Tíminn - 23.11.1988, Síða 13

Tíminn - 23.11.1988, Síða 13
Miðvikudagur 23. nóvember Tíminn 13 ÚTLÖND Varnarmálaráðherrar Norðurlanda: Meira fjármagn til friðargæslu Friðargæslusveitir Sam- einuðu þjóðanna þurfa mun meira fjármagn til að geta haldið starfi sínu áfram, en friðargæslusveitirnar fengu friðarverðlaun Nóbels í haust. Þetta er niðurstaða varnarmálaráðherra Norður- Ianda, en hermenn frá Finn- Iandi, Noregi, Danmörku og Svíþjóð hafa löngum tekið þátt í starfi friðargæslusveit- anna, sérstaklega hafa Finn- ar lagt sig fram við friðar- gæsluna undanfarin ár en þeir hafa stórar hersveitir í liði friðarsveitanna í Líban- on. Varnarmálaráðherrar Danmerk- ur, Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og utanríkisráðherra íslands funduðu í gær í Gautaborg og hvöttu þeir öll ríki Sameinuðu þjóðanna til að sam- þykkja auknar fjárveitingar til friðargæslusveitanna. „Það er gífurlega mikilvægt fyrir trúverðugleika friðargæsluliða að Sameinuðu þjóðirnar sjái um meg- inhluta útgjalda vegna þeirra," sagði Ole Norrback varnarmálaráðherra Finnlands, en hingað til hefur meg- inhluti launa friðargæsluliða verið greiddur af þeim ríkjum sem lagt hafa til herlið. í síðustu viku upplýsti Javier Per- ez de Cuellar aðalritari Sameinuðu þjóðanna að einungis helmingur hinna 159 aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna hafi að fullu greitt aðildar- gjöld sín að Sameinuðu þjóðunum. Er áætlað að kostnaður vegna friða- rgæslusveitanna sé 365 milljónir dollara. Varnarmálaráðherrarnir norrænu sögðu að fjárhagsvandræði friðar- gæslusveitanna yrði að leysa áður en þær tækju að sér ný verkefni í Namibíu þar sem sveitirnar eiga að ieika lykilhlutverk í friðarsamning- um þar. Friðargæsluliði við störf í Líbanon. Þessi er írskur, en hermenn frá Norðurlöndunum hafa tekið virkan þátt í starfi sveitanna. Vamarmála- ráðherrar Norðurlanda hafa nú hvatt til aukinna fjárveitinga til sveitanna svo þær geti betur sinnt hlutverki sínu. „Það væri óraunhæft að einungis irnar,“ sagði norski varnarmálaráð- fá aðildarrríki Sameinuðu þjóðanna herrann Johan Jorgen. yrðu beðin um að fjármagna sveit- Ólgan heldur áfram í Júgóslavíu vegna þjóðarbrota: Ekkert lát á mótmælum Þúsundir manna þrömmuðu um stræti borga og bæja víðs vegar um Júgóslavíu til að mótmæla kröfum Serba, en leiðtogar þeirra hafa farið fram á að leiðtogar uppreistar alb- anska minnihlutans í landinu verði fangelsaðir. Albanir í Kovosohéraði héldu í gær í mótmælagöngur fimmta daginn í röð, en Serbar hafa krafist þess að Kovoso verði að nýju sameinað Serbíu og verði undir stjórn serb- nesku stjórnarinnar. Nú hefur Kos- ovo víðtæka sjálfstjórn, en í hérað- inu er fólk af albönsku bergi brotið í meirihluta. í Slóvaníu sem er í hinum enda Júgóslavíu héldu um fimmtán þús- und manns í mótmælagöngur gegn hugmyndum Serba, en Slóvanar, sem eru mjög vestrænir í alla háttu óttast að jafnvægi milli lýðvelda er mynda Júgóslavíu raskist ef Serbar fá að nýju yfirstjórn í Kosovo. Serbía er stærsta lýðveldið og var Kosovo tekið undan beinni stjórn Serbíu árið 1974 fyrir tilstuðlan Títós sem vildi tryggja jafnvægi milli lýð- veldanna. Leiðtogi kommúnistaflokksins í Serbíu, Slobodan Milosevic krafðist þess í ræðu sinni á þingi serbneska kommúnistaflokksins á mánudag að þeir menn er ýta undir þjóðernis- hreyfingu Albana verði fangelsaðir. „Albanskar stúlkur og piltar, fórn- arlömb innrætingar, eiga að fá að halda heim til foreldra sinna eins fljótt og unnt er. Þeir sem eiginlega eru ábyrgir fyrir þjóðarmorðum og hryllingi í Kosovo ættu að fangelsa í þeirra stað. Það eru aðallega börn sem hafa þurft að gjalda fyrir upp- reisnina ekki þeir sem leitt hafa gagnbyltinguna,“ sagði Slobodan Milosevic í ræðu sinni. Milosevic vísar til þess að hundruð ungra Albana voru handtekin eftir óeirðir er brutust út í Kosovo árið 1981 þegar albanskir þjóðernissinn- Blóðið rann í fjallahéruðum Perú um helgina þar sem áttust við stjórnarherinn og skæruliðar maó- ista. Sjö hermenn og tuttugu og fimm skæruliðar lágu í valnum