Tíminn - 28.04.1988, Side 4

Tíminn - 28.04.1988, Side 4
4 Tíminn Fimmtudagur 28. apríl 1988 Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195 Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195 Garður Brynja Pétursdóttir Einholti 3 92-27177 Keflavík GuðriðurWaage Austurbraut 1 92-12883 Sandgerði DavíðÁ. Guðmundsson Hjallagötu 1 92-37675 Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826 Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261 Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Grundarfjörður Anna Aöalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Hellissandur Ester Friöþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629 ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541 Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366 Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673 Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503 Bildudalur HelgaGísladóttir TjarnarbrautlO 94-2122 Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131 Hölmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132 Hvammstangi BaldurJessen Kirkjuvegi 95-1368 Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581 Skagaströnd ÓlafurBernódusson Bogabraut 27 95-4772 Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311 Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut54 96-71555 Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308 Reykjahlið lllugi Már Jónsson Helluhraun 15 96-44137 Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258 Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157 Vopnafjörður Einar Ólafur Einarsson Hamrahlið32 97-31124 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350 Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467 Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626 Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167 Eskifjörður Björgvin Bjarnason Eskifjörður Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu8 97-51239 Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839 Djúpivogur Óskar Guðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857 Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317 Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 99-4389 Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 99-3813 Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 99-3198 Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerðiö 99-3211 Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimar 99-8172 Vík PéturHalldórsson Sunnubraut5 99-7124 |f! Félagsstarf 'V aldraðra í Reykjavík Námskeið í gömlum dönsum fyrir eldri borgara Gömlu dansarnir rifjaðir upp og kennd ýmis afbrigði. Kennt verður alla þriðjudaga í maí kl. 17.00 til 18.00 að Norðurbrún 1 og kostar námskeiðið kr. 500.- Innritun og nánari upplýsingar í síma 686960 daglega frá kl. 10-16. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Landbúnaðarráðuneytið tilkynnir varúðarráðstafanir og aðgerðir vegna hringskyrfis undir Eyjafjöllum: Gripahús merkt í bak og fyrir Gripið hefur verið til varúðarráð- stafana og aðgerða vegna hringskyrf- is undir Eyjafjöllum. Tíminn greindi frá því nýlega að þessi sveppasmit- sjúkdómur hafi gert vart við sig á fjórum bæjum undir Eyjafjöllum og þurfti m.a. að lóga 44 hrossum og tryppum á bænum Miðgrund, í ör- yggisskyni. Hrossin höfðu verið í snertingu við kálfa sem sýking var í. Leggst hringskyrfi á fé, gripi og menn og er bráðsmitandi. Að tiliögu yfirdýralæknis hafa nú verið settar reglur um varúðarráð- stafanir og aðgerðir vegna hring- skyrfis. Stefnt er að því að uppræta sjúkdóminn hvar sem hann finnst. I reglunum felst m.a. einangrun húsdýra á þeim bæjum sem hring- skyrfi hefur gert vart við sig. Líf- gripaflutningur að og frá hringskyrf- isbæjum er bannaður. Ríkissjóður mun kosta nýjar vörslugirðingar sem yfirdýralæknir telur nauðsynlegar til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Á hringskyrfisbæjum verða gripahús merkt með áberandi hætti: „Smit- sjúkdómur, óviðkomandi bannaður aðgangur." Álgjört bann er við flutningi hús- dýra nema hrossa til lífs og dvalar frá bæjum, til bæja og milli bæja á hættusvæðinu, svonefnda. Leita þarf leyfis héraðsdýralæknis vegna hrossaflutnings og umferðar með hross. Hættusvæðið er skilgreint þannig: Austustu bæir í V.