Tíminn - 23.11.1988, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 23. nóvember
Tíminn 3
Allt eins búist við að dauft verði yfir:
KAUPMENN TALA UM
„LITLU JÓLIN“ í ÁR
Óvenjumikið mun vera um það í ár að kaupmenn auglýsi
aUskyns tUboð og afslætti í verslunum sínum. Slíkt vekur
athygli þar sem sá árstími fer nú í hönd sem kaupmenn hafa
margir hverjir treyst að miklum hluta á hvað sölu
viðkemur. Töluverður skjálfti er í kaupmönnum vegna
bágs ástands í efnahagsmálum og þykja sum tUboð benda
tU þess að sumir þeirra séu farnir að örvænta. Kaupmaður
sagðist óttast að það yrðu aðeins „litlu jólin“ hjá
kaupmönnum í ár.
Það er erffitt
að standa í verslun
Hjá Kaupmannasamtökunum
fengust þær upplýsingar að nú
orðið væri ekkert við það að athuga
þó kaupmenn væru með útsölur á
þessum tíma. Allt slfkt hefði verið
gefið frjálst og því mættu kaup-
menn vera með útsölur um jólin ef
þeim sýndist svo. Guðni Þorgeirs-
son varð fyrir svörum hjá sam-
tökunum og sagði hann að vissu-
lega yrði vart nokkurs skjálfta í
kaupmönnum. Ástandið í þjóðfé-
laginu gæti vart talist gefa ástæðu
til bjartsýni og því væru allir þeir
sem stæðu í rekstri í dag haldnir
óvissu um framtíðina.
Tíminn hefur fregnað að ekki sé
brúnin á heildsölum léttari en á
þeim sem stunda smásöluverslun.
Af því tilefni var Árni Reynisson
framkvæmdastjóri Félags íslenskra
stórkaupmanna spurður að því
hvort hann yrði var við vaxandi
erfiðleika í heildverslun. Hann
svaraði því til að það væri full-
snemmt að fullyrða nokkuð í þeim
efnum, þó reikna mætti með því að
jólaverslunina bæri seinna að nú
en oft áður. Til dæmis mætti reikna
með mikilli kortaverslun, þ.e. að
fólk noti í enn meira mæli greiðslu-
kortin sem gjaldmiðil því íslend-
ingar séu jú eftir sem áður ákveðnir
í því að halda jól. Árni benti á að
það hefði gerst áður að viðskiptin
hefðu farið fram síðustu þrjá dag-
ana fyrir jól og þá hefði útkoman
ekki verið svo slæm. Hann sagðist
og heyra það á mönnum að margir
hverjir teldu sig vel sloppna næðu
þeir sömu krónutölu og í fyrra.
Varðandi orðróm þess efnis að
margar heildsölur stæðu illa vegna
vanskila smásölukaupmanna við
þær sagði Árni að það hefði verið
svo í nokkuð langan tíma. Hann
sagði hrein skuldatöp vera orðin
nokkuð algeng og þau fyrirtæki
sem hefðu að nokkru leyti haldið
rekstrinum á floti með lánsfé væru
nú komin með þungan rekstur.
„Litla Kringlan", sem svo hefur verið nefnd, en þar er stefnt að því að opna verslunarmiðstöð um mánaðamótin
aður en jólaverslunin kemst af stað fyrir alvöru. Ekki er þó víst að eins mikið líf verði í jólavertíðinni nú eins
og oft endranær. Tíinamynd Pjeíur
Árni benti og á sameiningu ýmissa
fyrirtækja til að mynda bílaumboð-
anna. Þar væri á ferðinni þróun
sem reyntíar hefði átt sér stað
nokkur undanfarin ár en gefi að
öllum líkindum til kynna hvert
framhaldið verður. Þar væri ekki
verið að ræða um sameiningu í
einni tegund viðskipta frekar en
annarri heldur yrði þróunin senni-
lega sú að menn leituðust við að
koma upp færri en stærri rekstrar-
einingum.
Útsölur eða tilboð?
Tíminn hafði samband við tísku-
verslun á Laugavegi sem veitt hefur
afslátt á sínum vörum að undan-
förnu og sagði talsmaður hennar
að hér væri ekki um eiginlega
útsölu að ræða heldur væri verið að
rýma fyrir nýjum vörum. Sport-
vörukaupmaður í miðbænum hafði
svipaða sögu að segja; að útsala í
hans verslun væri ekki tilkomin af
bágri stöðu heldur af því að við-
komandi verslun hafði ekki verið
með útsölu í haust eins og flestar
aðrar verslanir. Einnig væri verið
að auðvelda flutninga verslunar-
innar í „Litlu Kringluna", en þar
er um að ræða verslunarhúsnæði
sem er nú að rísa á heimaslóðum
hinnar eiginlegu Kringlu, eða við
Kringluna númer 4.
