Tíminn - 23.11.1988, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 23. nóvember
Tíminn 19
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Þjóðleikhúsið og íslenska óperan sýna
ihofjfmann^
Föstudag Uppselt
Laugardag 26.11. Uppselt
Miövikudag 30.11. Fáein sæti laus.
Föstudag 2.12 Uppselt
Sunnudag 4.12 Uppselt
Miðvikudag 7.12
Föstudag 9.12 Uppselt
Laugardag 10.12 Uppselt
Síðasta sýning fyrir áramót.
Ósóttar pantanir seldar eftir kl. 14
sýnlngardag
Takmarkaður sýningaljöldi
Stóra sviðið
Stór og smár
eftir Botho Strauss.
Ath! Frumsýningu frestað til
miðvikudags. Áður seldir miðar gilda á
sýningarnúmer, vinsamlegast hafið
samband við miðasölu.
[ kvöld kl. 20. Frumsýning.
Fimmtudag 24.11 kl. 20.2. sýning.
Sunnudag 27.11 3sýning.
Þriðjudag 29.11.4. sýning
Fimmtudag1.12 5. sýning.
Laugardag3.12 6. sýning.
Þriðjudag 6.12 7. sýning.
Fimmtudag8.12 8. sýning.
Sunnudag 11.12 9. sýning.
i íslensku óperunni, Gamla bíói:
Hvar er hamarinn?
Sunnudag kl. 15
Síðasta sýning
Barnamiði: 500 kr., fullorðinsmiði: 800 kr.
Litla sviðið, Lindargötu 7:
Yoh Izumo
Japanskur gestaleikur
Fimmtudag kl. 20.30
Föstudag kl. 20.30
Laugardag kl. 20.30
Aðeins þessar þrjár sýningar
Miðasala í Islensku Óperunni, Gamla
Bíói, alla daga nema mánudaga frá kl.
15-19 og sýningardaga frá kl. 13 og fram
að sýningu.Simi 11475.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20.
Símapantanireinnig virka daga kl. 10-12.
Simi í miðasölu: 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Þríréttuð
máltíð og leikhúsmiði á óperusýningar:
2700 kr. Marmara: 2.100 kr. Veislugestir
geta haldið borðum fráteknum í
Þjóðleikhúskjallaranum eftir sýningu.
I.KIKI-'fvlAC 2i2 2<2
RKYKJAVlKUR
HAMLET
Föstudag 25. nóv. kl. 20.
Ath. Aðeins 4 sýningar eftir.
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Miðvikudag 23.11 kl. 20.30. Uppselt
Fimmtudag 24.11 kl. 20.30. Uppselt
Laugardg 26.11 kl. 20.30. Uppselt
Sunnudag 27.11 kl. 20.30. Uppselt
Þriðjudag 29.11. kl. 20.30. örfá sæti laus
Miðvikudag 30.11 kl. 20.30. örfá sæti laus
Föstudag 2.12 kl. 20.30. Uppselt
Laugardag 3.12 kl. 20.30. Uppselt
Þriðjudag 6.12 kl. 20.30.
Fimmtudag 8.12 kl. 20.30.
Miðasalan í Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Forsala aðgöngumiða: Nú er verið að taka
við pöntunum til 11. des. Simapantanir virka
daga frá kl. 10. Einnig símsala með VISA
og EURO á sama tíma.
ALÞYÐULEIKHÚSIÐ
HOfl
KÖÓTSTJLÖimOIMmBK
Höfundur: Manuel Puig
Þýðandi: Ingibjörg Haraldsdóttir
Tónlist: Lárus H. Grímsson
Föstudag 25.11. kl. 20.30
Laugardag 26.11. kl. 20.30
Sunnudag 27.11. kl. 16.00
Sýningar eru í kjallara Hlaðvarpans,
Vesturgötu 3. Miðapantanir í sfma 15185
allan sóiarhringinn. Miðasala í
Hlaðvarpanum kl. 14.00-16.00 virka daga
og 2 tímum fyrir sýningu.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ
— Með kærri kveðju, o.s.frv...
- Komdu nú ekki mjög seint
heim, Sigga, mundu að þú átt
að gifta þig í fyrramálið.
