Tíminn - 23.11.1988, Side 6

Tíminn - 23.11.1988, Side 6
6 Tíminn Miðvikudagur 23. nóvember Hólavallagarður 150 ára og út er komin bókin Minningar- mörk í Hólavallagarði, eftir Björn Th. Björnsson: Menningar- spegill Það er ekki víst að allir kannist við nafnið Hólavaliagarð, en það er heitið sem gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu bar lengst af. Þar fór fram fyrsta greftrun 23. nóvember 1838 og er því garðurinn 150 ára í dag. I gær kom út bók hjá Máli og menningu eftir dr. Björn Th. Björnsson, listfræðing, undir heitinu Minning- armörk í Hólavallagarði, með um 200 ljósmyndum eftir Pétur Maack. Þetta er afar vönduð bók og vegleg viðbót við safn til íslenskrar menningarsögu. Kirkjugarðar Reykjavíkur styrktu útgáfuna með því að greiða kostnað við allar Ijósmyndir Péturs Maack. úr varð þetta viðamikla verk, að sögn Björns Th., enda byggist hún á skyndileiftri fyrir þremur árum. Frá þeim tíma þróaðist hugmyndin yfir í að vera víðtæk umfjöllun um þann mikla menningarspegil sem garður- inn er ef hann er skoðaður af fróðum mönnum. Bókin er senn aðgengileg fyrir almenna lesendur og einnig er hún slíkt samansafn af fróðleik að hún nýtist sem haldgott uppsláttarrit fyrir fræðimenn. Það er umhugsunarvert fyrir iiúlif- andi Reykvíkinga og aðra að lengi vel var ekki jarðað í Hólavallagarði þó að hann væri fullgerður, vegna þess að hann þótti of langt frá bænum. Einnig var það lengi trú manna að sá fyrsti sem grafinn væri, yrði „vökumaður" garðsins og þótti mörgum það ekki á sig leggjandi. Það var þó 23. nóvember 1838 að frú Guðrún Oddsdóttir, kona háyfir- dómarans í Reykjavík, var jörðuð fyrst manna f Hólavallagarði. KB Elsfa leiði í Hólavallagarði er 150 ára 23. nóvember og birtir eitt af fjölmörgum stfldæmum sem Björn Th. Bjömsson fjallar um í nýrri bók sinni, Minningarmörk í Hólavallagarði. Ljósmynd: Pjetur. Hugmyndin er komin frá Birni Th. og segir hann að upphaflega hafi hann vilj að rita kennslubók í stílsögu og táknsögu fslands, sem byggð yrði á 30 ára reynslu sinni af því að ganga með nemendum sínum um garðinn. Við útkomu bókarinnar sagði höf- undur að í Hólavallagarði væri að finna dæmi um allar helstu stílteg- undir í 150 ára stílsögu heimsins með skemmtilegum viðbótum. „Garðurinn er óvenju víður menn- ingarspegill," sagði Björn. Þar kæmi m.a. fram á skýran hátt viðhorfið til lífs, dauða og endurlífs í áletrunum og táknum, en þar væri ekki síður að finna minningarmörk um stéttar- skiptingu. Það væri t.d. ekki fjarri lagi að komið yrði upp formlegu leiði óþekkta þurfamannsins, en leiði þeirra eru mörg hver týnd. Bókin er einnig 130 ára saga stein- höggs á íslandi. Upphaflega átti bókin að fjalla um sögu steinhöggsins og tákna, en 7% minnaverðmætisjávarafurðaog4% meiri almennur innflutn- ingur á fyrri hluta ársins: Vöruskiptin mun óhagstæðari í ár Vöruskipti við útlönd voru ekki eins hagstæð fyrri hluta ársins núna í samanburði við sama tíma í fyrra. Munar 3,4% og er það einkum hægt að rekja til þess að meira var flutt inn af skipum og flugvélum á þessum árshluta en á sama tíma í fyrra, en auk þess fengum við lægra verð fyrir sjávarafurðir okkar. Sjávarafurðir, sem voru 75% alls útflutnings fyrstu sjö mánuði ársins, urðu verðminni og nam sú lækkun tæpum 7% í ár miðað við sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir þessar döpru tölur var vöruskiptajöfnuðurinn í júlí (fob/fob) hagstæður um 269,2 milljónir króna. í fyrra var þessi tala þó hærri og nam 886,4 milljónum króna miðað við fast gengi. Heildarverðmæti