Tíminn - 28.04.1988, Blaðsíða 16
16 .Tíminrr
Fimmtudagur 28. apríl 1988
DAGBÓK
lllllllll
Karlakórinn Fóstbræður
heldur tónleika
í Langholtskirkju
Karlakórinn Fóstbræður heldur sína
árlegu tónleika fyrir styrktarfélaga og
aðra dagana 27.,28., 29. og 30. apríl í
Langholtskirkju.
Dagana 27.-29. apríl hefjast tónleikar
kl. 20:30, en laugardaginn 30. apríl kl.
17:00.
Á efnisskrá verða bæði innlend og
erlend lög. Fluttar verða tvær þjóðlaga-
syrpur. Aðra hefur Ragnar Björnsson,
núverandi stjórnandi kórsins útsett, en
hin er útsett af Viktor Urbancic. Flutt
verða lög eftir Jón Ásgeirsson, Pál ísólfs-
son, Karl O. Runólfsson og eftir fjóra af
söngstjórum kórsins. Einnig fjögur lög
eftir Igor Strawinsky.
Á tónleikunum koma fram nokkrir
ncmendur frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og Nýja Tónlistarskólanum.
I byrjun maí hyggst kórinn heimsækja
Hornfirðinga. Laugard. 7. maí syngur
kórinn í kirkjunni á Höfn kl. 20:30 og
síðdegis sunnud. 8. maí mun kórinn
syngja í félagsheimilinu Hcimalandi.
í kórnum eru nú 52 söngmenn. Söng-
stjóri er Ragnar Björnsson. Á tónleikun-
um mun Jónas Ingimundarson annast
undirleik. Gylfi Gunnarsson hefur að-
stoðað við raddþjálfun í veturogSigurður
Bragason annast söngkennslu.
Matthea Jónsdóttir
sýnir í FÍM-salnum
Matthea Jónsdóttir opnaði nýlega 10.
einkasýningu sína, „VORVINDAR", í
FÍM-salnum, Garðastræti 6. Matthea
stundaði nám í Myndlista- og handíða-
Mirjam Ketilsdóttir.
Judith Ketilsdóttir.
Sinfóníuhljómsveitartónleikar
í kvóld: Breytt dagskrá
vegna verkfalls
( kvöld, fimmtud. 28. apríl kl. 20:30
verða næstsíðustu áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitarinnar á þessu starfsári.
Efnisskrá er breytt frá því sem áætlað var
vegna verkfalls verslunarmanna.
Einleikarinn Yuzuk Horigome kemst
ekki til landsins, en ákveðið hefur verið
að einleikarar með hljómsveitinni verði
systurnar Judith og Mirjam Ketilsdætur.
Pær léku á fjölskyldutónleikum hljóm-
sveitarinnar á sumardaginn fyrsta og með
móður sinni í tríói á tónleikum hjá
Tónlistarfélaginu sl. laugardag við frá-
bærar undirtektir.
Á efnisskrá verða Fiðlukonsert í A dúr
eftir Mozart, þar sem Judith leikur einleik
og Rokokó tilbrigði eftir Tschaikovsky,
þar sem Mirjam leikur á sellóið. Að
lokum verður flutt Rómeo og Júlía eftir
S. Prokofíeff.
Stjórnandinn, Larry Newland, var í
rúman áratug aðstoðarstjórnandi Fíl-
harmoníuhljómsveitarinnar í New York
og hcfur ferðast um heiminn til að stjórna
sinfóníuhljómsveitum. Hann hefurhlotið
mörg verðlaun og viðurkenningar fyrir
hljómsveitarstjórn og leggur sig fram um
að laða nýja, unga áheyrendur að klass-
ískri tónlist.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 í kvöld í
Háskólabíói.
skóla Islands 1954—’56 og Myndlistar-
skólanum 1960-’61. Matthea hefur tekið
þátt í fjölmörgum samsýningum heima og
erlendis. Á sýningunni eru 45 verk, olíu-
og vatnslitamyndir sem unnar eru á sl. 3
árum, og eru öll verkin til sölu.
Sýning Mattheu er opin virka daga kl.
16:00-19:00 og kl. 14:00-19:00 um helgar,
en henni lýkur sunnudaginn 1. maí n.k.
