Tíminn - 10.11.1988, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Tíminn 5
Veruleg umbrot framundan í skipulagi vátryggingafélaga á íslandi, því hvert stærri
félaganna um sig gæti gleypt rekstur þess næsta án þess að bæta við einum starfsmanni:
RAUNHÆFT AÐ TALA UM
3-4 TRYGGINGAFÉLÖG
Ekki er talið óraunhæft að innan fárra missera verði
aðeins þrjú til fjögur frekar stór vátryggingafyrirtæki til á
íslandi. Nú skipta t.d. átta tryggingafyrirtæki milli sín
bifreiðatryggingum í landinu, en Ingi R. Helgason, for-
stjóri Brunabótafélags íslands, segir að sitt félag gæti
faglega séð tekið við öllum bifreiðatryggingum án þess að
bæta við einum einasta starfsmanni. Það eru stór orð þar
sem iðgjöld ökutækjatryggingar voru ríflega 27% af
heildariðgjöldum ársins í fyrra. Miðað við núverandi 12%
markaðshlutdeild í heild yrði um margfalda hlutdeild að
ræða hjá þeim 57 starfsmönnum sem þar eru núna. Þetta
er reikningsdæmi um „áttfalda“ óhagræðingu sem menn
virðast standa frammi fyrir á sviði vátrygginga.
Rekstrarkostnaður er víða vel
yfir 20% í þessum fyrirtækjum.
Með því að minnka rekstrarkostn-
að tryggingafyrirtækis um einn tí-
unda, myndu heildarútgjöld fyrir-
tækisins með 20% rekstrarkostnað
lækka um 2% en það eru upphæð
sem er á annað hundrað milljónir
króna í heildina. Mesti sparnaður-
inn er þó enn sem fyrr sá sem
fengist með bættri umferðarmenn-
ingu og lægri tjónaupphæðum. Þar
eru stóru fúlgurnar eins og einn
forstjórinn orðaði það.
Rekstrarkostnaði má ná veru-
lega niður með sameiningu trygg-
ingafélaga og fækkun starfsfólks.
Einn deildarstjóranna í einu
stærsta félaginu hafði á orði að vel
mætti lækka iðgjaldagreiðslur ein-
staklinga um allt að 20-30% ef
raunveruleg hagræðing fylgdi í
kjölfar sameiningar.
Einingarnar allt of litlar
Sameiningarviðræður hafa stað-
ið yfir milli félaganna á víxl og með
mismunandi áhuga í ýmsar áttir
undanfarin ár. Viðræður milli
framkvæmdastjórna Sjóvár og Al-
mennra trygginga eru þó áþreifan-
legar núna. Að sögn Ólafs B.
Thors, forstjóra Almennra trygg-
inga, er verið að tala um að þessi
tvö fyrirtæki renni saman í eitt
nýtt. Viðræður eru hins vegar ekki
nálægt því komnar á það stig sem
talað hefur verið um opinberlega.
Taldi Ólafur að t.d. gæti hluthafa-
fundur varla farið að fjalla um
málið fyrir en öðru hvoru megin
við næstu áramót. Margt gæti kom-
ið upp sem sliti þessum umleitun-
um núna. Rétt er að taka fram að
fjárhagsleg staða þeirra beggja er
betri en heimildir Tímans hermdu
í gær. Samkvæmt milliuppgjöri er
meiri hagnaður nú þegar en nam
tapinu á síðasta ári hvað varðar
Almennar tryggingar. Það er því
ekki neyðin sem rekur fyrirtækin í
eina sæng.
Ólafur sagði að það væri einfald-
lega tóm heimska að vera að vinna
sömu verkin á mörgum stöðum
með ærnum kostnaði. „Rekstrar-
einingar eru upp til hópa allt of
litlar á íslandi,“ sagði Ólafur, „og
ég er fyrir mitt leyti tilbúinn á láta
reyna á hvort ekki sé hagkvæmt að
þessi fyrirtæki sameinist. Það er
enginn vandi að sjá að svona
hagræðing geti skilað spamaði um
tugi milljóna strax á næsta ári.“
Jafnframt sagði Ólafur: „Samt
verður að vera samkeppni milli
aðilanna og viðskiptavinurinn
verður að finna mannlega þáttinn
áfram þrátt fyrir stærri einingar.“
Enginn munur á
10 þús. eða 60 þús. bílum
í tölvukerfinu
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár, segir að það breytti
engu fyrir tölvukerfi í dag hvort
um væri að ræða 10 þúsund bíla
eða 60 þúsund ökutæki. Því væri
ljóst að hægt væri að reka núver-
andi tryggingastarfsemi með minni
mannskap en gert er. Sagði Einar
að það kæmi sér ekki á óvart þótt
þessar viðræður þeirra núna ýttu
við einhverjum öðrum.
