Tíminn - 10.11.1988, Qupperneq 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu,
S 28822
/ / t Átján mán. binding > y * , ^lBILASr0O/
MB Pi I ▼ ▼
3 7,5 % ÞROSTUR
685060
SAMVINNUBANKINN VANIRMENN
Tímiiin
Vfirlýsingar á. blaöamannafundi vegna samninga viö
3töö 2 um einkarétt á útsendingum á. handknattleik:
Skattborgarar í skuld
við íþróttahreyf inguna
Stöð 2 og 1. deildarfélögin í handbolta undirrituðu I gær
samning þar sem Stöð 2 keypti sýningarréttinn að 1. deildarleikj-
um vetrarins svo og bikarkeppninni í handbolta. Samningur
þessi felur í sér að Sjónvarpið hefur aðeins rétt á þriggja mínútna
innskotum í fréttir frá mótunum tveimur. Yfirmenn Ríkisút-
varpsins og íþróttafréttamenn eru að vonum óánægðir með
þessa samningsgerð og hafa m.a. haldið því fram að óheimilt sé
að setja vörumerki fyrirtækja inn á dagskrána eins og Stöð 2,
hefur gert í íþróttaþáttum sínum. Síðdegis í gær sendi menntam-
álaráðuneytið frá sér úrskurð þar sem það kemur fram að slík
auglýsingamennska er óheimil.
Fulltrúar fyrstu deiklarfélag-
anna boðuðu til blaðamanna-
fundar í gær og stóð til að þar yrði
samningurinn kynntur. Á fundin-
um treystu fulltrúarnir sér hins-
vegar ekki til þess að gefa upp um
hvaða fjárhæðir væri að ræða og
voru einungis til viðræðu um
útsendingartíma og önnur slík
atriði.
Mjög óvenjuleg viðbrögð -
upphrópanir og frammíköll -
urðu við spurningum blaða-
manna um hvort samningsgerð af
þessu tagi væri ekki ranglát gagn-
vart skattborgurunum í landinu
sem hefðu styrkt íþróttahreyfing-
una, þar sem Stöð 2 næði ekki til
alls landsins og menn þyrftu svo
helst að eiga afruglara til að geta
fylgst með afrekunum í sjón-
varpi. Sigurður Baldursson í
stjórn Fram sagði: „Við teljum
það hjá félögunum að við styrkj-
um ríkið en ekki öfugt“ og Sig-
urður Tómasson formaður hand-
knattleiksdeildar Fram lét m.a.
þessi orð falla: „Ég held að
íþróttahreyfingin eigi miklu
meira inni hjá skattborgurunum
en skattborgararnir hjá okkur“.
Þriðji fulltrúinn, Árni Mathiesen,
formaður handknattleiksdeildar
FH, setti svo lausnina fram í
hnotskurn með því að segja:
„Eftir sem áður er öllum frjálst
að mæta á leikina og borga sig
í fréttatímum Ríkisútvarpsins
í gær kom ítrekað fram að Stöð 2
hefði greitt tvær milljónir fyrir
sýningarréttinn, að auki komi til
1,5 milljónir í formi auglýsinga
og kynningar. Jafnframt kom
fram að Kreditkort sf. styrkja
útsendingarnar. Ólafur H. Jóns-
son fjármálastjóri Stöðvar 2 sagði
á fyrrnefndum blaðamannafúndi:
„Ég er að greiða hérna fyrir
ákveðnar hamingjueiningar, sem
okkar áhorfendur eru að biðja
um, og ég tel mig vera að greiða
sanngjarnt verð. Verðmæti svona
samnings getur legið á bilinu 3
upp í 10 milljónir allt eftir því
hvernig menn horfa á dæmið.“
Úrskurður ráðuneytisins
Markús Örn Antonsson fór
fram á það við menntamálaráðu-
neytið þann 27. maí s.l. að það
skæri úr um það hvórt það sam-
ræmdist útvarpslögunum að
vörumerki fyrirtækja væru sett
inn á dagskrána. Fyrrnefndur
samningur milli Stöðvar 2 og 1.
deildarfélaganna mun hafa ýtt
við því að málið yrði afgreitt.
Talið f. v.: Sigurður Baldursson í stjórn Fram, Sigurður I. Tómasson formaður handknattleiksdeildar Fram,
Árni Mathiesen formaður handknattleiksdeildar FH og Kristján Ö. Ingibergsson formaður handknattleiks-
deildar KR.
Úrskurður ráðuneytisins um það
hvort heimilt sé að kosta dag-
skrárgerð með því að fella 'éin-
kenni fyrirtækja inn í útsenda
sjónvarpsdagskrá er á þá leið að
það sé óheimilt.
