Tíminn - 12.01.1989, Síða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Halnorhúsinu v/Tryggvagölu, UERÐBRÉFfðDBSKIPTI
SAMVINNUBANKANS
S 28822 SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
- m * * ÞRÖSTUR
Samkort 685060
ALÍSLENSKT GREIÐSLUKORT VANIR MENN
■i
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR 1989
ekkibaraheppni
í
Nú er til mikils að vinna í íslenskum Getraunum. '
Á síðustu tveimur vikum hefur engin röð komið fram með 12 réttum. > „ _
Þess vegna er þrefaldur pottur /\
-ogþreföldástáeðatilaðverameð! / V
Láttu nú ekkert stöðva þig. /
Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. , '
Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon:
Niöurstöðu samgönguráöherra
um mál Ferðaskrifstofu
íslands aö vænta fljótlega:
Enn í með-
ferð hjá
ráðuneyti
„Mál Ferðaskrifstofu ríkisins/-fs-
lands er enn til ákveðinnar meðferð-
ar hér hjá ráðuneytinu og það hefur
dregist meira en ætiunin var, að
ganga frá því,“ sagði Steingrímur
Sigfússon samgönguráðherra.
Samgönguráðherra sagði Tíman-
um að ýmis ákvæði í lögunum og
samningum við þessi kaup, svo sem
um forkaupsrétt væru óskýr og nær
hefði verið í upphafi að skýrar hefði
verið kveðið á þar og um þann vilja
alþingismanna, að starfsmennirnir
eignuðust og rækju ferðaskrifstof-
una.
Hann sagðist ekki vilja tjá sig um
þetta mál í einstökum atriðum, en
niðurstöðu ráðuneytisins væri að
vænta fljótlega.
Steingrímur sagði að Ferðaskrif-
stofa íslands starfaði, þrátt fyrir
athugunina, með eðlilegum hætti og
með fullri vitund og vilja ráðuneytis-
ins.
Eins og fram hefur komið var
stofnað hlutafélagið Ferðaskrifstofa
fslands sl. haust og keyptu starfs-
menn Ferðaskrifstofu ríkisins meiri-
hluta í fyrirtækinu á móti ríkinu og
eignaðist Ferðaskrifstofa íslands
eignir og viðskiptavild Ferðaskrif-
stofu ríkisins.
Lög um þessa sölu voru samþykkt
á síðasta þingi og var mál margra að
starfsmennirnir hefðu fengið hlut
sinn á góðu verði sakir velþóknunar
alþingismanna á einkaframtaki
þeirra.
Fljótlega fóru að heyrast raddir
um að Eimskipafélag íslands stæði
tilbúið að kaupa upp eignarhlut
starfsmannanna sem vart væru borg-
unarmenn fyrir honum.Hefði Eim-
skip trúlega frá upphafi haft hug á
Ferðaskrifstofunni enda um nokkurt
skeið verið að leita leiða til að
fótfesta sig í greininni.
Málið lenti því inn á borð sam-
gönguráðherra sem lýsti því yfir að
hann teldi óeðlilegt og gegn anda
laganna um sölu Ferðaskrifstofu
ríkisins að hún lenti (a.m.k. svo
fljótt) í höndum annarra aðila en
starfsmannanna og til greina kæmi
að kaupin gengju til baka.
Mótrökin voru hins vegar þau að
starfsmennirnir hefðu keypt sinn
hluta og mættu ráðstafa honum eins
og öðrum eigum sínum. -sá