Tíminn - 10.11.1988, Side 12
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
12 Tíminn
MOSKVA -Mikhaíl Gorbat-|
sjov sendi George Bush heilla-
óskaskeyti þegar Ijóst var að
hann hafði verið kjörinn forseti
Bandaríkjanna. Gorbatsjov
sagði í skeytinu að hann von-
aðist til ao verðandi forseti
muni trygaja stöðug og qóð
tenqsl við Sovétríkin. Áður
hafoi embættismaður í Kreml
sagt að Sovétmenn vonuðust
eftir fundi Bush og Gorbatsjovs
við fyrsta tækifæri.
TÓKÍÓ - Ástand Hirohito J
keisara var sagt í jafnvægi en
embættismenn keisarahallar-
innar sögu að brugðið gæti til
beggja vona hvenær sem er. j
KARTÚM - Byssumaður j
stormaði inn í sendiráð Sam-1
einuðu arabísku furstadæm-
anna í Kartúm og tók þari
sendiherrann og þrjá aðra
starfsmenn höndum. Oryggis-
sveitir lögreglu náðu að frelsa
fólkið og taka manninn
höndum.
FRANKFURT - Ungur |
gyðingur púaði á Helmut Kohl
kanslara Vestur-Þýskalands !
þegar hann vottaði fórnarlömb- 1
um Kristalnæturinnar í Þýska- .
landi virðingu sína fyrir hönd j
þýsku þjóðarinnar. Á Kristal-
nóttinni gengu nasistar skipu- t
lega í skrokk á gyðingum í j
Þýskalandi. I gær voru 50 ár
liðin frá þeim atburðum. í Vín ,
mótmælti rabbíi frá New York
fyrir utan dómkirkju heilags
Stefáns og beindi mótmælun-
um að forseta Austurríkis, Kurt
Waldheim.
GENF - Embættismenn ír-
aka og Irana tilkynntu að þeir
muni hefja skipti á sjúkum og
særðum föngm 20. nóvember.
MOSKVA - Sovétríkin sem
hægt hafa á brottflutningi
hermanna frá Afganistan gáfu
í skyn að þeir muni draga
herlio sitt út úr Afganistan fyrir
15. febrúar, þrátt fyrir árásir
skæruliða.
JERÚSALEM - ísraelskir
hermenn skutu til bana þriggja
ára barn á hinu hernumda
Gazasvæði og særðu tvö
önnur. Uppreisn Palestínu-
manna hefur harðnað, að
undanförnu og viðbrögð ísra-
ela síst linast.
lllllllllllll ÚTLÖND .............................- :!í ^ ^ T J ; J '' ..' ......... .......
GEOfiGE BUSH NÆST1
BANDARÍKJAFORSETI
George Bush og Barbara Bush með afkomendum sínum á góðum degi. Nú verða fjölskyldusamkvæmin haldin í
Hvíta húsinu þvi Bush sigraði örugglega í forsetakosningunum á þriðjudag.
Repúblikaninn George
Bush með blátt blóð í æðum
var kjörinn forseti Banda-
ríkjanna með yfirburðum í
kosningunum á þriðjudag.
Bush hlaut 54% atkvæða en
andstæðingur hans demó-
kratinn Michael Dukakis
hlaut 46% atkvæða. Hins
vegar juku Demókratar
meirihluta sinn í báðum
deildum bandaríska þingsins
svo það er greinilegt að
Bandaríkjamenn vilja íhalds-
saman forseta og frjálslynt
þing.
Kjör Bush er nokkuð sögulegt að
því leyti að starfandi varaforseti
hefur ekki náð kjöri sem forseti
Bandaríkjanna í 152 ár, þó margir
hafi reynt. Þá vekur athygli góður
árangur hans í Ssuðurríkjunum, en
þau höfðu verið talin vígi demókrata
allt þar til Ronald Reagan sigraði í
þeim öllum árið 1980 og aftur 1984.
Bush virðist hafa enn treyst stöðu
repúblikana í forsetakosningunum í
þeim ríkjum. Sérstaklega sætur er
sigur hans í Texas þar sem Bush
tapaði í tvígang í öldungadeildar-
kosningum hér á árum áður fyrir
Lloyd Bentsen sem var varaforseta-
efni Dukakis.
