Tíminn - 10.11.1988, Qupperneq 3
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Tíminn 3
Ekiðá
konu
Kona varð fyrir bifreið á
Miklubraut, á móts við Engihlíð,
um 8.05 í gærmorgun. Handan
götunnar er strætisvagnabiðstöð
og var konan að fara yfir þegar
bíll kom aðvífandi og var ekið á
hana. Hún var flutt á slysadeild,
með meiðsli á fæti. -ABÓ
Hafið samband við söiumenn
okkar eða umboðsmenn.
G/obusíf
Einkaumboð fyrir FIATAGRI á Islandi
Lágmúla 5, sími: 91-681555
Sigurvon ST-54 á strandstað skammt
austan við svokallaða Viðlagavík í
gærdag, vel skorðuð milli steina í
fjörunni. Tímamynd SGG
FIAT dráttarvélar:
ÞÆR MEST SELDU
í VESTUR-EVRÓPU
Bera hæst í harðri samkeppni.
Mannbjörg varð þegar Sigurvon ST
strandaði við innsiglinguna
í Vestmannaeyjahöfn í gærmorgun:
Losnaði
á f lóðinu
Sigurvon ST-54 í eigu Rækjunnar
hf. á Hólmavík strandaði skammt
austan við svokallaða Viðlagavík,
sem er rétt sunnan við innsiglinguna
í Vestmannaeyjum, um hálf sjö í
gærmorgun. Fjögurra manna áhöfn
Sigurvonar var bjargað um borð í
gúmmíbáta björgunarsveitanna í
Eyjum skömmu eftir strandið.
Skipstjórinn fékk höfuðhögg við
strandið og var fluttur á sjúkrahúsið
í Eyjum, en aðra áhafnarmeðlimi
sakaði ekki. Á flóðinu um klukkan
16.00 losnaði báturinn og var hann
dreginn út, svo til óskemmdur. Sig-
urvon er 62 tonna eikarbátur smíð-
aður 1957.
Loftskeytastöðin tilkynnti um
strandið klukkan 6.36 og fóru með-
limir Hjálparsveitar skáta og Björg-
unarfélags Vestmannaeyja þegar á
staðinn. Björgunarsveitirnar fóru að
Sigurvoninni bæði á sjó og á landi og
tókst að bjarga fjögurra manna
áhöfn um borð í gúmmíbáta björg-
unarsveitanna, og var hún síðan
flutt í land.
Báturinn var að koma af veiðum
þegar hann strandaði í ágætu veðri
og var hann að sögn lögreglu vel
skorðaður milli steina í fjörunni. Á
tímabili var talin hætta á að olía tæki
að leka úr bátnum, og voru gerðar
ráðstafanir til að tæma olíutanka
Sigurvonarinnar. En í grennd við
strandstaðinn er fiskeldi og hefði
olíumengun getað haft alvarlegar
afleiðingar fyrir eldisfiskinn. Til þess
kom þó ekki, að tæma þyrfti olíu-
tanka bátsins, þar sem hann hafði
skorðast mjög vel milli steina og var
sem hann stæði í slipp, að sögn
heimamanna. Vegur liggur um 100
metrum frá þeim stað sem Sigurvon-
in strandaði og var ruddur slóði til
að komast að bátnum á bílum og
gröfu til að auðvelda undirbúning
þess að draga bátinn á flot á flóðinu
Það er áreiðanlega vandfundinn traustari gæðastimpill á
dráttarvél en sá að hún skuli vera sú mest selda í
Vestur-Evrópu. Samkeppnin er hvergi harðari en
einmitt á því markaðssvæði. Það er heldur engin
tilviljun, þegar höfð er íhuga öflug rannsóknar- og
þróunarstarfsemi FIAT verksmiðjanna í 60 ár.
Uppskriftin að velgengniFIATdráttarvélanna
liggur í framúrskarandi fjölhæfni þeirra,
rekstrarhagkvæmni og þeirri miklu
áherslu sem lögð er á þægindi
og öryggi stjórnandans.
Afar fjölbreyttur búnaður er innifalinn
í verðinu á FIAT dráttarvélunum, s.s.:
1. Læst framdrif
2. Tveggja hraða aflúttak
3. Lyftutengdur dráttarkrókur
4. Tvö tvívirk vökvaúttök
5. 12 hraðastig áfram /12 aftur á bak
6. Yfirstærð á dekkjum
7. Hljóðeinangrað ökumannshús
8. Utvarp og segulband
9. Veltistýri og m.fl.
Verð án söluskatts:
FÍAT 60-90,60 hö. kr. 967.000.-
FÍAT 70-90 DSC, 70 hö.
Verð frá kr. 1.091.000.-
FÍAT 80-90 DSC, 80 hö.
Verð frá kr. 1.183.000.-
(Verð er miðað við gengi 25/10 ’88.)
og dæla olíunni úr honum ef þörf
krefði. í flóðinu um klukkan 16.00
hafði flætt það vel undir bátinn að
ráðlegt var talið að draga hann á flot
og tókst það. Báturinn er svo til
óskemmdur. -ABÓ
Björgunarmenn unnu að því í gær að undirbúa björgun bátsins áflóðinu um miðjan dag. Lagður var vegur að
s'trandstað til að auðvelda björgunarstörf. Tímamynd SGG