Tíminn - 06.08.1988, Blaðsíða 16

Tíminn - 06.08.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn Laugardagur 6. ágúst 1988 Fimmtug bandarísk kona ræöst til atlögu viö Mount Everest: „Þá er hátindi lífs míns náð“ segir hún Sue Cobb er fimmtug húsmóðir í Ameríku og í hennar augum hefur kona ekki lokið ætlunarverki sínu fyrr en hún hefur staðið á efsta tindi Mount Everest. Því er það að nú, þegar hún er á þeim aldri sem margar konur eru ánægðar með að stunda ömmuhlutverkið, er Sue í óða önn að undirbúa sig til að takast á við einhverja þá mestu ögrun sem jörðin býður upp á, að komast á hæsta tind heims, Mount Everest í Himalaja. Geimferðir hættuminni en klifur á Mount Everest Nú hafa fleiri Bandaríkjamenn ferðast um úti í geimnum en þeir sem hafa klifið þetta 8.848 metra háa fjall. Til þess liggja góðar ástæður, geimurinn er vingjarn- legri að mörgu leyti þar sem þar er a.m.k. hægt að vita fyrirfram um hversu harðneskjulegt umhverfið er. Hins vegar hefur fjöldinn allur af mjög færum fjallgöngumönnum týnt lífi í hlíðum Mount Everest þar sem súrefni er af skornum skammti, drynjandi skriðurþeytast niður hlíðarnar, stífir vindar blása og fimbulkuldi ríkir. Sue Cobb veit allt þetta, en það hefur ekki dregið úr henni kjarkinn. „Ég er ekki hið minnsta kvíðin," segir hún. „Ég hef fullt traust á því að ég geti þetta. Ég hef farið í nákvæmar læknisrannsóknir og ég er í stöðugri þjálfun." Sue hefur klifið fjöll af miklum áhuga í 15 ár en hefur enn sem komið er litla reynslu í að fara í alvarlegan leiðangur með öðrum. Hún hleyp- ur þrjár til sex mílur á dag, lyftir lóðum og öðru hverju fer hún í ferðir til að þjálfa sig í háum hæðum á fjallatindum allt frá Kanada til Argentínu. Fyrir tveim árum var hún t.d. teppt í þrjá daga í hvínandi blindbyl á Aconcagua, 7035 metra háu fjalli í Suður-Am- eríku. Þá var hún hætt komin vegna ofkælingar. Hún varð vönk- uð og síhrasandi. Hún fór m.a.s. úr úlpunni í bylnum. En félagar henn- ar þekktu einkennin og vissu hvað var að gerast. „Þeir stungu, mér í svefnpoka inni í tjaldi og helltu í mig heitum vökva. Ég verð varkár- ari þegar ég klifra á Mount Ever- est,“ segir hún. Fjölskyldunni um og ó Þó að Sue hafi óbilandi trú á sjálfri sér er fjölskylda hennar meira efins. Maður hennar Chuck, ,sem er aðstoðarferðamálaráðherra 'í ríkisstjórn Reagans, og synir þeirra Chris, 25 ára, og Toby, 24 ára, hafa áhyggjur af þessari hættu- för. „Ég segi henni að ég styðji hana heilshugar í þessu ævintýri," segir- maður hennar, „en ég vildi óska að hún væri ekki að fara þessa ferð. Ég bið vini okkar að reyna að telja henni hughvarf." En enn sem komið er hefur ekki tekist að fá Sue ofan af fyrirætlun sinni. Skíði Til þessa hafa sex konur komist á tind Mount Everest, en ef draum- ur Sue rætist verður hún ekki bara fyrsta Bandaríkjakonan sem þar stígur niður fæti heldur líka elsta „Þolinmæði og óhagganleg ákv- örðun, það er allt sem þarf til að klífa hæstu tinda,“ segir Sue Cobb. sem hér er að þjálfa sig á heima- slóðum í Colorado. Sue Cobb hafði ekki fyrr stigið á skíði en hún var komin í fremstu röð í sínum aldursflokki. Hún er svo kappsöm að fjórum dögum eftir að hún viðbeinsbrotnaði eitt sinn var hún aftur tekin til við skíðamennskuna. Nú stundar hún hlaup heima hjá sér í Florida