Tíminn - 10.11.1988, Side 11
Vandamál hlaðast
upp hjá Platini
Michel Platini, sem í síðustu viku
tók við sem stjórnandi franska lands-
liðsins í knattspyrnu, mun hafa nóg
að gera á næstu dögum við að greiða
úr vandamálum landsliðsins.
Ákvörðun Platinis að kalla á Jean
Tigana, fyrrum fyrirliða liðsins, hef-
ur mælst illa fyrir hjá frönsku lands-
liðsmönnunum. Sumir þeirra vilja
meina að Tigana, ásamt þeim Patrik
Battiston og Max Bossis, hafi yfir-
gefið sökkvandi skip.
„Við héldum áfram í gegnum
erfiðleikatímabilið, en gáfumst ekki
upp,“ segir núverandi fyrirliði
liðsins, Manuel Amaros. Amaros
sagði að sér væri sama þótt hann
missti fyrirliðastöðuna, en sér þætti
fáránlegt að kalla á Tigana, eftir það
sem á undan væri gengið.
Platini hefur þegar skipt um skoð-
un í einu máli, en það varðar
hefðbundna blaðamannafundi sem
haldnir eru þegar landsliðið er valið.
Fyrst sagði Platini að hætt yrði að
halda slíka fundi, en skipti síðan
alveg um skoðun í málinu. I dag
verðu tilkynnt hvaða leikmenn skipa
landsliðshópinn, sem mætir Júgó-
slövum í Belgrad 19. nóvember.
BL
Handknattleikur:
Gróttusigur
Nýliöar Gróltu unnu sinn fyrsta náöu þeir að knýja fram 3 marka
sigur í 1. deildinni í gær þegar þeir sigur, 20-17, og fyrsti Gróttusigur í
lögöu Breiðablik í íþróttahúsinu í l.deildinniímörgárvarstaðreynd.
Digranesi. Staðan í hálfleik var 11-10 JS.
Gróttu í vil og með mikilli baráttu
KÓPAVOGSKAU PSTAÐU R
Hugmyndasamkeppni
um skipulag
í Fííuhvammslandi.
Kópavogskaupstaður efnir til hugmyndasamkeppni um skipulag í Fífuhvamms-
landi. Um er að ræða almenna keppni samkvæmt samkeppnisreglum Arkitektafé-
lags íslands.
Keppnissvæðið.
Keppnissvæðið er dalur, Fífuhvammsland, sem afmarkast af Reykjanesbraut, fyrir-
huguðum Amarnesvegi og bæjarmörkum Reykjavíkurog Kópavogs.
Keppnislýsin
Keppnislýsing er ókeypis, en önnur gögn fást afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar
gegn 5.000 króna skilatryggingu. Skila skal tillögum til trúnaðarmanns í síðasta lagi
þriðjudaginn 28. febrúar 1989 kl. 18:00 að íslenskum tíma.
Verðlaun.
Heildarupphæð verðlauna er 6 milljónir króna. Veitt verða þrenn verðlaun þar sem 1.
verðlaun eru að minnsta kosti 3 milljónir króna. Auk þess hefurdómnefnd heimild til
að kaupa tillögur til viðbótar fyrir samtals 1 milljón króna.
Þátttaka.
Heimild til þátttöku hafa allir íslenskir ríkisborgarar.
Trúnaðarmaður.
Trúnaðarmaður dómnefndar er Ólafur Jensson, framkvæmdastjóri Byggingaþjón-
ustunnar, Hallveigarstíg 1, pósthólf 1191,121 Reykjavík, sími 29266. Heimasími
39036.
Dómnefnd.
Dómnefnd skipa: Tilnefnd af Kópavogsbæ: Kristinn Ó. Magnússon, verkfræðingur,
Ólöf Þorvaldsdóttir, skipulagsnefndarmaður og Richard Björgvinsson, bæjarfulltrúi.
Tilnefnd af Arkitektafélagi Islands: Guðrún Jónsdóttir, arkitekt og Hróbjartur Hró-
bjartsson, arkitekt. Ritari dómnefndarer Birgir H. Sigurðsson, skipulagsfræðingur.
