Tíminn - 19.01.1989, Qupperneq 2
2 Timinn
t)t\i ► YV/iV P.f '.LLubuTALH
Fimmtudagur 19. janúar 1989
Aðstandendur kvikmyndarinnar Meffi fara fram á 200 milljóna kr. ríkisábyrgð á erlendum lánum og vilja 48 milljónir úr Kvikmyndasjóði:
Nær að styrkja Bíó en
loðdýrin og fiskeldið
íslcnskir aðilar hafa gert dreifingarsamning við Columbia
Pictures. Samningurinn tryggir þeim hundrað milljóna króna
lágmarkstekjur af kvikmyndinni Meffi. Þá hafa þeir farið
fram á tæplega tvö hundruð milljóna króna ríkisábyrgð vegna
kostnaðar og segja kvikmyndagerð geta verið ábatasamari
iðngrein en fiskeldi og loðdýrarækt.
Tveir aðalleikara myndarinnar Meffi, þau Helgi Björnsson sem leikur Þór
og Ylfa Edelstein sem leikur Dísu.
í maí hefjast tökur á kvikmynd-
inni Meffi hér á landi. En ráðgert er
að frumsýna hana um mitt næsta ár
erlendis og ef til vill heldur fyrr hér.
Meffi er spennumynd sem gerist á
íslandi, á Sikiley og í Marseilles.
Myndin verður alfarið íslensk fram-
leiðsla. En jafn kostnaðarsöm mynd
hefur ekki áður verið framleidd á
Norðurlöndum.
Leikarar verða bæði íslenskir og
amerískir, meðal annarra Eric
Roberts, Helgi Björnsson og Ylfa
Edelstein. Þá standa yfir samninga-
viðræður við fleiri erlenda leikara
sem eru eins og Hilmar Oddsson
leikstjóri og einn handritshöfunda
Meffi orðaði það „ekki minni nöfn
en Eric og kannski þekktari".
Ætlunin er að hver leikari muni
tala sitt móðurmál nema í samtölum
íslenskra persóna og þeirra ensku-
mælandi, en þá verður enska notuð.
„Þetta getur gefið henni ansi
skemmtilegan blæ. Við munum leika
okkur svolítið með andstæður, út-
lendinga sem koma hingað með
byssur á lofti og viðbrögð íslendinga
við því,“ sagði Hilmar.
Skífan hf. mun annast dreifingu
myndarinnar og hefur verið undirrit-
aður samningur við Columbia Pic-
tures um dreifingu hennar utan
Bandaríkjanna og Kanada. Einnig
standa yfir samningaviðræður við
fyrirtæki um dreifingu Meffi innan
þessara landa.
Samningurinn við Columbia Pic-
tures er hinn stærsti sem gerður
hefur verið um norræna kvikmynd
og tryggir framleiðendum hundrað
milljóna króna lágmarkstekjur.
„Fyrir tveimur árum gerði ég
dreifingarsamning við Columbia
Pictures um dreifingu myndarinnar
„Eins og skepnan deyr“ á mynd-
bandi og má segja að þetta sé
einskonar framhald þess samnings,“
sagði Jón Ólafsson framleiðandi
Meffi og stjórnarformaður Skífunn-
ar hf..
