Tíminn - 23.11.1988, Side 5

Tíminn - 23.11.1988, Side 5
Miðvikudagur 23. nóvénríber Tíminn 5 Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra mælti fyrir lánsfjárlögum á þingi í gær: Hallinn vex og Ólafur skammast „Gamansamir menn hafa sagt að ég ætti ekki að flytja fleiri ræður um fjárlög þessa árs, þar sem hallinn vaxi um einn milljarð í hverri,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í upphafi máls síns við fyrstu umræðu um lánsfjárlög í gær. í máli hans kom fram að halli á fjárlögum gæti orðið allt að 5 milljörðum, en fyrir mánuði var hann áætlaður rúmlega 3 milljarðar. Þetta stafar af því að tekjuáætlanir ríkissjóðs fyrir seinni hluta þessa árs hafa gjörsamlega brugðist. vegna þess að öll þensla hefur aígerlega dottið ftiður, á njiklu skemmri tíma en gert var ráð fyrir. Ráðgerðar tekjur af söluskatti og aðflutnings- gjöldum vega þar þyngst, en þær eru um 2,2 milljörðum minni en gengið var út frá í áætlunum. Fjármálaráðherra skýrði Alþingi frá þessari versnandi stöðu um leið og hann mælti fyrir frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir árið 1989. Ólafur Ragnar sagði það megin markmið lánsfjárlaga næsta árs að stuðla að varanlegri lækkun vaxta, meðal ann- ars með því að draga úr framkvæmd- um á vegum hins opinbera. Hann gagnrýndi stjórnendur peninga- stofnana fyrir að koma í veg fyrir að umræða um vaxtalækkun geti orðið „fagleg, málefnaleg og efnisleg", eins og hann orðaði það. Ólafur sagði að við stjórnuðum ekki pen- ingalífinu í landinu með hliðsjón af tilfinningalífi bankastjóra, „eða órökstuddu mati á einhverju sem kunni að gerast í framtíðinni, að þeirra dómi ef til vill og kannski, eftir því hvernig liggur á þeim þann morgun er þeir fara í vinnuna". Fræðarinn Ólafur Ragnar Fram kom í máli Ólafs Ragnars að hann telur að mjög skorti á að stjómendur fyrirtækja, forsvars- menn í umræðu s.s. fjölmiðlamenn og almennir sparifjáreigendur, hafi nægilega þekkingu á fjármálum og vaxtakerfinu í landinu. Hann varp- aði fram þeirri hugmynd að koma á fót mjög víðtæku námskeiði um f*'ðból9an var SSSLvið1%í ktÓ$*™'ánu&i Jfaagnfórvíi Vnstfjðrðum «toa«/da Oar/agar»A.rGr,n,sson fiárm*. • ™ kom framToJ "“«/ fVr'r Það sem h ÓUm rá&herrí„ Meða' Þos• tokiur ° Vera Þá að #! ,a miklð B peningamál. Hann kvaðst hafa ákveðið að efna til viðræðna við þessa aðila um sérstakt kynninga- og upplýsingaátak í þessum efnum til þess að tryggja kunnáttu þeirra á þessum einföldu staðreyndum. Fjármálaráðherra vakti einnig at- hygíi á þeirri staðreynd að lífeyris- sjóðirnir væru að verða ein aðal uppspretta lánsfjármagns í landinu. í framhaldi af því ræddi hann nauð- syn þess að samvinna á niilli ríkis- sjóðs og lífeyrissjóðanna varðandi lántöku yrði aukin og sagði það eitt af forgangsverkefnum næstu ára að efla sölukerfi spariskírteina ríkis- sjóðs. -ág Jóhann Einvarðsson um umfjöllun á þinghelgisrofinu í fjölmiðlum: „Tekinn af lífi“ án dóms og laga Þinghelgi yfir Jóhanni Einvarðs- syni alþingismanni var rofin með öllum greiddum atkvæðum í efri deild Alþingis í gær. Jóhann kvaðst harma að þetta þyrfti að gera, en lýsti sig samþykkan því þar sem félögum hans í bankaráði Útvegs- bankans hefði veri birt stefna. Hann lýsti sig saklausan og sagðist treysta dómstólunum í þessu efni. Guðrún Agnarsdóttir las upp úr bréfi frá saksóknara þar sem Jóhanni er gefið að sök að hafa serr. banka- ráðsmaður sýnt af sér saknæma van- rækslu við yfirstjórn Útvegsbankans og við eftirlit með starfsemi hans og þannig látið hjá líða að fylgjast með skuldbindingum og tryggingum vegna viðskipta bankans við Hafskip hf. Jóhann kvaðst ekki geta svarað þeirri spurningu hvort einhver væri með þessu að reyna að gera honum bölvun. „Ég trúi því satt að segja ekki að menn beiti þeim brögðum að taka mann af lífi, nánast án dóms og laga, eins og mér finnst að hafi verið reynt að gera