„Hættur öllu kvennafari,“
segir söngvarinn og kvennagulliö Julio Iglesias
Nú er spænski söngvarinn
Julio Iglesias orðinn 45 ára
og segist vera orðinn þreyttur
á kvennastússinu, sem hann
hafi stundað af kappi undan-
farin ár. Nú sé hann alvarlega
ástfanginn og ætli að kvænast
fljótlega. Kærastan heitir Pitt
Kippenhahn, 24 ára fögur
þýsk sýningarstúlka. Julio
kynntist henni fyrir hálfu ári
og þau hafa verið óaðskiljan-
leg síðan.
Þegar Julio var ungur var
hann mikill fótboltamaður og
þótti sá glæsilegasti á vellin-
um. Ekki spillti það fyrir
unga manninum að hann gat
spilað á gftar og sungið „eins
og engill“. Enda voru stúlk-
urnar yfir sig hrifnar af
honum.
Hann giftist bráðfallegri
spænskri stúlku, Isabel
Preysler að nafni. Þau eign-
uðust 3 börn og allt virtist
leika í lyndi. En nú var Julio
allt í einu orðinn frægur
söngvari og ferðaðist um
heiminn, en konan var heima
með börnin. Eftir því sem
Julio gekk betur á frægðar-
brautinni því verr gekk í
hjónabandinu og endaði það
með skilnaði.
Isabel Preysler hefur sjálf
unnið sér nafn á Spáni, og
hefur m.a. unnið við tímarit,
tekið viðtöl við þekkt fólk og
einnig sjálf verið mikið mynd-
uð sem falleg tískudama.
Börnin hafa oft verið hjá
pabba sínum sem á bústaði
víða um heim, en aðallega
hafa þau verið hjá honum í
Miami í Bandaríkjunum.
Fegurðardrottningin
frá Brasilíu
Svo var það í júlí ’87 að
Iglesias var að kynna nýja
plötu sína í Brasilíu. Þá var
auðvitað haldið mikið partí
og eins og venjan er þar sem
kvennagullið Julio Iglesias er
á ferð, þá var smalað saman
fögrum konum og skemmti-
legu fólki. Þar var kynnt fyrir
söngvaranum fegurðar-
drottning Brasilíu, Dayse
Nunes, 19 ára blökkustúlka.
Blöðin gerðu sér mat úr því,
að Dayse væri fyrsta blökku-
stúlkan sem hefði hlotið
þennan titil þar í landi. Julio
Iglesias varð heillaður af
stúlkunni og hún fór með
honum til Miami og hann tók
hana með sér til Argentínu
og síðan til Los Angeles.
Söngvarinn kynnti Dayse fyr-
ir vinum sínum, og hún lét í
veðri vaka við sína kunningja
og fjölskyldu, að þetta væri
alvarlegt á milli þeirra.
En eftir 3 mánuði datt
botninn úr þessu öllu saman
og Julio fór að ferðast einn
aftur.
Módelið fagra
í Manila
Svo var það sl. vor, að
Julio var að syngja í Manila á
Filippseyjum að hann hitti
hina ljóshærðu og brúneygðu
Pitt Kippenhahn, sem var
með tískusýningarhópi á
ferðalagi. Þau urðu ástfangin
á stundinni og hafa ekki skilið
síðan.
„Það er eins og öll ástaljóð-
in sem ég hef sungið í gegnum
árin hafi verið um þessa
stúlku,“ segir söngvarinn
hrifinn.
Þau segjast hafa ákveðið
að gifta sig mjög fljótlega og
þrá að eignast börn og stofn-
Pitt Kippenhahn og Julio hafa ekki skilið síðan þau hittust fyrir hálfu ári, og ætla fljótlega
að giftast.
Isabel Preysler er eina konan
sem Julio Iglesias hefur verið
giftur. Fyrir nokkrum árum
var orðrómur um það, að þau
myndu ætla að taka saman
aftur, en ekkert varð úr því.
Nú er hún gift spænskum
milljónamæringi og Julio hef-
ur tilkynnt að hann ætli innan
skamms að ganga í það heil-
aga.
setja sitt eigið einkaheimili,
en hætta flæking um heiminn.
Skilaboð frá
kvennagullinu
Þegar blaðamenn höfðu
samband við Julio Iglesias
nýlega, þá bað hann þá að
koma þeim skilaboðum á
framfæri fyrir sig til vin-
kvenna sinna - víða um heim
- að nú væri hann hættur öllu
kvennafari og hann ætli að
Nú hefur Julio sagt skilið við hina ungu brasilísku Dayse fara aQ Verða ráðsettur og
Nunez, sem var „besta vinkona“ hans í nokkra mánuði. stilltur eiginmaður!