Þá verður opnuð 30. apríl nk. sýning á
verkum Mattheu í Gallery Salammbo í
París, sem skipulögð er á vegum Gallerys-
ins.
Gallerí GANGSKÖR:
Sýning Ingibergs Magnússonar
Ingiberg Magnússon opnar sýningu á
þurrkrítarmyndum í Gallerí GANG-
SKÖR Amtmannsstíg 1 í dag, laugardag-
inn 23. apríl kl. 14:00. Á sýningunni
verða 12 myndir, flestar unnar á þessu
ári. Sýningin stendur til 8. maí.
Ingiberg Magnússon stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1965-
1970. Hann hefur haldið einkasýningar í
Reykjavík, á Egilsstöðum, (safirði,
Akranesi, í Kópavogi, Odense og síðast
í Stokkhólmi 1987. Einnig tekið þátt í
fjölda samsýninga hér heimaogerlendis.
Verk hans eru í eigu Listasafns íslands,
Listasafns ASÍ, Listasafns Kópavogs,
Neskaupstaðar, Norrænu myndlistarmið-
stöðvarinnar Sveaborg í Finnlandi og
Norræna hússins í Reykjavík.
LISTASAFN ÍSLANDS
Frá 1. apríl verður Listasafn Islands
opið daglega nema mánudaga kl. 11:00-
17:00.
Leiðsögn um sýninguna „ALDAR-
SPEGILL” er alla sunnudaga kl. 13:30.
Kynning á mynd mánaðarins er á
fimmtudögum kl. 13:30. Mynd aprílmán-
aðar er ÍSLANDSLAG eftir Svavar
Guðnason, frá árinu 1944.
Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma.
Aðgangur að safninu er ókeypis.
Námskeið í akstri og
meðferð dráttarvéla 1988
Námskeið verða haldin í akstri og
meðferð dráttarvéla. Þau verða sett laug-
ardaginn 30. apríl kl. 10:00.
Eins og á undanförnum árum efnir
Umferðarráð í samvinnu við Bifreiðaeft-
irlit ríkisins, Búnaðarfélag (slands,
menntamálaráðunéyti, Slysavarnafélag
íslands, Stéttarsamband bænda, Vinnu-
eftirlit ríkisins og Ökukennarafclag Is-
lands til námskeiðs í akstri og meðferð
dráttarvéla.
Kennt verður í tveimur flokkum. Ann-
ars vegar er um að ræða fornámskeið fyrir
unglinga á aldrinum 13 til 15 ára (fædda
1973-1975) og hins vegar réttindanám-
skeið fyrir 16 ára unglinga, sem endar
með prófi og veitir réttindi til aksturs á
dráttarvélum á vegum.
Þátttökugjöld verða kr. 1.500 á for-'
námskeiði og kr. 6.500 á réttindanám-
skeiðinu. Innifalið í því eru vottorð,
myndir, prófgjald og skírteini.
Þátttökugjöld ber að greiða við innrit-
un, sem fram fer á kennslustað í Duggu-
vogi 2 (húsi Gunnars Guðmundssonar hf.
við Elliðavog). Innritun verður dagana
17. til 29. apríl kl. 16:00-19:00. Þátttak-
endur fá þá kcnnslugögn í hendur.
Frekari upplýsingar eru veittar hjá
Umferðarráði í síma 91-27666 hjá Búnað-
arfélagi íslands í síma 91-19200 og á
námskeiðsstað í síma 91-685866. Ástæða
er til að hvetja alla unglinga sem fara í
sveit í sumar og hafa ekki fengið leiðbein-
ingar við akstur og meðferð dráttarvéla til
að sækja námskeiðið.
Félag eldri borgara
Opið hús verður hjá Félagi eldri borg-
ara í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
fimmtudag. Kl. 14:00 - Frjáls spila-
mennska, t.d. bridge eða lomber. Kl.
19:30 - félagsvist, hálft kort og kl. 21:00
dans.
