Tíminn - 19.01.1989, Side 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 19. janúar 1989
Tilboð umboðsmanna bjórs til ÁTVR opnuð í dag:
CARLSBERG, URQUELL
OG PRIPPS1. MARS?
Tilboð bjórframleiðenda og -umboðsmanna um bjór
sem fáanlegur verður í verslunum ÁTVR verða opnuð í
dag.
Eins og fram hefur komið bauð ÁTVR út bjórinn og er
ætlunin að taka þeim tilboðum sem hagstæðust verða
fyrirtækinu.
Umboðsmenn eru nú í landinu
fyrir gríðarmörgum tegundum frá
flestum löndum heims, sem á ann-
að borð framleiða bjór. Því hefur
hins vegar verið marg lýst yfir af
hálfu forráðamanna ÁTVR að
aðeins verði á boðstólum þrjár
erlendar tegundir bjórs og tvær
innlendar.
Erlendu bjórtegundirnar skulu
vera þekktar meðal íslendinga auk
þess að tilboðið verði hagstætt
ÁTVR. Bjóráhugamönnum finnst
því líklegast að Carlsberg verði
fáanlegur í Ríkinu þar sem hann sé
einn þekktasti bjór á íslandi og
jafnframt einn þekktasti bjór í
heiminum. Þá telja þessir sömu
bjórfræðimenn blaðsins að Pripps
frá Svíþjóð sé afar líklegur þar sem
hann hafi verið kynntur rækilega
að undanförnu auk þess sem áfeng-
islausi Pripps dósabjórinn hafi selst
vel á íslandi að undanförnu.
Af öðrum erlendum bjórtegund-
um spá bjóráhugamenn því að val
ÁTVR forystunnar standi einkum
milli Heineken frá Hollandi, Bud-
weiser frá BNA, Budweiser frá
Tékkóslóvakíu, Urquell frá Tékk-
óslóvakíu og Tuborg frá Dan-
mörku.
Pað flokkast ef til vill að ein-
hverra áliti undir kaldhæðni örlag-
anna að fyrsta bjórsöludaginn, 1.
mars n.k., ber upp á miðvikudag
sem í eina tíð var „þurr dagur." Pá
voru barir lokaðir og ekki afgreitt
áfengi á vínveitingahúsum. - sá
Nýtt umboð
fyrir Hyster
lyftarana
íslenska umboðssalan hf. hefur að
mestu sérhæft sig í útflutningi fram
til þessa. f kjölfar aukinna umsvifa í
innflutningi hefur hún yfirtekið um-
boð fyrir Hyster lyftara.
Hjá fyrirtækinu hefur nú verið
tekin sú ákvörðun að bjóða við-
skiptamönnum 20% verðlækkun
varahluta í þessa lyftara fram til 15.
febrúar.
Hyster lyftaraframleiðendur
bjóða upp á margar gerðir lyftara,
allt frá handlyftivögnum upp í 47
tonna gámalyftara og er framleiðsla
þeirra á sviði rafmagns, gas og diesel
lyftara. Auk þess framleiða þeir
varahluti í allar helstu lyftarategund-
ir sem notaðar eru í Evrópu. jkb
í skýrslu sem félagsmálaráðherra mun leggjafram
á þingi Norðurlandaráðs kemur fram
að okkar helstu mengunarvaldar eru:
Drauganet
og plastið
Með samnorrænu átaki verður leitast við að draga úr
mengun á Norðurlöndum og hafsvæðinu í kringum þau.
Stemma skal stigu við notkun ósoneyðandi efna, setja
hreinsibúnað á alla bíla, safna saman ónýtum rafhlöðum og
margt fleira. Einnig verður mikil áhersla lögð á mengunar-
varnir hafsins þó ekki hafi allir staðið sig í stykkinu við
fullgildingu Hafréttarsáttmálans.
Fulltrúar hvers Norðurlandanna
um sig munu leggja fram skýrslur
um stöðu mengunarmála og aðgerðir
vegna þeirra í sínu heimalandi á
Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi
í lok febrúar komandi. Fulltrúi fs-
lendinga á þessu þingi verður Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra.
Skýrsla íslendinga er unnin af
Siglingamálastofnun og kennir þar
margra grasa. Par kemur til að
mynda fram að einn helsti mengun-
arvaldur í hafinu við ísland eru
drauganet og kaðlar úr gerviefnum.
Auk þessa eru plasthlutir og mulið
einangrunarplast sem sjávardýr
gleypa mikill skaðvaldur.
í skýrslunni kemur einnig fram að
gert er ráð fyrir uppbyggingu kerfis
til að safna saman hættulegum raf-
hlöðum. Petta er þegar gert í Sví-
þjóð og er ekki að efa að íull þörf er
á þessum aðgeröum hér á landi.
Pá er gert ráð fyrir að hreinsibún-
aður fyrir útblástur bifreiða verði
kominn í allar tegundir bíla í síðasta
lagi árið 1995. Undirbúningur þessa
er kominn vel á veg hjá öðrum
Norðurlöndum. Petta er afar brýnt
verkefni vegna heilsuspillandi áhrifa
útblástursins auk tjóns sem hann
getur unnið á mannvirkjum.
í framhaldi af umfjöllun á auka-
þingi Norðurlandaráðs í Helsingör
hefur félagsmálaráðherra undirritað
áætlanir ásviði umhverfismála. Þess-
ar áætlanir undirrituðu einnig um-
hverfisráðherrar Norðurlandanna
og verður þeim hrint í framkvæmd
nú þegar. Fundur ráðherranna fór
frani í Helsinki tíunda þessa mánað-
ar.
