Tíminn - 12.03.1988, Page 4
JV' .ínri'T
8801 r.-f tv .01 u!Ofimf>ousJ
4 Tíminn
Laugardagur 12. mars 1988
Bifreiðaeftirlitið lagt niður:
Bifreiðaskoðun
Islands starfi
til ársins 2000
Nefnd sem skipuð var af dóms-
málaráðuneytinu, til að fjalla um
fyrirkomulag á skoðun og skráningu
ökutækja, skilaði nýlega áliti sínu.
Helstu niðurstöður nefndarinnar
voru þær, að leggja beri Bifreiða-
eftirlit ríkisins niður og stofna nýtt
fyrirtæki sem héti Bifreiðaskoðun
íslands hf. Þátttakendur í þessu nýja
hlutafélagi yrði ríkissjóður, trygg-
ingafélög og fyrirtæki og samtök
sem hefðu hagsmuna að gæta varð-
andi ástand ökutækja. Hlutafé hins
nýja félags yrði 80 milljónir króna,
en nefndin klofnaði í áliti sínu
varðandi eignarhlut ríkissjóðs.
Ákveðið var þó að ríkissjóður myndi
eiga 41 milljón króna.
Verkefni hins nýja félags yrði að
framkvæma árlega skylduskoðun,
annast nýskráningu, tölvuskráningu
upplýsinga, framleiða og/eða selja
númer á ökutæki og standa fyrir
aðgerðum til að auka öryggi í um-
ferðinni.
Nefndin lagði ennfremur til að
núverandi númerakerfi verði lagt
niður og fastnúmerakerfi verði tekið
upp frá og með 1. júní næst kom-
andi. Þó er ökumönnum heimilt að
halda núverandi númeraskiltum þar
til að bíllinn verður afskráður.
Lagt er til að eftirlit með ökutækj-
um á vegum úti, sem hingað til hefur
verið í höndum Bifreiðaeftirlitsins,
verði falið lögreglunni. Þá leggur
nefndin til að sérstök nefnd fjalli um
hvernig ökukennslu og fyrirkomu-
lagi ökuprófa verði háttað næstu
árin.
Gert er ráð fyrir því að þrjár
skoðunarstöðvar rísi úti á landi,
tvær árið 1991 og ein árið 1992.
Loks leggur nefndin til að Bif-
reiðaskoðun fslands hf. hafi starfs-
leyfi til ársins 2000. -SÓL
SkoðunarmlM, þar *em fram
kemur númar ökutskla og
skoðunarmánuður.
Afmarkaður roltur, þar sem
setja má IS-merki, merkl
sveitarfólags cða
lógsagnarumdæmis.
AB
456
Tillaga að númeraspjöldum
(Stærð 70% af heildarstærð)
845GC02019
AB0456
Magnaðri rafhlöður
og endast mun betur
Kodak fyrirtækið hefur hafið
framleiðslu og sölu á rafhlöðum.
Rafhlöðunum er skipt í fjóra
flokka, XTRALIFE, PHOTOLl-
FE, ULTRALIFE og KODAK
HIGH POWER.
ULTRALIFE er 9 volta líþíum-
rafhlaða og fyrsta sinnar tegundar
fyrir almennan neytendamarkað.
Þær voru fyrst notaðar í Kodak
diskmyndavélar og cru nú notaðar
í allar vandaðar myndavélar. Slík
rafhlaða hefur 10 sinnum lengri
endingartíma en venjulegar raf-
hlöður (sinkkarbón) og helmingi
lengri en bestu alkalínrafhlöður.
Auk þessa hafa þær gífurlegt
geymsluþol, allt að tíu ár. Þær
henta því vel í alls kyns öryggisbún-
að, s.s. reykskynjara, þjófavarnar-
kerfi og ýmsar fjarstýringar, tölvu-
vogir o.fl.
XTRALIFE eru alkalínrafhlöð-
ur og eru fáanlegar í öllum algeng-
um gerðum. Þær hafa langan end-
ingartíma, u.þ.b. fimm sinnum
lengri en venjulegar sinkkarbón-
rafhlöður og mikið geymsluþol.
PHOTOLIFE eru sérhannaðar
rafhlöður fyrir myndavélar og ann-
an ljósmyndabúnað. Þær hafa um
10% betri endingu en aðrar alka-
línrafhlöður þegar þær cru notaðar
í myndavélar eða leifturljós.
KODAK HIGH POWER eru
sinkkarbón rafhlöður, ódýrar og
hentugar í allan sparneytinn útbún-
að. Hans Petersen er umboðshafi
Kodak um allt land.