Vorferð barnastarfs kirkjunnar
á Seltjarnarnesi
Barnastarfi kirkjunnar á Seltjarnarnesi
lýkur á laugardaginn, 30. apríl, með
vorferðalagi. Farið verður frá kirkjunni
kl. 13:00 (kl. 1 e.h.) en börnin eru beðin
um að mæta 15 mínútum fyrr. Ferðinni er
heitið upp í Vindáshlíð, þar sem farið
verður í leiki og borðaðar pylsur. Þar
verður einnig helgistund fyrir börnin í
kirkjunni. Pylsur og drykkir verða í boði
safnaðarins, en börnin mega gjarnan taka
með sér nesti, svo og bolta og önnur létt
leiktæki. Auk þess þurfa börnin að koma
með 250 kr. með sér fyrir fargjaldi.
Öll börn eru velkomin með í þessa
vorferð, en börn yngri en 5 ára þurfa að
koma í fylgd með foreldrum eða eldri
systkinum, en vitanlega eru allir foreldrar
velkomnir að taka þátt í ferðinni.
Gert er ráð fyrir að koma í bæinn um
kl. 18:00.
Sóknarprestur
Húnvetningafélagið
með félagsvist
Húnvetningafélagið í Reykjavík hefur
félagsvist laugardaginn 30. apríl í félags-
heimilinu Skeifunni 17, og hefst hún kl.
14:00.
Fundur Kven-
félags Háteigssóknar
Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund
þriðjudaginn 3. maí kl. 20:30 í Sjómanna-
skólanum. Ákveðið verður um sumar-
ferðalag. „Græna línan” kemur í heim-
sókn. Upplestur og kaffiveitingar.
VIKAN
10. tbl. 50. árg.
Á forsíðu Vikunnar að þessu sinni er
mynd af Valdísi Gunnarsdóttur útvarps-
manni og viðtal við hana er í blaðinu.
Fyrirsögn á viðtalinu er “Ég er eigingjörn
og frek.” Þá segir ungur Reykvíkingur frá
því hvernig það kom til að hann fór að
glíma við að beygja skeiðar með hugar-
orkunni.
„Ég stefni á toppinn,” er fyrirsögn á
frásögn Þorkels Þorkelssonar ljósmynd-
ara í Vikuviðtali. Pétur Steinn skrifar um
Boy George og mun nú skrifa fasta
poppþætti fyrir Vikuna. Þá er það Póst-
kassinn, kvikmyndaþáttur, peysuupp-
skrift, smásaga, mataruppskriftakort Vik-
unnar, blómaþáttur: Blóðdropi Krists,
sem Fríða Björnsdóttir skrifar. Margt
fleira er í blaðinu, sem er um 70 bls. með
mörgum myndum.
GANGLERI - Fyrra hefti ’88
Tímaritið Gangleri, fyrra hefti 62.
árgangs er komið út. Það flytur greinar
um andlcg og heimspekileg mál og alls
eru 13 greinar í þessu hefti, auk smáefnis.
Viðtal er við munkinn Bede Griffiths. Sr.
Rögnvaldur Finnbogason skrifar um
Múhameð. Grein er um lækningamátt
bæna og önnur um starfsemi heilahvel-
anna. Sagt er frá undarlegum fyrirbærum
og fjallað um Zen.
Ritstjóri er Geir Ágústsson, en útgefandi
er Guðspekifélag (slands. Gangleri er 96
blaðsíður og kemur út tvisvar á ári.
Áskriftarsími er 39573.
Hár & fegurð
1. tbl. 8. árg.
Út er komið nýtt tölublað af tímaritinu
Hár & fegurð. Meðal efnis í blaðinu að
þessu sinni er grein eftir Sigrúnu Magnús-
dóttur, deildarstjóra hársnyrtideildar
Iðnskólans í Reykjavík. Grein er um
fyrsta íslenska hárskerann.
Þá er fjallað um það sem er að gerast í
hártískunni á IslancTi og skýrt frá keppn-
um og mótum víðs vegar um heiminn.
Fjallað er ítarlega í máli og myndum
um Frístælkeppnina 1988 á Hótel íslandi.
Þetta var fyrsta alþjóðlega frístælkeppnin
á (slandi og hefur þátttaka aldrei verið
meiri, og að sögn Steen Nedergard,
núverandi Norðurlandameistara og Evr-
ópumeistara í hárskurði, mun þetta vera
ein glæsilegasta frístælkeppnin á Norður-
löndum.