í fjölmiðlum þessa margfrægu helgi“, sagði Jóhann. Tveir bílar óku á hest Skömmu fyrir klukkan átta í gærmorgun óku tveir bílar á sama hrossið í Garði og var hrossið dautt þegar lögregla kom á staðinn. Flytja þurfti farþega annars bílsins til læknis, þar sem hann kvartaði undan verkjum í baki. Bílamir komu úr gagnstæðri átt og óku þeir sem fyrr segir báðiráhrossið. Bílamirskemmd- ust mjög mikið, einkum sá sem ók síðar á hrossið og þurfti að fá kranabíl til að fjariægja hann. -ABÓ Jóhann Einvarðsson. Hann sagðist í starfi sínu sem bankaráðsmaður hafa lagt sig fram ásamt félögum sínum um að gæta hagsmuna bankans í hvívetna. Sér- stakur saksóknari hefði þegar birt fjórum bankaráðsmönnum ákæru vegna fyrrgreinds máls. Hann hlyti því að mæla með því að efri deild heimilaði saksóknara að birta hon- um samskonar ákæru. „Harma ber að mál þetta skuli bera að með þessum hætti, að hæstvirt deild þurfi að taka þetta erindi fyrir,“ sagði Jóhann meðal annars. „Þannig hefði ekki þurft að vera. Hæstvirtur for- seti, ég tel mig saklausan af ákæru þessari, en er að sjálfsögðu þeirrar skoðunar að virða beri óskir sak- sóknara enda ber ég fyllsta traust til dómstólanna. í ljósi þessa mæli ég með því að umrædd beiðni verði leyfð.“ Þinghelgi gildir einungis þann tíma sem Alþingi situr, hún er trúlega einnig rofin á meðan á jóla- leyfi þingmanna stendur. Það er að segja, sé þinginu frestað í meira en hálfan mánuð með jólaleyfi. Þannig gildir þinghelgi einungis í um hálft ár. Jónann Einvarðsson alþingis- maður kvaðst aðspurður telja að unnt hefði verið að höfða mál gegn honum utan starfstíma Alþingis til að setja það ekki í þá stöðu að svipta einn af fulltrúum sínum þinghelgi. -ág Fíkniefnadeild lögreglunnar handtók níu __ manns í fimm húsleitum: 50 gr. af kókaíni og 140 gr. af amfetamíni Við fimm húsleitir, þann 14. þessa mánaðar, handtók fíkniefna- deild lögreglunnar níu manns og gerði upptæk 50grömm af kókaíni, 140 grömm af amfetamíni og nokk- urt magn af kannabisefnum. Sjö manns var sleppt, en tveir karlmenn, 27 og 30 ára, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram til morgundagsins. Öðrum var sleppt á sunnudag. Húsleitirnar voru framkvæmdar í Hafnarfirði og Reykjavík. Rannsókn málsins er ekki lokið að sögn Reynis Kjartanssonar hjá fíkniefnadeild lögreglunnar. í hvaða átt framhaldsrannsókn bein- ist vildi Reynir ekki tjá sig um. Reynir játti því að um einhver tengsl hafi verið að ræða hjá þeim er handteknir voru en vildi ekki greina frekar frá þeirri hlið málsins. Húsleitimar vom framkvæmdar þegar grunur vaknaði um neyslu og dreifingu efna. Við allar hús- leitirnar fundust áhöld til fíkni- efnaneyslu og fíkniefni. Þó sýnu mest í einu húsinu. -ES Sláturfélag Suðurlands boðaði til kynningarfundar í gær: Búrfell selt SS Sláturfélag Suðurlands boðaði til kynningarfundar í gær. Tilgangur fundarins var tvíþættur, þ.e. annars- vegar var kynnt sú breyting sem átt hefur sér stað á rekstri fyrirtækisins að stórlega hefur verið dregið úr smásöluverslun. Eftir standi aðeins ein slík sem stödd er í Austurveri og sé hún jafnframt hugsuð sem nokk- urskonar vettvangur kynninga á veg- um SS. Sú nýbreytni sem hins vegar mesta athygli vekur er að SS hefur nú fest kaup á kjötvinnslunni Búrfell hf. sem til skamms tíma framleiddi kjötvörur af ýmsu tagi. Ætlunin mun vera að framleiða og selja ódýrar kjötvörur undir því vöru- merki, þannig að viðskiptavinir geti valið um tvo gæðaflokka kjötvara. Nýjar umbúðir hafa verið hannaðar og verða vörurnar seldar í þeim í framtíðinni. Að sögn smakkara Tímans brögðuðust prufur mjög vel og var þá skinka sú sem á boðstólum var sérstaklega tilgreind. Ekki mun spilla fyrir að verð hennar er með því lægsta sem þekkist hérlendis. - áma Frá kynningarfundi SS sem haldinn var í gær. Tímamynd: PJetur

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.