Tíminn - 10.11.1988, Síða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
rfrrrTT,np
20. Flokksþing Framsóknarmanna
Hótel Saga 18.-20. nóv. 1988
Dagskrá
Föstudagurinn 18. nóv. 1988
Kl. 10:00 Þingsetning
Kosning þingforseta
Kosning þingritara
Kosning kjörbréfanefndar
Kosning dagskrárnefndar
Kl. 10:15 Yfirlitsræða formanns
Kl. 11:15 Skýrsla ritara
Kl. 11:30 Skýrsla gjaldkera
Kosning kjörnefndar
Kosning kjörstjórnar
Kosning málefnanefndar
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:20 Mál lögð fyrir þingið
Kl. 14:30 Almennar umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:30 Nefndastörf
Laugardagurinn 19. nóv. 1988
Kl. 10:00 Almennar umræður, framhald
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 aðalmanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:15 Nefndastörf - starfshópar - undirnefndir
Kvöldið frjálst
Sunnudagurinn 20. nóv. 1988
Kl. 10:00 Afgreiðsla máia - umræður
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 varamanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Aðrar kosningar skv. lögum
Kl. 14:30 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri (um kl.
16:00)
Kl. 19:30 Kvöldverðarhóf í Súlnasal
Framsóknarfélag Garðabæjar
og Ðessastaðahrepps
Aðalfundur félagsins verður haldinn að Goðatúni 2 fimmtudaginn 10.
nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Stjórnin
Áhugakonur um pólitík
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir léttum matarspjalls-
fundi fimmtudagskvöldið 10. nóv. að Veitingahúsinu Lækjarbrekku
(uppi) kl. 19.00.
Ath. breyttan fundartíma.
Allar áhugakonur um pólitík velkomnar.
Framkvæmdastjórn LFK.
Kjördæmisþing framsóknarmanna
í Reykjaneskjördæmi
verður haldið sunnudaginn 13. nóvember n.k. í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi.
Dagskrá auglýst síðar.
Stjórnin.
Árnesingar
Síðasta umferð í hinni árlegu spilavist okkar verður 11. nóvember
n.k. kl. 21.00 í Aratungu.
Glæsileg verðlaun.
Guðmundur Búason flytur ávarp.
Framsóknarfélag Árnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Austur-Húnavatnssýslu
verður haldinn sunnudaginn 13. nóvember kl. 15 á Hótel Blönduósi.
Stjórnin
Fiokksþing
20. flokksþing framsóknarmanna verður haldið dagana 18.-20. nóv.
n.k. að Hótel Sögu. Þingið hefst föstudaginn 18. nóv. kl. 10. Dagskrá
auglýst síðar.
Framsóknarflokkurinn.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambandsins að Hamraborg 5 verður opin
mánudag til fimmtudaga kl. 16-19.
KFR
Byggðastofnun samþykkir lán upp á 170 milljónir á einum fundi:
73 milljónir í
sjávarútveginn
Það sem af er þessu ári hefur
stjórn Byggðastofnunar samþykkt
lánveitingar að upphæð 1,8 milljarði
króna. A fundi stjórnar stofnunar-
innar sem haldinn var 3. nóvember
síðastliðinn voru samþykkt lán og
lánveitingar að upphæð tæplega 170
milljónir króna. Af þeirri upphæð
fer stærsti hlutinn til sjávarútvegs,
alls tæpar 73 milljónir króna og til
laxeldis var veitt samtals 63 milljón-
um. Auk þess var samþykkt að
Byggðastofnun leggi fram 10 millj-
ónir króna sem hlutafé í Miklalaxi
h/f í Fljótum. Samtals var 47 styrk-
og lánsumsóknum hafnað.
A sama fundi var fjallað um hin
mörgu litlu fyrirtæki í ullariðnaði á
landsbyggðinni sem berjast- í bökk-
um vegna þessað innlendir kostnað-
arliðir hafa hækkað mun meira en
tekjur. Mörg þessara fyrirtækja hafa
leitað til Byggðastofnunar í þeim
tilgangi að hún leggi fram hlutafé og
aðstoði þau við samræmda sölustarf-
semi. Byggðastofnun telur rétt að
Iðnaðarráðuneytið hafi forgöngu um
samræmdar aðgerðir til þess að
koma fyrirtækjunum til aðstoðar ef
talið er að þau hafi rekstrargrund-
völl. Því var afgreiðslu frestað á
beiðnum allra slíkra fyrirtækja en
forstjóri Byggðastofnunar mun hefja
viðræður við Iðnaðarráðuneytið.