eftir bardaga helgarinnar. í harð- asta bardaganum sem átti sér stað í Apurimac héraði í suðausturhluta Perú féllu tuttugu og tveir menn þegar skæruliðar gerðu tveimur herflutningabílum fyrirsát. Árásin var skæruliðum Sendero Luminoso ar vildu sameina Kosovo Albaníu. Er talið að Milosevic sé að ráðast gegn þeim Albönum sem fylgt hafa þjóðernisstefnu innan kommúnista- flokksins. Þúsundir mótmælenda söfnuðust saman í Pristina höfuðborg Kosovo til að mótmæla afsögn Kacusa Jasari og Azem Vkasi, en þeim var vikið úr stjórnarnefnd kommúnistaflokks- ins í Kosovo vegna þrýstings frá Serbum. eða Skínandi vegar dýr því þó þeir hafi fellt sjö hermenn þá misstu þeir fimmtán úr sínu liði. Tíu skæruliðar í viðbót féllu í bardögum í Huanta og Huancavel- ica héruðum í suðurhluta landsins. Rúmlega fimmtánþúsund manns hafa fallið í bardögum og árásum Sendero Luminoso skæruliða gegnum tíðina ef marka má opin- berar tölur stjórnvalda. Blóð rennur í landi Inkanna Stórt úrval rókókó-stóla Mjög gott verð Húsgagnasýning um helgina TMHÚSGÖGN SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822 Umboðsmenn Tímans: Kaupstaöur: Nafn umboðsmanns Heimili Simi Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195 Kópavogur Linda Jónsdóttir Holtagerði 28 45228 Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195 Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883 Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771 Njarðvik Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826 Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261 Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata26 93-71740 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Ólafsvik LindaÓlafsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269 Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629 Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447 ísafjörður Jens Markússon HnifsdalsvegilO 94-3541 Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366 Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673 Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503 Bíldudalur HelgaGísladóttir TjarnarbrautlO 94-2122 Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131 Hólmavík ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132 Hvammstangi FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485 Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581 Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772 Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-5311 Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555 Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016 Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308 Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258 Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350 Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467 Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626 Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167 Eskifjörður ÞóreyÓladóttir Svínaskálahlíð19 97-61367 Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu8 97-51239 Stöðvarfjörður Svava G. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839 Djúpivogur ÓskarGuöjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857 Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317 Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389 Þörlákshöfn Þórdis Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813 Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu 28 98-31198 Stokkseyri Friðrik Einarsson Íragerði6 98-31211 Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179 Hvolsvöllur Jón ína og Árný Jóna Króktún 17 98-78335 Vík ViðirGylfason Austurveg 27 98-71216 Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192 BROSUM / og v alltgengurbetur ^ Vandamönnum og vinum, sem sendu mér hlýjar kveðjur, blóm, heillaskeyti og gjafir á 80 ára afmælisdegi mínum sendi ég alúðar kveðjur og þakkir. Guð blessi ykkur. Björn Stefánsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.