Tíminn - 10.11.1988, Blaðsíða 16
16 Tíminn
DAGBÓK
Fundur Kvenfélags Kópavogs
Kvenfclag Kópavogs heldur félagsfund
í kvöld, fimmtud. 10. nóv. ki. 20:30, f
Félagsheimilinu.
Gestur fundarins verður frú Guðrún
Waage með kynningu á sölusýningu frá
versluninni „Silkibiómið".
LEKUR
BLOKKIN?
Skyggnilýsingafundur
í Hafnarfirði
Sálarrannsóknarfélagiö í Hafnarfirði
heldur skyggnilýsingafund með Þórhalli
Guðmundssyni miðli í kvöld, fimmtudag-
inn 10. nóv. kl. 20:30, í Góðtemplarahús-
inu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyf-
ir. Stjómin
SPRUNCIÐ?
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í
dag, fimmtudaginn 10. nóv.
Kl. 14:00 verður frjáls spilamennska.
Kl. 19:30 félagsvist hálft kort og kl. 21:00
dans.
Hornstrandamyndakvöld
Útivistar
1 kvöld, fimmtud. 10. nóv. kl. 20:30
verður Hornstrandamyndakvöld í Fóst-
bræðraheimilinu, Langholtsvegi 109.
Mætið stundvíslega. Sýndar verða myndir
frá Hornstrandaferðum í sumar. Lovísa
Christiansen og Þráinn Þórisson skýra
myndir og segja frá ferðunum. Kaffiveit-
ingar í hléi. Allir velkomnir meðan hús-
rými leyfir.
Munið aðventuferð Útivistar í Þórs-
mörk 25. - 27. nóv.
Félag Snæfellinga
og Hnappdæla
Félag Snæfellinga og Hnappdæla í
Reykjavík efnir til þriggja kvölda spila-
keppni, sem hefst fimmtudaginn 10. nóv.
að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Annað
spilakvöldið verður fimmtudaginn 24.
nóv. og það þriðja og síðasta fimmtudag-
inn 8. desember.
Kvöldverðlaun verða leikhúsmiðar og
fleira, en heildarverðlaun skemmtisigling
um Breiðafjörð með Eyjaferðum í Stykk-
ishólmi fyrir fimm manna fjölskyldu hvor
verðlaun. Húsið verður opnað kl. 20:00
og spilamennskan hefst kl. 20:30.
Allar nánari upplýsingar gefur stjórn
og skemmtinefnd félagsins.
Þá er fyrirhuguð 3ja kvölda spilakeppni
seinna í vetur og verða kvöldverðlaun
þau sömu og áður, en heildarverðlaunin
gisting á Hótel Stykkishólmi.
Hallgrímskirkja
Hallgrímskirkja er opin aila daga nema
mánudaga kl. 10:00-18:00.
Turninn er opinn á sama tíma.
Minningarkort
Landssamtaka hjartasjúklinga
Eftirtaldir staðir hafa minningarkortin
til sölu:
Reykjavík: Skrifstofa Landssamtaka
hjartasjúklinga, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, sími 25744, Bókaverslun
Isafoldar, Austurstræti og Bókabúð Vest-
urbæjar, Víðimel.
Seltjarnarnes: Margrét Sigurðardóttir,
Mýrarhúsaskóli eldri
Kópavogur: Veda bókaverslanir
Hamraborg 5 og Engihjalla 4
Hafnarfjörður: Bókabúðir Böðvars,
Strandgötu 3 og Reykjavíkurvegi 64
Selfoss: Apótek Selfoss, Austurvegi 44
Grundarfjörður: Halldór Finnsson,
Hrannarstíg 5
Ólafsvík: Ingibjörg Pétursdóttir,
Hjarðartúni 3
Isafjörður: Urður Ólafsdóttir, Brautar-
holti 3
Árneshreppur: Helga Eiríksdóttir,
Finnbogastöðum
Blönduós: Helga A. Ólafsdóttir,
Holtabraut 12
Sauðárkrókur: Margrét Sigurðardóttir,
Birkihlíð 2
Akureyri: Gísli J. Eyland, Víðimýri 8
og Bókabúðirnar á Akureyri
Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stef-
ánssonar, Garðarsbraut 9
Egilsstaðir: Steinþór Erlendsson,
Laufási 5
Höfn, Hornafirði: Erla Ásgeirsdóttir,
Miðtúni 3
Vestmannaeyjar: Axel Ó. Lárusson
skóverslun, Vestmannabraut 23
Sandgerði: Póstafgreiðslan, Suðurgötu
2-4
Keflavík: Bókabúð Keflavíkur, Sól-
vallagötu 2
BILALEIGA
meö utibu allt i knngum
landiö, gera þer mögulegt
aö leigja bil á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendi$
interRent
Bilaleiga Akureyrar
Viögeröirá öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiöa.