Svokölluð Vestfjarðaáætlun var
einnig tekin fyrir á fundinum en hún
var unnin að beiðni Fjórðungssam-
bands Vestfirðinga. Markmiðið með
vinnslu áætlunarinnar var að koma
með tillögur um aðgerðir sem duga
mættu til að snúa við þeirri byggða-
þróun sem verið hefur í þessum
landshluta. Byggðastofnun vann
áætlun þessa innan þess ramma sem
byggðaáætlunum er settur og hefur
hún nú verið send forsætisráðherra
sem mun gera ríkisstjórn og Alþingi
grein fyrir innihaldi hennar. ssh
Saumar buxur
úr selskinni
Hans Wiuni heitir ungur maður,
sem býr á Húsavík. Nýverið opnaði
hann leðuriðju þar, sem ber heitið
„Litla skinnið". Hans gerir við ýmsa
hluti og fatnað úr leðri, einnig saum-
ar hann eftir máli og hefur m.a.
saumað sér selskinnsbuxur.
Hans titlar sig söðlasmið og vann
við það fag í tvö ár í Reykjavík.
Það er ekki á hverjum degi, sem
fólk saumar fatnað úr selskinni hér
á íslandi.
„Ég var í læri hjá strák í Reykja-
vík, þegar við fengum þessi skinn.
Ekki kann ég nú alveg söguna á bak
við skinnin, en selurinn var skotinn
hérlendis. Skinnin voru svo send í
sútun til Þýskalands, og komu þaðan
mjúk og lyktarlaus." Hann bætti þvf
við, að sútunin hér heima væri ekki
nógu góð, skinnin væru hörð og
lyktina tækist ekki að fjarlægja.
Enn sem komið er, hefur Hans
eingöngu saumað selskinnsbuxur
fyrir sjálfan sig, en sagðist geta
útvegað skinn, hefði fólk áhuga.
„Ég hef notað buxurnar mikið á
mótorhjólinu mínu, og datt einu
sinni, en það sá ekki á buxunum.
Þær eru mjög sterkar og líka mjög
hlýjar.“
Hann sagðist viss um að hægt væri
að gera margar fallegar flíkur úr
selskinni. „Mér þykja þessi skinn
vera svo falleg og finnst það sóun að
fara illa með þau, - þeim er fleygt
eftir að selurinn hefur verið skotinn,
í stað þess að nýta þau.“ elk.
Hans Wiium í selskinnsbuxum.
(Ljósmynd Víkurblaðið)
Egill Jónsson sjálfstæðismaður:
Afurðastöðvarnar
græða á
Egill Jónsson (D.Al.) gagnrýndi
afurðastöðvar sauðfjárbænda
harkalega á fundi neðri deildar
Alþingis í gær. Sagði hann það
sannað með óyggjandi hætti að
sláturhúsin fengju samkvæmt bú-
vörusamningnum nánast 100% af
því fjármagni sem þeir þyrftu að
skila til bænda. „Það hefur ekki
staðið á greiðslum frá ríkisvaldinu
til að tryggja að bændur fengju
greitt fyrir framleiðslu sína með
skilvísum hætti,“ sagði Egill meðal
annars. Jafnframt gaf hann í skyn
að sláturhúsin tækju til sín meira af
afurðaverði en þeim bæri, þar sem
sláturkostnaður hefði ekki minnk-
að í hlutfalli við minni innlegg
bændum
sauðfjárafurða.
Valgerður Sverrisdóttir benti á
að á undanförnum árum hefði
alltaf staðið á greiðslum til sauð-
fjárbænda og benti á að það væri
ekki nóg að setja búvörulög ef ekki
væru tryggðar forsendur til að
standa við þær skuldbindingar sem
í þeim fælust. Steingrímur Sigfús-
son landbúnaðarráðherra tók í
sama streng og sagði lagabókstafi
lítils virði ef ekki væri hægt að
standa við þá. Landbúnaðarráð-
herra skýrði einnig frá því að verið
væri að endurskoða lög um afurða-
lánaviðskipti og stæðu nú yfir við-
ræður við viðskiptabankana um
þau mál. -ág
Rúmlega fimm þúsund
fleiri hafa komið til Islands
en á sama tíma í fyrra:
21.000 til
íslands
í október
Samkvæmt skýrslu útlendingaeft-
irlitsins komu 12.865 íslendingar til
landsins í október í ár á móti 11.783
á sama tíma í fyrra. Þá munu 8.458
útlendingar hafa lagt leið sína hingað
til lands í október mánuði en 8.464
í fyrra.
Frá áramótum eru íslenskir far-
þegar sem komið til landsins alls
127.191 en voru 121.264 á sama tíma
í fyrra. Nokkru færri útlendingar
hafa komið hingað til lands það sem
af er þessu ári en á því síðasta eða
119.226 í stað 119.882 á síðasta ári.
Flestir erlendu farþeganna í októ-
ber komu frá Bandaríkjunum, eða
2.517 og næstflestir frá Svíþjóð
1.372. -áma
Hverjum Wfh
bjargar það fffi.
n mm
næsf