Tíminn - 12.03.1988, Side 5

Tíminn - 12.03.1988, Side 5
Laugardagur 12. mars 1988 Tíminn 5 BP eyðir 70 milljónum dollara í olíuboranir Eyjólfur Konráð Jónsson segir Ijóst að setlög sem gætu geymt olíu séu á Rockall svæðinu: Rockall málið verður rætt íslenskir olíufurstar raunhæfur möguleiki? Frá David Keys, fréttarítara Tímans í London Svo kann að fara að rannsóknarverkefni, sem Britísh Petrolium (BP) hrindir af stað næsta sumar, leiði í Ijós að innan íslenskrar lögsögu leynist olía. BP mun hefja tilraunaolíuboranir næsta sumar, á svæði um 350 km suður af Færeyjum. BP mun eyða um 70 milljónum dollara í þessar tílraunaboranir. Niðurstöður þessara borana munu einnig, án efa leiða í Ijós hvort olíu er að vænta á hafsvæðinu milli íslands og Grænlands. „Það kom aldrei annað til mála af minni hálfu þegar þetta boð Bretanna barst utanríkismála- nefnd en að Hatton-Rockall mál- ið yrði tekið upp og rætt mjög ítarlega bæði við æðstu embættis- menn og stjórnmálamenn, ef þiggja ætti boðið,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson formaður utan- ríkismálanefndar Alþingis í sam- tali við Tímann í gær. Aðspurður sagði Eyjólfur að niðurstaðna úr sameiginlegum leiðangri fslendinga og Dana sem farinn varsl. haust lægjuennekki endanlega fyrir. Varðandi olíu sagði hann þó að ljóst væri orðið að þarna væru setlög á botninum sem gætu geymt olíu og gas. Um tilkall fslendinga til Hat- ton-Rockali svæðisins sagði Eyj- ólfur að hans afstaða væri í raun mjög einföld. „Ég sá það í hendi mér á Hafréttarráðstefnunni í Genf 1978 þegar fyrst komu kort af þessum hafsvæðum, að við eigum þarna rétt. Ég taldi það mína skyldu að kynna mér þetta og hef gert það í 10 ár. Við getum ekki leyft okkur vegna komandi kynslóða að gæta ekki þessa réttar. Ég er ekki endilega að gera mér vonir um að þarna finnist olía, en ef hún er þar þá er það ekki verra. Ég vil hins vegar fyrst og fremst vernda hafsvæðin og út á það gengur allt málið. Það sem við komum til með að ræða í London er hvorki meira né Áætlað er að BP hefji tilraun- aboranir á þessu svæði á komandi sumri, og er gert ráð fyrir að fyrstu boranir verði tæpum 100 km norð- vestan við skosku eyjuna Lewis. Önnur stór tilraunahola verður boruð í vesturjaðri „Evrópuflek- ans“ svokallaða. Svo vestarlega, á þessu svæði, hafa vísindamenn ekki leitað olíu til þessa. Það er rétt að geta þess að jarðfræði þessa umrædda svæðis svipar miög til jarðfræði hafsvæðisins milli íslands og Grænlands, því að „Evrópuflek- inn“ og „Grænlandsflekinn" lágu saman fyrir um 160 milljónum ára. Miðatlantshafshryggurinn, sem ís- land er hluti af, hefur í aldanna rás byggst upp í kjölfar flekareksins í austur og vestur. Sjö tilraunaholur verða boraðar og er miðað við að hver þeirra verði um 4 km djúp. Talið er að þessu verkefni verði lokið á næstu fimm árum. Slíkar holur hafa aldrei verið boraðar á jafn miklu sjávardýpi fyrr, en áætlað er að dýpi sjávar á þessu svæði sé um 400 m. Kostnaður við hverja holu er um 10 milljónir dollara. Haft hefur verið eftir breskum jarðfræðingum að ekki sé hægt að útiloka að olíu sé að finna á Rockall-svæðinu, Lousy-hafsvæð- inu og á hafsvæðinu við Færeyjar. Rétt er að vekja athygli á því að Lousy-hafsvæðið er aðeins um 350 km suðaustur af fslandi. Það er því, samkvæmt ummælum breskra jarðvísindamanna, ekki útilokað að innan íslenskrar lögsögu leynist olía í jarðlögum. Vísindamenn búast allt eins við að tilraunaboranir