Birtar eru tískulínur frá þeim stærstu í
hársnyrtiheiminum, s.s. Jingleslnt., Alan
Int., Pivot Point, Vidal Sassoon, Norman
Blomfield, Sanrizz, Sebastian Int. og
Matrix.
Stutt viðtal er í blaðinu við hársnyrti-
listamanninn Gary Bray, sem segir m.a.
að tölvan sé framtíðin á hársnyrtistofum.
Grein er í blaðinu um fyrirbyggjandi
aðgerðir gegn eyðni. Þá er myndefni frá
Irvine og Ritu Rusk, sem valin voru
hárgreiðslumeistarar ársins 1987 í Eng-
landi. Einnig eru tískumyndir frá Dan-
mörku og kynntur er nýr fagskóli þar í
landi sem rekinn er af íslenskum hár-
greiðslumeistara.
Ritstjóri er Pétur Melsteð.
MANNLÍF -apríl '88
„Riddari skákborösins” er fyrirsögn á
viðtali við Jóhann Hjartarson skákmeist-
ara, sem birtist í nýjasta hefti Mannlífs.
Viðtalinu fylgja margar myndir, og á
forsíðu er mynd af Jóhanni með soninn,
Hjört Ingva.
Ungir elskhugar óskast, er yfirskriftin
yfir viðtali við höfunda verksins „Um hið
átakanlega, sorglega og dularfulla hvarf
ungu brúðhjónanna Indriða og Sigríðar
daginn eftir brúðkaupið og leitina að
þeim,“ en höfundamir eru fjórar konur.
Þá kemur grein um Borgaraflokkinn og
stöðu hans í íslenskum stjórnmálum.
Viðtöl við fólk er mestur hluti efnis
Mannlífs. Má nefna viðtal við Stefni í
Reykjaborg við Múlaveg, síðasta bónd-
ann í Laugardal, viðtal við „popp-parið“
Maríu Baldursdóttur og Rúnar Júlíusson
og „popp-feðgana“ Magnús Kjartansson
og Davíð Magnússon. Viðtalsþáttur er
líka við breska kvikmyndaleikstjórann,
Derek Jarman. Frásögn er af Braga
drátthaga, sem lýsir ævintýri mynda-
sögunnar. Þá eru tískuþættir - aðallega
herratíska. Vísindaþáttur blaðsins nefnist
„Óðabólga alheimsins” og myndlistar-
þáttur er eftir Hrafnhildi Schram listfræð-
ing: „Soulages svarti". Frásögn af lífinu í
Feneyjum er aftast í þessu Mannlífi.
Frásögninni fylgja margar myndir frá
þeimi frægu borg.
Útgefandi Mannlífs er Frjálst framtak
hf. en ritstjóri er Svanhildur Konráðsdótt-
ir.
FAXI - 2. tbl. 48. árg.
Þetta blað Faxa er helgað 50 ára afmæli
Vélstjórafélags Suðurnesja. Úr 50 ára
sögu Vélstjórafélags Suðurnesja, grein
eftir Skúla Magnússon, er fremst í blað-
inu. Ritstjórnargreinin nefnist: Til ham-
ingju, vélstjórar! Þá kemur Félagatal
Vélstjórafélags Suðurnesja.
Jðn Kr. Olsen, formaður félagsins,
segir frá starfinu í grein, sem ber fyrir-
sögnina Félagsmenn hafa verið ákallega
samstiga. Jón Tómasson skrifar: Farsælt
félagsstarf í Garði og segir þar frá Verka-
lýðs- og sjómannafélaginu í Garði, sem
nýverið átti 50 ára afmæli og Kvenfélag-
inu Gefn, sem átti um sömu mundir 70
ára afmæli. Grein Jóns fylgja margar
myndir. Sagt er frá vélstjórnarbraut við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og myndir
eru af félögum í Vélstjórafélaginu, alls
um 200 myndir. Einnig eru í blaðinu nöfn
fermingarbarna á Suðurnesjum ’88.
Ritstjóri blaðsins er Helgi Hólm.
