Tíminn - 08.03.1988, Qupperneq 11

Tíminn - 08.03.1988, Qupperneq 11
10 Tíminn Þriðjudagur 8. mars 1988 Þriðjudagur 8. mars 1988 Tíminn 11 Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum: Drechsler nálægt meti - Sjöberg náöi fram hefndum en Thránhardt missti af bronsinu s ' Austur-þýski langstökkvarinn Heike Drechsler beið þar til í næst síðasta stökki sínu með að ná foryst- unni í langstökkinu og verja þar með Evrópumeistaratitil sinn innanhúss. Drechsler sem bætti heimsmetið fyr- ir skömmu í 7,37 m tryggði sér sigurinn í Budapest með 7,30 m stökki en Galina Chistiakova frá Sovétríkjunum sem hafði fram að því leitt keppnina varð að láta sér Heike Drechsler. lynda annað sætið með 7,24 m. „Þrjú síðustu stökkin eru alltaf þau bestu hjá mér,“ sagði Drechsler við blaðamenn eftir langstökkskeppnina og þrætti fyrir að hafa verið orðin áhyggjufull. Svíinn Patrik Sjöberg sem átti heimsmetið í hástökki þar til fyrir skömmu náði fram hefndum á V- Þjóðverjanum Carlo Thránhardt, þeim hinum sama og tók af honum metið. Sjöberg varði Evrópumeist- aratitilinn með 2,39 m stökki en mistókst að bæta heimsmetið. Thránhardt lenti hinsvegar í vand- ræðum, sagðist hafa orðið fyrir trufl- un og rauk út í fússi þegar hann var sagður hafa fallið á tíma í einni tilrauninni. Hann fékk að koma inn aftur og fór yfir 2,34 en var þá kærður og bronsverðlaunin sem hann hafði náð í dæmd þeim sem varð í 4. sæti. Thránhardt varð áttundi með 2,24 m en yfir þá hæð hafði hann farið áður en hann hljóp út. Nánar um Evrópumeistaramótið á morgun. -HÁ/Reuter Mánudaginn 7. mars 1988 tekur gildi breyttur opnunartími á bensínstöðvum í Reykjavík, Seltjamamesi, Mosfellssveit, Kópavogi, Garðabæ og Haínar&rðL Astæða fyrir breyttum opnunartíma er nýgeiður samningur vinnuveitenda við Vakamannafélagið Dagsbrún og Verkamannafélagið Hlff er vaiðar bensínaf- greiðslumenn. Samningurinn felur í sér styttingu á opnunartíma bensínstöðv- anna, þannig að framvegis veiður lokað kl. 20.00 í stað 21.15 áður. : Söhitími bensútstööva á áöumefndum svæöum vaöurskv. samningiþessunu Virka daga allt árið: Opnað kl. 07.30, lokað kl. 20.00 Sunnudaga í júní, júlí, ágúst og september: Opnað kl. 09.00, lokað kl. 20.00 Aðra sunnudaga: Opnað kl. 10.00, lokað kl. 20.00 Aðrir helgidagar: Opnunartími auglýstur sérstaklega Viðskiptavimim olíufélaganna er YÍtisamlegast bent á, ad sjálfssalar eru opnireftirkL 20.00. Opna hollenska meistara- mótið í karate: Jónína í öðru sæti Jónína Olesen náði mjög góð- um árangri á opna hollenska meistaramótinu í karate sem haldið var í Haag um helgina. Jónína varð í 2. sæti í kata þar sem keppendur voru 34 og í kumite varð hún 4. af 15 kepp- endum. Árni Einarsson keppti einnig á mótinu. Hann varð í 4.