innflutnings (fob) varð rúmlcga 33,7 milljarðar króna og því varð vöruskiptajöfnuð- ur miðað við fob-verð óhagstæður um 723 milljónir. Sambærileg tala í fyrra var hagstæð um 2,4 milljarða króna, svo staðan hefur breyst um liðlega þrjá milljarða. Innflutnings- verðmæti verður þó betur mælt í cif-verði þar sem flutningskostnað- urinn til okkar er innifalinn. Cif- verðmætið er á þessum tíma tæplega 37,5 milljarðar og því telst vöru- Heildar útflutningsverðmæti (fob) mánaðanna janúar-júlí s.l. nam rúmlega 33 milljörðum króna. Það sem dró úr útflutningsverðmæti þjóðarinnar var verðfall um 6,7% á sjávarafurðum. Það sem jók útflutn- ingsverðmæti á móti þessu verðfalli á 75% alls útflutnings, var þáttur áls (um 13,4%) og kíslijárns (um 23,5%). Verðmæti útflutnings í flokknum skip og flugvélar, var um 150 milljónum króna lakari þessa mánuði í ár en í fyrra. skiptajöfnuðurinn fob/cif vera tæp- lega 4,5 milljarðar fyrri helming ársins 1988. Fyrir sama tíma í fyrra var þessi tala á föstu gengi tæplega 1,3 milljarðar króna og hefur hallinn því aukist mikið milli ára. Það sem veldur þessu fyrst og fremst er mikill innflutningur á skip- um og flugvélum, en ekki síður að almennur innflutningur hefur aukist um 2,8%. Almennur innflutingur nemur alls um 34 milljörðum af 37 milljörðum króna miðað við cif- verð. Séu olíuviðskiptin frátalin, kemur í ljós 4% aukning á almenn- um innflutningi. Skipa og flugvéla- innflutningur er liður sem er afar breytilegur milli árshluta, en hann var mun meiri fyrri hluta þessa árs miðað við sömu mánuði í fyrra og fast gengi. Þess má geta að án viðskipta álverksmiðju væri réttur vöruskipta- jöfnuður (fob/fob) óhagstæður um tæpa þrjá milljarða króna í stað 723,4 milljóna króna. KB Manndrápið á Lynghaga: Hefur játað verknaðinn 38 ára gamall maður, Bjarni Bernharður Bjarnason búsettur í Reykjavík játaði fyrir sakadómi Reykjavíkur á föstudag að hafa orðið Karli Jóhanni Júlíussyni að bana aðfaranótt þriðjudagsins 15. nóvember á heimili Karls Jóhanns, að Lynghaga 11 í Reykjavík. Á grundvelli játningarinnar hef- ur Bjarni Bernharður verið úr- skurðaður í gæsluvarðhald til 20. janúar nk. auk þess sem honum er gert að sæta geðrannsókn. Bjarni Bernhaður lagði til Karls Jóhanns með eggvopni og lést Karl af vöidum áverkanna, sem hann hlaut. RLR vill ekki gefa upp hvernig atburðurinn átti sér stað, né ástæður fyrir verknaðinum. Bjarni Bemharður var leigjandi hjá Karli Jóhanni um tíma en var fluttur úr húsi hans. -ABÓ ÞROSKAHJÁLP MED ALMANAK Landssamtökin Þroskahjálp, hafa gefið út listaverkaalmanak ársins 1989. Almanakið er unnið í sam- vinnu við félaga í íslenskri grafík, og prýða það þrettán grafíkmyndir eftir íslenska listamenn. Almanakið er einnig happdrættis- miði og er í gildi allt árið. Vinningar eru dregnir út mánaðarlega og eru vinningar að þessu sinni þrírToyota Corolla 1300 XL Liftback og níu 19“ Sony-sjónvarpstæki, samtals að verðmæti um 2,3 milljónir króna. Landssamtökin Þroskahjálp hafa nú starfað í 12 ár. Almanakshappdrættið er megin fjáröflunarleið Þroskahjálpar, og vænta samtökin þess að fólk taki vel á móti sölumönnum þeirra, sem ganga munu í hús um land allt næstu vikurnar. Leiðrétting, stóðhestar f Tímanum s.l. laugardag var fjallað um sölu á nokkrum hestum Stóðhestastöðvarinnar. Þar var m.a. nefndur Smyrill, frá Eyjólfsstöðum í S- Múlasýslu. f fréttinni var lág- marksverð sagt vera kr. 180.000, hið rétta er að lágmarksverð þessa hests er kr. 130.000.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.