Viöhald og viögeröir á iönaöarvélum — járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin — Sími 84110
■ f
: mf
- fTKvslf
.... „w.- 1
• r\ i ~
Mmm
Finnur Ólafur Þórður
Verkalýðsmálaráð framsóknar-
félaganna í Reykjavík
Stofnfundur Verkalýðsmálaráös framsóknarfólaganna í Reykjavík
verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember næst komandi kl. 20.30
að Nóatúni 21.
Dagskrá: 1. Setning. Finnur Ingólfsson.
2. Kynning á stofnun Verkalýðsmálaráðs. Ólafur A.
Jónsson.
3. Störf Verkalýðsmálaráðs. Þórður Ólafsson.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð n.k. sunnudag
að Hótel Lind kl. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karla.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi flytur stutt
ávarp.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Sigrún
Magnúsdóttir
Styrkirtil háskólanáms
í Finnlandi og Noregi
1. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingum til háskólanáms eða rannsóknar-
starfa í Finnlandi námsárið 1989-90. Styrkur-
inn er veittur til níu mánaða dvalar og styrkfjár-
hæðin er 2.200 finnsk mörk á mánuði.
2. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa ís-
lenskum stúdent eða kandídat til háskólanáms
í Noregi námsárið 1989-90. Styrktímabilið er
níu mánuðir frá 1. september 1989. Til greina
kemur að skipta styrknum ef henta þykir.
Styrkurinn nemur um 4.740 n. kr. á mánuði.
Umsækjendur skulu vera yngri en 35 ára og
hafa stundað háskólanám í a.m.k. tvö ár.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 31. desember n.k. á sérstökum
eyðublöðum, sem þar fást, og fylgi staðfest afrit
prófskírteina ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið
8. nóvember 1988
ER HEDDIÐ
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Hér má sjá Erling Gíslason sem Þrym og Randver Þorláksson í hlutverki Loka
Þjóðleíkhúsið:
Hvar er hamarinn?
Þjóðleikhúsið sýnir í Gamla bíói um
helgina leikritið Hvar er hamarinn? eftir
Njör.ð P. Njarðvík. Sýningar verða á
laugardag kl. 14:00 og á sunnudag kl.
15:00.
Tónlist í leiknum er eftir Hjálmar H.
Ragnarsson, leikstjóri er Brynja Bene-
diktsdóttir, leikmynd og búninga gerði
Sigurjón Jóhannsson, en lýsingu annaðist
Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Spilað hjá
Húnvetningafélaginu
Félagsvist verður hjá Húnvetningafé-
laginu í Reykjavík laugardaginn 12. nóv.
kl. 14:00. Spilað verður í Húnabúð,
Skeifunni 17. Þriggja daga keppni að
hefjast. Allir velkomnir.
Pennavinur í Edinborg
Bréf hefur komið frá 27 ára konu í
Edinborg í Skotlandi hún hefur áhuga á
söfnun frímerkja og „fingurbjargasöfn-
un“, saumaskap, lestri bóka, gönguferð-
um og Ijósmyndun. Hún vill skrifast á við
fólk á Jslandi og utanáskrift til hennar er:
Miss Lesley McLean,
47, Rannoch Road,
Clermiston,
Edinburgh,
Scotland
EH47Ej
Námskeið í hárgreiðslu
í Viðeyjarstofu
Sunnud. 13. nóv. verður haldið nám-
skeið í hárgreiðslu og efnafræði. Leið-
beinendur verða þau John Schults frá
Hollandi og Cristine Bartlet frá Englandi.
John Schults er vel þekktur hér á landi
því hann þjálfaði íslenska landsliðið fyrir
heimsmeistarakeppnina 1986. Mánudag-
inn 14. nóv. mun hann halda námskeið
fyrir keppendur sem byrjaðir eru að æfa
fyrir íslandsmótið sem verður haldið í lok
febrúar á næsta ári.
Cristine Bartlet hefur undanfarin 15 ár
ferðast um heiminn og kennt efnafræði
tengda hársnyrtiiðninni. Hún mun halda
fyrirlestur um eggjahvítuefni og notkun
þeirra við að næra hárið.
Námskeiðið verður haldið í Viðey, í
hinni glæsilegu Viðeyjarstofu.
Allar aðrar upplýsingar gefur Linda
Reynisdóttir í Heiidversluninni Rá í síma
46442 og 641299.
Öryggi heimilisins
eríhendiþér
Margir húsbrunar hafa átt upptök sín í eldhúsinu, oft fyrir
gleymsku eða hugsunarleysi. Því er ráð að hafa þar
fastmótaðar umgengnisvenjur, ekki síst ef börn eru á
heimilinu.
1. Kveikið ekki á eldavélarhellu nema þið ætlið að nota hana.
Slökkvið á hellunni að lokinni notkun.
2. Skiljið aldrei eldfima hluti eftir á eldavélinni, svo sem
plastílát, dagblöð eða heklaða dúka.
3. Takið brauðristina úr sambandi að lokinni notkun, sem og
önnur álíka raftæki. Myndin sýnir hættuna sem fólgin er í
því að silja hraðsuðuketilinn eftir í sambandi.