ÚTVARP/SJÓNVARP
llllllllllll
6>
Rás I
FM 92,4/93,5
Fimmtudagur
28. apríl
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Kristinn Ágúst Frið
finnsson flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 I morgunsáriö með Ragnheiði Ástu Péturs-
dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl.
8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Leslð úr for-
ustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayf-
irlití kl. 8.30. Tilkynningar iaust fyrir kl. 7.30,
8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barnanna: „Ævintýri frá
annarri stjörnu" eftir Heiðdísi Norðfjörð.
Höfundur les (9).
9.30 Dagmál. Umsjón: Sigrún Bjömsdóttir.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Kynntur tónlistarmaður vik-
unnar, Karólína Eiríksdóttir tónskáld. Umsjón:
Anna Ingólfsdóttir. (Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti).
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar. Tónlist.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónlist.
13.05 í dagsins önn - Börn og umhverfi. Umsjón:
Ásdís Skúladóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Sagan af Winnie Mand-
ela“ eftir Nancy Harrison. Gylfi Pálsson les
þýðingu sína (3).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Fyrir mig og kannski þig. Umsjón: Margrét
Blöndal. (Frá Akureyri) (Einnig útvarpað aðfara-
nótt þriðjudags að loknum fréttum kl. 2.00).
15.00 Fróttir.
15.03 Þingfréttir.
15.20 Landpósturinn-Frá Norðurlandi. Umsjón:
Jón Gauti Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Scriabin, Mozart og
Debussy. a. Fjögur píanóstykki op. 51 eftir
Alexander Scriabin. Vladimir Ashkenazy
leikur á píanó. b. Konsert fyrir klarinettu og
hljómsveit í A-dúr KV 622 eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Thea King leikur á bassaklar-
inettu með Ensku kammersveitinni; Jeffrey Tate
stjórnar. c. „Images H“, þrjár myndir fyrir píanó
eftir Claude Debussy. Arturo Benedetti Michel-
angeli leikur á pianó.
18.00 Fréttir.
18.03 Torgið - Úr atvinnulífinu. Umsjón: Jón
Gunnar Grjetarsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30Tilkynningar.
19.35 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni.
20.00 Aðföng. Kynnt nýtt efni í hljómdiskasafni
Útvarpsins. Umsjón: Mette Fanö. Aðstoðarmað-
ur og lesari: Sverrir Hólmarsson. (Endurtekinn
þáttur frá sunnudegi).
20.30 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíól - Fyrrl hluti. Stjórnandi:
Larry Newland. Einleikari: Yuzuko Horigome. a.
Sinfónía nr. 44 eftir Joseph Haydn. b. Fiðlu-
konsert eftir Pjotr Tsjaíkovskí. Kynnir: Hanna G.
Sigurðardóttir.
21.40 Eduardo Fernández leikur á gítar prelúdí-
ur eftir Heitor Villa-Lobos. (Af geisladisk)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Eitthvað þar... Þáttaröð um samtímabók-
menntir. Þriðji þáttur: Um nígeríska nóbelskáld-
ið Wole Soyinka. Umsjón: Kristín Ómarsdóttir
og Freyr Þormóðsson. (Einnig útvarpað annan
föstudag kl. 15.15).
23.00 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands í Háskólabíói - Síðari hluti. Stjórnandi:
Larry Newland. „Rómeó og Júlía“ eftir Sergei
Prokofiev. Kynnir: Hanna G. Sigurðardóttir.
23.40 Tónlist að kvöldi dags. a. Ballaða op. 10
nr. 4 eftir Johannes Brahms. Arturo benedetti
Michelangeli leikur á píanó. b. Elly Ameling
syngur þrjá franska Ijóðasöngva eftir Fauré,
Franck og Bizet. Rudolf Jansen leikur á pianó.
24.00 Fréttir.
24.10 Samhljómur. Umsjón: Anna Ingólfsdóttir.
Kynntur tónlistarmaður vikunnar, Karólína Eir-
íksdóttir tónskáld. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
01.00 Veðurfregnir. ,
Næturútvarp a samtengdum rásum til
morguns.
i&
FM 91,1
7.03 Morgunútvarpið. Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15. Leiðarar dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30. Fastir liðir en alls ekki
allir eins og venjulega - morgunverkin á Rás 2,
talað við fólk sem hefur frá ýmsu að segja.
