Tíminn - 10.11.1988, Side 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Ákvörðun tekin innan tíðar um hvaða erlendar
bjórtegundir verða á boðstólum hjá ÁTVR:
Carlsberg og T u-
borg líklegastir
„Ef við eiguni að iosna við
gríðarlegan fjárfestingarkostnað
við að breyta verslunum þá getum
við ekki veriö með meir en þétta
fimm tii sex bjórtegundir," sagði
Höskuldur Jónsson forstjóri
ÁTVR.
Höskuldur sagði að mjög margar
umsóknir hefðu borist um að fá
bjórtegundÍF fluttar inn frá flestum
löndum heims, þar á meðal Kína
og Ástralíu. Höskuldur sagði mjög
líklegt að pöntunarþjónusta yrði
starfrækt með svipuðu sniöi og gert
er með víntegundir sem ckki fást í
verslunum ÁTVR. Rannig yrði
hægt að sérpanta tcgundir scm
annars verða ekki til sölu í verslun-
um ÁTVR. Hann sagði þó að
ólíklegt væri aö hægt yröi að panta
einn og einn kassa, heldur yrði
þjónusta þessi sniðin að þörfum
veitingahúsa eða einstaklinga sem
vildu kaupa umtalsvert magn.
Verð á bjórnum hefur ekki verið
endanlega ákveðið en ræddar hafa
verið í fjölmiðlum tillögur sérstakr-
ar nefndar sem um verölagsmál á
aö fjalla samkvæmt áfengislögum.
Endanleg ákvörðun er hins vegar í
höndum fjármálaráneytisins.
Höskuldur sagði að á allra næstu
dögum yrði að taka ákvörðun um
hvaða bjórtegundir verða scldar
hérlendis ef ÁTVR ætti ekki að
lcnda í meiriháttar vandræðum og
sagði hann að unniö væri að þess-
urn málum og allir sem þessu
tengdust væru að athuga sinn gang
og bjórumboðsmenn reyndu cftir
megni að fylgjast með gangi þess-
ara niála.
Bjórmenn telja að þrjár til fjórar
tegundir erlends bjórs muni fást í
verslunum ÁTVR og komi þar
helst til greina hinir dönsku Carls-
berg og Tuborg, Heineken frá
Hollandi, Becks frá V-Þýskalandi,
Budweiser frá Bandaríkjunum og
Urquell frá Tékkóslóvakíu og séu
tvær fyrstncfndu tcgundirnar næsta
öruggar um að verða til sölu í
Ríkinu. -sá
Rjúpnavertíðin í algleymingi, veiðin með ágætum á Norðurlandi:
Rúmlega 30% hækkun
á rjúpu milli ára!
Rjúpnaskytta mun fá um 300
krónur í sinn vasa fyrir hverja selda
rjúpu sem er þokkalegasta launa-
hækkun sé miðað við áriö í l'yrra.
í kjötbúð Péturs við Laugaveg
fengust hinsvegar þær upplýsingar
að rjúpan út úr búð myndi sennilega
kosta rétt tæplega fjögur hundruö
krónur fyrir þessi jól scm er nokkuð
mikið meira en fyrir ári en þá mun
stykkið hafa kostað um þrjú hundr-
uð krónur. Að sögn verðlagsstjóra
er ekki Ijóst hvort verð á rjúpu fellur
undir verðstöðvun cn hann sagði að
þetta verð yrði kannað og í fram-
haldi af því kæmi í Ijós hvort það
væri óeðlilega hátt.
Hann sagði einnig að veittar væru
undanþágur vegna árstíðabundinnar
vöru svo sem á sumrin þegar lax væri
á boðstólum og ekki væri óeölilegt
að rjúpan fengi sömu meðhöndlun.
Spurningin væri því hvort hækkunin
væri of mikil.
Rjúpan í hópum
á Norðurlandi
Nú er rjúpnavertíðin í algleymingi
og mismunandi klæddir, mismun-
andi vel á sig komnir menn sjást arka
upp um holt og hæðir í leit að
ósjálfbjarga liænsnfuglum sem geta
litla björg sér veitt gegn frethólkum
mannanna. Ekki mun veiðin hafa
gengið sem best sunnanlands en af
einum frétti Tíminn sem gerði það
„gott“ í veiðiferð fyrir skömmu.
Sá mun vera af húnvetnskum
ættum. Þessi ágæti Húnvetningur
brá sér yfir sýslumörkin til nágranna
sinna í Skagafirði með hólkinn um
öxl og skotbelti um sig miðjan.
Þegar hann hafði vappað nokkra
stund og skimað í kringum sig með
augun hálflukt í leit að rjúpu kom
hann auga á eina og svo aðra og
þannig koll af kolli þar til skotfæra-
birgðirnar þraut.
Húnvetningurinn skotglaði hélt þá
til byggða, boginn í baki undan
þunga sjötíu og fjögurra rjúpna!
Ekki afleitur árangur það en þó mun
hann hafa orðið fyrir nokkrum von-
brigðum með að hafa ekki keypt
meira af skotum í byggingavörudeild
K.H.
