Tíminn - 23.11.1988, Qupperneq 2

Tíminn - 23.11.1988, Qupperneq 2
2 Tíminn Miðvikudagur 23. nóvember Hvað telja fulltrúar á ASÍ þingi mikilvægustu málin: „Skipulagsmálin mikilsverðust“ Elsa Valgarðsdóttir Vestmannaeyjum „Ég vona að á þinginu takist að vekja ASÍ því það er ekki nóg að samþykkja framfaramái hér ef þau komast aldrei til fram- kvæmda. Petta er í fyrsta sinn sem ég sit þing AS( og ég hef á tilfinningunni að ýmis mál séu ákveðin áður en þau eru tekin fyrir hér. í sambandi við skipulagsmálin þá vildi ég að laun starfsmanna ASÍ og verkalýðsfélaganna yrðu jöfn almennum töxtum verka- fólks.“ Guðlaugur Valdimarsson Reykjavík „Mér finnst forsctakjörið vera það sem með mestri eftirvænt- ingu er beðið. Skipulagsmál hreyfingarinnar eru mikilvæg og þingið nú skyldi gæta sín á að flana út í breytingar breytinganna vegna.“ Eyþór Guðmundsson Fljótsdalshéraði „Skipulagsmál ASÍ cru niikil- vægust þegar litið er til framtíðar- innar. Pað þarf að sameina verka- lýðsfélög í stór, öflug deildaskipt félög. Þá eru kjaramálin mikilvæg og síðan lífeyrissjóðamálin. Það er hróplegt óréttJæti að sumir lífeyr- issjóðir skuli vera verðtryggðir og baktryggðir af ríkinu eða bönkunum meðan við þurfum nánast sjáifir að verðtryggja okk- ar sjóði.“ Margrét Júlíusdóttir Vestmannaeyjum „Ég sat síðasta þing ASÍ og finnst nokkuð bera á því að sömu mennirnir séu að flytja sömu ræðurnar og þá. I>að þyrfti að breyta skipulagi hreyfingarinnar á einhvem þann hátt að almennir félagsmenn yrðu virkari." Snorri Sigfinnsson Selfossi „Skipulagsmálin set ég hiklaust í fyrsta sæti en síðan kjara- og lífeyrismálin. Eins og nú er má líkja ASÍ við risa á brauðfótum og núverandi ástand er því langt í frá hoilt. í>að er ljóst að félagseiningum verður að fækka, að þær verði færri og stærri þannig að svæða- sambönd eins og til dæmis Al- þýðusamband Suðurlands yrði deildaskipt stéttarfélag. Ég hef lagt fram tillögu hér á þinginu í þessa veru sem hljóðar svo: 36. þing ASÍ telur að stefna beri að því að svæðasamböndin verði í framtíðinni deildaskipt stéttarfé- lög.“ Lífeyrissjóðamálin eru einnig í ógöngum og á þeim málum verð- ur að finnast viðunandi lausn hið bráðasta. Undanfarin ár hefur gengið stórkostlega á fjármuni almennu lffeyrissjóðanna. Stór- kostleg eignaupptaka átti sér stað þegar veitt voru óverðtryggð lán úr þeim. Talið er að um 60 milijarðar hafi þannig horfið úr þeim og ef ekki verður að gert er allt eins víst að þeir geti ekki greitt nein eftirlaun cftir 1990.“ Þá taldi Haukur Porleifsson frá Reyðarfirði að lífeyrissjóðirnir væru bæði of margir og rekstur þeirra óhóflega dýr og því gæti fólk sjálft lagt til hliðar til efri ára og ávaxtað það fé sitt mun hagstæðar en lífeyris- sjóðirnir gera og geta nú. Að umræðum loknum var lífeyris- sjóðsmálum vísað til nefndar og verða síðan tekin til annarrar um- ræðu n.k. fimmtudag. - sá Fyrri umræða um lífeyrismál á ASÍ þinginu í gær: Lífeyrisfrumvarpið komi upp úr ráðherraskúffunni „Það er ekki bara að mismunur hafi skapast vegna rýrnunar sjóð- anna af völdum verðbólgu á meðan útlán voru óverðtryggð á fyrsta ára- tugi starfsemi þeirra, heldur hefur og verið hlaðið verkefnum á sjóðina langt umfram það sem ráðgert var við stofnun þeirra, þegar áætlað var að 10% iðgjald af dagvinnutekjum gæti staðið undir þeim bótum sem reglugerðir kváðu á um.“ Þetta sagði Benedikt Davíðsson meðal annars þegar hann mælti fyrir tillögu miðstjórnar ASÍ um lífeyris- sjóðsmál. Benedikt rakti starfsemi svo- nefndrar átta manna lífeyrissjóðs- nefndar og tillögur fulltrúa ASÍ í nefndinni, sem hann sagði að byggst hefðu á samþykktum ASÍ undanfar- in ár, en átta manna nefndinni var ætlað að semja lagafrumvarp um lífeyrissjóði. Hann sagði að fulltrúar ASÍ hefðu komist að þeirri niðurstöðu í nefnd- inni að til að lífeyrissjóðirnir gætu hafið ellilífeyrisgreiðslur við 67 ára aldur þyrfti að hækka iðgjöld meira en meðlimir ASÍ gætu sætt sig við. Benedikt sagði að inn í lagafrum- varpið hefði þó tekist að koma flestum öðrum meginatriðum um réttindi og skyldur sem síðasta ASÍ þing hafði ályktað um, þar á meðal að ávinnsla réttinda skuli miðast við öll áunnin stig en ekki lokalaun eins og nú er. Ályktunardrög miðstjórnar ASÍ sem