Það var mikill mannfjöldi sem
fagnaði Bush eftir að ljóst var að
hann hefði unnið öruggan sigur í
forsetakosningunum. Michael Duk-
akis hringdi í Bush og viðurkenndi
ósigur sinn klukkustund eftir að
sjónvarpsstöðvarnar höfðu lýst Bush
sem sigurvegara. „Ég vil að þið vitið
að hann var mjög elskulegur. Símtal
hans var mjög persónulegt, það var
einstaklega vinalegt og það var í
anda stórkostlegrar hefðar banda-
rískra stjórnmála" sagði Bush um
samtalið við Dukakis.
Bush var mjög mildur í garð
Dukakis eftir sigurinn og greinilega
annað hljóð í strokknum en í kosn-
ingabaráttunni sem almennt er talin
sú svívirðilegasta í manna minnum
og kalla Bandaríkjamenn ekki allt
ömmu sína í þeim efnum. Bush hét
því einnig að eiga gott samstarf við
þingið, enda veitir ekki af því þar
sem styrkur demókrata þar er enn
meiri en verið hefur undanfarið, þar
sem þeir hafa haft meirihluta í
báðum deildum.
Það verður mun erfiðara fyrir
Bush að taka við forsetaembættinu
20.janúar en það var fyrir Reagan að
taka við embættínu fyrir átta árum.
Þá höfðu repúblikanar meirihluta í
öldungadeildinni svo Reagan átti
auðvelt að koma stefnumálum sín-
um þar í gegn. Hins vegar hefur
erfiðlega gengið fyrir Reagan að
koma málum gegnum þingið að
undanförnu. Þá á Bush nú við miklu
meiri vanda að glíma sem er gífur-
lega mikill viðskiptahalli og halli á
ríkissjóði Bandaríkjanna. Hann tuð-
aði á því í tíma og ótíma í kosninga-
baráttunni að hann myndi ekki
hækka skatta, en hefur ekki bent á
neinar raunhæfar leiðir aðrar til að
minnka hallann. Þá er hætt við að
demókratar verði tregir í taumi eftir
stór orð Bush í þeirra garð að
undanförnu.
Hins vegar er ljóst að Bush hefur
gífurlega reynslu, enda verið vara-
forseti í átta ár. Hann þekkir emb-
ættismannakerfið út og inn, og vel
það, þar sem hann var yfirmaður
CIA, bandarísku leyniþjónustunn-
ar. Þó er ekki að vita nema að Bush
hverfi aftur í átt til stefnu þeirrar er
hann fylgdi áður en hann gerðist
varaforseti, en hann var talinn frjáls-
lyndur af repúblikana þó hann hafi
stutt Reagan dyggilega í harðlínu-
stefnunni. Það gæti komið honum til
góða í samskiptunum við þingið.
Varaforseti Bandaríkjanna verð-
ur Dan Quayle sem er aðeins rétt
rúmlega fertugur að aldri og hefur
verið hálfgert vandræðabarn í kosn-
ingabaráttunni. Quayle er úr íhalds-
samari væng Repúblikanaflokksins
og harðlínumaður í varnarmálum,
en í þeim hefur hann nokkra reynslu
eftir að hafa setið í varnarmálanefnd
öldungardeildar þingsins.
Þá hefur Bush útnefnt James
Baker, fyrrum fjármálaráðherra,
sem utanríkisráðherra, en Baker
stjórnaði kosningabaráttu Bush.
Yfirleitt var gerður ágætur rómur
að úrslitum forsetakosninganna.
Sovétmenn lýstu ánægju sinni með
kjörið og segja treysta því að viðræð-
ur þær sem verið hafa um samdrátt
í vígbúnaði og þíðu í samskiptum
ríkjanna haldi áfram. Þeir telja það
kost að þekkja kosti og galla repú-
blikana eftir að hafa þurft að eiga við
Reaganstjórnina í átta ár. Ríki Evr-
ópubandalagsins telja gott að fá
Bush þar sem hann þekki og skilji
málefni og stefnu bandalagsins. Ort-
ega forseti Níkaragva bauð Bush til
friðarviðræðna um málefni Níkara-
gva, en Kontraliðar, andstæðingar
Ortega, fögnuðu mjög kjöri Bush,
enda hafði Dukakis ekki viljað halda
áfram að styrkja þá. Hins vegar
sögðu íranar að úrsiit kosninganna
hefðu engu breytt, frambjóðendurn-
ir hefðu báðir verið slæmir með
eindæmum.
