Tíminn - 10.11.1988, Side 15
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Tíminn 15
ÁRNAÐ HEILLA
Áttræður
Björn Ingi
Stefánsson
Fyrir mörgum áratugum sagði mér
Björn Ingi Stefánsson frændi minn,
þá sögu, að eitt sinn að morgni 10.
nóvember, þegar hann var í barna-
skóla hafi kennarinn spurt þau
krakkana, hvort þau vissu um ein-
hverja merka menn, sem hefðu fæðst
á þessum mánaðardegi og mun þá
líklega hafa átt við þá Martin Luther
og Friedrich von Schiller. Bjöm hafði
einhverja hugmynd um það, en taldi
rétt að nefna sjálfan sig fyrst. Fetta
svar vakti að vonum kátínu hjá
bekkjarfélögum hans, en kennarinn
lét sér fátt um finnast. Og nú í dag,
10. nóvember 1988, er hann 80 ára,
þessi merkismaður, og ber það nafn
með rentu.
Björn fæddist í Winnipeg, í Kan-
ada, en ólst uppá Hólmum í Reyðar-
firði. Foreldrar hans voru Helga
Jónsdóttir, fædd í Rauðseyjum í
Breiðafirði og Stefán Björnsson,
prófastur á Eskifirði, fæddur á Kol-
freyjustað í Fáskrúðsfirði. Björn
stundaði nám við Samvinnuskólann
í Reykjavík og lauk þaðan burtfar-
•arprófi vorið 1933. Hann var einn af
aðalhvatamönnum að stofnun Kaup-
félags Fáskrúðsfirðinga. Það tók til
starfa í ágúst 1933 og var Björn
kaupfélagsstjóri þess frá upphafi og
þar til í júní 1946. Auk fram-
kvæmdastjórastarfsins vann hann
ötullega að ýmsum félagsmálum á
Fáskrúðsfirði. Hann hóf störf hjá
Sambandi íslenskra samvinnufélaga
í Reykjavík í júlí 1946 við eftirlits-
störf og var oft settur kaupfélags-
stjóri í forföllum, m.a. í Vestmanna-
eyjum, á Hornafirði, í Stykkishólmi
og á ísafirði. Síðustu ár hefur hann
verið fulltrúi í fjármáladeild Sam-
bandsins.
Björn hefur verið gæfumaður í
einkalífi. Á vordegi árið 1934 steig
hann hamingjuspor, er hann kvong-
aðist Þórunni Sveinsdóttur, mikilli
mannkostamanneskju, sem reynst
hefur góð eiginkona og móðir. Hún
ól honum 6 börn og bjó honum gott
og myndarlegt heimili. Barnabörnin
eru nú 20, barnabarnahópurinn 13
og fer þar mikið mannval. Þáu hjón
hafa ávallt verið samhent í einstakri
gestrisni og hjálpsemi, ekki síst við
þá, sem minna mega sín. Það er því
ekki að ástæðulausu, að þau eru
vinsæl með afbrigðum. Sjálfur
kynntist ég þeim báðum vel, þegar
ég var barn að aldri. Þau létu sér
annt um mig og voru mér afar góð.
En Björn hefur einnig verið mjög
farsæll í starfi og notið óskoraðrar
virðingar jafnt meðal viðskipta-
manna kaupfélaganna, starfsfólksog
forystumanna samvinnuhreyfingar-
innar. Auk þess er hann mikið
llllllllllllllHlllllll MINNING
Þorbjörg
Gunnlaugsdóttir
Fædd 29. september 1902
Dáin 1. nóvember 1988
Hún Þorbjörg frá Grund er dáin.
Það kom nú ekki svo á óvart, enda
aldurinn orðinn hár. Samt hafði hún
verið svo hress fram undir það
síðasta, en þá birtist líka þræll
sláttumannsins slynga, sá geigvæn-
legasti, sem fáum þyrmir, og sýnt
var að hverju fór.
En skiptir það annars nokkru í
dag þótt gömul sveitakona falli í
valinn? Kona sem hafði verið mann-
dómsár sín húsfreyja í afskekktri
byggð, norður við ysta haf. Á ekki
að ganga af bændum dauðum? Þess-
um bagga á velferðarþjóðfélaginu.
Það gleymist aðeins við gónið á
amerískt sjónvarpsefni og annað
slíkt að menning okkar hefur verið
bændamenning. Bændur komu hing-
að frá Noregi, bændur voru Skalla-
Grímur, Egill og Snorri, Jón Lofts-
son og fleiri slíkir, svo og niðjar
þeirra öld eftir öld, og hafi verið hér
keltneskt þjóðarbrot fyrir, voru það
bændur.
