öllu framsóknarfólki. Stjórn KFNE. Gunnar Stefánsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.