Petta er gcysilega viðamikið fyrir-
tæki en áætlaður kostnaður við gerð
myndarinnar er um tvö hundruð
milljónir króna. „Munurinn á þess-
ari mynd og öðrum þeim íslensku
myndum sem gerðar hafa verið er
nokkuð mikill. Ef til vill sá helstur
að þó ekki standi til að ríða um
héruð eins og einhverjir Hollywood
mógúlar með risafurur á annan
hvern sand sem fyrir verður þá mun
skipið ekki verða undirmannað eins
og gjarnan hefur viljað brenna við,“
sagði Hallur Helgason sem aðstoðar
við framleiðslu Meffi. Hilmar bætti
því við að „íslendingar munu kynn-
ast kvikmyndagerð eins og hún gerist
hvað fagmannlegust og vonandi
kemur samstarfið öllum til góða.“
Þegar hafa farið tíu milljónir í
kynningu myndarinnar, hundrað
milljónir fást frá Columbia en þá er
eftir sem áður stórt bil sem ekki
hefur verið brúað. „Við höfum því
farið þess á leit við ríkisstjórn íslands
að hún veiti þessu fyrirtæki, Bíó hf.,
ríkisábyrgð upp á fjórar milljónir
dollara," sagði Jón. Hann taldi ekki
að þetta væri óeðlileg bón og benti
til samanburðar á fjárútlát ríkis-
stjórnarinnar til fiskeldis og loðdýra-
ræktar sem ekki væru eins arðbærar
iðngreinar og kvikmyndagerð gæti
verið. „Hér er aðeins fyrsta skrefið
stigið í þá átt að við gerum kvik-
myndir fyrir alþjóðamarkað."
Þá hefur þess verið farið á leit við
Kvikmyndasjóð að hann veiti Bíó
hf. lán upp á eina milljón dollara
sem verði endurgreitt ef hagnaður
næst af myndinni. Kvikmyndasjóður
hafði áður veitt upphaflegu handriti
myndarinnar tíu milljóna króna
styrk. Þessi styrkur var svo afturkall-
aður vegna þess að breytingar hand-
ritsins þóttu hafa orðið of miklar frá
upphaflegu gerðinni.
Söguþráður myndarinnar er eitt-
hvað á þá leið að Jack, sonur bófa-
foringja, ætlar að endurheimta virð-
ingu föður síns með því að koma í
umferð nokkru magni fíkniefna.
Hann bíður sendingarinnar í Mar-
seilles en fyrir misskilning hafnar
hún í Reykjavík. Jack fer til íslands
og kynnist þar járniðnaðarmannin-
um Þór sem hefur aðgang að skipinu.
Þór neitar að þiggja mútur og færa
glæpamönnunum sendinguna. Þá
rænir Jack kærustunni hans, Dísu.
Þór snýr vörn í sókn, frelsar Dísu og
þau halda til fjalla með eiturlyfin en
Jack eltir fullur hefndarþorsta.
jkb
Orösending frá Ögmundi Jónassyni, form. BSRB:
Kjarabót að jarð-
tengja Sverri
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB
Sverrir Hermannsson skrifar í
blöð og vill réttlæta tilraunir sfnar til
þess að halda uppi háum vöxtum.
Hann veitist að undirrituðum í
bundnu máli og óbundnu fyrir að
benda á að heppilegt gæri verið að
setja talsmenn hávaxta í bankakerf-
inu á taxtakaup almenns launa-
manns - t.d. almenns bankastarfs-
manns - og láta þá síðan kaupa íbúð
á þeim kjörum sem þeir búa almenn-
ingi, og vita þá hvort ekki kæmi
annað hljóð í strokkinn.
Að sjálfsögðu vill fólk vernda
sparifé, en fyrr má nú rota en
dauðrota og það er í rauninni maka-
laust af hve mikilli léttúð þessir
menn tala um vaxtabreytingar. Fyrir
aðeins örfáum árum þóttu 5% raun-
vextir háir vextir á íslandi. Þá hefðu
10% raunvextir eins og þekkst hefur
undanfarna mánuði réttilega verið
flokkaðir undir okur.
Munurinn á þessum vaxtaprósent-
um er hvorki meira né minna en 50
þúsund á hverja milljón á ári umfram
vísitölubætureða 100 þúsund krónur
á hverjar tvær milljónir sem ekki er
óalgengt að húsnæðiskaupendur taki
að láni í bankakerfinu. Það eru
tveggja mánaða taxtalaun meðal-
tekjumanns í BSRB.
Er að undra þótt félagsmenn þar
sæu það sem meiriháttar kjarabót að
setja Sverri Hermannsson í jarðsam-
band.