Ætlunin mun reyndar vera að
opna nýjar verslanir í „Litlu
Kringlunni" 1. desember og horfa
kaupmenn hýru auga til þeirrar
aðstöðu sem þar skapast til versl-
unar. -áma
Ráðstefna um fjármál sveitarfélaga hófst í gær:
Staða sveitarfélag-
anna afar misjöfn
Árleg ráðstefna Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga um fjármál
sveitarfélaga hófst í gær. Að venju
voru kynntar hagtölur ársins og spáð
í komandi ár, en sveitarfélögin eiga
að vera byrjuð að gera fjárhagsáætl-
anir sínar fyrir næsta ár og er þessi
ráðstefna notuð til upplýsingar og
samanburðar. Þá eiga verkaskipta-
og tekjustofnamál einnig talsvert
rými á dagskrá ráðstefnunnar.
Sigurgeir Sigurðsson formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga
sagði í samtali við Tímann vonast til
þess að samkomulag næðist um
verka- og tekjuskiptingarmálin á
ráðstefnunni því þá væri um tíma-
mótasamkomulag að ræða.
„Tekjustofnamálin hafa verið við-
kvæmustu málin og þar er Jöfnunar-
sjóðurinn efstur á baugi. Það er að
myndast nokkuð góð samstaða um
að setja Jöfnunarsjóðinn að veru-
legu leyti til jöfnunar, til þeirra
sveitarfélaga í dreifbýlinu eða á
landsbyggðinni sem mest hafa þörf
fyrir slíkajöfnun. Ekki frekar vegna
þess að þau höfðu svo litlar tekjur
heldur vegna þess að þau eru ekki af
þeirri stærð að þau nái hagkvæmri
rekstrareiningu. Til þessara sveitar-
félaga eru gerðar kröfur um dag-
heimili, tónlistarskóla og alls konar
þjónustu sem stærri sveitarfélögin
veita, en þau hafa hreint ekki mann-
afla til að standa undir því, miðað
við núverandi tekjur,“ sagði Sig-
urgeir.
Eitt sveitarfélag, Hofsós, hefur nú
þegar beðið um opinbera aðstoð,
þar sem skuldir þess eru margfalt
umfram mögulegar tekjur sveitarfé-
lagsins. Sigurgeir sagðist óttast að
Hofsós væri ekki eina sveitarfélagið
sem á aðstoð þyrfti að halda. Hann
vildi ekki meina að staða sveitarfé-
laganna væri slæm. „Hún er voða-
lega misjöfn. Sá mismunur stafar
bæði af mismunandi tekjumöguleik-
um og kannski mismunandi fjárfest-
ingu sveitarfélaganna sem hefur ver-
ið í mörgum tilfellum óvarkár, því
er ekki að leyna,“ sagði Sigurgeir.
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, sagði í ávarpi sínu til
ráðstefnugesta að ef litið væri á
sveitarfélögin í heild þá mætti full-
yrða að afkoma þeirra væri sæmileg
og fjárhagsstaða viðunandi. „Hitt er
núna mjög áberandi í fjármálum
sveitarféiaganna og tekjustofnamál-
um þeirra hversu misjafnlega þau
eru á vegi stödd fjárhagslega. Sveit-
arfélög þar sem býr meira en helm-
Sigurgeir Sigurðsson formaður Sam-
bands ísl. sveitarfélaga.
ingur íbúa landsins eru skuldlítil
með mikið framkvæmdafé þ.e.a.s.
vel stödd fjárhagslega. Hinn hluti
sveitarfélaganna er að vísu mismun-
andi illa stæður, en mörg þeirra eru
mjög skuldug með lítið fram-
kvæmdafé," sagði Jóhanna. Hún
sagðist mundu beita sér af alefli við
forsætisráðuneytið og hinn nýja
sjóð, Atvinnutryggingarsjóð, að
hagsmuna sveitarfélaganna verði
gætt við þau skuldaskil sem nú hljóti
óhjákvæmilega að fara fram hjá
mörgum fyrirtækjum sem væru kom-
in í þrot, þannig að hlutur sveitarfé-
laganna verði ekki fyrir borð borinn.
-ABÓ
Tvö tímabib
Ekkert útskriftaigjald.
Ármúla3-108Reykjavík- Sími91 -680988