Tíminn - 28.04.1988, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 28. apríl 1988
Tíminn 7
8. Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Stormskerinu órótt vegna hrakspáa veöbanka og eigin loforða:
MILLI LÍFS OG DAUDA
„Ef það er eitthvað mark takandi
á þessum veðbankatölum, fyrir utan
Bretana, þá er ég nú staddur milli
lífs og dauða, eða er það ekki?“
sagði Sverrir Stormsker í samtali við
Tímann í gær, eftir að honum voru
bornar fregnir af stöðu íslenska
lagsins á veðmálalista Ladbroke’s
fyrirtækisins í gær.
Sverrir sagði að dagskráin væri
alveg ótrúlega stíf, sérstaklega þar
sem þeir þyrftu iðulega að vakna
klukkan 7 á morgnana, en eins og
alþjóð er kunnugt, er Sverrir einn
morgunsvæfasti maður sem um
getur.
„Þetta er náttúrlega pína fyrir
mig, en annars gengur þetta mest út
á, eins og ég hafði raunar ímyndað
mér, bjórdrykkju og kampavíns-
veislur. Alls staðar er vín á boðstól-
um og það þýddi sko ekki fyrir
bindindismann að koma hingað. Ef
maður hefði komið hingað sem
slíkur, hefði maður fljótt breyst í
drykkjuhrút," sagði Sverrir.
Hann varð undrandi á því að
blöðin skyldu skrifa að hann hefði
ekki enn orðið þjóðinni til skammar,
en benti á að hann hefði nú verið
Wilfred frá Austurríki.
Lara Fabian frá Lúxemborg
prúður vegna þess að á einum blaða-
mannafundinum hefði ekkert vín
verið á boðstólum, og því aðeins
mætt þrír blaðamenn.
„Það var í raun enginn fundur, því
menn sátu bara og nöguðu á sér
neglurnar," sagði Sverrir.
Fyrri blaðamannafundurinn hefði
hins vegar verið öllu líflegri, „enda
dældu allir í sig bjór, hvítvíni, rauð-
víni, tartalettum og ritzkexi, þannig
að menn yrðu þyrstir og þyrftu að
drekka meira,“ bætti hann við, en
sagði að samt hefði aðeins einn
enskur blaðamaður talað við þá.
í dag verður hins vegar aðal
blaðamannafundurinn, og sagði
Sverrir að hann hefði heyrt að þar
yrði allt vaðandi í sterku víni, þannig
að fundurinn hlyti að verða fjölsótt-
ur.
„Annars var einhver samkunda í
RDS höllinni, þar sem keppnin fer
fram, á mánudagskvöld, þarsem allt
þetta Eurovisíonpakk hittist, ásamt
grilljón fréttamönnum. Ég held nú
óneitanlega að við höfum vakið þar
mesta athygli, en það var nú bara
vegna þess að Jón Páll hélt á okkur
Stefáni og gekk nokkra hringi og
það þótti voðalega spaugilegt. Þetta
var myndað í bak og fyrir og við
spurðir hvaða tröll þetta væri. Hann
Stigagjöf 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 Heimastig ALLS:
1. ísland Sókrates Beathoven
2. Svíþjóð Stad i Ijus Tommy Körberg
3. Fnnland Nauravat silmöt Muistetaan Boulevard
4. Bretiand Go Scotl Fltzgerald
5. Tyrkland Sufi (Hey-ya Hey) Maznar-Fuat-Ozkan
6. Spánn La chlca Quiyo Quiero La Decsda
7. Niðurtönd Shanari-La Gerara Jollng
8. Israel Yardena Anazy Ben Adam
9. Sviss Ne partes pas sans moi Céllne Dlon
10. írland Take hlm home Jump the Gun
11. Þýskaland Ued fiir einen freund Maxl og Chris Garden
12. Austumlú Usa Mona Usa WUfried Scheutz
13. Danmörk Ka' du se hva' Jeg sa' Klraten og Súren
14. Grikkland Clown Afrodltl Frlda A kór
15. Noregur For vftr jord Karollne Krúger
16. Belgia Laiaser Brilier le Soleil Reymond
17. Lúxemborg Croire Lara Fablan
18. Ítalía Ti scrivo Luca Barbarossa
19. Frakkland Chandeur de charme Gerard Lenorman
20. Portúgal Voltarel Dora
21. Júgóslavi'a Mangup Sllver Wlngs
kynnti sig sem okkar öryggisvörð og
TÚLK! Þá fóru menn að spyrja
okkur spjörunum úr,“ sagði Sverrir.
Hann sagðist kunna mjög vel við
RDS höllina, og sagði sviðið helv...
huggulegt, með skemmtilega róm-
antískum bakgrunni, sem er í líki
blásvarts himingeims með sólkerfum
í baksýn.
íslenska keppnisliðið er kvefað
upp til hópa og sagði Sverrir að svo
hefði verið frá því að liðið kom til
írlands.
„Við vorum dregin á einhvern
spaðaboltaíþróttaleik, þar sem
menn voru að berja hver annan með
spöðum og eltast við litla golfkúlu.
Þar var andsk... kalt og við kvefuð-
umst öll. En þetta var bráðnauðsyn-
legt, þar sem kynningin af okkur var
tekin á þessum leik. Stefán er nú
samt skástur af okkur," sagði
Sverrir.
Beina útsendingin frá RDS höll-
inni í Dyflinni hefst síðan klukkan
19 á laugardagskvöld og tekur um 3
klukkustundir. Tíminn birtir hér í
dag stigatöflu, þar sem gert er ráð
fyrir að lesendur fylli inn í þar til
gerða reiti stigagjöf til einstakra
landa, auk þess sem hægt er að fylla
inn sína eigin stigagjöf. Við erum í
fyrra fallinu, en það er gert svo allir
fái töfluna í tæka tíð. -SÓL