Bæjarstjóri.
10 Tíminn
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
ÍÞRÓTTIR
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
ÍÞRÓTTIR
Tíminn 11
Strandhögg Víkinga
Leikur ÍBV og Víkinga í Laugar-
dalshöllinni náði því aldrei að verða
spennandi og því síður var hann
skemmtUegur á að horfa. TU þess
var munurinn á Uðunm alltof mikill.
Fyrri hálfleikur var í þokkalegu
jafnvægi og munurinn á liðunum
varð aldrei meiri en svo að von væri
fyrir Eyjamenn, sjá mátti tölur eins
og 4-2, 7-4, 11-7 fyrir Víkinga.
Staðan í háifleik var 13-9; 4 marka
munur.
Seinni hálfleikur var ekki í sama
jafnvægi og sá fyrri og á það bæði við
leikinn sjálfan og skap ýmissa leik-
manna. Eyjamenn létu mótlætið fara
mjög í taugarnar, brutu fautalega af
sér og gerðu athugasemdir við dóm-
gæsluna. Sigurður Friðriksson var
m.a. rekinn af velli fyrir kjaftbrúk.
Um miðjan seinni hálfleik voru Vík-
ingar búnir að gera út um leikinn,
komust í 22-13. Eftir það leystist
leikurinn meira og minna upp í
LESTUNARÁ/mUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þrlðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Varberg:
Annan hvern miðvikudag
Moss:
Annan hvern laugardag
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Hvassafell........ 12/11
Gloucester:
Jökulfell.......... 4/11
Skip...............25/11
New York:
Jökulfell.......... 6/11
Skip...............27/11
Portsmouth:
Jökulfell.......... 6/11
leikleysu af hálfu beggja liða og hélst
8-10 marka munur allt til leiksloka.
Lokatölur urðu 29-19.
Bestu leikmenn Víkinga í leiknum
voru þeir Bjarki Sigurðsson og Árni
Friðleifsson, einnig varði Sigurður
Jensson ágætlega með ágæta vörn
fyrir framan sig. Virtist Árni nánast
geta skorað þegar honum sýndist
svo. Þess má geta að Kristján Sig-
mundsson „gekk aftur“ og kom inná
í leiknum. Vestmannaeyingar vilja
sjálfsagt gleyma þessum leik sem
fyrst, enda er blaðamaður þess full-
viss að þeir geta leikið mun betur og
eiga án efa eftir að gera það í vetur.
Enginn þeirra skaraði sérstaklega
framúr og allir gerðu sinn skerf af
mistökum.
Markahæstu menn: ÍBV: Sigurður
Gunnarsson 7/3, Sigurbjörn Oskars-
son 5/1, Óskar Brynleifsson 3, Sig-
urður Friðriksson 2, Jóhann Péturs-
son 2. Víkingur: Árni Friðleifsson
9/1, Karl Þráinsson 7/3, Bjarki Sig-
urðsson 6, Siggeir Magnússon 3,
Guðmudur Guðmundsson 2, Einar
Jóhannsson 1, Jóhann Símonarson
1. SS/JS.
Hnefaleikar:
Tyson er ekki
á réttri leið
- segir þjálfari hans Kevin Rooney
„Tyson er orðinn spilltur, dekrað-
ur og á það á hættu að verða bara
enn einn feitur hnefaleikamaður,“
segir þjálfari hans, Kevin Rooney,
og fullyrðir að markaðsstjóri
Tysons, Don King, hafi Tyson að
féþúfu.
Rooney segir að það sé sárt að
heyra Tyson segja að King sé vinur
sinn. King, sem er svartur, hafi það
orð á sér að nota kynþáttamál til
þess að draga svarta hnefaleikamenn
til sín, en honum sé alveg sama um
hag svertingjanna. Eini liturinn sem
freisti Kings, sé sá græni, dollara-
liturinn.
