Tíminn - 24.09.1988, Síða 11
Laugardagur 24. september 1988
Tíminn 11
Kaupfélag Skaftfellinga í Vík:
Eitt þúsund
kröfuhafar
Kröfuhafar á hendur Kaupfélagi
Skaftfellinga í Vík í Mýrdal eru um
1000 talsins, en með bréfi dagsettu
26. ágúst 1988 féllst sýslumaður
Vestur-Skaftafellssýslu á greiðslu-
stöðvun Kaupfélagsins til 1. nó-
vember nk. Fram til þess dags verða
undirbúnir nauðasamningar við alla
kröfuhafa.
Skuldir Kaupfélags Skaftfellinga í
Vík þann 15. ágúst sl. voru rúmar
159 milljónir króna, þar af eru
kröfur almennra kröfuhafa nálægt
110 milljónum.
Áætlað rekstrartap Kaupfélagsins
á tímabilinu l.janúar til 15. ágúst á
yfirstandandi ári er rúmar 48 millj-
ónir króna. óþh
Á námskeiöum Björgunarskóla
LHS, er lögð áhersla á að þjálfa við
raunverulegar aðstæður.
Fjöldi námskeida
Björgunarskóli Landssambands
hjálparsveitar skáta er nú að hefja
sitt tólfta starfsár undir kjörorðun-
um, „Aukin kunnátta - bætt þjálfun
- betri árangur“.
Björgunarskóli LHS býður upp á
fjölda námskeiða og er lýsing á þeim
í námsskrá skólans, sem endurnýj-
uð var fyrir ári og send öllum
björgunarsveitum, almannavarna-
nefndum og lögregluembættum.
Þessum aðilum er gefinn kostur á að
panta námskeið fyrir sitt fólk og
útvegar skólinn þá leiðbeinendur og
kennslugögn. í vetur verða einnig
haldin námskeið í ferðamennsku
fyrir almenning, eins og verið hefur
undanfarin ár á vegum hjálparsveit-
anna. I nýútkominni vetraráætlun
skólans eru ýmis námskeið tímasett,
má þar nefna námskeið í skyndi-
hjálp, fjarskiptum, ferðamennsku,
þjálfun björgunarhunda, akstri
björgunarbifreiða og leiðbeinenda-
námskeið í snjóflóðaleit, svo eitthv-
að sé nefnt. -ABÓ
Verslunarhúsnæði
til sölu - Laugarásvegur 1
Kauptilboð óskast í verslunarhúsnæði ÁTVR að Laugarásvegi 1,
Reykjavík á 1. hæð, en því fylgja 2 geymslur í kjallara og bílskúr,
samtals 152,3 m2. Brunabótamat er kr. 8.535.847,-
Húsnæðið er til sýnis í samráði við Gústaf Níelsen skrifstofustjóra
ÁTVR, simi 24280.
Tilboðseyðublöð liggja frammi að Laugarásvegi 1 og á skrifstofu vorri.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu .vora fyrir kl. 11.00 f.h. þriðjudaginn 4.
okt. n.k.
iNNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Fyrirlestur um
borgaralega fermingu
Mánudagskvöldiö 26. september 1988 kl. 20.30 í
Geröubergi.
Steinar Nilsen, forseti Human-Etisk Forbund í
Noregi talar á ensku en svarar spurningum einnig
á Noröurlandamálum.
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík
Skoðunarferð um Reykjavík og nágrenni n.k. laugardag 24. sept.
Farið verðurfrá B.S.Í. kl. 13.00.
Kaffi drukkið í Skíðaskálanum Hveradölum. Nánari upplýsingar og
skráning í síma 24480, Þórunn, til kl. 14.00 á föstudag.
Leiðsögumaður Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi.
Mætum vel.
Stjórnin.
AKRANES
-BÆJARMÁL
Fundur um bæjarmálin verður haldinn í Framsóknarhúsinu laugar-
daginn 24. sept. n.k. kl. 10.30.
Bæjarfulltrúarnir
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Framsóknarmanna á Vestfjörðum verður haldið á
Súðavík dagana 30. sept. til 1. okt. 1988. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMÚLA 3 108 REYKJAVlK SÍMI (91)681411
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Dodge Aries 4 DR árgerð 1988
AMC Jeep Wagoneer árgerð 1988
Toyota Corolla árgerð 1988
Ford Escort 1300 CL árgerð 1988
Fiat Uno S 60 árgerð 1988
Saab 900 i 4 DR árgerð 1988
Peugeot 309 GL árgerð 1987
Lada station 1500 árgerð 1987
Chevrolet Monsa árgerð 1986
Toyota Landcruiser HT árgerð 1986
B.M.W. 323 i árgerð 1985
Fiat 127 GL árgerð 1984
V.W. Golf GL árgerð 1982
Mercedes Benz 307 D árgerð 1982
Mercedes Benz 280 E árgerð 1981
Subaru 1800 st. GL árgerð 1981
Dodge Aries Custom árgerð 1981
Vél í Ford Escort 1900 árgerð 1987
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 26. september 1988, kl.
12-16.
Á sama tíma:
Á Höfn í Hornafirði:
Ford Mustang árgerð 1979
Á Sauðárkróki:
Man 19281 vörubifreið árgerð 1982
Á Hvammstanga:
Volvo 244 GL árgerð 1979
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
12, þriðjudaginn 27. september 1988.
Samvinnutryggingar g.t.
- Bifreiðadeild -
rMiðuní^
hraða
ávallt við
aðstæður
A
Hvernig sem á stendur
Við erum á vakt
allan sólarhrínginn
Ul..
68 55 22
6 /ó) I
l