til að undirbúa ferðina á Mount Everest. Telluride í Colorado, og rúmgott hús í ríkra manna hverfi í Miami. Þegar Chuck hættir störfum í ríkis- stjórninni er ætlun þeirra að setjast að á fagurri eyju í einkaeign, 18.300 fm að stærð, á Biscayne flóa við Miami. „Aldur og lífsviðhorf Sue koma henni til góða á Mount Everest" En nú hefur Sue tekið sér 18 mánaða leyfi frá störfum og ein- beitir sér að undirbúningnum að Everest-ferðinni. í byrjun ágúst verður Sue stödd í Kína á 600 mílna vörubílaferðalagi til stöðva leiðangursins á Rongbuk-jökli í Tíbet. í þessum bandaríska klifur- leiðangri eru 29 karlar og 5 konur og þau ætla að dvelja um kyrrt í stöðvunum á Rongbuk-jökli um skeið til að aðlagast þunnu fjalla- loftinu, áður en þau hefja ferðina upp á sjálfan tindinn, sem áætlað er að taki 80 daga. Bob Skinner fjallamaður frá Wyoming skipu- lagði leiðangurinn í upphafi og valdi Sue til þátttöku. Hann segir að þegar á Everest verði komið komi aldur og lífsviðhorf Sue henni áreiðanlega til góða. „Við höfum verið í þjálfun með Sue á öðrum fjöllum. Hún er seig og metnaðargjörn og hún gefst ekki upp áður en á toppinn er komið,“ segir Skinner. „Það er miklu líklegra að hún komist á tindinn en nokkur yngri kvenn- anna. Við álítum að það séu mjög miklar líkur til að bandarísk kona standi innan skamms á tindi Mount Everest og Sue er allra kvenna líklegust til þess.“ Chuck Cobb styður konu sína í orði í ævintýramennskunni en er þó um og ó og biður vini að telja konu sinni hughvarf. konan. Þetta yrði hápunkturinn á athyglisverðum ferli hennar. Hún hefur stundað íþróttir alla ævi og fór að keppa í skíðaíþróttum 34 ára gömul. Þá hafði hún tekið þátt í keppni áhugamanna, 25 ára og eldri, sem náði til allra ríkja Bandaríkjanna, og unnið sínar greinar - aðeins ári eftir að hún hafði fengið fyrstu tilsögnina! Tennis Maður hennar, sem hefur keppt á Ólympíuleikum í grindahlaupi, fékk yfirmannsstarf hjá hótelfyrir- tæki í Florida 1972 og þá hætti Sue allri skíðamennsku og fór að leika tennis í staðinn. Hún hafði reyndar spilað tennis þegar hún stundaði nám í Stanford, en þar kynntust þau Chuck einmitt, en síðan hafði hún varla snert tennisspaða. Eftir tvö ár var hún í sjötta sæti á lista 10 bestu tennisleikara yfir 35 ára aldri í Florida. Hún hefði átt að vera alsæl, en það var hún reyndar ekki. „Það lá í augum uppi að ég var ekki á hraðferð til Wimbledon og ég sætti mig ekki við minni árangur," segir hún. Lögfræði - alls staðar skarar Sue fram úr Nú fann Sue Cobb sér nýjan vettvang til að skara fram úr á. Árið 1975, þegar hún var 38 ára, innritaðist hún í lagadeild háskóla Miami. Níu árum síðar var hún orðin meðeigandi í lögfræðingafyr- irtæki á Miami og sérfræðingur í málum sem vörðuðu borgar- skuldabréf og málarekstur gegn fyrirtækjum. f fyrra var hún í þriðja sinn útnefnd til eins árs sem forstjóri deildar seðlabanka Bandaríkjanna á Miami. Cobb-hjónunum hefur gengið vel að komast áfram í lífinu, eins og sagt er og þau geta leyft sér ýmsan munað sem gæti hafa leitt til hóglífis, en þau eru frábitin slíkum lifnaðarháttum. Þau eiga íbúð í Georgetown, fínasta hverfi Was- hington, sem er full af málverkum breskra 19. aldar málara og forn- gripum. Þau eiga skíðabústað í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.