BP næsta sumar gefi gagnlegar upplýsingar um jarðfræði hafsbotnslaganna á um- ræddu svæði, sem gæti mögulega í leiðinni veitt mönnum upplýsingar um jarðfræði hafsbotnsins suður af íslandi svo og svæðisins milli ís- lands og Grænlands. Svörtu línurnar sýna Hatton-Rocall svæðið. Eyjólfur Konráð ræðir við Breta um Hatton-Rockall: Búist við þveru neii frá Bretum Eyjólfur Konráð Jónsson, form. utanríkismálanefndar. Frá David Keys, fréttarítara Tímans í London Eyjólfur Konráð Jónsson, for- maður utanríkismálanefndar Al- þingis, mun á mánudag hitta að máli nokkra háttsetta fulltrúa bresku ríkisstjórnarinnar í London, og gera tilraun til að fá Breta ofan af þeirri skoðun að íslendingar eigi ekkert tilkall til Hatton-Rockall svæðisins. íslendingar hafa gert tilkall til allra málma sem kynnu að leynast á sjávarbotninum á svæðinu, en búist er við að breska ríkisstjórnin muni algerlega hafna því tilkalli, þegar Eyjólfur leggur fram kröfuna á mánudag. Vitað er að Bretar samþykkja ekki að fslendingar eigi nokkurn lagalegan rétt til tilkallsins. Þó er talið að Bretar muni hlusta kurteis- lega á málflutning Eyjólfs Konráðs, en hafna síðan kröfu íslendinga algerlega. Engar samningaviðræður munu eiga sér stað, heldur er eingöngu um að ræða hrein og bein skoðana- skipti. Vitað er ríkisstjórn íslands hefur ekki borið málið upp við bresku ríkisstjórnina í að minnsta kosti tvö og hálft ár. Hins vegar segja sumir að koma formanns utanríkismálanefndar, sé hluti af undirbúningi íslenskra stjórnvalda til að hefja beinar viðræður við bresku ríkisstjórnina, þrátt fyrir einarða afstöðu þeirra síðarnefndu í málinu. Þó er ljóst, að aðeins einn hlutur getur komið bresku ríkisstjórninni til að viðurkenna tilkall fslendinga. Það er ef niðurstöður úr rannsókn- um sem gerðar voru á síðasta ári, sýna að landgrunn fslands, nái lengra en hingað til hefur verið haldið. Þá er líklegt að Bretar neyðist til að samþykkja kröfur fslendinga. Talsmaður breska utanríkis- ráðuneytins vildi ekkert tjá sig um heimsókn Eyjólfs Konráðs, nema að „þeir biðu fullir áhuga á að heyra rök hans í rnálinu." Viðræður formanns utanríkis- málanefndar um Hatton-Rockall svæðið, er einn liður í heimsókn þriggja fulltrúa úr utanríkismála- nefnd til Bretlands, en hinir tveir fulltrúarnir eru þau Kristín Einars- dóttir og Guðmundur G. Þórarins- son. Þau munu hitta að máli Lindu Chalker, aðstoðarutanríkisráð- herra Bretlands, auk aðila úr ráðu- neytinu sem fjalla um samband EFTA og Evrópubandalagið. Þá verður rætt við háttsetta aðila inn- an viðskiptaráðuneytisins og fyrr- um orkumálaráðherra, David Howell, sem nú er stjórnarformað- ur utanríkismálanefndar breska þingsins. Þá munu Eyjólfur Konráð, Kristín og Guðmundur eiga með fund með fulltrúa Bretlands í NATO. Þó er talið að umræður um minna en að friða allt hafsvæðið frá ströndum Skotlands og Nor- egs alla leið til Kanada og það getum við samkvæmt hafréttin- um.“ Sagði Eyjólfur að íslending- ar væru búnir að vinna mikla undirbúningsvinnu í þessu máli og væru trúlega komnir lengst í því að skoða þessi mál ofan í kjölinn eftir reglum hafréttarsátt- málans. Mikið af þeim undirbún- ingsgögnum myndu verða lögð fram í viðræðunum í London til styrktar málstað fslendinga í þessum efnum. -BG Hatton-Rockall svæðið munu skyggja á aðra fundi í heimsókn- inni. Kristín Einarsdóttir, alþm. Guðmundur G. Þórarinsson, alþm.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.