Tíminn - 19.01.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn!
Fimmtudagur 19. janúar 1989
FRETTAYFIRLIT
ÚTLÖND
Þrátt fyrir að starfsemi hinna óháðu pólsku verkalýðssamtaka Samstöðu hafi verið bönnuð ■ sjö ár, hafa
samstöðumenn ekki látið deigan stíga. Nú virðist Ijóst að starfsemi þeirra hljóti lögleiðingu á ný.
Jaruzelski hlaut traust miðnefndar pólska kommúnistaflokksins í óvæntri atkvæðagreiðslu:
Starfsemi Samstöðu
lögleidd í áföngum
PRAG - Rúmlega 5000
Tékkarsöfnuöustsaman í mið-
borg Prag og kröfðust frelsis
og mannréttinda og hrópuðu
nafn Gorbatsjovs til að undir-
strika kröfur um úrbætur. í
fyrsta sinn í fjóra daga réðst
lögreglan ekki að mótmælend-
um.
NEW YORK - Hinn útlægi
fyrrverandi forseti Filippseyja,
Ferdinand Marcos, er nú að
dauða kominn og mun ekki
hafa heilsu til að vera viðstadd-
ur réttarhöld yfir honum þar
sem hann er sakaður um sam-
særi og spillingu þann tíma er
hann gegndi embætti forseta.
VÍN - Sovétmenn og Austur-
Þjóðverjar höfnuðu kröfum
Bandaríkjamanna, Breta og
Vestur-Þjóðverja um að hinn
illræmdi Berlínarmúr yrði rifinn
niður og sögðu nauðsynlegt
að hann standi enn um sinn.
BONN - Stjórnarandstöðu-
flokkarnir í Vestur-Þýskalandi
sökuðu Helmut Kohl kanslara
um að styðja „kaupsýslumenn
dauðans" með því að mistak-
ast að koma í veg fyrir að
vesturþýsk fyrirtæki hjálpuðu
Líbýumönnum við að byggja
efnaverksmiðju sem Banda-!
ríkjamenn segja að muni fram-1
leiða efnavopn.
MOSKVA - Tólf leiðtogar
armenskra þjóðernissinna
sem voru handteknir í síðasta
mánuði vegna undirróðurs-
starfsemi hafa nú verið fluttir í
öryggisfangelsi í Moskvu.
JERÚSALEM - Arabar á j
hernumdu svæðunum á Vest-
urbakkanum hófu skyndiverk-
fall til að mótmæla auknum
áverkum og dauðsföllum af
skothríð ísraelskra hermanna
á Palestínumenn. Stjórnar-
andstaðan í Israel hefur ráðist
á stjórnina vegna aðgerðanna:
á hernumdu svæðunum. Sum-
um finnst ekki nógu langt
gengið, öðrum of langt.
HÖFÐABORG - Forseti;
Suður-Afríku, P.W. Botha, fékk j
vægt slag og var fluttur á;
hersjúkrahús í Höfðaborg..
Ástand Botha var eftir aðstæo-
um.
__ Í
PUNTA ARENAS -Tvær
bandarískar konur urðu þær
fyrstu sem ferðast hafa þverr
yfir suðurheimskautslandið á
skíðum. Þær voru 51 dag á'
leiðinni og eru nú komnar til
Chile.
Starfsemi pólsku verkalýðssam-
takanna Samstöðu verður lögleidd í
áföngum, en Samstaða hefur starfað
ólöglega allt frá því herlög voru sett
í Póllandi í desember 1981. Þetta var
niðurstaða lokaðs fundar miðnefnd-
ar pólska kommúnistaflokksins sem
lauk í Varsjá í gær. Þá hlaut Jaruz-
elski stuðning mikils meirihluta
miðnefndarinnar í óvæntri atkvæða-
greiðslu um traustsyfirlýsingu. Jar-
uzelski hefur lagt áherslu á að samn-
Sjö ára gamall grískur drengur
barnaði þrjátíu og átta ára gamla
barnfóstru sína og er nú faðir
hraustra tvíbura. Þetta hljómar
ótrúlega, en svona er það nú samt.
- Það getur alls ekki verið, sögðu
foreldrar hins sjö ára Dimitri Agana-
polis þegar hann sagðist hafa barnað
nágrannakona þeirra, ekkjuna
Sophiu Katarina.
- Ótrúlegt en satt, sagði hins
vegar læknirinn Plato Speratoza sem
tók blóðprufur af Dimitri litla og
kannaði líkamlegan þroska hans.
- Dimitri er það bráðþroska að
hann hefði getað orðið faðir fimm
ára og er vel þess hæfur að gagnast
konu!
„Ástafundur“ þeirra Dimitris og
Sophiu átti sér stað eitt fallegt kvöld
sumarið 1987 þegar Sophia var að
passa Dimitri á meðan foreldrar
hans voru í burtu. Eftir að ástar-
bríminn dofnaði brýndi Sophia fyrir
ingar náist við Samstöðu um umbæt-
ur í stjórnmálum í Póllandi.
Fundur miðnefndarinnar var hald-
inn til að ræða áætlun sem gerir ráð
fyrir að starfsemi Samstöðu verði
lögleidd í áföngum. Áætlunin hlaut
stuðning meirihluta hinna tvöhundr-
uð og þrjátíu miðnefndarmanna.
Harðar umræður urðu um það
hvort lögleiða ætti Samstöðu, en hin
opinberu verkalýðssamtök höfðu
lagst gegn því. Fulltrúar hennar
Dimitri að minnast ekki einu orði á
hvað gerst hafði.
