Tíminn - 15.12.1988, Page 7
Fimmtudagur 15. desember 1988
Tí.minn 7
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segir að fjáröflunarleiðir ríkis-
stjórnarinnar grundvallist á hvaða tekjuöflunarfrumvörp komist í gegn á þingi:
Verðhækkun í
verðstöðvun?
Ekki hafa neinar tímasetningar verið settar á hugsaniega
hækkun á tóbaki, áfengi og bensíni. Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra vildi ekkert segja um hvenær hækkanir af
þessu tagi tækju gildi, en hann sagðist mundu leggja til að
a.m.k. tóbak og áfengi yrði hækkað og ef til vill einnig bensín.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagði að þetta hefði
verið rætt innan ríkisstjórnarinnar
en engin endanleg ákvörðun tekin
um málið. „Þetta fer mjög eftir því
hverju okkur tekst að ná fram á
Alþingi í tekjuöflun. Komi stjórnar-
andstaðan í veg fyrir okkar markmið
í því sambandi kann að Verða að
grípa til einhverra slíkra ráða,“ sagði
Steingrímur. Hann bætti við að þetta
yrði ef til kæmi mjög erfið ákvöröun
í gildandi verðstöðvun og yrði þá í
þessum liðum að hverfa frá verð-
stöðvuninni. Eiður Guðnason viður-
kenndi að um þetta hefði verið rætt
en sagði að eitt væri að samþykkja
verðhækkanir og annað hvenær þær
kæmu til framkvæmda. Af þeim
orðum má ráða að alþýðuflokks-
menn séu tregir til að samþykkja
hækkanir fyrir lok febrúar þegar
verðstöðvun lýkur.
Er Tíminn hafði samband við
Georg Ólafsson hjá Verðlagsstofnun
kvaðst hann ekki hafa fengið nein
gögn í hendurnar um hugsanlegar
hækkanir á bensíni, áfengi og tóbaki
og gæti þess vegna ekki tjáð sig um
málið. Þegar og ef kemur til þessara
hækkana þarf ekki að gera það með
lagasetningu heldur er það gert með
útgáfu reglugerðar frá viðkomandi
ráðherra. Hækkun vara í verðstöðv-
un er ekki brot á lögum þar sem hún
er heimildarákvæði í lögum um verð-
lagseftirlit og verðlagsráð. Pað er
því þeirrar ríkisstjórnar sem þessu
ákvæði beitir að ákveða á hvaða
vörum ríkir verðstöðvun og á hverj-
um ekki. -ág
Stal bifreið
frá höfninni
Brotist var inn í bækistöð
Reykjavíkurhafnar við Hólmaslóð
12 aðfaranótt laugardags og þaðan
stolið bifreið og handtalstöðvum.
Þá var einnig um svipað leyti
brotist inn í Hafnarböðin á
Grandagarði og stolið þaðan vind-
lingum, skafmiðum og sælgæti.
Skömmu áður en þessi innbrot
voru tilkynnt stoppaði lögreglan
bifreið í miðborginni, sem síðar
kom í ljós að hafði verið stolið frá
Reykjavíkurhöfn. Maðurinn sem
tekinn var á bílnum er um tvítugt
og oft komið við sögu lögreglu
áður. Hann hefur verið úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald til 22. febrúar á
næsta ári og mun vera um svokall-
aða síbrotagæslu að ræða. -ABÓ
Kaup á „jólaseríum":
Eiga að vera
viðurkenndar
Þeir sem hyggjast kaupa Ijósa-
samstæðu, eða s.k. „jólaseríu“,
ættu að hafa í huga að allar ljósa-
samstæður eru prófunarskyldar hjá
Rafmagnseftirliti ríkisins. Ljósa-
samstæður sem eru til sölu eiga að
vera merktar þannig að Ijóst sé að
þær hafi verið viðurkenndar af
Rafmagnseftirlitinu, einnig eiga að
fylgja þeim upplýsingar og leið-
beiningar á íslensku.