Vildi Einar þó taka fram að ekki
hafi orðið sama þróun hjá vátrygg-
ingafélögum og orðið hefur í
bankakerfinu. Sáralítil sem engin
fjölgun hefur orðið á mannafla
síðustu árin hjá þessum félögum.
Hins vegar er verið að tala um
talsverða fækkun starfsmanna,
þótt forstjórarfélaganna hafi flestir
sagt að það myndi ekki gerast
nema á lengri tíma og ekki með
neinum látum. Þetta er því atriði
sem ekki myndi skila hagnaði fyrr
en að nokkrum árum liðnum.
Samtals starfa á fimmta hundrað
manna hjá vátryggingafélögunum
í dag.
Helsti kostur þess að sameina
félögin er þó sá að þróunarkostn-
aður nýrra trygginga myndi lækka.
Fyrsta skrefið á þessu sviði hefur
þegar verið tekið hjá þeim tveimur
sem nú eru í viðræðum, með því
að þeir stóðu sameiginlega að þró-
un og markaðssetningu svokallaðr-
ar Gullvemdar.
Brunabótog
Samvinnutryggingar
En hvað líður öðrum félögum og
hver gæti þróunin orðið á næst-
unni? Allir forstjórar stærri félag-
anna voru sammála um að ekki sé
óraunhæft að hér yrðu ekki nema
um þrjú til fjögur vátryggingafélög
innan fárra missera. Andrúmsloft-
ið er jákvætt núna, eins og einn
þeirra hafði á orði. En lítum þá á
hvaða möguleikar eru fyrir hendi
og hvernig þessi 3-4 félög geta
orðið samsett.
Núna eru á annan tug félaga sem
standa í vátryggingum. Aðeins
fimm þeirra ná upp fyrir 10%
markaðshlutdeild. Nú þegar á
Sjóvá dótturfyrirtæki sitt, Hag-
tryggingu. Hitt stóra hlutafélagið
er Almennar tryggingar. Með sam-
runa þessara félaga fengist eitt af
þeim þremur stóru félögum sem
verið er að tala um.
Samvinnutryggingar eru ekki
hlutafélag, heldur er það í eigu
þeirra sem tryggja hverju sinni.
Það er því gagnkvæmt trygginga-
félag, sem er skammstafað g.t.
Annað félag er til sem er g.t. en
það er Brunabótafélag íslands. Það
var stofnað með lögum frá Alþingi
árið 1915 og býr þó við þá sérstöðu
að ráðherra skipar forstjóra og
fulltrúaráð þess er skipað fulltrúum
sveitarfélaga. Ekkert mælir gegn
því að g.t. félag geti sameinast
hlutafélögum en vegna þessa sam-
eiginlega fyrirkomulags er oft sagt
manna á milli að þau séu líklegri
íslands á fiskiskipum. Samkvæmt
lögum er skylt að tryggja öll fley af
stærðinni 12-100 tonn hjá Sam-
ábyrgð, en þar eru nú nokkur
stærri skip einnig tryggð.
Það sem þó gæti riðlað þessari
mynd okkar af framtíðarfélögum
er að líklegt er að Brunabót reyni
helst af öllu að mynda samruna við
félag með aðra tryggingarsamsetn-
ingu, þ.e. leiti frekar eftir því við
félag eins og Tryggingarmiðstöðina
að þau sameinist, þar sem það var
með 40% af öllum iðgjöldum í
skipatryggingum á síðasta ári. Þar
var hlutur Samvinnutrygginga t.d.
ekki nema um 14% þó að það
teljist enn stærsta tryggingaféiag á
íslandi.
