Tíminn - 23.11.1988, Blaðsíða 20
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
3 28822
Átján mán. binding ^°'B'USroo()V
A 7,5% ÞRÖSTUR
68 50 60
| SAMVINNUBANKINN VANIR MENN
Tíminn
Atvinnutryggingarsjóður ríkisstjórnarinnar kominn á fullt skrið:
Leitaði nánari skvr
njá ríkisstjórn
Á ríkisstjórnarfundi í gær var boðað til sérstaks
ríkisstjórnarfundar á föstudaginn kemur þar sem aðalefn-
ið verður slæm staða atvinnuveganna í ljósi efnahagsþró-
unar síðustu missera. Ríkisstjórnin átti einnig fund í gær
með stjórn atvinnutryggingarsjóðsins sem nýlega tók til
starfa og voru lögð fram nokkur vandamál sem komið
hafa upp. Samkvæmt heimildum Tímans eru það einkum
vandamál sem fylgja nánari skilgreiningu á því hvað teljist
eðlileg rekstrarskilyrði sem talað er um í annarri grein
reglugerðarinnar fyrir sjóðinn.
Einnig er ljóst samkvæmt milli-
uppgjöntm fyrirtækja og greinar-
gerðum að fyrirtæki, sem hafa
þurrkað upp eigið fé á síðustu
12-15 mánuðum, stóðu vel fyrir
þann tíma. Því vaknarspurningin
hvort miða eigi við síðustu mán-
uði eingöngu eða taka tillit til
rekstrarafkomu lengra aftur í
tímann. Einnig þarf ríkisstjórnin
að ákveða hvaða fyrirtæki eru
það illa stödd fjárhagslega og
með tilliti til rekstrarskilyrða að
þau fá ekki lán úr sjóðnum.
Gunnar Hilmarsson, stjórnar-
formaður Atvinnutryggingar-
sjóðs ríkisstjórnarinnar, sagði í
ræðu á fundi Sambands ísl. sveit-
arfélaga í gær að þegar hafi verið
mótteknar yfir 90 umsóknir. Af
þeim væru að hans mati um 10-20
fyrirtæki það illa stödd að þau
féllu utan grófra skilgreininga
reglugerðar sjóðsins. Nánari skil-
greining liggur ekki enn fyrir.
Þessi 90 fyrirtæki sem sótt hafa
um aðstoð úr Atvinnutryggingar-
sjóði eru flest starfandi í sjávarút-
vegi. Um 25 þeirra eru þó starf-
andi við iðnað, fiskeldi og aðra
anga útflutnings- og samkeppnis-
greina. Þegar lagðar eru saman
umsóknir um skuldbreytingar og
lán til skuldbreytinga þessara að-
ila nemur heildarupphæðin um
3.000 milljónum króna.
Gunnar segir ennfremur að
ljóst sé að algjör umskipti hafi
orðið hjá þessum fyrirtækjum
síðustu 12—15 mánuði, eftir til-
tölulega góð ár 1985-87. „Um-
skiptin eru ótrúleg," sagði Gunn-
ar í ræðu sinni sem fjallaði um
sveitarfélög og atvinnumálin, „í
mörgum tilfellum hefur góður
árangur tveggja til þriggja ára
þurrkast út á einu ári. Hvað er til
ráða?“ KB
Alþjóðleg
alnæmisvika
hefst
I dag hefst svokölluð alnæmisvika
sem lýkur 1. desember með alþjóð-
legum alnæmisdegi. Á fundi heil-
brigðisráðherra frá 140 löndum sem
haldinn var fyrr á þessu ári í Lundún-
um var ákveðið að helga 1. desember
1988 baráttunni gegn alnæmi. En af
því að fyrsti desember er fullveldis-
dagur íslendinga og haldið verður
upp á 70 ára afmæli fullveldisins
þennan dag, þá var ákveðið að lögð
yrði áhersla á vikuna fyrir 1. desem-
ber.
Þessa viku verður mikið um að
vera í sambandi við fræðslu um
alnæmi. Sem dæmi má nefna að
frumsýnd verður ný íslensk mynd í
sjónvarpi, einnig verður nýtt vegg-
spjald kynnt í sambandi við hana.
Áð auki verða í ríkissjónvarpi tveir
í dag
þættir sem gerðir hafa verið með
krökkum í 9. bekk grunnskóla og
krökkum úr Menntaskólanum við
Hamrahlíð, þar sem þau spyrja
spurninga um alnæmi og fá svör við
þeim.
Einnig verður frumsýndur íslensk-
ur sjónvarpsþáttur um mann sem dó
úr alnæmi.
