Tíminn - 19.12.1987, Blaðsíða 7

Tíminn - 19.12.1987, Blaðsíða 7
Laugardagur 19. desember 1987 Tíminn 7 GrcintdgartxSk u«t ídcwto fugb fstek nátttíra iU Porstóinn Einaisson Úr hinni nýju verslun Nýtt verslunarhús byggt á 12 vikum Fréttarítari Tímans f Fljótum: Öm Þóraríns* son: Það telst alla jafna ekki fréttnæmt þótt bókaverslanir flytji í nýtt húsnæði. Þó hlýtur bókabúð Brynj- ars Pálssonar á Sauðárkróki að teljast til undantekninga en hún opnaði fyrir skömmu í nýjum og glæsilegum húsakynnum sem reist höfðu verið á ótrúlega skömmum tíma. Frá því fyrsta skóflustungan að húsinu var tekin og þar til verslunin opnaði í því, liðu aðeins 13 vikur. Aðalverktaki var Bygg- ingarfélagið Hlynur á Sauðárkróki. Nýja verslunin sem er 270 fer- metrar að stærð cr að Suðurgötu 1 á Sauðárkróki. Hún er aðeins hluti af stórhýsi sem þar er nú í byggingu og í mun verða lögreglustöð og sýslumannsembætti Skagafjarðar- sýslu. Að sögn Brynjars Pálssonar bók- sala stóðust allar áætlanir við bygg- ingu verslunarinnar fullkomlega og lauk hann miklu lofsorði á framist- öðu verktakans við þessa framkvæmd. Þá vildiBrynjarkoma á framfæri sérstöku þakklæti til þeirra fjölmörgu sem sendu blóm og heillaóskir á opnunardagipn, sá dagur yrði honum áreiðanlega óg- leymanlegur. Fyrsta íslenska fuglahandbókin Fyrsta greiningarbók um íslenska fugla er nú komin út hjá Erni og örlygi hf. og standa margir góðir menn að baki þessari vönduðu út- gáfu. Höfundur er Porsteinn Einars- son. Hún er í þægilegu broti fyrir þá sem hafa vilja hana með sér út í náttúruna, enda kemur hún út f ritröðinni Islensk náttúra. Oft hafa verið gefnar út fuglabækur og er það vel, en að athuguðu máli er þessi sú sem virðist komast næst því að kallast greiningarbók. Hún er sett upp með það fyrir augum að hand- hafinn geti í fljótu bragði skorið úr um það hvaða fugla hann hefur séð og jafnframt lesið ítarlegan og um leið aðgengilegan texta um ættir, einkenni og lifnaðarhætti. Helstu einkennin eru dregin fram á einfald- an hátt í máli og myndum. Það sem er nýjast í gerð þessarar bókar er að á smækkuðum myndum til hliðar við aðalmyndir af hverjum fugli, eru tölusettar örvar sem vísa á hnitmiðaðan skýringartexta. í meg- inmálstexta er auk sjálfra fuglalýs- inganna lýst búsvæði fuglanna, varpi, rödd og sérstæðum lifnaðar- háttum. Á teikningum eru auk þess sýnd einkenni fugla, sem duiist geta á ljósmyndum, t.d. mynstur í væng og stéli. Þá er margt að finna í bókinni sem vafalaust má telja til tímamóta í Skáksamband (slands sendir frá sér bók: Skákstríð viðPersaflóa Skáksantband íslands hefur gefið út bókina „Skákstríð við Persaflóa" eftir Jón L. Árnason stórmeistara. Bók þcssi greinir frá Ólympíumótinu í skák scm fram fór í Dubai fyrir rúmu ári síðan, aðdraganda mótsins og undirbúningi íslenska Ólympíu- liðsins. Síðari hluti bókarinnar greinir frá keppninni sjálfri, þar sem atburðarásinni er lýst frá umferð til umfcrðar. Greint er frá undir- búningi og hernaðaráætlun hverr- ar viðureignar. Liðsstjóri og þjálfari Ólympíuliðsins, Kristján Guðmundsson ritar um þennan þátt enda öllum hnútum kunnast- ur. Fjöldi skáka er birtur og skýra keppcndur sínar skákir sjálfir. Á baksíðu bókarinnar segir að með útgáfu bókarinnar vilji for- ráðamenn Skáksambands (slands gera stórmerkum atburði í ís- lenskri skáksögu verðug skil. gerð slíkra bóka. Aftast eru t.d. fuglanöfn á tungum nágrannaþjóð- anna, yfirlitskort af helstu fugla- björgum landsins ásamt tegunda- samsetningu þeirra, umfjöllun um fuglafriðun og margt fleira. Alls sáu 37 aðilar um ljósmyndun í bókina og teikningar á skýringar- myndum. Fjöldi manns hefur auk þess lagt gjörva hönd á útgáfu bóka- rinnar og er útkoman eftir því. KB Fyrsta bókin í athyglisverðri ritröð um íslenska iðnaðarmenn: Iðnaðarmaðurinn er heiti á nýút- kominni bók, sem Iðnskólaútgáfan gefur út. Þetta er viðtalsbók þar sem 6 þekktir iðnaðarmenn rifja upp ýmislegt sem á þeirra daga hefur drifið í starfi. Þeir sem segja frá eru: Bjarni Einarsson, skipasmíðameist- ari, einn af stofnendum Skipasmíða- stöðvar Njarðvíkur h.f., Björgvin Frederiksen, vélsmíðameistari í Reykjavík, Gísli Ólafsson, bakara- meistari í Reykjavík, Guðgeir Jónsson, bókbindari í Reykjavík, sem lést síðastliðið sumar, Jón Björnsson, húsgagnameistari og byssusmiður á Dalvík og Sigurgestur Guðjónsson bifvélavirkjameistari í Reykjavík. Með þessari bók er hleypt af stokkunum ritröð um íslenska iðn- aðarmenn, en til þessa hefur verið áberandi eyða í þeim hluta atvinnu- sögu íslands sem snýr að iðnaðinum. I formála bókarinnar kemur fram að ritnefnd, skipuð þeim Atla Rafni Kristjánssyni framkvæmdastjóra Iðnskólaútgáfunnar, Jóni Böðvars- syni, ritsjóra Iðnsögu íslendinga og Sigurði Kristinssyni, fyrrverandi forseta Landssambands íslenskra § ■■f ? iðnaðarmanna, ritaði bréf til helstu stéttarfélaga iðnaðarmanna og ósk- aði eftir tillögum um viðmælendur. Að því búnu var tekinn saman.listi yfir 60 menn, konur og karla, en úr honum voru síðan valin 6-7 nöfn. „En frá því efnisöflun hófst hafa mál skipast að ýmsu leyti á annan veg en til stóð. Til dæmis reyndist hvorki unnt að fá konu né iðnrekanda til viðtals að þessu sinni“, segir síðan í formálanum. Það kom fram á fundi með frétta- mönnum, sem efnt var til í tilefni útkomu bókarinnar, að í henni væri samankominn ýmiss athyglisverður fróðleikur um atvinnulíf á fyrstu áratugum þessarar aldar. Bjarni Ein- arsson, einn viðmælenda í bókinni, sagði m.a. að ritröð um íslenska iðnaðarmenn væri mjög þarft verk, ekki síst vegna þess að einmitt nú væru að hverfa af sjónarsviðinu þeir menn sem staðið hefðu í eldlínu þessa atvinnuvegar á fyrri hluta þessarar aldar. óþh Jón Björnsson húsgagnameistari og byssusmiður ó Dalvík. Hafsjór fróðleiks um upphaf iðnaðar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.