Ábyrgð og Trygging
Minni félögin eru ekki síður
tilbúin til að ræða hugsanlega sam-
einingu eða jafnvel sölu. Staða
Ábyrgðar hf. er slík að nú er vart
annað hægt en kalla það dótturfyr-
irtæki Andsvar Intemational í
Svíþjóð, sem á um 89% hlutafé
þess, samkvæmt heimildum
Tímans. Það er að mestu í öku-
tækjatryggingum sem komu illa út
á síðasta ári, eins og þegar hefur
komið fram. Ábyrgð er félag sem
líklegt er að keypt verði upp, þar
sem hlutur sænska félagsins er
jafnan til sölu.
Annað félag er Trygging hf. sem
gæti lent með hvaða stórfyrirtæki
framtíðar á þessum vettvangi sem
er. Líklegt er þó talið að það halli
sér frekar að sameiningu við
„Sjóvá-Almennar tryggingar hf.“
en Samvinnutryggingar, vegna
leyndrar pólitískrar skiptingar í
tryggingaheiminum. Trygging er
með öðrum orðum talið vera á
hægri kantinum svokallaða.
Skilar þetta lækkun?
En skilar þetta þeim hagnaði að
iðgjöld heimila og einstaklinga
lækka á næstu misserum? Um það
eru ekki allir sammála. Einn við-
mælandi okkar segir að hægt sé að
lækka iðgjöld heimila um allt að
20-30% með sameiningum og hag-
ræðingu. Aðrir segja að nú þegar
eigi sér stað svo gífurleg undirboð
að félögin séu þegar byrjuð að
stíga fyrstu skrefin til lækkunar
áður en fyrir liggur hagræðing
vegna sameiningar. Eitt slíkt
undirboð var sameiginlegt tilboð
Almennra trygginga og Sjóvár í
tryggingar fyrir Visa fsland, en það
er talið hafa verið um 50% undir
svokallaðri tjónareynslu þess fé-
lags sem þjónað hefur Visa undan-
farin ár. Fram til þessa hafa undir-
boðin verið 5-10% lægri en frá
fyrrverandi tryggingafélögum, sem
þekkja venjulega vel útgjaldahlið
viðskipta sinna.
Það er því ekki víst að árleg
40-50 þúsund króna greiðsla sem
einstaklingur reiðir nú fram í trygg-
ingar af bíl sínum, íbúð og lífi,
muni lækka að ráði næstu misseri.
Það eru tjónagreiðslurnar sem
skipta máli og hvort tekst með
sameiginlegu átaki að draga úr
slysum og minnka þannig lang
stærsta útgjaldalið tryggingafélaga.
En gefum samt Inga R. Helga-
syni síðasta orðið: „Það hvílir sú
skylda á okkur að hagræða rekstr-
inum eins og kostur er. Sameining
í stærri einingar er ekki óraunhæfur
kostur. Við viljum bara helst ræða
það frjálst hvar við viljum vera og
hvernig.“ KB
Eitt nýjasta bfltjónið varð í gær er þessum litla fólksbíl var ekið ofan
í húsgrunn Skeifúnnar 19 í Reykjavík. Ekki lylgir sögunni hvaða
tryggingafélag bar skaðann, en vegna óhappa sem þessara er erfitt að
lækka iðgjöldin hvernig sem sparað er í rekstri félaganna. Tímamynd Pjeiur
en önnur til að sameinast. Það yrði
annað stóra félagið í vátryggingum
því samanlög markaðshlutdeild
þeirra á síðasta ári var um 35%.
Tryggingarmiðstöðin
þriðja
Þriðja stóra félagið yrði þá
Tryggingarmiðstöðin og Reykvísk
endurtrygging, en hið síðarnefnda
er enn rekið á sjálfstæðan hátt
þrátt fyrir að Tryggingarmiðstöðin
eigi það. Samanlögð brúttóiðgjöld
þeirra á síðasta ári voru um 900
milljónir króna af 5,9 milljarða
heildariðgjöldum allra félaga.
Tryggingarmiðstöðin var upphaf-
lega stofnuð af sömu aðilum og
stóðu að Sölumiðstöð hraðfrysti-
húsanna, en alls eru hluthafar nú
orðnir um 80 talsins.
Samábyrgðin það fjórða
Fjórða stóra félagið er aðeins að
hluta til með tryggingar á frjálsum
markaði en það er Samábyrgð
Ólafúr B. Thors, forstjóri Almennra trygginga fullyrðir að allir forráða-
menn vátryggingafélaga séu tilbúnir að ræða í alvöru um verulega
sameiningu. Túnamynd Pjctur