Tíminn hafði samband við
Markús Örn Antonsson útvarps-
stjóra og innti hann eftir því
hvaða þýðingu þessi samnings-
gerð hefði fyrir Ríkisútvarpið.
Markús sagði aðalatriði þessa
máls vera það að Stöð 2 fái
fyrirtæki úti í bæ til að fjármagna
útsendingarnar gegn því að fá að
hafa auðkenni sín, eða vörumerki
inn á myndinni meðan á útsend-
ingu stendur. Markús sagði þessi
vinnubrögð vera andstæð gild-
andi reglugerðum þar sem segir
að auglýsingar eigi að vera skýrt
aðgreindarfrádagskrárefni. „Við
getum alls ekki sætt okkur við að
það sé farið á þennan hátt í
kringum reglumar og þar með
gert aðlaðandi fyrir fyrirtæki að
taka þátt í svona leikfléttum með
Stöð 2; að fjármagna kaup á
svona viðburðum að því tilskildu,
geri ég ráð fyrir, að auglýsingar
séu birtar í formi vörumerkja inn
á dagskránni sjálfri. Við höfum
ítrekað leitað eftir úrskurði
menntamálaráðuneytisins um
þetta atriði en höfum ekki fengið
nein svör.“
Skil á sköttum og gjóldum
Varðandi greiðslur í formi
auglýsinga sem félögin gætu jafn-
vel selt til utanaðkomandi aðila
sagði Markús: „Maður gerir sér
ekki grein fyrir því hvernig svona
hlutir eru gerðir upp, til dæmis
söluskattur, gjald í Menningar-
sjóð útvarpsstöðva o.s.frv. Þessi
samningur er óskaplega undar-
legt fyrirbæri í sjálfu sér, þetta
eru hlutir sem við stundum ekki
í viðskiptum. Þar fyrir utan eru
þessar upphæðir sem verið er að
nefna langt umfram það sem
Ríkisútvarpið getur greitt fyrir
svona samninga. Það eru náttúr-
lega fleiri sem koma á eftir þar
sem íþróttafélög vísa til þessa
fordæmis. Við uppfyllum ekki
þær kröfur sem gerðar eru til
okkar dagskrárlega séð bara með
því að gera einhverja milljóna-
samninga við einstakar íþrótta-
greinar." ssh
Forráðamenn Hraðfrystihúss Keflavfkur:
Togaraskipti eina lausnin
Þingflokkur Framsóknarfloksins
fundaði í gær um heimild stjórnar
Byggðastofnunar til að lána Fiskiðju
Sauðárkróks 35 m.kr. til að gera
möguleg skipti á tveimur ísfisktogur-
um Hraðfrystihúss Keflavíkur og
frystitogara Útgerðarfélags Skag-
firðinga. Ekki varð nein niðurstaða
af fundinum, enda málið nú í hönd-
um Guðmundar Malmquist fram-
kvæmdastjóra Byggðastofnunar.
Tíminn hefur heimildir fyrir að
nokkrir aðilar séu komnir af stað til
að reyna að koma í veg fyrir að þessi
kaup fari fram að svo stöddu.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra og Jón Baldvin Hann-
ibalsson utanríkisráðherra hafa áður
viðrað þá hugmynd við íslenska
aðalverktaka að fyrirtækið kaupi
hlutafé í Hraðfrystihúsi Keflavíkur
og stuðli þannig að því að koma
rekstri hraðfrystihússins á réttan kjöl
og halda togurunum í byggðarlag-
inu. Nú mun Ólafur Ragnar Gríms-
son fjármálaráðherra einnig vera að ,
leita leiða til að ná sama markmiði.
Það hefur hins vegar komið skýrt
fram af hálfu Hraðfrystihúss Kefla-
víkur að togaraskiptin séu eina leiðin
til að bjarga fyrirtækinu frá gjald-
þroti og tryggja hagkvæman rekstur
í framtíðinni. Forráðamenn hrað-
frystihússins segja að miklum erfið-
leikum hafi verið bundið að fá fólk
til starfa í frystihúsinu og hafi m.a.
þurft að ráða erlenda starfsmenn til
að geta haldið því gangandi. Af
reynslu undanfarinna ára megi ráða
að vinnuafl til fiskvinnslu í Keflavík
og á Suðurnesjum verði mjög
ótryggt í framtíðinni. Þá segir einnig
í fréttatilkynningu frá þeim: „Um-
ræddar breytingar eru mjög til hag-
ræðingar fyrir þau fyrirtæki sem hlut
eiga að mál. Þær eru í fullu samræmi
við það sem stjórnvöld hafa lagt
áherslu á, þ.e. betri nýtingu fjárfest-
ingar, hagræðingu í rekstri og aðlög-
un rekstrar fyrirtækja að aðstæðum
á hverjum stað“. - BG