Leitað verður nýrra leiða við
framkvæmd viðfangsefna sem voru í
fyrri samstarfsáætlunum en einnig er
í áætlununum ýmis nýmæli að finna.
Sem dæmi um nýjar aðgerðir má
nefna framkvæmdaáætlanir varð-
andi hvernig draga megi úr notkun
ósoneyðandi efna. Ríkisstjórn ís-
lands hefur samþykkt áætlun þar
sem stefnt er að minnkun notkunar
þessara efna um ein 38,8% fyrir árið
1991.
Reynt verður að draga úr mengun
hafsins og notkun PBC verður bönn-
uð frá árslokum 1994. Þá mun verða
fylgst mjög gaumgæfilega með ást-
andi hafsvæða.
Á fundinum vakti ráðherra athygli
á að jafnvel þó öll Norðurlöndin
hefðu skorað á þjóðir heims að
fullgilda Hafréttarsáttmála Samein-
uðu |rjóðanna sem fyrst, er ísland
hið eina þeirra sem það hefur gert
enn sem komið er.
Þá var á þessum fundi ráðgert að
veita lán til landa utan Norðurland-
anna til framkvæmda mengunar-
varna. Norræni fjárfestingarbankinn
í Helsinki mun standa á bak við þau
lán og standa vonir til að fram-
kvæmdirnar verði til að draga úr
mengun sem berst til Norðurlanda
frá nágrannalöndunum. jkh
Samningur um eignaraðild Öryrkjabandalags íslands að Bréfaskólanum undirritaður, frá vinstri Ásgerður
Ingimarsdóttir, Arnþór Helgason, Þráinn Hallgrímsson og Guðrún Friðgeirsdóttir.
___ Öryrkjabandalagið í Bréfaskólann
Eigendurnir eru
núna orðnir sjö
Nú hefur verið gengið frá því að
Öryrkjabandalag íslands gerist með-
eigandi að Bréfaskólanum. Pað var
Samband íslenskra samvinnufélaga
sem stofnaði skólann á sínum tíma,
en í áranna rás hafa fleiri aðilar bæst
við. Auk Sambandsins hafa eigendur
undanfarið verið Alþýðusamband
íslands, Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja, Farmanna- og fiskinranna-
samband íslands, Kvenfélagasam-
band Islands og Stéttarsamband
bænda.
Samningur um aðild Öryrkja-
bandalagsins var undirritaður á
dögunum af þeim Guðrúnu Frið-
geirsdóttur skólastjóra og Práni
Hallgrímssyni stjórnarformanni af
hálfu Bréfaskólans, og af Arnþóri
Helgasyni formanni Öryrkjabanda-
lagsins og Ásgerði Ingimarsdóttur
framkvæmdastjóra þess. Með eign-
araðild Öryrkjabandalagsins er brot-
ið blað í sögu Bréfaskólans, og mun
þetta samstarf án efa styrkja þá
þróun skólans sem nú þegar er farin
vel af stað.
Félaga Öryrkjabandalagsins mun
Fjölmiðlakennslunefnd
Menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd um fjölmiðlakennslu
á öllum skólastigum. Gert er ráð
fyrir að hún ljúki störfum fyrir
fyrsta júní næstkomandi.
Nefndinni er ætlað að gera tillög-
ur um markmið fræðslu um fjöl-
miðla í grunnskólum og huga að
því að þessi fræðsla verði hluti
ýmissa námsgreina til að mynda
íslensku og samfélagsgreina.
Einnig á nefndin að leggja fram
tillögur um markmið og framtíðar-
skipan fjölmiðlakennslu í fram-
haldskólum.
Þá mun nefndin eiga að gera
tillögur varðandi kcnnslu í hagnýtri
fjölmiðlun við Háskóla íslands til
menntunar starfsmanna við blöð
og aðra fjölmiðla.
Formaður nefndarinnar er Por-
björn Broddason dósent, en aðrir
nefndarmenn eru: Höskuldur Þrá-
insson prófessor, Inga Sólnes for-
maður Félags félagsfræðikennara,
Lúðvík Geirsson formaður Blaða-
mannafélags íslands, Sigrún Stef-
ánsdóttir framkvæmdastjóri fjar-
kennslunefndar og Örn Jóhanns-
son fornraður Félags íslenska
prentiðnaðarins. jkb
það skipta miklu að hægt verður að
vinna markvisst að gerð námsefnis
fyrir fatlað fólk og koma til móts við
menntunarþarfir þess á viðunandi
hátt. Stór hópur fatlaðra þart' á
starfsnámi og endurmenntun að
halda, og af hálfu Bréfaskólans er
því fagnað að fá þetta tækifæri til að
taka þátt í fullorðinsfræðslu af þessu
tagi.
í dag gegnir Bréfaskólinn sívax-
andi hlutverki í fullorðinsfræðslu í
landinu. Með stofnun hans voru á
sínum tíma stigin fyrstu skrefin í
fjarkennslu á íslandi. Á liðnum
áratugum hefur hann veitt fjölmörg-
um, sem ekki áttu heimangengt,
tækifæri til að afla sér menntunar á
eigin spýtur. Skólinn er rekinn sem
sjálfstæð sameignarstofnun, og er
hann eini skólinn á landinu sem
hefur sérhæft sig í fjarkennslu.
Á síðustu mánuðum hefur skólinn
gengið til samstarfs við ýmsar
menntastofnanir og aðra aðila sem
sinna fullorðinsfræðslu. Ýmis ný
námskeið eru væntanleg á næstunni
frá skólanum, m.a. í samstarfi við
Fræðsluvarp. Þá hefur þjónusta við
nemendur verið aukin, t.d. með
námsráðgjöf og prófum. Einnig er
myndbandaleiga hjá skólanum á
næsta leiti. - esig