Tíminn - 12.11.1987, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 12. nóvember 1987
Félag íslenskra bifreiðaeigenda gerir markaðskönnun:
Líta frostlöginn
alvarlegum augum
Jónas Bjarnason, framkvæmdastjóri
FÍB.
FÍB hefur nú í hyggju að gera
markaðskönnun á frostlegi á íslandi
til þess að ganga úr skugga um að
allir uppfylli þeir fyllstu kröfur.
Arm Kr. Porstemsson og Herbert
Herbertsson hjá Olíufélaginu hf.,
HVERJU SINNI
Húsnæðislánin eru hagstæð lán, eins og vera ber.
En af þeim þarf að greiða, jafnt sem af öðrum lánum og dráttarvextir eru háir
ef ekki er greitt á réttum tíma.
Þegar innheimtukostnaður bætist við að auki, fer greiðslubyrðin
óneitanlega að þyngjast.
Við minnum á þetta núna vegna þess að
haustgjalddagi var 1. nóvember sl. og greiðsluseðlar
hafa veriö sendir gjaldendum.
Greiðslur er að sjálfsögðu hægt að inna af hendi í
hvaða banka, bankaútibúi og sparisjóði sem er.
k láa med tánskjaravisitofu teggjast
116.
Við viljum auk þess benda á að þú getur greitt lánið
upp.hafir þú tök á því. Þá greiðir þú eftirstöðvar þess,
ásamt verðbótum, frá upphafi lánstfmans til
greiðsludags.
Á síðustu 12 mánuðum hafa 12 þúsund lán verið
greida upp, áður en lánstíma lauk.
Einnig getur þú lækkað höfuðstól lánsins, viljir þú
greiða inn á hann. Það getur komið sér vel þegar til
lengri tíma er litið.
HAFÐU HÚSNÆÐISLANIÐ ÞITT ERST Á Rl AOI.
ÞAÐ BORGAR SIG.
Húsnæðisstofnun ríkisins
sem flytur inn frostlög frá BOW
Chemical í Rotterdam, segja það
rangt hjá Pétri Jóhannessyni, sem
haft er eftir honum í Tímanum í gær
um sérstakan frostlög fyrir Volvo
bifreiðar, að sá frostlögur varni tær-
ingu miklum mun fremur en annar
sem er á markaðnum. Peir segja að,
sá frostlögur sem fluttur er inn á
vegum Olíufélagsins hf. hafi nægjan-
lega álvörn- og sé ekki síðri en
frostlögur Volvo. Vegna sérvisku í
Volvo framleiðendum ábyrgist þeir
ekki bíla sína nema notuð sé þeirra
eigin framleiðsla og til þess að geta
veitt sem besta þjónustu hefur Olíu-
félagið hf. selt Volvo frostlöginn
einnig. Herbert sagði ástæðu tæring-
ar í nútíma álvélum ekki að leita í
frostlegi frá olíufélögunum á íslandi
heldur miklu fremur væri vanrækt
um að kenna. Frostlögur missi ál-
varnareiginleika sína eftir vissan
tíma og brýnt sé að endurnýja á
hverju ári.
Herbert segir olíufélög hér á landi
selja frostlög sem viðurkenndur sé
af ströngu eftirliti víða í Evrópu.
Hann sé ódýrari en frostlögur Volvo
af þeirri einföldu ástæðu að hann er
fluttur inn í skilrúmslest.
„Frostlögurinn frá olíufélögunum
hér á íslandi eyðileggur ekki mótora.
Hann er síst verri en sá sem Volvo
hefur látið framleiða. Það þarf ein-
faldlega að hirða um bifreiðarnar
betur. Jafnvel besti frostlögur súrnar
og missir eiginleika sína með tíman-
um,“ sagði Herbert Herbertsson.
Hann sagðist þó vita til þess að
fluttur hefði verið inn slæmur frost-
lögur og nefndi í því sambandi
COMMA frostlöginn sem nefndur
var í Tímagrein í gær.
Jónas Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, sagði að félagið hefði í hyggju
að gera markaðskönnun á frostlegi
hér á landi og yrði auðvelt að koma
því í kring.
„Við lítum þessi mál alvarlegum
augum og munum hefja samræður
við Bílgreinasamband Islands. Það
verður að koma þessum upplýsing-
um um nauðsyn álvarnar í frostlegi
til allra kaupenda nýrra bíla. Við
munum gera kröfu til þess að sá
frostlögur sem ekki mætir kröfum
verði tekinn af markaðnum og mun-
um fylgja því eftir.“ þj
Fleiri Víetnamar
til landsins:
Tuttugu
fá hæli
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
að veita tuttugu víetnömskum
pólitískum flóttamönnum pólit-
ískt hæli hér á landi. Allir flótta-
mennirnir utan ein kona eru af
kínversku bergi brotnir, en því
fólki hefur gengið fremur illa að
samlagast víetnömsku þjóðfé-
lagi.
Flóttamennirnir tuttugu eiga
allir ættingja hér á landi, og
verður það sem fyrr Rauði kross-
inn á íslandi sem taka mun á móti
fólkinu og aðstoða það við að
koma sér fyrir hér á landi, sjá um
að kenna því íslensku og fleira.
Hinsvegar var það Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
sem hafði milligöngu um málið
við ríkisstjórn Islands.