Tíminn - 28.04.1988, Blaðsíða 5

Tíminn - 28.04.1988, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 28. apríl 1988 Tíminn 5 Miðlunartillan býður deiluaðilum m. .a . að greiða atkvæði um lægstu 1 aun i - Hjá ríkissáttasemjara í gær. F.v. Ólafur Ólafsson. varaform. VSf, Þórarinn V. Þórarinsson framkvstj. VSÍ, Gunnar Friðriksson, form. VSf, Elísabet Ólafsdóttirskrifstofustj. ríkissáttasemjara, Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, Guðmundur Vignir Jósefsson, vara- ríkisaáttasemjari, Magnús L. Sveinsson form. V.R. rímamynd Pjciur „Það má eiginlega segja að ég hafi gefíð deiluaðilum sömu fyrirmæli og eru gjarnan sett á ferðatöskur, „handle with care“,“ voru orð Guðlaugs Þorvaldssonar, ríkissáttasemjara í gær að afloknum stuttum fundi með um 50 manna fylkingu þeirra verslunarmanna, sem eru nú í verkfalli, og 30 manna sveit atvinnurekenda Til fundarins var boðað í húsakynnum sáttasemjara í gær til að afhenda fulltrúum beggja aðila plagg sem hefur að geyma miðlunartillögu þá sem ríkissáttasemjari og aðstoðarsáttasemjari, Guðmundur Vignir Jósefsson, hafa unnið tvo undanfarna daga. „Það geturðu þér nærri. Vinnsla þessarar miðlunartillögu er eitt það erfíðasta sem ég hef fengist við síðan ég tók við þessu starfi,“ sagði Guðlaugur, aðspurður um hvort gerð miðlunartillögunnar hafí verið erfið og torsótt. Akveðið hefur verið að talning atkvæða hefjist í húsakynnum sáttasemjara nk. laugardag kl. 18.00. Guðlaugur Þorvaldsson sagðist telja að talningu ætti að ljúka á þremur tímum. Ef tillagan verður samþykkt verður verkfalli aflétt þá um kvöldið, en verði hún hinsvegar felld, er ekki annað fyrir- sjáanlegt en að framundan séu áfaramhaldandi harðvítug verk- fallsátök. Samkvæmt lögum um sáttastörf í vinnudeilum frá 1978 er óheimilt að „birta miðlunartillögu öðrum en þeim, sem hlut eiga að máli, án samþykkis sáttasemjara, fyrr en greidd hafa verið atkvæði um hana“. Það var til þessa ákvæðis sem sáttasemjari og fulltrúar versl- unarmannafélaganna og atvinnu- rekenda vísuðu í gær þegar fjöl- miðlamenn gengu hart eftir því að nálgast tillögurnar. Þrátt fyrir fréttabannið hefur kvisast út að miðlunartillagan gerir ráð fyrir 36.500 króna lágmarks- launum. Það þýðir nálægt 1000 króna hækkun launa verslunar- fólks frá síðasta „samningapakka". Þessi tala er eitthvað breytileg t.d. eftir starfsaldri. Tíminn fékk þetta staðfest í gærkvöldi. Áfangahækk- anir eru samkvæmt miðlunartillög- unni óbreyttar frá því sem var í nýfelldum samningi, þ.e. ásvipuðu róli og í samningum verkalýðsfé-■ laganna og atvinnurekenda. Þess má geta að samkvæmt gild- andi samningi verslunarmanna við VSÍ eru grundvallarlaun af- greiðslufólks í verslunum, 18 ára og eldri, 30.439 krónur. Þarna er ekki um að ræða sérhæfð afgreið- slustörf. Menn ráku augu í það í gær- kvöldi að í miðlunartillögunni var ekki gert ráð fyrir hækkun til skrifstofufólks. í stað 400 króna hækkunar til skrifstofufólks í ný- felldum samningi, átti að standa 700 krónur í miðlunartillögunni. Þessi tala gleymdist hinsvegar í pappírunum frá ríkissáttasemjara, eftir því sem Tíminn kemst næst. Um þetta sátu fulltrúar verslun- armannafélaganna á rökstólum í Karphúsinu í gærkvöldi. Form atkvæðagreiðslu verslun- armannafélaganna um miðlunar- tillöguna og kynning hennar verður með ýmsu móti. Grétar Hannesson Flugleiðir sendu fréttatilkynn- ingu til fjölmiðla í gær, þar sem þess var getið að ákveðið hafi verið að halda uppi reglulegri millilanda- áætlun félagsins frá og með degin- um í dag. Boðaðar voru ferðir til Osló, Stokkhólms, Glasgow, Kaupmannahafnar, Lundúna og Bandaríkjanna, auk sameiginlegs flugs Flugleiða oe Grænlandsflugs tilNarssarssuak. Ifréttatilkynning- unni var þess getið að æskilegt væri að farþegar mættu tímanlega til innritunar sökum þess að aðeins stöðvarstjóri og aðstoðarstöðvar- stjóri Flugleiða á Keflavíkurflug- velli önnuðust innritun farþega. Magnús Gíslason, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja sagði í gær að aðgerðir félagsins í flugstöðinni væru byggðar á lög- fræðilegri niðurstöðu um að stöðv- arstjóra og aðstoðarstöðvarstjóra væri ekki heimilt að ganga í störf verslunarfólks við innritun far- þega. „Við vorum lengi á báðum