-Eyja- fjallahreppi frá og með Núpi og Indriðakoti að mörkum Eyjafjalla- hreppa. Bændur á hættusvæðinu skulu merkja og skrá öll geldneyti fyrir 1. maí og stefnt verður að merkingu allra geldneyta í Eyja- fjallahólfi. Fjáreigendum á hættusvæðinu er heimilt, nema annað sé ákveðið, að taka fé sitt heim eins og verið hefur. En fjáreigendur utan hættusvæðisins mega hins vegar ekki sækja fé sitt þangáð nema með leyfi búfjársjúk- dómanefndar (riðunefndar). Eigendur húsdýra í Eyjafjallahólfi (svæðið milli Markarfljóts og Jökuls- árlínu á Sólheimasandi) skulu til- kynna héraðsdýralækni strax og grunur vaknar um hringskyrfi í dýr- um sem þeir eiga eða hafa umráð yfir. Samþykki héraðslæknis þarf til flutnings á húsdýrum öðrum en hrossum til lífs og dvalar inn og út Ferskfisksölur erlendis: Lélegt verð í Bretlandi Það var heldur lélegt verðið sem fékkst fyrir íslenska fiskinn í Bret- landi í síðustu viku. Þrír bátar, Ljósafell SU, Börkur NK og Þorri SU, seldu allir afla sinn þar í landi og var meðalverðið ekki nema 59,59 krónur. Ljósafellið seldi tæp 147 tonn, fékk fyrir 8,8 milljónir, eða meðalverð 59,94 krónur. Börkur seldi tæp 148 tonn, fékk fyrir 9,5 milljónir, eða 64,35 krónur á kílóið. Þorri seldi svo 83,8 tonn fyrir 4,2 milljónir, eða meðalverð upp á 50,55 krónur. Heildarsalan var því 378,7 tonn og fyrir það magn fengust 22,6 milljónir, eða fyrrgreint meðalverð, 59,59 krónur. Mest varselt af þorski, 313 tonn og var meðalverð hans 61,68 krónur. Rúmlega 21 tonn var af ýsu sem fór á 81,59 krónur hvert kíló. 38,5 tonn voru af ufsa, sem seldist á 29,04 krónur. 1.225 tonn voru seld í gámum til Bretlands í vikunni sem leið og fengust 76,2 milljónir fyrir það magn. Heildarmeðalverðið var 62,21 króna. Mest, eða 512,3 tonn voru af þorski og fór kílóið á 61,69 krónur. 374,6 tonn voru af ýsu og seldist kílóið af henni á 68,33 krónur. 122,2 tonn voru af kola, sem seldist á 65,04 krónur, 58,8 tonn af ufsa seldust á 26,41 krónur hvert kíló og loks voru 57 /onn af grálúðu sem seldist á 56,18 k/ónur hvert kíló. Þýskalandsmarkaðurinn var ekki mikið líflegri. Eitt skip seldi þar í síðustu viku. Snorri Sturluson RE landaði og seldi 280,4 tonn á rúmar 12 milljónir. Meðalverðið var því 42,96 krónur. Mest var af karfa, 219 tonn og var meðalverð hans 42,18 krónur. 4,6 tonn/voru af þorski, sem fór á 49,33 krónur. Tæp 50 tonn voru af ufsa, en kílóverð hans var 44,69 krónur. -SÓL Fimm seglskip til íslands Fimm seglskip, að minnsta kosti, munu að öllum líkindum hafa við- dvöl hér á landi í byrjun sumars, vegna 50 ára afmælis sjómanna- dagsins sem haldinn verður hátíð- legur 5. júní. Skipin fimm eru frá Danmörku, Færeyjum og Sovétríkjunum, en ekki hefur enn sem komið er fengist vilyrði frá öðrum löndum um að senda hingað seglskip í tilefni dagsins. Ætlunin er að skipin sigli í samfloti til hafnar 5. júní og opni þannig hátíðahöldin á sjómanna- daginn. -ABÓ úr Eyjafjallahólfi og á milli Austur- og Vestur-Eyjafjallahreppa. Flutn- ingur sauðfjár er þó bannaður eins og verið hefur. Bændur úr Eyja- fjallahólfi skulu forðast að hýsa búfé frá öðrum bæjum. Skylt er að til- kynna eiganda, hreppstjóra eða hér- aðsdýralækni ef stórgripir sjást utan girðinga. Eytt skal hundum og kött- um sem lent hafa í sérstakri smit- hættu og heimilt ergegn bótum, sem landbúnaðarráðuneytið ákveður, að lóga stórgripum eða sauðfé, sem lendir á svæðum þar sem gripir sjúkir af hringskyrfi eru eða hafa verið. Sérákvæði er um A.-Eyjafjalla- hrepp. Þar segir að tilkynna skuli búfjársjúkdómanefnd um fyrirhug- aða flutninga á nautgripum milli bæja í hreppnum. Hún heldur um það skrá og tilkynnir héraðsdýra- lækni eftir ástæðum. Tilkynna skal líka eiganda, hreppstjóra eða búfjár- sjúkdómanefnd um stórgripi sem sjást utan girðinga í hreppnum. Fleiri ákvæði eru í reglunum en hér hefur verið fjallað um þau helstu. JIH Tímamynd ÖÞ Sæluvikuskákmótiö: Róbert sigraði Meðan Sæluvika Skagfirðinga stóð yfir hélt Taflfélag Sauðár- króks sitt árlega Sæluvikuskák- mót. Keppendur á mótinu voru að- eins tíu talsins og átti óhagstæð veðrátta sinn þátt í að þátttaka varð minni en oftast áður. Tals- verður hópur skákmanna frá Reykjavík og Akureyri hefur oft- ast tekið þátt í mótinu. Úrslit á mótinu urðu þau að Róbert Harðarson úr Reykjavík sigraði með 8'/2 vinning af níu mögulegum. í öðru sæti varð Bragi Halldórsson úr Reykjavík með 7‘A vinning og í þriðja til fjórða sæti urðu Páll Á. Jónsson, Siglufirði og Páll L.. Jönssoni Skagaströnd, með 6V2 vinning. Fimmti varð Pálmi Sighvatsson, Sauðárkróki, með 6 vinninga. Damixa umboðið styrkti móts- haldara mjög myndarlega með því að gefa öll verðlaun sem veitt voru á mótinu. Einnig veittu nokkur fyrirtæki á Sauðárkróki styrk vegna mótsins. Skákstjóri var Stefán Haraldsson. ÖÞ, Fljótum

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.