í tilefni af þessari viku verður efnt
til tónleika í Háskólabíói 30. nóvem-
ber kl. 22.00. Þar koma fram Bubbi
Morthens, Hörður Torfason og
Megas, en listamennirnir koma fram
endurgjaldslaust og allur ágóði mun
renna til Samtaka áhugafólks um
alnæmisvarnir sem stofnuð verða 5.
desember. Ágóðann munu svo sam-
tökin nýta til styrktar smituðum og
sjúkum. ssh
Ólympíumótið í skák í Grikklandi:
Vinnum við Kínverja?
í gær tefldi íslenska skáksveitin
við Kínverja og fóru skákirnar
Beit á agnið
f gær var tilkynnt til lögregl-
unnar í Keflavík um að köttur
væri fastur á línukrók. Kötturinn
hafði farið í línubala fyrir utan
beitingaskúra í Sandgerði og ver-
ið að narta í beituna, en ekki
tekist betur til en svo að hann
festist við einn krókinn. Ekki var
annað hægt en aflífa köttinn.
-ABÓ
þannig: Skák Jóhanns Hjartarsonar
og Jzu fór í bið og er Jóhann með
betri stöðu. Margeir Pétursson gerði
j afntefli við Ryee eftir nokkrar svipt-
ingar. Helgi Ólafsson tefldi við
Wang og endaði sú skák með sigri
Helga eftir æsispennandi skák þar
sem báðir aðilar lentu í tímahraki.
Jón L. Árnason hvíldi í dag en í hans
stað tefldi Karl Þorsteins. Karl tap-
aði fyrir andstæðingi sínum eftir að
hafa mjög snemma í skákinni lent í
vandræðum með stöðuna. Staðan er
því IVí vinningur gegn lVi auk
biðskákar sem er íslenska liðinu
heldur í hag svo að enn eru nokkrar
líkur á að við vinnum Kínverja.
-áma
Nýir peningaseðlar ollu erfiðleikum:
Bensínsjálfsalar í
gengishugleiðingum?
í umferð eru nú nýir hundrað króna seðlar sem eru öðruvísi en
gömlu seðlarnir. Munurinn felst í því að nýju seðlarnir hafa önnur
litbrigði sem sjást greinilega með berum augum. Þessi mismunur á
seðlunum hefur valdið erfiðleikum því sjálfsalar á bensínstöðvum
eru það næmir að þeir merkja breytinguna sem svik, þannig að
kúnninn lendir í erfiðleikum við að nálgast bensínið. Bensínlítill
bíleigandi sagði Tímanum að þessir sjálfsalar virtust ekki viðurkenna
ísl. krónuna, trúlega vegna þess að gengið væri ekki rétt skráð!
Olíufélögin voru auðvitað ekki
sátt við þetta, þar sem dæmi voru um
að óvenjulítið væri í sjálfsölunum
þegar þeir voru gerðir upp, og báru
félögin fram kvörtun við Seðlabank-
ann.
í gær tókst svo starfsmönnum
olíufélaganna að stilla skynjarana á
sjálfsölunum etir að hafa fengið um
það upplýsingar frá Danmörku.
í viðtali við Stefán Þórarinsson
hjá Seðlabankanum kom fram að
olíufélögin hefðu kvartað yfir þessu
og nú væri verið að rannsaka hversu
mikil útbreiðslan á seðlunum væri
orðin.
Stefán sagði jafnframt að ástæða
þessa mismunar væri sú að nýtt
fyrirtæki hefði tekið við prentuninni
fyrir Seðlabankann. Þetta fyrirtæki
notar að vísu pappír samkvæmt
öryggisstöðlum og sömu prentmót,
en hinsvegar notar fyrirtækið eigið
blek og það virðist vera svo að í
prentuninni hafi blekið ekki komið
nákvæmlega eins út og hjá þeim sem
áður sáu um prentunina.
„Við viljum ekki viðurkenna að
þetta séu neitt gallaðir seðlar út af
fyrir sig þó þeir séu ekki hundrað
prósent settir saman eins og fyrri
útgáfur. Það er líka merkilegt við
þetta mál að það er töluvert síðan
þessir seðlar komu í umferð, en það
var fyrst fyrir nokkrum dögum að
okkur var tilkynnt um að ekki væri
hægt að nota þá í bensínsjálfsalana.
Við höfum ekki fengið neinar kvart-
anir frá bönkum, sem þó eru með
seðlavélar t.d. í hraðbönkunum.“
Málið er í rannsókn og Stefán
sagði að það væri ómögulegt að kalla
seðlana inn, prentaðir hefðu verið 5
milljónir seðla og þeir hefðu farið í
umferð víða um land fyrir nokkrum
mánuðum. ssh