í sveitum landsins er fjöregg þjóð-
arinnar enn varðveitt - menningin.
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir var
fædd að Eiði á Langanesi 29. sept-
ember 1902, dóttir Gunnlaugs Jón-
assonar, bónda þar, og Þorbjargar
Daníelsdóttur, konu hans. Börn
þeirra voru mörg, ellefu fædd og níu
sem upp komust og tvö fósturbörn.
Af þeim Eiðishjónum er mikill ætt-
bogi kominn. Já, þá var margt um
manninn þar, ekki aðeins húsbænd-
ur, hjú og heimaböm, líka skólaböm
og unglingar, því að þar var lengi
farskóli sveitarinnar til húsa eða á
fimmta áratug.
Heimilið stóð á gömlum merg.
Daníel Jónsson, afi Þorbjargar, sem
einnig bjó þar, hafði verið stórbóndi,
búmaður, forsjáll og framsækinn.
Þar var mikill myndarbragur og
verkmennt öll og dugnaður í heiðri
höfð.
Þorbjörg giftist 9. nóvember 1935
frænda sínum, Sigvalda Sigurðssyni á
Gmnd. Þau vom systkinaböm.
Hófu þau búskap þar ög farnaðist
vel, sambúð góð og virðing á báða
bóga.
Eg kom oft á heimili þeirra, allt
frá því ég fyrst man, og aldrei
heyrðist þar styggðaryrði. Það var
gaman að koma að Grund. Þorbjörg
heitin var ein af þeim hljóðlátu í
landinu. Hún var mikil húsmóðir.
Heimilið, börnin og eiginmaðurinn
voru henni allt. Hún gerði gott úr
öllu og var mannasættir. Konur sem
hún em hornsteinar hvers þjóðfé-
lags.
Gmnd var ekkert stórbýli en þar
var vel búið. Það hallaðist ekki á
með þeim hjónum, Sigvalda og Þor-
björgu. Hann var hið mikla snyrti-
menni. Hjá honum var allt í röð og
reglu með listrænu handbragði góð-
bóndans, æmar hornskelltar, stálið í
stabbanum slétt og annað eftir því.
Hjá Þorbjörgu var sama snyrti-
mennskan. Þar var ekki óreiða á
hlutunum eða sofið á verðinum,
gólfin hvftþvegin og bömin vel til
höfð. Það var tápmikill myndarhóp-
ur, Grundarbörnin, en þau vom sex.
Elst þeirra var Þorbjörg, þá Sig-
urður, Gunnlaugur, Aðalbjörg, Ein-
ar og Þorbjöm. Tvö þeirra létust
ung, Þorbjörg og Einar, bæði 8 ára.
Þau þekkti ég best, voru á heimili
foreldra minna um tíma. Það voru
mikil efnisbörn, bráðmyndar- og
mannvænleg. Að þeim var mikil
eftirsjá.
Missinum tóku Sigvaldi og Þor-
björg eins og við mátti búast af þeim
- með æðruleysi. Þorbjörg heitin var
ekki þeirrar gerðar að hún bæri
harm sinn á torg. Hún var mikil
geðprýðiskona.
Börn Sigvalda og Þorbjargar er
upp komust eru þessi:
Sigurður, húsasmíðameistari, bú-
settur í Kópavogi, maki Rósa Odds-
dóttir. Gunnlaugur, skrifstofumaður
í Reykjavík. Aðalbjörg, húsfreyja á
Akranesi, eiginmaður Sverrir Eð-
valdsson, skipstj óri. Þau eiga 4 börn.
Þorbjörn, húsasmíðameistari á
Húsavík, kvæntur Magneu Ing-
ibjörgu Magnúsdóttur og eiga þau
tvö börn.
Þorbjörg og Sigvaldi brugðu búi
og fluttu til Reykjavíkur haustið
1965 og bjuggu að Hraunbæ 22.
Starfaði Sigvaldi hjá Sambandinu
meðan kraftar og heilsa leyfðu en
Þorbjörg hélt heimili fyrir hann og
synina, Sigurð og Gunnlaug, uns
Sigurður stofnaði sitt eigið. Gunn-
laugur keypti síðar íbúð í grennd við
foreldra sína, en var hjá þeim í fæði
og þjónustu og jafnframt stoð þeirra
og stytta í ellinni.
Rúm tuttugu ár bjó Þorbjörg heit-
in í Reykjavík. Ég hygg hún hafi
unað hag sínum vel. Þar átti hún
margt frændfólk og vini - óvini átti
hún aldrei.