Benedikt mælti fyrir á þinginu í gær eru í átta liðum og er í þeim fjallað um að lögfesta skuli frá Álþingi frumvarp um lífeyrissjóði sem þegar hefur verið samið og eins og Benedikt sagði, „hefur legið í skúffu hjá fjármálaráðherra síðan 4. júní 1987“. Þá er fjallað um lækkun ellilífeyr- isaldurs og hagstæðari maka- og örorkulífeyri, uppgjör við fortíðina en í því felst tryggingafræðilegt mat á stöðu lífeyrissjóðanna. Talsverðar umræður urðu að lok- inni framsögu Benedikts og sagði Þorbjörn Guðmundsson, einn full- trúa Trésmiðafélags Reykjavíkur, meðal annars að óhæft væri að menn öðluðust rétt til hærri tekjutrygging- ar hjá Tryggingastofnun ef þeir kæmu sér hjá að greiða í lífeyrissjóð. Fyrirlestur Franz Blankart, ráðuneytisstjóra frá Sviss: Þátttaka Sviss í málefnum Evrópu Franz Blankart, ráðuneytisstjóri utanríkisviðskiptaráðuneytis Sviss, er staddur hér á landi og heldur fyrirlestur í dag á vegum viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla íslands. Þar fjallar hann um stefnu Svisslend- inga varðandi einangrun eða þátt- töku í málum Evrópu. Fyrirlesturinn verður í Odda kl. 17.15. Franz Blankart nam heimspeki, hagfræði og lögfræði við háskólana í Basel, París, Exeter og Bern og lauk doktorsprófi árið 1964. Hann hefur gegnt fjölmörgum störfum fyrir svissnesku utanríkisþjónustuna, m.a. stýrt sendinefndum Sviss hjá EFTA, GATT, UNCTAD og UN Economic Commission for Europe. Hann hefur stjórnað viðskiptavið- ræðum Sviss við önnur ríki og hjá GATT og var um skeið yfirmaður Interamerican Developmcnt Bank. Árið 1986 var hann skipaður ráðu- neytisstjóri utanríkisviðskipta Sviss. Hann er prófessor við University Institute for European Studies í Genf. Ásgeir Birgisson Ásgeirssonar „Kennedybróður" býður til 1000 manna veislu í Venezuela: Þota eftir ættingjum? Samkvæmt heimildum Tfmans hefur ættingjum Ásgeirs Birgisson- ar frá Akureyri verið boðið til mikillar veislu í Venezuela. Þessi mikla veisla er haldin sökum þess að Ásgeir ætlar á Þorláksmessu að giftast, kirkjuiegri giftingu, sinni ektakvinnu. Þau eru reyndar ný- búin að fá borgaralega vígslu en hyggjast ekki láta þar við sitja. Það sem mesta athygli vekur er að ættingjar Ásgeirs, margir hverjir að minnsta kosti, standa í þeirri meiningu að tengdafaðir hans hyggist senda þotu frá Venezuela sem komi til með að lenda í Keflavík þ. 22. desentber og þar stigi þeir um borð sem í veisluna ætla. Sami háttur verði svo við- hafður á aðfangadag því þá verði fólkinu flogið heim. En eiga þessar sögur við einhver rök að styðjast, og ef svo er, hver er þá þessi maður sem getur boðið svo höfðinglega til veislu í öðrum heimshluta? Er það rétt sem heyrst hefur að þarna sé um að ræða olíufursta líkan þeim sem flestir þekkja aðeins úr bíómyndum? Brúðguminn, Ásgeir Birgisson, sagði að þetta væri ofur venjulegt fólk. Tengdafaðir sinn sæi reyndar að einhverju leyti um olíuviðskipti Venezuela fyrir þarlend stjórnvöld og byggi þar af leiðandi ýmist þar eða í New York. Hann sagðist hinsvegar ekkert kannast við þá frétt að þota kæmi eftir ættingjum hans enda myndi hann aldrei taka slíkt í mál. Hann hefði kynnst konu sinni í Frakklandi og hún væri á allan hátt mjög venjuleg og þægileg sem og allt hennar fólk. Hann og hans nánustu ættingjar myndu fljúga með venjulegu áætl- unarflugi til Bandaríkjanna og þaðan til Venezuela fyrir jólin og koma aftur heim á milli jóla og nýárs. Þá myndi kona hans verða með í för og hér myndu þau setjast að. Aðspurður sagðist Ásgeir kannast við að ættingjum sínum hefðu verið send boðskort þar sem boðið væri til veislunnar en hins- vegar væri það misskilningur að að tengdafaðir hans ætlaði að kosta för þeirra utan. Hann staðfesti að veislan yrði fjölmennari en við ættum að venjast. Jafnvel gæti farið svo að þarna yrðu um 1000 tnanns sem kæmi einna helst til af því að fjölskyldutengs! þarna úti væru svo miklu sterkari en hér heima. Á bak við konu hans væri stór fjölskylda og þessvegna yrði veislan svo umfangsmikil. Eins og fram kemur hér að ofan er Ásgeir sonur Birgis Ásgeirsson- ar frá Akureyri en Birgir er einn svokallaðra „Kennedybræðra“ sem eiga meðal annars Bíla <ureyrar. eigu - áma

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.