-5. sæti af 50 keppendum í kata en féll snemma úr keppni í ku- mite. Opna hollenska meistaramótið er mjög sterkt og nota sterkustu karatemennirnir það gjaman sem lið í undirbúningi fyrir Evrópu- mótið. -HÁ ísknattleikur: Yfirburðir Akureyringa Frá Jóhuini Bjarnasyni á Akureyri: Akureyringar unnu Reykvík- inga örugglega í bæjarkeppni í ísknattleik sem fram fór á heima- velli þeirra fyrmefndu um helg- ina. Norðanmenn sigmðu 8-2 eft- ir að staðan var 3-2 þegar síðasta lotan hófst. Til stóð að liðin mættust tvisvar en af því varð ekki þar sem frystibúnaðurinn bilaði en keppnisvöllur Akureyr- inga er með vélfrystu svelli. Kvennakarfa: Öruggt hjá IBK Frá Margréti Sanders fréttaritara Tímans í Njarðvík: ÍBK sigraði UMFN 75-39 í meistaraflokki kvenna í körfu- knattleik í Njarðvík á laugardag. Staðan í hálfleik var 27-14 Kefla- vík í vil. Keflavíkurstúlkumar byrjuðu leikinn af miklum krafti, komust í 9-0 og höfðu góða forystu allan leikinn. Margrét Sturlaugsdóttir var atkvæðamest hjá ÍBK en annars var liðsheildin sterk. Hjá UMFN bar mest á Sigríði Guð- björnsdóttur og Þórunni Magnús- dóttur. Helstu tölur: 9-0, 18-8, 24-8, 27-14 - 33-20, 39-23, 47-31, 66-39, 75-39. Stigin, UMFN: Sigríður Guðbjömsdótt- ir 13, Þórunn Magnúsdóttir 10, Þórdís Ingólfsdóttir 8, Harpa Magnúsdóttir 5, Amý Þorsteinsdóttir 2, María Jóhannes- dóttir 1. ÍBK: Margrót Sturlaugsdóttir 17, Anna María Sveinsdóttir 13, Auður Rafnsdóttir 11, Bylgja Sverrisdóttir 11, Björg Hafsteinsdóttir 8, Kristín Blöndal 6, Hilma Hólm 4, Svandís Gylfadóttir 3, Elínborg Herbertsdóttir 2. Staðan í 1. deild kvenna er þó þessi: IBK............... 14 11 3 839-617 22 ÍR ............... 14 11 3 792-645 22 ÍS ............... 14 10 4 665-572 20 Haukar............ 14 7 7 708-702 14 UMFG.............. 14 5 9 511-661 10 UMFN.............. 15 312 562-689 6 KR................ 15 312 615-806 6 ÍÞRÓTTIR Það er ekki gott að sjá hvað þeir Torfi Magnússon og Guðni Guðnason setlast fyrir hér en greinilegt er þó að hvorugur viil láta hinn ná frákastinu. Tímamynd Pjetur. Ur leik án taps! - ÍR-ingar komust áfram í bikarkeppninni á stigum á útivelli - Haekar og KR komnir áfram Frí Frímuui Ólafwy ni frettariUra Tiouum í Grúduvík: Grindvíkingar voru slegnir út úr bikarkeppnii KKÍ með jafntefli! Já, ótrúlegt en satt, ÍR komst áfram með fleiri stigum skoruðum á útiveHi og mun þetta vera í fyrsta sinn sem körfuboltalið er slegið út úr bikarkeppni án taps. Grindvíkingar jöfnuðu leikinn, 68-68, þegar 45 sek. vom til leiksloka. ÍR fór í sókn, Ragnari Torfasyni mistókst körfuskot og Grindavík vann frákastið. Þegar 5 sekúndur voru til leiksloka var dæmt uppkast. Grindavík vann það og Jón Páll Haraldsson náði að skora en karfan var dæmd af þar sem leiktíminn var runninn út. Annars má segja um leikinn að Grindavík hafi tapað honum á lélegri sóknarnýtingu því hittnin var mjög slök hjá þeim. Vörnin var hinsvegar oft á tíðum