Það var gott til hennar að koma
sem forðum að Grund, gestrisnin sú
sama og heimilið vistlegt. Þangað
lagði margur Langnesingur leið sína.
Þegar kraftarnir þurru naut hún
aðstoðar eiginmanns og sona og
ekki má gleyma Rósu Oddsdóttur
sem reyndist henni vel.
Ég kveð Þorbjörgu Gunnlaugs-
dóttur með þakklæti og söknuði,
óska öllum hennar blessunar og
huggunar.
Góð kona og grandvör er gengin.
Hjörtur Jónasson.
......... 'III!................ .....................................""...........................................................
snyrtimenni og má segja, að allt ieiki
í höndunum á honufn Hann er
höfðinglegur maður í sjón og raun
og sópar að honum hvar sem hann
fer. Hvort sem er í fámennum hópi
skyldmenna eða á fjölmennari sam-
komum er hann hrókur alls fagnað-
ar. Hann segir einstaklega vel frá og
er gæddur næmri kímnigáfu. Gam-
ansemi hans er þó ávallt græskulaus.
Bjöm Ingi er hlýr persónuleiki og
drengur góður.
Björn er hið mesta tryggðartröll
og ræktarsemi hans einstök við
skyldfólk sitt, ekki síst gamla fólkið.
Ég mæli fyrir munn okkar systkina,
þegar ég segi, að við teljum öll Björn
Inga mikinn uppáhaldsfrænda. Við
erum honum og Þórunni konu hans
einstaklega þakklát fyrir það, hve
vel þau reyndust foreldrum okkar
alla tíð. Faðir minn og Björn voru
mjög góðir vinir. Við kona mín
sendum þeim heiðurshjónum, Birni
og Þórunni bestu afmæliskveðjur.
Megi hann sem lengst halda sinni
góðu andlegu og líkamlegu heilsu.
Við hlökkum til að hitta þau næsta
nýársdag.
Unnsteinn Stefánsson.
Auglýsing frá Borgarskipulagi
*•* «s
'|f Kvosarskipulag
- Lóð Happdrættis Háskóla íslands
1. Tillaga aö breytingu á staðfestu deiliskipulagi
Kvosarinnar er hér með auglýst samkvæmt 17.
og 18. gr. skipulagslaga nr. 19/1964. Uppbygg-
ing lóðanna Suðurgata 3 syðri hluta, Suðurgata
5 og Tjarnargata 8 breytist vegna sameiningu
lóðar.
2. Landnotkun í deiliskipulagi miðbæjarins verði í
samræmi við staðfest Aðalskipulag Reykjavík-
ur 1984-2004 þ.e. miðbæjarstarfsemi.
Uppdrættir og greinargerð verða almenningi til
sýnis hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgar-
túni 3, frá fimmtudeginum 10. nóv. til fimmtu-
dagsins 22. des. 1988, alla virka daga frá kl.
8.30-16.00.
Athugasemdum, ef einhverjar eru skal skila
skriflega á sama stað eigi síðar en kl. 16.15,
fimmtudaginn 5. jan. 1989. Þeir sem eigi gera
athugasemdir innan tilskilins frests, teljast sam-
þykkir breytingunni.
Reykjavík, 10. nóvember 1988.
Borgarskipulag Reykjavíkur, Borgartúni 3,105
Reykjavík.
t
Faðir okkar,
Halldór Bjarnason
áður bóndi i Króki í Gaulverjabæjarhreppi
sem lést 1. nóvember, verðurjarðsunginn í Villingaholti laugardaginn
12. nóvember.
Athöfnin hefst kl. 14.00.
Börn hins látna
t
Útför eiginkonu minnar, móður okkar og
ömmu
Borghildar Tómasdóttur
Brekku, Þykkvabæ
fer fram frá Hábæjarkirkju laugardaginn 12. nóvember kl. 13.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Hábæjarkirkju.
Runólfur Þorsteinsson
Sverrir Runólfsson Björg Sveinsdóttir
Þóra Kristín Runólfsdottir Ágúst Helgason
Fjóla Runólfsdóttir Kristinn Guðnason
og barnabörn
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför systur
okkar
Sigríðar Guðbjörnsdóttur
frá Hólmavík,
Langholtsvegi 28
Anna Guðbjörnsdóttir
Kristbjörg Guðbjörnsdóttir
Elín Guðbjörnsdóttir
Guðrún Guðbjörnsdóttir
Þorsteinn Guðbjörnsson
Margrét Guðbjörnsdóttir
Torfi Guðbjörnsson