Islendingur beið
bana í Svíþjóð
Athugasemd
Gunnar Sveinsson fram-
kvæmdastjóri BSÍ hafði samband
við Tímann í gær vegna fréttar
okkar af útafakstri Mosfellsleiðar
í fyrradag. Gunnar vildi leiðrétta
þann misskilning sem fram kom í
fréttinni að í fyrra hefði Mosfells-
leið farið útaf á sama stað. Sagði
Gunnar að ekki hefði verið um
að ræða rútu frá Mosfellsleið í
fyrra. Tíminn biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
íslenskur karlmaður lést í umferð-
arslysi í Svíþjóð sfðastliðinn föstu-
dag. Var hann akandi í bifreið sinni
ásamt konu sinni og fimm börnum,
þegar þau lentu í árekstri við annan
bíl, með þeim afleiðingum að mað-
urinn lést og konan handleggsbrotn-
aði. Utanríkisráðuneytið hefur litlar
upplýsingar um málið og því er ekki
hægt að birta nafn mannsins að svo
stöddu. Fjölskyldan var búsett í
Svíþjóð og maðurinn starfaði hjá
SAS flugfélaginu. - ES
Eiturefni lenda ásorphaugum og í holræsum:
Ekkert eftirlit
á sorphaugunum
Tíminn greindi frá því í gær að
ekkert virkt eftirlit væri hér á landi
með förgun eiturefna. Mikill hluti
þeirra efna sem til falla, t.d. í
iðnaði, lenda því á sorphaugunum
eða í holræsunum.
Á sorphaugunum virðist lítið
sem ekkert vera fylgst með því
hvaða úrgangur er keyrður þar
inn. í vðtali við umsjónarmann
sorphauganna í Gufunesi kom
fram að starfsmennirnir þar hafa
enga fræðslu fengið í meðferð
eiturefna eða hvaða úrgangur geti
hugsanlega innihaldið hættuleg
efni. Einfaldri lausn eins og þeirri
að láta starfsmennina fá lista yfir
hættulegan úrgang hefur ekki verið
beitt.
í reglum um sorpeyðingu er að
vísu kveðið á um hvernig fyrirtæki
eins og lyfjafyrirtæki eigi að ganga
frá úrgangi, þær reglur duga þó
skammt þar sem enginn aðili fylgist
skipulega með að eftir þeim sé
farið.
Nokkrir aðilar eins og Hollustu-
vernd ríkisins, Vinnueftirlit ríkis-
ins, Eiturefnanefnd og Náttúru-
verndarráð fjalla vissulega um eit-
urefni og eitraðan úrgang en staða
þessara mála er þannig, að fylgst er
með þeim eitruðu efnum sem flutt
eru inn í landið en enginn aðili sér
um framkvæmd raunverulegs eftir-
lits með því hvað verður um þessi
efni, þ.e. hvernig þeim er fargað.
Tíminn hafði samband við Þór-
odd Þóroddsson, framkvæmda-
stjóra Náttúruverndarráðs, og
spurði hann að því hvort ráðið
hefði beitt sér skipulega fyrir því
að ráðin yrði bót á þessum málum.
„Náttúruverndarráð hefur haft
samvinnu við Hollustuvernd ríkis-
ins sem fer með þessi mál og
eiturefnanefnd varðandi meðferð
á allskonar úrgangi, í sjálfu sér
hefur ekki verið fjallað sérstaklega
um eiturefnin. Við höfum að vísu
lagt áherslu á að þessi mál séu
tekin fyrir og þá í fyrsta lagi hvaða
efni eru í umferð í landinu. Það er
vitað hvaða efni eru flutt inn en
það vantar eftirlit með því hvað
verður um þau.“
Þóroddur sagði jafnframt:.
„Náttúruverndarráð er eingöngu
umsagnaraðiii. Ráðið á einnig að
vera aðili sem getur tekið upp
málefni og vakið athygli stjórn-
valda á þeim.“ SSH