Rooney segir að líf Tysons sé
orðið að sápuóperu og ef hann fari
ekki að koma sér inní íþróttahús til
æfinga, þá geti hann átt von á því að
tapa viðureigninni gegn Bretanum
Frank Bruno, en einvígi þeirra hefur
margoft verið frestað vegna ástand-
ins á Tyson. Fyrirhugað er að bar-
daginn verði í janúar, en Rooney
segir að enn geti orðið dráttur á og
líklega verði ekkert úr einvíginu fyrr
en í febrúar.
Umboðsmaður Tysons, Bill Cayt-
on, er ekki heldur sáttur við Don
King. Cayton er óhress með samning
sem Tyson hefur gert við King og vill
meina að hann sé ólöglegur, þar sem
hann sé umboðsmaður meistarans.
Cayton hefur hótað King málsókn
fyrir vikið.
Rooney segir að Tyson sé allt of
þungur um þessar mundir og fari
hann ekki að æfa fljótlega og losi sig
við 13-18 kg þá geti það reynst
honum erfitt þegar fram í sækir.
„Ég á ekki að þurfa að heyra út
undan mér að Tyson sé að hugsa um
að reka mig,“ segir Cayton, sem
hefurmiklaráhyggjuraðTyson. BL
Körfuknattleikur - NBA:
Fyrsti sigur nýliða
Charlotte Hornets
í fyrrakvöld voru nokkrir leikir í
NBA-dcildinni í körfuknattleik.
Annað nýju liðanna í deildinni,
Charlotte Hornet, vann sinn fyrsta
leik, gegn Los Angeles Clippers,
117-105.
Meistararnir Los Angeles Lakers
unnu Golden State Warriors 114-
102. Lið Philadelphia 76ers tapaði
sínum fyrsta leik á tímabilinu, er
Detroit Pistons báru sigurorð af
liðinu 116-109. Atlanta Hawks unnu
nauman sigur á Indiana Pacers 112-
107 og Patrick Ewing og félagar í
New York Knicks unnu Michael
Jordan og hans kappa 126-117. Þá
vann New Jersey Nets lið Washing-
ton Bullets 109-101, Houston Rock-
ets vann Pétur Guðmundsson og
félaga í San Antonio Spurs 120-102
og Seattle Supersonics vann Sacra-
mento Kings 97-75. BL
Knattspyrna:
Tveir skólar
úr Breiðholti
í úrslitum
í fyrrakvöld voru leiknir undan-
úrslitaleikir Grunnskólamóts KRR
í knattspyrnu á gervigrasvellinum í
Laugardal.' Hólabrekkuskóli sigr-
aði Fellaskóla með 4 mörkum gegn
engu og ■ hinum undanúrslitaleikn-
um sigraði lið Ölduselsskóla lið
Hagaskóla, 4-3. Töluverður fjöldi
nemenda þessara skóla inætti á
leikina og var stemningin góð.
Hún ætti ekki að verða verri á
sunnudaginn kemur, þegar Hóla-
brekkuskóli og ölduselsskóli mæt-
ast í úrslitaleiknum á gervigrasvell-
inum kl.14.00. Það má búast við
hörkuviðureign nemenda þessara
tveggja skóla úr Breiðholti í leikn-
um um Stjörnubikarinn. BL
Gunnar Beinteinsson skoraði tvö mörk fyrir FH í gærkvöld, þegar KA-menn hirtu 2 stig í Hafnarfirði.
Handknattleikur:
KA marði sigur
Tímamynd Pjetur
Mörkin: FH: Héðinn Gilsson 6, Guðjón
Árnason 5, Óskar Ármannsson 4/2, Þorgils
Óttar Mathiesen 3, Gunnar Beinteinsson 2,
Óskar Helgason 2 og Unnsteinn Sigurðsson 2.
KA: Erlingur Kristjánsson 8/2, Sigurpáll Aðal-
steinsson 5/3, Friðjón Jónsson 4, Jakob Jónsson
3, Haraldur Haraldsson 2, Pétur Bjarnason 2 og
Guðmundur Guðmundsson 1.