Hlustendaþjónustan er á sínum stað en auk
þess talar Hafsteinn Hafliðason um gróður og
blómarækt á tíunda tímanum.
10.05 Miðmorgunssyrpa. Einungis leikin lög með
íslenskum flytjendum, sagðar fréttir af tónleikum
innanlands um helgina og kynntar nýútkomnar
hljómplötur. Umsjón: Kristín Björg Þorsteins-
dóttir.
12.00 Fréttayfyrilit. Auglýsingar.
12.12 Á hádegi. Dagskrá Dægurmáladeildar og
hlustendaþjónusta kynnt. Sími hlustendaþjón-
ustunnar er 693661.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón: Skúli Helgason.
16.03 Dagskrá. Meinhornið verður opnað fyrir
nöldurskjóður þjóðarinnar klukkan að ganga
sex. Sem endranær spjallað um heima og
geima.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Nútímlnn. Kynning á nýjum plötum, sagðar
fréttir úr poppheiminum og greint frá tónleikum
erlendis.
23.00 Af fingrum fram. - Snorri Már Skúlason.
24.10 Vökudraumar.
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. -Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá mánudegi þátturinn „Á
frívaktinni“ þar sem Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00,11.00, 12.00, 12.20,
14.00,15.00,16.00,17.00,18.00,19.00,22.00 og
24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
18.30-19.00 Svæðisútvarp Austurlands
Umsjón: Inga Rósa Þórðardóttir.
SJÓNVARPIÐ
Fimmtudagur
28. apríl
18.50 Ritmálsfréttir.
18.30 Anna og félagar Italskur myndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þýðandi Þuríður Magnúsdótt-
ir.
19.25 Fréttir og veður.
20.00 Bein utsending frá Alþlngi. Umræður um
vantraust á ríkisstjómina. Lokaþáttur Kjama-
konu II verður sýndur fimmtudaginn 5. maí.
Oagskrárlok um eða eftir miðnætti.
Útvarpsfréttir í dagskrárfok.
sm-2
01.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fimmtudagur
28. apríl
16.35 Könnuðirnir. Explorers. Mynd um þrjá unga
drengi sem eiga sér sameiginlegan draum.
Þegar þeir láta hann rætast, eru þeim allir vegir
færir. Áðalhlutverk: Ethan Hawke, River Phoen-
ix, Amanda Peterson. Leikstjóri er Joe Dante.
Paramount 1985. Sýningartími 105 mín.
18.20 Litli folinn og félagar. My Little Pony and
Friends. Teiknimynd með íslensku tali. Leik-
raddir: Guðrún Þórðardóttir, Júlíus Brjánsson
og Saga Jónsdóttir. Þýðandi: Magnea Matthías-
dóttir. Sunbow Productions.
18.45 Fifldirfska. PushingtheLimits. Breskirþætt-
ir um fólk sem stundar óvenjulegar og hættuleg-
ar íþróttir. I þáttunum er fylgst með fólki sem
iðkar fallhlífarstökk, klífur snarbratta tinda, fer í
leiðangra í djúpa hella og teflir oft á tæpasta
vað. Western World.__________________
19.1919:19 Lifandi fréttaflutningur ásamt umfjöllun
um málefni líðandi stundar.
20.30 Stjómmálaumræður. Umsjónarmaður er
Páll Magnússon. Stöð 2._____________________
21.20 Sendiráðið The London Embassy. Loka-
þáttur. Thames Television.
22.15 „V“ Ný framhaldsmynd í fimm hlutum. Annar
hluti. Aðalhlutverk: Wiley Harker, Richard Herd,
Marc Singer og Kim Evans.
23.50 Sigurboginn. Arch of Triumph. Mynd þessi
er gerð eftir sögu Erich Maria Remarque og
segir hún frá störfum andspymuhreyfingarinnar
í París á árum seinni heimsstyrjaldarinnar.
Aðalhlutverk: Anthony Hopkins og Lesley-Anne
Down og Donald Pleasance. Leikstjóri: Waris
Hussein. Lorimar 1985. Sýningartími 90 mín.
01.20 Dagskrárlok.