áttum um réttmæti aðgerða gegn þessu flugi Flugleiða, en við byggj- hjá VR greindi Tímanum frá því að tillagan yrði kynnt á fundi félagsins á Hótel Sögu í dag kl. 15. Atkvæðagreiðsla fer síðan fram á morgun og á laugardag í húsakynn- um VR. Hjá VH verður fundur í dag kl. 14.00 í húsi Slysavarnafé- lagsins í Hafnarfirði. Atkvæði verða síðan greidd á skrifstofu félagsins frá kl. 9-18 á morgun og 9-14 á laugardag. Á Akureyri verð- ur tillagan kynnt í dag og síðan greidd um hana atkvæði á morgun. Samkvæmt upplýsingum hjá Félagi verslunar- og skrifstofufólks á Ak- ureyri verða að öllum líkindum greidd atkvæði á þéttbýlisstöðun- um út með Eyjafirði, Dalvík og Ólafsfirði. Hjá Verslunarmanna- félagi Akraness fengust þær upp- lýsingar í gærkvöldi að ekki hafi verið ákveðið enn með kynningu og atkvæðagreiðslu um tillöguna. Hjá Verslunarmannafélagi Árnes- um þetta fyrst og fremst á samskon- ar banni VR á stöðvarstjóra og aðstoðarstöðvarstjóra á Reykja- víkurflugvelli,“ sagði Magnús. Heimildir Tímans segja að á Suðurnesjum hafi verslunarmenn ákveðið að stöðva starfsemi Arn- arflugs, þegar kvisaðist út á meðal þeirra hvað fólst í miðlunartillögu sáttasemjara. Tíminn hefur einnig heimildir fyrir því að Arnarflugsmenn hafi fyrir nokkru verið tilbúnir með samning upp á ríflega 42 þúsund króna lágmarkslaun fyrir þá starfs- menn félagsins sem eru félagar í verslunarmannafélögunum. Hins- vegar hafi samningnum verið stungið niður í skúffu vegna til- mæla VSÍ. Það hefur víða verið heitt í kolunum í verkfallsvörslu. Á Akranesi stóðu um 40 verkfalls- verðir, þar af um 20 manns frá Borgarnesi, í ströngu við vöru- markaðinn Skagaver. Þar töldu verslunarmenn að væru framin al- varleg verkfallsbrot. Að sögn sýslu verður tveggja sólarhringa atkvæðagreiðsla. Ekki var í gær- kvöldi búið að ákveða endanlega stað hennar og stund. Á Suðurnesj- urn verður tillagan kynnt í dag og síðan verða greidd atkvæði um hann á föstudag og líklega einnig fyrripart laugardags. Það hefur vakið athygli að nú þegar hafa náðst samningar við einstaka fyrirtæki utan höfuðborg- arsvæðisins um greiðslu 42 þúsund króna lágmarkslauna, eins og felst í kröfu verslunarmanna. Búið er að semja um laun starfsmanna 8 fyrirtækja á Akranesi, þar af þriggja verslana, 9 fyrirtækja á Akureyri og 2 fyrirtækja á Suður- nesjum. Menn bjuggust við því í gærkvöldi að fleiri fyrirtæki bættust í þennan hóp á Akureyri og Suður- nesjum. Langstærstur hluti þessara fyrirtækja eru endurskoðunar- og lögfræðiskrifstofur. óþh Björns Gunnarssonar, formanns Verslunarmannafélags Akraness, var Skagaveri lokað um kl. 11 í gærmorgun og síðan var staðin verkfallsvakt við verslunina allan daginn. Sáttaumleitanir voru í gangi í þessu máli fram á kvöld og hafði formaður Kaupmannafélags- ins á Skaganum milligöngu um málið. Að sögn forsvarsmanna annarra verslunarfélaga í gærkvöldi ber æ minna á verkfallsbrotum. Þó koma alltaf upp eitt og eitt vafatilvik. Félagar í VR og VH höfðu í hyggju í gærkvöldi að herða eftirlit með útkeyrslu heildsala í verslanir á höfuðborgarsvæðinu, en að sögn verkfallsvarða hefur borið á því að þeir setji vörur einnig í hillur verslana og jafnvel verðmerki þær. Áhrifa verkfallanna er farið að gæta harkalega á ýmsum sviðum. Fólk getur hæglega orðið sér úti um helstu nauðsynjavörur, þ.á m. mjólk, enn sem komið er, en hinsvegar þrengir nú þegar all harkalega að í ýmsum þjónustu- greinum, t.d. ferðaþjónustu. Hót- elin eru nú almennt að verða tóm og afpöntunum erlendra ferðahópa fyrir komandi sumar rignir inn. Afleiðingar verkfallsins eru því þegar orðnar geigvænlegar fyrir þennan atvinnuveg. -óþh Gunnar J. Friðriksson, form. VSÍ og Þorsteinn Ólafsson, formaður VMS, ganga af fundi Guðiaugs Þorvaidssonar í gær. Tímamynd:Pjetur Verslunarmenn í vörslufötin um miðja nótt: Ákveðnir í Leifsstöð Verslunarmenn á Suðurnesjum risu úr rekkju um fjögurleytið í nótt til að halda á vit erfíðra verkefna, að hindra innritun farþega í millilandavélar Flugleiða og Arnarflugs. Fregnir bárust í gærkvöldi um liðveislu nálægt 30 manna úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur tU að aðstoða Suðurnesjamenn við verkfallsvörsluna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.