BL
KA-menn unnu FH-inga í 1. deiid
íslandsinótsins í handknattleik, 25-24 í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði í gærkvöld.
KA-menn höfðu leikinn í hendi sér lengst
af, en í lokin hékk sigur þeirra á bláþræði.
Haraldur Haraldsson gerði fyrsta mark
leiksins fyrir KA, en Guðjón Árnason,
Evrópuhetja Hafnfirðinga, gerði þrjú
fyrstu mörk liðs síns. KA-menn komust
yfir 4-2, en FH-ingar jöfnuðu. Aftur var
jafnt 6-6. Friðjón Jónsson gerði næstu tvö
mörk norðanmanna, sem síðan bættu hægt
og sígandi við forystu sína allt þar til hún
var orðin 4 mörk í hálfleik, 12-8. Fyrri
hálfleikur var afspyrnuleiðinlegur á að
horfa og áhorfendur, sem fjölmenntu í
íþróttahúsið við Strandgötu, létu lítið fara
fyrir sér.
Nokkuð lifnaði yfir leiknum í síðari
hálfleik og ungur nýliði í liði FH, Unn-
steinn Sigurðsson, hóf hálfleikinn með
tveimur góðum mörkum. KA-menn voru
þó ekki á því að láta sinn hlut og þeir náðu
um tíma fimm marka forystu, 15-10.
FH-ingar héldu í sigurvonina með því að
gera þrjú næstu mörk og minnkuðu síðan
muninn í 1 mark, 16-15. Þegar hér var
komið sögu var nokkuð farið að lifna yfir
áhorfendum, sem auðvitað voru langflestir
á bandi heimamanna. Þegar fyrirliði FH-
inga, Þorgils Óttar Mathiesen, jafnaði
leikinn, 17-17, fóru áhorfendur fyrst að
láta í sér heyra. Aftur var jafnt 18-18, en
KA-menn höfðu enn frumkvæðið og gerðu
tvö næstu mörk. Guðjón og Óskar Ár-
mannsson sáu síðan um að jafna leikinn
20-20, en Erlingur svaraði úr vítakasti fyrir
norðanmenn. Aftur var Guðjón á ferðinni
með jöfnunarmark fyrir FH og stuttu síðar
kom Héðinn Gilsson Hafnfirðingum yfir
22-21. Jakob Jónsson jafnaði fyrir KA og
í næstu tveimur sóknum misstu FH-ingar
boltann klaufalega og KA-menn skoruðu
tvö mörk og komust því í 24-22. Óskar
Handknattleikur:
Ármannsson minnkaði muninn úr vítakasti
og Þorgils Óttar Mathiesen jafnaði úr vel
útfærðu hraðaupphlaupi þegar um hálf
mínúta var til leiksloka. KA-menn hófu
sókn og fengu dæmt aukakast þegar 7
sekúndur voru til leiksloka. Þeir létu
boltann ganga í hornið á Harald Haralds-
son sem komst í gegn, en FH-ingar brutu
á honum og vítakast var dæmt, Leiktíminn
var þá liðinn og Erlingur Kristjánsson
skoraði af öryggi úr vítinu og tryggði
KA-mönnum sanngjarnan sigur.
Leikurinn var lengst af slakur, en spennan
undir lokin lyfti leiknum mikið upp. Bestur
norðanmanna var Erlingur, en Friðjón og Sigur-
páli stóðu einnig vel fyrir sínu.
Hjá FH var Guðjón bestur, en Héðinn átti
nokkur góð mörk. Aðrir leikmenn áttu sína
góðu spretti.
Dómarar voru þeir Gunnlaugur Hjálmarsson
og Kjartan Steinbach og voru þeir sannarlega
betri en engir.
Fram létt bráð Vals
Fram var auðveld bráð frískra Vals-
manna á Hlíðarenda í gær þegar liðin öttu
kappi í fyrstu deildinni í handknattleik.
Þegar upp var staðið höfðu Valsarar sett
35 mörk gegn 20 mörkum Framara.