Dimitri kjaftaði hins vegar í
mömmu sína þegar Sophia sagði
honum að hún ætti von á barni.
f dag býr Sophia ein með tvíbur-
Leiðtogar Pólisaríóhreyfingarinn-
ar í Vestur-Sahara sem áttu fund
með Hassan konungi Marokkó fyrir
hálfum mánuði eru mjög bjartsýnir
á að friður komist á eftir þrettán
átök. Telja þeir að friðarsamkomu-
lag geti verið tilbúið undirritað í
byrjun marsmánaðar.
ÁBC fréttastofan hefur það eftir
Bachir Mustapha Sayed næst æðsta
urðu undir og mun Samstaða því að
líkindum fá að starfa löglega næstu
sextán mánuði. Eftir þann tíma
verður málið endurmetið samkvæmt
áætluninni.
Mieczslaw Rakowski forsætisráð-
herra Póllands hefur hvatt Samstöðu
til að vinna með kommúnistaflokkn-
um við að byggja upp réttlátan
sósíalisma í Póllandi og koma á
úrbótum í efnahagsmálum og stjórn-
málum.
ana sína og lifir af framfærslu frá
sveitarfélaginu. Dimitri var hins veg-
ar sendur á uppeldisstofnun. Hann
fær ekki að hitta börn sín fyrr en
hann verður átján ára. Þá munu
tvíburarnir vera á tólfta árinu.
manni Pólisaríóhreyfingarinnar sem
nú er í heimsókn í Mauritaníu, að
ástandið í Vestur-Sahara sé nú til
fyrirmyndar og að friður ætti að vera
tryggður þar.
Mauritanía hefur stutt Pólisaríó-
hreyfinguna í baráttunni við Mar-
okkó um framtíð þessa fosfatríka
eyðimerkurlands.
Hemumdu svæðin í Paiestínu:
Heimenn
mótmæla
hertum
aðgerðum
ísraelskir hermenn sem nú eiga
enn að herða tökin í átökum við
Palestínumenn á hernumdu svæðun-
um eru nú ævareiðir út í stjórnvöld
og saka Yitzhak Shamir forsætisráð-
herra um að vera illilega úr tengslum
við veruleikann. Herménnirnir eru
að vonum þreyttir á því að berja
palestínska unglinga og fá skipanir
um að skjóta að fólki plastkúlum
sem oft og tíðum reynast banvænar.
Nokkrir hermenn sem gegna nú
herskyldu sinni gengu á fund Sham-
irs er hann var staddur í bænum
Nablus á hinum hernumda Vestur-
bakka og gagnrýndu mjög stefnu
ríkisstjórnarinnar gegn uppreisn
Palestínumanna, stefnu sem neytt
hefur þá til að beita ofbeldi gegn
saklausu fólki.
- Hersveit er send á vettvang,
gerir það sem hún gerir, og jafnvel
liðsforinginn sem stjórnar aðgerðum
veit ekki hvað margir eru drepnir
eða særðir, sagði einn hermannanna.
- Hlutir gerast sem enginn veit
um. Leiðtogar okkar eru úr tengsl-
um við það sem gerist á vígvellinum.
Herinn hefur hingað til ekki vitað
um helming þeirra atvika sem gerast
fyrr en fréttir berast frá sjúkrahúsum
sem taka við særðum og deyjandi
Palestínumönnum sem átt hafa í
átökum við ísraelska hermenn.
- Til að koma á reglu á markaðn-
um erum við neyddir til þess að beita
harkalegu ofbeldi gegn fólki sem
ekkert hefur sér til saka unnið... ég
verð að gefa þeim dauðahögg svo
þau hræðist mig. Þetta brýtur mig
niður, sagði annar hermaður kallað-
ur Yotam.
Shamir svaraði ásökunum her-
manna einfaldlega með því að for-
dæma þjóðernissinnaða Palestínu-
menn fyrir að neyða ísraelska her-
menn til að drepa unglinga sem
kasta að þeim grjóti.
Enn óeirð-
ir á Miami
Ekkert lát varð á ofbeldisöld-
unni í blökkuhverfum Miami í
fyrrinótt þrátt fyrir að öryggislög-
regla grá fyrir járnum reyndi að
halda uppi lögum og reglu. Lög-
reglan beitti táragasi á óeirða-
seggi og fimm manns lágu eftir
særðir skotsárum.
Óeirðirnar hófust fyrir tveimur
dögum þegar lögreglan skaut til
bana blökkumann sem var á
flótta undan réttvísinni á vélhjóli
sínum. Á tímabili náði óeirðalög-
reglan tökum á ástandinu, en
óeirðirnar blossuðu upp á ný í
fyrrinótt eftir að félagi blökku-
mannsins sem hafði verið farþegi
á vélhjólinu lést af völdum
meiðsla er hann hlaut á flóttan-
um.
Ekki bætir úr skák að nú flykk-
ist fjöldi aðdáenda amerísks fót-
bolta til Miami þar sem úrslita-
leikur „Super bowl“ keppninnar
fer fram um helgina.
í átökunum í fyrrinótt um-.
kringdu fjögur hundruð óeirða-
lögreglumenn fimmtíu fjölbýlis-
hús og beitti táragasi gegn múgn-
um sem kastaði steinum að lög-
reglu, kveikti í bílum og rændi
verslanir.
Faðir grískra tvíbura í yngra lagi:
SJÖ ÁRA BARN-
AR BARNFÓSTRU
Leiðtogar Polisaríó bjartsýnir:
Friður við Marokkó í mars