Tíminn - 24.09.1988, Síða 23
f » » » » » 1
»»»»»»»»»»»»
» » » »
SOG' i'í'i iVA,í í. . Ti'J.S-.VijJ'J.s J
Laugardagur 24. september 1988
H » ■* T» •* '
» r » » ».».».». ».»
.Yí'P'í'V S\
Tíminn 23
SPEGILL
lllll
IIHIIIIÍI
„Við erum feitar og fallegar,“ segja konumar í NAAFA.
Feitar - og hreyknar af því!
- Það er ekkert að því að vera
vel í holdum, segja konurnar sem
við sjáum hér á myndunum, en
þessar glæsilegu dömur voru
samankomnar í San Francisco á
ráðstefnu NAAFA (National As-
sociation to Aid Fat Americans)
sem er skammstöfun á „Þjóðar-
samtökum til aðstoðar við feita
Ameríkana".
Flestar af „stelpunum" eru vel
yfir 200 pund á þyngd og voru bara
hreyknar af kroppum sínum, þar
sem þær sóluðu sig við sundlaugina
á ráðstefnuhótelinu.
Þær héldu líka tískusýningu, þar
sem aðallega voru sýnd undirföt,
íþróttaföt og náttkjólar fyrir feitar
konur.
í þessum hóp voru magadans-
meyjar, sem kalla sig „The Fatim-
as“. Þær tróðu upp á fatasýning-
unni og sýndu listir sínar.
Það var þarna líka töluvert af
karlmönnum, bæði feitum og
grönnum. Margir þeirra trúðu
þessum myndarlegu konum fyrir
því, að þá hefði alltaf dreymt um
feitar konur og voru ósparir á
gullhamrana.
Talið er að a.m.k. 38 milljónir
Bandaríkjamanna, karla og
kvenna, þjáist af offitu. Því fylgir
oft minnimáttarkennd og óánægja
með útlitið. - En nú hafa samtökin
NAAFA á stefnuskrá sinni, að
hjálpa fólki að yfirvinna minni-
máttarkenndina og sætta sig við
sitt eðlilega holdafar.
„Monaco/Kennedy ættarveldi“?
Sagt er að Jackie Kennedy Onas
sis hafi orðið æfareið þegar hún
frétti það, að JFK jr. -eins og John
Kennedy yngri er oft kallaður -
væri orðinn ástfanginn af Stepha-
nie Mónakóprinsessu. En það
sama gilti ekki um föður Stefaníu,
Rainier fursta, því hann er víst
hinn lukkulegasti yfir fréttinni og
væntir sín mikils af „Monaco/
Kennedy-ættarveldi" í framtíð-
inni. Honum líst bráðvel á unga
manninn og treystir honum til að
tjónka við hina uppreisnargjörnu
prinsessu.
Stephanie og John hittust eftir
að hann flutti til Los Angeles til að
byrja sumarvinnu í þekktri lög-
fræðiskrifstofu (1000 dollara fékk
hann í laun á viku). Hann hafði
áður verið að skjóta sig í stúlku
sem heitir Christina Haag, en það
samband fór út um þúfur þegar
Madonnu-ævintýrið hófst. Ma-
donna og John fóru út á lífið í New
York um það leyti sem Madonna
var að yfirgefa mann sinn, leikar-
ann Sean Penn, en það hjónaband
er farið í vaskinn.
Stephanie hafði sagt skilið við
glaumgosann Mario Oliver og
hafði smávegis verið að skemmta
sér með hljómplötuframleiðandan-
um Ron Bloom.
John er orðinn 27 ára og er að
byrja þriðja árið sem laganemi í
New York háskólanum, og sagt er
að Jackie, mamma hans, geti varla
beðið eftir að sumarvinnunni hans
ljúki og hann komist burt frá Los
Angeles og prinsessunni.
En sagt er að Stephanie hafi nú
breytt um Iífsstíl og reyni að taka
John Kennedy,
yngri, kom fram
sjónvarpi með Ted
frænda sínum.
lífinu með meiri ró en áður. Þau
eru bæði vön því að vera í sviðsljós-
inu, og þau vita líka hve slæm
blaðaskrif og hneykslanlegar
myndir gætu eyðilagt fyrir þeim
sambandið, svo þau fara mjög
varlega. Vinur Johns segir að þau
vilji helst vera heima eða í smá-
kvöldsamkomum með bestu kunn-
ingjum. „Stephanie hefur m.a.s.
búið sjálf til kvöldmat handa
þeim,“ sagði hann hrifinn, eins og
þetta væru stórfréttir.
Nú er Stephanie farin að hafa
<S»i
Stephanie er orðin miklu stilltari í
framkomu og hefur fengið áhuga á
stjórnmálum og m.a.s. matargerð!
mikinn áhuga á bandarískum
stjórnmálum og kosningabarátt-
unni fyrir forsetakosningarnar.
Hún bauð til sín vinum og tók upp
á vídeóspólu ræðu Johns, sem
hann hélt á þingi demókrata í
Atlanta, þar sem hann talaði til
stuðnings Ted föðurbróður sínum.
John er spáð miklum frama í
stjórnmálum.
Þær kalla sig „The Fatimas" og sérgrein þeirra er að dansa „magadans'