Hjá Rafmagnseftirlitinu fengust
þær upplýsingar að fyrir hver jól
eru dæmi um það að kaupmenn
dragi fram gamlan lager af ljósa-
samstæðum sem ekki hafa verið
viðurkenndar, þó slíkum tilvikum
hafi farið fækkandi á allra síðustu
árum. SSH
ÁSCEIR
JAKOBSSON
ÞATTURAF
SICURÐI SKURÐI
OC SKÚLA
SÝSLUMANN! I
SKUCGSJÁ'
ÞÓRÐIIR KAKALI
Ásgeir Jakobsson
Þórður kakali Sighvatsson var
stórbrotin persóna, vitur
maður, viljafastur og mikill
hermaður, en um leið
mannlegur og vinsæll. Ásgeir
Jakobsson hefur hér ritað
sögu Þórðar kakala, eins
mesta foringja Sturlunga á
Sturlungaöld. Ásgeir rekur
söguna eftir þeim
sögubrotum, sem til eru
bókfest af honum hér og þar í
Sturlungusafninu, í Þórðar
sögu, í Islendinga sögu, í
Arons sögu Hjörleifssonar og
Þorgils sögu skarða og einnig í
Hákonar sögu. Gísli
Sigurðsson myndskreytti
bókina.
SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OIIVERS STEINS SF
Saeinn fra Efe.
ii«»i
L/t'Áisaj
skucgsjA
ANDSTÆÐUR
Sveinn frá Elivogum
Andstæður hefur að geyma
safn ljóða og vísna Sveins frá
Elivogum (1889-1945). Þessi
ljóð og vísur gefa glögga
mynd af Sveini og viðhorfum
hans til lífs, listar og sam-
ferðamanna. Sveinn var bjarg-
álna bóndi í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta
þessarar aldar. Hann var eitt
minnisstæðasta alþýðuskáld
þessa lands og þótti mjög
minna á Bólu-Hjálmar í kveð-
skap sínum. Báðir bjuggu þeir
við óblíð ævikjör og fóru síst
varhluta af misskilningi sam-
tíðarmanna sinna.
PÉTUR
ZOT-ONÍASSON
VKINGS
LÆKJARÆTT
NÍL'A T AL OO.Æ StXi f T‘.
- RfiírÞFii! JÓEAÁ '/iKvMir-i.-í. K.
FANGINN OG DOMARINN
Þáttur af Sigurdi skurdi
og Skúla sýslumanni
Ásgeir Jakobsson
Svonefnd Skurðsmál hófust
með því, að 22. des. 1891
fannst lík manns á skafli á
Klofningsdal í Önundarfirði.
Mönnum þótti ekki einleikið
um dauða mannsins og féll
grunur á Sigurð Jóhannsson,
sem kallaður var skurdur, en
hann hafði verið á ferð með
þeim látna daginn áður áK
Klofningsheiði. Skúla sýslu-
manni fórst rannsókn málsins
með þeim hætti, að af hlauzt
5 ára rimma, svo nefnd Skúla-
mál, og Sigurður skurður, sak-
laus, hefur verið talinn morð-
ingi í nær 100 ár. Skurðsmál
hafa aldrei verið rannsökuð
sérstaklega eftir frumgögnum
og aðstæðum á vettvangi fyrr
en hér.
VIKINGSLÆKJARÆTTIV
Pétur Zophoníasson
Þetta er Ijórða bindið af niðja-
tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar hrepp-
stjóra á Víkingslæk. Pétur
Zophoníasson tók niðjatalið
saman, en aðeins hluti þess
kom út á sínum tíma. í þessu
bindi eru i-, k- og I-liðir ættar-
innar, niðjar Ólafs og Gizurar
Bjarnasona og Kristínar Bjama-
dóttur. í þessari nýju útgáfu
Víkingslækjarættar hefur tals-
verðu verið bætt við þau drög
Péturs, sem til voru í vélriti, og
auk þess er mikill fengur að
hinum mörgu myndum, sem
fylgja niðjatalinu. í næsta bindi
kemur svo h-liður, niðjar Stefáns
Bjarnasonar.