Ekki var að finna veikan hlekk í firna-
sterku Valsliðinu sem rúllaði yfir Framara
strax í fyrri hálfleik. Framarar náðu að
komast yfir með fyrsta marki leiksins, en
síðan ekki sögunni meir. Fyrr en varði var
staðan 6-1 fyrir Val og þegar flautað var til
leikhlés leiddu Valsarar með ellefu marka
mun, 18-7. Á tímabili tóku Framarar þá
Júlíus og Sigurð Sveinsson úr umferð. Það
hafði ekki nokkur áhrif, aðrir leikmenn
Vals fengu bara meira pláss til að athafna
sig í sókninni.
Á sama tíma var varnarleikur Valsara
góður og var sóknarleikur Framliðsins
oftast brotinn á bak aftur.
Valsmenn slökuðu nokkuð á í stðari
hálfleiknum og skiptu inn á mönnum er
áður höfðu vermt bekkinn. Ungir leik-
menn Framara fengu einnig að spreyta sig
og stóðu sig ágætlega. Valsmenn juku þó
við forskot sitt og sigruðu með fimmtán
marka mun, 35-20.
Eins og áður segir var ekki veikan hlekk
að finna í Valsliðinu í þessum leik og var
liðsheildin sterk. Þó má sérstaklega geta
frammistöðu Jóns Kristjánssonar sem hélt
spilinu mjög vel gangandi og skoraði fjölda
stórkostlegra marka. Þá glöddu frábær
mörk Sigurðar Sveinssonar hjörtu áhorf-
enda er hann í síðari hálfleik sýndi takta
sem enginn leikur eftir.
Hjá Frömurum stóða Agnar sig vel í
fyrri hálfleik og skoraði falleg mörk, en
minna bar á honum í seinni hálfleik.
Hermann Björnsson skoraði einnig falleg
mörk úr horninu. Þá eiga ungu strákarnir
framtíðina fyrir sér.
Dómarar voru þeir Stefán Arnaldsson
og Ólafur Haraldsson, Þeir voru góðir
enda besta dómarapar landsins, eins og
ónefndur dómarahrellir sagði fyrr í vik-
unni.
Mörk Vals. Jón 9/1, Sigurður Sv. 7/2,
Valdimar 6, Jakob 4, Júlíus 4/1, Theodór
1, Gísli 1, Sigurður Sævarsson 1.
Mörk Fram: Hermann 4, Agnar 3, Birgir
3, Egill 2, Júlíus 2, Sigurður 2, Jason 1,
Gunnar 1, Ólafur 1, Tryggvi 1.
Körfuknattleikur:
Dómari
sleginn
i golfið
í fyrrakvöld gerðist sá fáheyrði
atburður í Júgóslavíu, að dómari
í körfuboltaleik var sleginn í
gólfið.
Atburður þessi gerðist í ieik
Crvena Zvezda frá Júgóslavíu og
PAOK Salonika frá Gríkklandi,
í Korac-Evrópukeppninni. Fyrrí
leik liðanna í Grikklandi lauk
með 10 stiga sigri Grikkjanna,
95-85. Leiknum í Júgósiavíu lauk
einnig með 10 stiga mun, 86-76,
júgóslavneska liðinu í vil, þannig
að liðin stóðu jöfn og framlenging
því næsta skref. í byrjun fram-
lengingarinnar gekk þjálfarí Sal-
onika, John Neumann, að ítalska
dómaranum Umberto Grossi og
sló hann í gólfið. Hann hefur
greinlega ekki veríð ánægður
með gang mála.
Eftir að Grossi komst á lappir
eftir höggið ráðfærði hann sig við
hinn dómara leiksins, Valeriy
Muhin frá Sovétríkjunum, og
fiautaði þvi næst leikinn af.
Gríska liðið dómtapaði því leikn-
um og er úr leik í Korac-keppn-
inni.
Þjálfarinn á yfir höfði sér
þunga refsingu fyrír vikið, en
mjög alvarlega er tekið á málum,
þegarheilsadóinaraeríveði. BL
Knattspyrna:
Handknattleikur: