Tíminn - 19.01.1989, Síða 15
Miðvikudagur 18. janúar 1989
Tíminn 15
MINNING
Guðmundur Kr.
Guðnason
Skagaströnd
Guðmundur Kr. Guðnason, póst-
ur og organisti á Skagaströnd, lést
snögglega á heimili sínu 20. nóvem-
ber sl.
Guðmundur var Bólhlíðingur að
ætt, fæddur og uppalinn á hinum
grösuga og sumarfagra Laxárdal
ytri, sem liggur að baki Langadals-
fjalla í Húnaþingi og nú má heita
allur kominn í eyði utan eitt býli.
Þaðan lá leið hans sem ungs manns
til Skagastrandar, þar sem hann lifði
og starfaði allt til dauðadags, lengst
af sem póstur þeirra Skagfirðinga
ásamt því að sinna organistastörfum.
Á Skagaströnd bjó Guðmundur
lengst af í litlu húsi, er Ægissíða hét,
en nú síðustu árin að Bankastræti 10.
í Bólstaðarhlíðarhreppi voru
bernskuslóðir Guðmundar, þar át’ti
hann marga vini og kunningja og
lagði þangað oft leið sína, og þar
hófust kynni okkar sumarið 1981, er
ég kom sóknarprestur á Bólstað.
Við Guðmundur urðum fljótt góð-
ir vinir, hann var maður aðgengileg-
ur og átti auðvelt með að blanda
geði við annað fólk.
Málefni kirkjunnar voru honum
hjartfólgin, og minnist ég frá þessum
árum góðra samvcrustunda á hér-
aðsfundum Húnavatnsprófastsdæm-
is, þar sem Guðmundur var ætíð
mættur, sömuleiðis við ýmis önnur
tækifæri innan kirkju og utan.
Mér var fljótt Ijóst, sem ég átti
eftir að kynnast enn betur síðar,
hvern hauk í horni kirkjan átti, þar
sem var Guðmundur Guðnason.
Tónlist var honum í blóð borin.
Hann hafði sem ungur maður numið
orgelleik hjá nafna sínum, Guð-
mundi Sigfússyni á Eiríksstöðum,
og hafði, er hér var komið sögu, um
árabil verið organisti við Hösk-
uldsstaðakirkju og Hofskirkju á
Skaga ásamt því að vera virkur og
áhugasamur félagi í kirkjukór Hóla-
neskirkju á Skagaströnd, og áhugi
hans var fyrir öllu þvt', er viðkom
kirkjusöng og guðsþjónustunni yfir-
leitt, leyndi sér ekki.
Par var ekki komið að tómum
kofanum hjá Guðmundi, því allt frá
árinu 1940 hafði hann skráð niður
hjá sér allar útvarpsmessur ásamt
nöfnum prests og organista og núm-
erum þeirra sálma, er sungnir voru.
Er slík sálmaskrá mér vitanlega
einsdæmi hér á landi og lýsir best
elju Guðmundar og áhuga. Honum
til mikillar gleði var fyrir nokkru
lokið við að tölvuvinna skrá þessa,
og mun hún jafnframt því að veita
upplýsingar um tíðni sálma á fyrr-
nefndu tímabili lengi halda minn-
ingu Guðmundar á lofti. Pannig var
Guðmundur, áhugasamur og trúr í
hverju því, sem hann tók sér fyrir
hendur, hvort sem það var póstút-
burður, kirkjusöngur eða eitthvað
annað.
Tónlistin var hans hjartfólgnasta
áhugamál, en hann átti sér ýmis
önnur, svo sem að ferðast um byggðir
landsins, en af því gerði hann tals-
vert hin síðari árin og naut þess í
ríkum mæli. Guðmundur var nátt-
úruunnandi að eðlisfari, athugull og
fróðleiksfús, og var óspar á að festa
á filmu, það sem fyrir augu og eyru
bar á ferðalögum eða við önnur
tækifæri. Munu þeir vera fleiri en ég,
sem eiga góðar myndir og minningar
frá ýmsum hátíðlegum tækifærum
fyrir tilstilli Guðmundar. Raunar
hygg ég óhætt að segja, að allir, sem
honum kynntust, hafi fundið þar
góðan og tryggan vin, sem þeir nú
sakna að leiðarlokum.
Er ég fluttist að Mælifelli í Skaga-
firði árið 1983, kom í minn hlut að
annast messuhald í Ábæjarkirkju í
Austurdal, en þar er sem kunnugt er
messað aðeins einu sinni á ári,
venjulega um 16. helgi sumars.
í Ábæjarkirkju er ekkert rafmagn
* né hljóðfæri og því úr vöndu að ráða
með orgelleik. Leitaði ég á náðir
Kristjáns Hjartarsonar og Guð-
mundar Guðnasonar á Skagaströnd,
en sá fyrrnefndi átti lítið batterísorg-
el, sem handhægt var að flytja með
sér fram í Ábæ. Er ekki að orðlengja
það, að báðir tóku þeir málaleitan
minni einstaklega ljúfmannlega.
Spiluðu þeir félagar í fjögur sumur
við messur í Ábæ, ýmist báðir eða
hvor í sínu lagi, en skiptu verkum
þannig með sér, að Guðmundur lék
á orgelið, en Kristján leiddi sönginn
með sinni hljómmiklu tenórrödd.
Eru mér þessar stundir í Ábæjar-
kirkju einkar hugljúfar, sökum þess
hátíðleika er þar ríkti og þeirrar
alúðar, sem þessir tveir heiðursmenn
lögðu í verk sitt. Veit ég, að undir
það munu þeir geta tekið, sem þar
voru viðstaddir. Fyrir þessar sam-
verustundir í Ábæjarkirkju vil ég nú
þakka heilum huga.
Það fann ég þá og við fleiri
tækifæri, að fáar stundir voru Guð-
mundi eins hjartfólgnar og þær, sem
hann átti í húsi Guðs, kirkjan og
athafnir hennar voru honum bók-
staflega upplifun og helgur dómur.
Fyrir starf í kirkjunni fannst honum
engin fyrirhöfn of stór.
Sl. sumar gat Guðmundur eigi
komið því við að spila í Ábæjar-
messu, hann var þá á ferðalagi suður
á landi, hafði fengið þar inni í
orlofshúsi, en hafði við orð, er við
töluðum saman, að sig langaði að
koma næsta sumar og spila í Ábæ.
Af því verður ekki, því kallið kom
óvænt og fyrr en nokkurn grunaði.
Við hér munum sakna þess að eiga
ekki framar von á honum, söknuður
og þakklæti er mér efst í huga, er ég
kveð góðan vin, þakklæti fyrir góð
samskipti og vináttu á liðnum árum.
Guðmundur Guðnason var ekki
ríkur af þessa heims gæðum og gerði
ekki miklar kröfur til lífsins, en
hann var þeim mun ríkari af auðlegð
hjartans og auðmýkt, því sem hvorki
mölur né ryð fær grandað, auðmýkt
gagnvart listinni hinni æðstu og
gagnvart Guði sínum, þar um var
hann ekki margorður, en lét verkin
tala. „Sælir eru fátækir í anda, því
þeirra er himnaríki", segir Kristur í
Fjallræðunni. Þau orð finnst mér
eiga vel við Guðmund Guðnason.
Með einlægri framkomu ávann hann
sér vináttu og traust samferðamann-
anna.
Ég trúi því, að hans muni bíða
mörg verkefni á landi lifenda, þar
sem hið fyrra er farið, en allt er orðið
eitt í Drottni, eilíft, satt og fagurt,
og víst er, að þar mun hann verða
liðtækur í hinum himneska kirkju-
kór. Hvíli hann í Guðs friði.
Eftirlifandi bræðrum og öðrum
aðstandendum er vottuð innileg
samúð.
Ólafur Þ. Hallgrímsson.^
FISKIMÁL
Sýktur lax sleppur
úr kvíum í Noregi
Talið er að um hálf milljón stórra
laxa hafi sloppið úr laxeldiskvíum í
eldisstöðvum á Sunnmæri og
Þrændalögum í Noregi nýlega vegna
óveðurs. Þar af hefur mikill fjöldi
kýlaveikra laxa sloppið úr tveimur
eldisstöðvum á Sunnmæri. Tjónið
varð þannig algert hjá Fjarðalaxi sf.
á Suðurmæri. í heild er tjónið, sé
miðað við verð á sláturlaxi, talið
nema um 50 milljónum norskra
króna.
Héraðsdýralæknir fiskisjúkdóma
á Sunnmæri skýrir blaðinu Fiskaren
Laxeldiskvíum í sjó hcfur fjölgað
ört síöustu árin. Mynd EH.
frá því að sjúkur fiskur syndi frá
einni stöð til annarrar og dreifi smiti.
Hann vill, eins og áður, leggja
áherslu á, að fiskimálaráðuneytið
láti gera áætlun um að reynt verði að
hirða upp hinn sjúka fisk. Hann
fullyrðir að ekki sé til öryggis- eða
eftirlitskerfi til að koma í veg fyrir
að kvíaeldisstöðvar verði fyrir fyrr-
greindu slysi.
„Fiskaren" upplýsir ennfremur að
ekki séu uppi neinar aðgerðir af
hálfu fylkisdýralæknis til að ná tök-
um á laxinum, sem syndir nú um
allan sjó. Læknirinn kvaðst sjálfur
vona, að laxinn syndi til hafs og
sjáist aldrei meir! Hann hvetur mat-
fiskaframleiðendur til að slá nót
utan um kvíarnar til að haldasjúkum
fiskum frá kvíunum.
Þetta eru sannarlega óhugnanleg-
ar fréttir, sem berast okkur frá
Noregi. Sýnt er að eldiskvíar í sjó
standast ekki slæmt veður. Hvaða
lærdóm getum við af þessu dregið?
Talið er að nú séu tæplega 1,4
milljón laxa í sjókvíum og þar af
tæplega ein millj. á Faxaflóasvæð-
inu.
Styrkir úr Minningarsjóði
Theódórs Johnsons
í samræmi viö skipulagsskrá Minningarsjóðs
Theódórs Johnsons hefur Háskóli íslands ákveðið
að úthluta 4 styrkjum, að upphæð kr. 100 þús hver.
í 4. gr. skipulagsskrár sjóðsins segir m.a.: Þeim
tekjum sem skal leggja við höfuðstól, sbr. 3. gr.,
skal varið til að styrkja efnilega en efnalitla
stúdenta, einn eða fleiri, til náms við Háskóla
íslands eða framhaldsnáms erlendis að loknu
námi við Háskóla íslands. Umsóknareyðublöð fást
í skrifstofu háskólans.
Umsóknarfrestur er til 24. febrúar 1989.
Eldviðvörunarkerfi á
Vífilsstaðaspítala
Innkaupastofnun ríkisins f.h. Ríkisspítala óskar
eftir tilboðum í örtölvustýrt eldviðvörunarkerfi og
uppsetningu þess fyrir Vífilsstaðaspítala.
Stærð: Stjórnstöð: 200 skynjarar, stækkanleg í
400 skynjara.
Reyk- og hitaskynjarar: 140 stk.
Útboðsgögn eru seld á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, á kr. 2000,-.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 10.
febrúar 1989 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaöur: Nafn umboðsmanns Heimili Simi
Hafnarfjöröur Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur Linda Jónsdóttir Holtagerði 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgeröl Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík LindaStefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjöröur Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
Isafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGisladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122
Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavík ElísabetPálsdóttir Borgarbraut5 95-3132
Hvammstangi Friðbjörn Nielsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbaröseyri ÞrösturKolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli 2 96-41729
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Viglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egilsstaöir Páll Pétursson Árskógar 13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir Fjarðarbakka 10 97-21467
Neskaupstaöur KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður Þórey Dögg Pálmadóttir Svinaskálahlið 19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður Svava G. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Hjörleifur Bjarki Kristjánsson Sólvöllum 1 98-31005
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónína og Árný Jóna Króktún 17 98-78335
Vík VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
m^BRosml' ■ 1 UMFEROAfl /' 09 Urao alltgengurbetur *