mjög vel leikin. ÍR-ingar gáfust hinsvegar aldrei upp og börðust af krafti allan leikinn. Ragnar Torfason var mjög góður hjá ÍR og Karl Guðlaugsson stjórnaði sóknarr leiknum eins og herforingi. Aðrir áttu einnig ágætan leik. Hjá Grindavík vom Hjálmar Hallgrímsson og Rúnar Árnason einna bestir í jöfnu liði. Helstu tölur: 9-2, 18-14, 20-20, 23-31, 27-33 - 33-39, 41-59, 48-55, 52-60, 62-66, 68-68. Stigin, UMFG: Hjálmar 14, Steinþór 13, Guðmundur 11, Rúnar 8, Jón Páll 8, Guölaugur 5, Sveinbjöm 5, Eyjólfur 4. ÍR: Karl 18, Ragnar 15, Vignir 11, Jón öm 9, Jóhannes 8, Bragi 7. Dómarar: ómar Scheving og Krístinn Albertsson. Þeir dœmdu mjög vel. ■ KR-ingar tóku Valsmenn hreint og beint í nefið í Valsheimilinu á sunnudagskvöldið og það var ekki fyrr en varalið heimamanna var allt komið inná að eitthvað fór að ganga þeim megin. KR-ingar spiluðu mjög vel, einkum í vörn en leikur Valsmanna var í molum þar til varaliðið tók við. Helstu tölur: 0-5, 6-18.17-26, 23-37, 29-39-29-48, 31-58, 35-63, 48-67, 58-70, 62-72, 64-74, 64-79. Stigin, Valur: Tómas 14, Bjöm 10, Leifur 9, Svali 8, Einar 7, Þorvaldur 6, Ragnar 6, Bórður 4. KR: Jóhannes 19, Guðni 16, Birgir 14, Ástþór 12, Jón 8, Símon 8, Matthias 2. ■ á unnu Haukar B-lið Njarðvíkinga ömgg- lega, 100-77. - HÁ Keilufélagið Þröstur varð um helgina bikar- meistari í keilu. Þröstur sigraði PLS í úrslita- leik með 2054 stigum gegn 1987 en fyrir síðasta leik munaði aðeins 44 stigum (pinnum) á liðunum. Það var Hjálmtýr Ingason PLS sem náði hæsta leik í úrslitaleiknum, 211, en Alois Raschofer Þröstum hæstu seríu, 560. Keilufé- lagið Þröst skipa þeir Bjöm Baldursson, Stefán Þorvarðarson, Halldór Sigurðsson, Alois Raschofer og Gunnar Hersir. Það er Bjöm sem hér að ofan sendir kúluna af stað. Þríðjudeildarliðið Úlfamir sigruðu 1. deildar- liðið M.S.F 2144-1939 í leik um þríðja sætið. -HÁ/Tímamynd Pjetur. Úrslitakeppnin í blaki: Þróttarar eru enn ósigraðir Þróttarar eru ósigraðir í úrslita- keppninni í karlaflokki íslandsmóts- ins í blaki. Stúdentar hafa aftur á móti tapað tveimur leikjum en þeir komu sem kunnugt er ósigraðir út úr deildakeppninni. Þrótturum nægir að vinna HK eða fS til að tryggja sér f slandsmeistarat itilinn. Þróttur vann KA nokkuð örugg- lega á föstudagskvöldið, 3-0 (15-3, 16-14, 15-9). Á eftir lagði hinsvegar HK ÍS að velli í mjög jöfnum leik, 3-2(15-7, 13-15, 15-12,7-15, 16-18). Einar Ásgeirsson var sem oft fyrr í vetur illstöðvandi en Friðjón Bjarna- son var bestur í liði ÍS. ÍS vann svo KA 3-2 (14-16, 14-16, 15-8, 15-2, 15-9) á sunnudaginn í löngum og ströngum leik. í kvennaflokki töp- uðu Þróttarstúlkur tvisvar 1-3, fyrir Víkingi (15-13, 11-15, 15-5. 15-3) og fyrir IS (15-9, 15-11, 11-15, 15-13). Myndin hér til hliðar er einmitt úr þeim leik. -HÁ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.