Tíminn - 06.08.1988, Blaðsíða 24

Tíminn - 06.08.1988, Blaðsíða 24
RÍKISSKIP NtfTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, © 28822 Auglýsinsadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Okeypis þjónusta 686300 Tíminn STRUMPARNIR HRESSA KÆTA Landakotsmenn funduðu með heilbrigðisráðherra og hann síðan með fjármálaráðherra: Géðar vonir um lausn málsins eftir helgi Landakotsmenn gengu í gærmorgun á fund Guðmundar Bjarnasonar, heilbrigðisráðherra og útskýrðu sín mál fyrir honum. Síðdegis í gær fundaði Guðmundur síðan með Jóni Baldvin Hannibalssyni, fjármálaráðherra, og urðu ráðherr- arnir ásáttir um að hugsa málið um helgina. Guðmundur sagðist í gær vera vongóður um að málið leystist eftir helgi. „Mér hefur borist bréf, dagsett 3. ágúst, undirritað af Loga Guð- brandssyni, framkvæmdastjóra, þar sem gerð er grein fyrir sam- þykkt fulltrúaráðs spítalans. í þessu bréfi ersagt, að ráðið telji að í samkomulaginu „séu ákvæði, sem hæpið sé að standist og séu í ósamræmi við samning ríkisins og St. Jósefssystra frá árinu 1976“. Annað stendur ekki sem varðar efnisinntak þessa máls,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármála- ráðherra, í samtali við Tímann í gær, en eins og Tíminn skýrði frá í gær, hafnaði fulltrúaráð spítalans samkomulagi fjármála- og heil- brigðisráðherra sem sett hafði ver- ið fram til lausnar vanda spítalans. „Efnisatriðin standa óbreytt. Samkomulag okkar um aðgerðir var sett fram eftir að fulltrúar spítalans höfðu skilað efnislegum athugasemdum við rannsókn Ríkisendurskoðunar. Þetta var nákvæm skoðun og skilyrði fyrir frekari fjárhagsaðstoð lýstu niður- stöðum rannsóknarinnar. Við vor- um sammála um veigamiklar breyt- ingar, en skilyrði okkar eru ekki til umræðu,“ sagði Jón Baldvin. Hann átti síðan fund með Guð- mundi Bjarnasyni, heilbrigðisráð- herra í gær, en um morguninn höfðu fulltrúar Landakotsspítala gengið á fund Guðmundar og lagt fram sín rök í málinu. Guðmundur sagðist í samtali við Tímann í gær vera vongóður um lausn málsins. „Ég skýrði Jóni Baldvin frá at- hugasemdum Landakotsmanna. Málið hefur þokast í áttina. Þeir lögðu nú ekki fyrir mig neina skýrslu, en útskýrðu sín áherslu- atriði. Þeir álíta t.d. að eftirlits- stjórnin brjóti í bága við stofn- samninginn. Við álítum það hins vegar ekki, heldur að nefndin verði samstarfsnefnd en ekki yfir hina sett. Við erum sammála mörgu, en auðvitað er áherslúmunur,“ sagði Guðmundur. „Þetta var nijög góður fundur. Þetta var vinnufundur, en það vantaði þriðja aðila til að ná ein- hverju samkomulagi," sagði Ólaf- ur Örn Arnarson, yfirlæknir á Landakoti í samtali við Tímann eftir fundinn með heilbrigðisráð- herra. Aðspurður um hvaða atriði það væru sem þeir teldu óaðgengileg fyrir spítalann í samkomulagi ráð- herranna, og um leið hindrar lausn málsins, sagði Ólafur að auðvitað væri það skilyrðið um þriggja manna eftirlitsstjórn. Guðmundur sagði að hann og Jón Baldvin hefðu orðið ásáttir um að hugsa málið um helgina. Hann væri vongóður að málið leystist eftir það. „Kjarninn er samt sem áður óbreyttur. Af hálfu ráðherranna voru sett fram skilyrði fyrir frekari stuðningi við spítalann. Ef ekkert nýtt kemur fram, þá standa þau skilyrði. Það er síðan þeirra að svara eða hafna. Hafni þeir, fá þeir ekki frekari fjárstuðning frá okkur,“ sagði Jón Baldvin. „Verði það gert, þá horfir nátt- úrlega mjög alvarlega fyrir spítal- ann,“ sagði Ólafur Örn, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Jón Baldvin sagði það algjöran misskilning hjá Landakotsmönn- um, ef þeir teldu að þeir héldu sig geta breytt stjórnarskrá íslendinga eða losað sig við þá kvöð að halda sig innan fjárlagaramma sem Al- þingi íslendinga hefði sett, með því einu að senda frá sér ályktanir. „Það er fráleit fullyrðing að ég vilji sjá blóð renna í Landakoti. Ég er að gegna skyldu minni. ítarleg rannsókn og úttekt á málinu hefur staðist í öllum höfuðatriðum, þó þeir hafi reynt að gera aukaatriði að aðalatriðum. Ég verð að tryggja að þetta ástand haldi ekki áfram. Ég er gæslumaður almannahags- muna,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði hins vegar, að ef Landakotsmenn samþykkja sam- komulag ráðherranna, þá muni ríkið greiða skuldir spítalans, þó eftir nánari mati á því hvað væri óumflýjanlegt og hvað ekki. -SÓL Þrjú koffort og þrjár ferðatöskur hafa hér vcrið opnaðar á flötinni við Hótel Húsavík og verið er að velja veiðiföt við hæfi. Inni ■ bílnum sést í fataslárnar sem settar hafa verið upp undir öll þau kynstur af klæðnaði sem fylgja. Tvær af systrunum eru lengst til vinstri en sú þriðja er uppi í sendibílnum þar sem sérstakir skiptiklefar hafa verið smíðaðir. Aö afloknum hádegisveröi við veiðar í Laxá í Þingeyjarsýslu: Wathne systur skipta Það fer engum ofsögum af þeim frægu Wathne systrum, sem nú eru við veiðar í Laxá í Þingeyjarsýslu. Eftir því sem Tíminn hefur fregnað hefur veiðin verið góð hjá þeim eins og við er að búast þegar Laxá er annars vegar. Fatnaður þeirra, búnaður og að- stoðarfólk hefur þó vakið meiri at- hygli á Húsavík en veiðin að undan- förnu. Myndin sem hér birtist er tekin um hádegisbil á fimmtudag fyrir utan Hótel Húsavík. Þá var veiðidagurinn hálfnaður og máltíðin afstaðin. Ekki var því annað að gera en að afklæðast hádegisverðarfötun- um og finna til einhverjar flíkur að vera í við veiðiskapinn það sem eftir lifði dags. Á flötinni fyrir utan fatabifreiðina má sjá þrjú koffort, og tvær látlaus- ari ferðatöskur, en sú þriðja er uppi á gólfi flutningabílsins. Tvær systr- anna eru fyrir utan bifreiðina, (þær sem eru eins kæddar) ásamt þjón- ustustúlkunni, bílstjóranum og sér- legum aðstoðarmanni þeirra systra, lengst til hægri. Þriðja systirin er inni í kassa klæðabílsins þar sem innrétt- aðir hefa verið skiptiklefar. Um það bil tuttugu mínútum síðar voru þær allar komnar úr hádegisverðarfötun- um og orðnar fullbúnar fyrir áfram- haldandi veiðiskap. Þá kom til kasta fullorðins manns að fylgja þeim til veiða ásamt jeppabílstjóranum. Að sjálfsögðu voru þær systur allar eins klæddar, enda er það aðalsmerki þeirra hvar sem þær fara. Fatabifreiðin er leigð til ferðarinn- ar þann tíma sem þær dvelja hér á landi. Hún hefur verið innréttuð sérstaklega til verksins og er búin skiptiklefúm þannig að allar systurn- ar geta skipt um föt í einu. Fataslár ná þvert yfir bílinn og aðrar hirslur eru til staðar, sem nauðsynlegar eru til að bíllinn megi nýtast vel til fataflutninganna. Þann- ig losna allir aðilarnir við stöðugan fataburð inn og út af því hóteli sem um föt dvalið er á hverju sinni. Þessu fylgir sá kostur að allir fatabunkarnir geta auðveldlega verið við hendina hvar sem þær fara. Bíllinn getur borið um fimin tonn í kassanum og er hann af stærstu gerð sendibíla með kassa og lyftu að aftan. Hann hefur verið þéttur sér- staklega til að ekkert ryk geti komist í búnaðinn og er að sjálfsögðu ekki notaður í neitt annað þá viku sem þær systur ferðast um ísland. Það kostar rúmlega 30 þúsund krónur á dag að leigja þessa stærð af bíl. Gosframleiðendur: Verðlags- stofnun hyggst kæra Auglýsingastríð gosdrykkjar- framleiðenda hefur leitt til þess að Verðlagsstofnun sér ekki ann- að fært en að kæra þá aðila sem að hennar mati hafa brotið verð- lagslög með ætluðum ólögmætum auglýsingum og kemur þá til kasta ríkissaksóknara og dóm- stóla að fjalla um málið. Gísli Eysteinsson yfirlög- fræðingur Verðlagsstofnunar sagði í samtali við Tímann að þetta hefði orðið niðurstaðan eft- ir að upp úr samningaviðræðum Verðlagsstofnunar, Sanitas hf., Sólar hf. og Vífilfells hf. slitnaði á hádegi í gær, þegar Sanitas neitaði að skrifa undir samkomu- lagið, en hinir framleiðendurnir höfðu skrifað undir. Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas, sagði að gert hefði verið samkomulag um að stemma stigu við happdrættisvinningum, varn- ingi og fríðindum í auglýsingum. „Þegar skrifa átti undir sam- komulagið var búið að bæta í það: Brjóti Sanitas samkomulag- ið samkvæmt 1. tölulið, þá verður þess getið sérstaklega í fjölmiðl- um. Þetta gátum við ekki sætt okkur við,“ sagði Ragnar, „og teljum að dómstólar eigi að skera úr um það en ekki afhenda þetta einhliða til Verðlagsstofnunar." -ABÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.