Þess má geta að ætli þessi ágæti
maður sér að selja afurðirnar svo að
við hin getum gætt okkur á þeim á
aðfangadagskvöld, fær hann að öll-
um líkindum 300 kr. fyrir stykkið í
sinn vasa sem þýðir að fyrir þessa
ákveðnu ferð ætti hann að fá 22.200
kr. -áma
Tímamótasamningur Samvinnubanka og KÞ á Húsavík:
BANKINN TRYGGIR
INNLÁNSDÐLDINA
„Fyrir viðskiptavinina þýðir
þetta í fyrstu uml'erð að þeir snúa
sér til.Samvinnubankans og fá þar
afgreiðslu þeirra mála sem varða
innlánsdeildina og að auki geta
þeir væntanlega talist öruggari með
gildi innistæðna sinna en áður,“
sagði Hreiðar Karlsson kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík við Tímann.
Tíminn ræddi við Hreiðar í til-
efni þess að í fyrradag gckk í gildi
samningur milli KÞ og Samvinnu-
banka íslands hf. en samkvæmt
honum ábyrgist bankinn innistæð-
ur í innlánsdeild kaupfélagsins sem
eigin innlán.
Hreiðar sagði að þessi mál hefðu
verið í deiglunni milli KÞ og bank-
ans frá því snemma í vor og
ástæðurnar eru meðal annarra þær
að brátt eiga að ganga í gildi ný lög
um starfsemi banka og lánastofn-
ana en innlánsdeildir kaupfélag-
anna eiga margar ekki of gott með
að laga sig að þeim.
í fréttatilkynningu um þetta mál
segir að innlánsdeildirnar hefðu á
sínum tíma verið stofnaðar til sam-
hjálpar og sjálfshjálpar samvinnu-
manna þegar bankar á íslandi voru
fáir og smáir, Ástæðan hefði einnig
verið sú að kaupfélög hefðu átt
ógreiðari aðgang að lánsfé en ann-
ar atvinnurekstur. Því hafa inn-
lánsdeildirnar haft afgerandi áhrif
á eflingu samvinnurekstrar.
-sá
Myndin sem tekin er í Austurstræti, sýnir skástrikuðu bflastæðin og hefur
stæðum við götuna fjölgað um 7. Að sögn Inga Ú. Magnússonar,
gatnamálastjóra, ætla þeir að bjóða bflstjórum upp á fleiri stæði með vorinu.
(Tímamynd: Gunnar)
Bílastæðum í miðbænum fjölgar verulega:
Arangursrík en
einföld hugmynd
Bílastæðum við Snorrabraut hefur
fjölgað um 49 frá því sem var. Á
ýmsum öðrum stöðum í borginni er
búið að bæta fjörutíu og þremur
stæðum við, og til stendur að fjölga
þeim enn frekar.
Þessa fjölgun bílastæða má rekja
til einfaldrar en árangursríkrar
lausnar. Bílastæði sem afmörkuð
hafa verið við gangstéttir, hafa verið
máluð þvert á götuna, en með því að
stæðin eru afmörkuð með skástrik-
um, eykst stæðafjöldinn verulega.
Þetta kom fram í samtali við Inga
Ú. Magnússon, gatnamálastjóra, í
gær. Áður en byrjað var á breyting-
unum voru bílastæðin í miðbænum
142 talsins, en eru nú orðin 238.
Ingi sagði að bíleigendur gætu
mjög fljótlega byrjað að nota öll
stæðin, en eftir ætti að mála skástrik-
in á nokkrum stöðum.
Gatnamálastjóri var spurður
hvort fleiri skástæðum yrði bætt við,
og sagði hann að unnið yrði að þvf
eftir megni.
„Við reiknum með góðum gangi
mála. Það þarf að viðra vel fyrir gerð
bílastæða og við murium undirbúa
þetta í vetur.“
Hann taldi líklegt að framkvæmd-
ir hefðust næsta vor, og aðspurður
hvar stæðum yrði fjölgað sagði hann
að það yrði hingað og þangað um
borgina.
Samtals hefur nú bílastæðum í
Reykjavík fjölgað um 96, eða um
68%. " elk.
Sex íslenskir skákmenn á leið á ólympíumótið í skák:
Stefnum á eitt af
tíu efstu sætunum
Sex íslenskir skákmenn taka þátt
í ólympíumótinu í skák sem hefst f
Grikklandi um helgina. Þetta eru
þeir Jóhann Hjartarson, Jón L.
Árnason, Margeir Pétursson og
Helgi Ólafsson en auk þeirra fara
utan skákmennirnir Karl Þorsteins
og Þröstur Þórhallsson sem vara-
menn.
Þessi sveit er að megninu til sú
sama og tefldi í Dubai í hittiðfyrra
og lenti þá í fimmta sæti. Áuk
keppenda munu þeir Þráinn Guð-
mundsson forseti Skáksambands ís-
lands og Kristján Guðmundsson fara
sem farar- og liðsstjórar.
Kunnugir segja að Islendingum sé
óhætt að vera hæfilega bjartsýnir á
frammistöðu þeirra félaga og að
jafnvel sé ekki úr vegi að gera ráð
fyrir að þeir hreppi eitt af tíu efstu
sætunum enda hafi þeim sem sveit-
ina skipa farið mjög fram á síðast-
liðnum árum. -áma