Að lokum um blátt blóð Bush.
Hann og Elísabet Englandsdrottn-
ing eru þrettánmenningar. Eins og
kunnugt er hefur verið talið að
Elísabet sé þrettánda manneskja frá
Auðuni skökli. Samkvæmt því er
líklegt að telja Bush kominn af sama
forföður.
Landsstjói rniní
Færeyjum fallin
Landsstjórn Atla Dam í Færeyjum féll í lögþingskosningun
um í fyrradag og eru allar líkur á að „prestastjórn“ taki við
þó menn geri ráð fyrir erfíðum stjórnarmyndunarviðræðum
á næstunni.
1 kosningunum í fyrradag tapaði
Javnaðarmannaflokkur Atla einum
lögþingsmanni, hefur nú sjö og
Framsóknarflokkurinn sem átti að-
ild að flokknum tapaði sínum eina
manni og er flokkurinn fallinn út af
Lögþinginu. Hinir stjórnarflokkarn-
ir tveir héldu sínum þingstyrk, Þjóð-
veldisflokkurinn hlaut sex menn
kjörna og Sjálfstýrisflokkurinn hlaut-
tvo menn kjörna.
Hinn hægri sinnaði Fólkaflokkur
vann einn þingmann og hefur nú átta
þingmenn, Sambandsflokkurinn
hélt sínum sjö mönnum og Kristilegi
fólkaflokkurinn bætti við sig einum
þingmanni og hlaut tvo menn
kjörna. Samtals hafa þessir þrír
flokkar því sautján^ þingmenn af
þrjátíu og tveimur á Landsþinginu. '
Er talið að flokkar þess myndi næstu
landsstjórn.
Ástæða þess að nokkuð öruggt er
talið að þessir flokkar myndi stjórn
er sú að Atli Dam hefur þvertekið
fyrir að Javnaðarmenn taki þátt í
stjórnarsamstarfi við Fólkaflokkinn
á meðan hinn öfgafulli hægrimaður
Óli Brekkan er þar svo várdamHcíIl
sem raun ber vitni. Þá er talið
óhugsandi að Þjöðveldisflokkurinn
og Sambandsflokkurinn sitji saman
í stjórn vegna grundvallarágreinings
um stöðu Færeyja gagnvart Dana-
veldi. Þá er aðeins einn möguleiki
eftir til stjórnarmyndunar.
Vinstrisinnar í Færeyjum hafa
þegar gefið hugsanlegri stjórn hægri-
manna nafn og kalla þeir hana
„Prestastjórnina", því að henni
munu einungis standa prestar og
meðlimir heittrúarhreyfinga í Fær-
eyjum.
Ungir samstöðu-
menn hefja vinnu
■* Ungir og róttækir liðsmenn
Samstöðu, sem fóru í verkfall í
tveimur skipasmíðastöðvum í
Gdansk í trássi við Lech Walesa,
leiðtoga verkalýðssamtakanna,
hafa hætt verkfallsaðgerðum eftir
að þeim mistókst að fá hinn
almenna verkamann í lið með
sér. Höfðu þeir verið í verkfalli í
einn sólarhring.
Verkamennimir ungu ætluðu
að knýja stjórnvöld til þess að
hætta við lokun Lenín skipa-
smíðastöðvanna og til að viður-
kenna tilverurétt Samstöðu.
Hefði verkfallstilraun þeirra tek-
ist hefði Lech Walesa sagt af sér
sem leiðtogi Samstöðu, svo túlka
má þessa niðurstöðu sem styrk-
leikamerki Walesa.
„Enginn hefur gengið í lið með
okkur. Við urðum að hætta,“
sagði átján ára verkfallsmaður er
hann tók niður pólska fánann
sem áritaður var nafni Samstöðu
og hangið háfði yfir hliðum skipa-
smíðastövarinnar. „Við treystum
á liðsauka en hann kom ekki,“
bætti hann við. Hann sagði að
einungis hundrað verkfallsmenn
hefðu tekið þátt í verkfallinu, en
nær sexþúsund menn vinna í
skipasmíðastöðinni.