Tíminn - 19.01.1989, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Fimmtudagur 19. janúar 1989
■ Mnr
Steingrímur Sigrún
Þorrablót Framsóknarfélaganna
í Reykjavík
veröur haldið laugardaginn 21. janúar kl. 20 í Vetrarbrautinni,
Þórscafé. Húsið opnar kl. 19.30.
Ræðumaður kvöldsins: Steingrímur Hermannsson.
Veislustjóri: Sigrún Magnúsdóttir.
Jóhannes Kristjánsson og Áslaug Brynjólfsdóttir flytja gamanmál.
Miðapantanir og nánari upplýsingar eru hjá Þórunni í síma 24480.
Framsóknarfélögin
Þorrablót í Kópavogi
Hið árlega þorrablót Framsóknarfélaganna í Kópavogi verður haldið
að venju 1. laugardag í þorra 21. janúar n.k. kl. 20 í Félagsheimili
Kópavogs. Hin landsþekkta hljómsveit Lúdó og Stefán leikur fyrir
dansi.
Mætum öll og tökum með okkur gesti.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra verður ræðumaður kvöldsins.
Miðapantanir: Einar (s. 41590 og 43420)
Ásta (s. 40229)
Skúli (s. 41801)
Jón (s. 46724)
Framsóknarfélögin í Kópavogi
Akranes
Almennur fundur með Alexander Stefánssyni
verður að Sunnubraut 21, fimmtudaginn 19.
jan. kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Alexander
Steingrímur
Fundir um atvinnu- og efnahagsmál
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, heldur fundi um at-
vinnu- og efnahagsmál á eftirtöldum stöðum:
Norðurland-E, þriðjudag 24. jan. Hótel KEA kl. 21.00.
Vesturland, fimmtudag 26. jan. Hótel Akranes kl. 20.45.
Austurland, laugardag 28. jan. Egilsstaðir kl. 15.00.
Vestfirðir, sunnudag 29. jan. Félagsheimilinu, Patreksfirði kl.
16.00.
Norðurland-V, laugardag 4. feb. Varmahlíð kl. 14.00.
Allir velkomnir
Keflavík - Suðurnes
4. Fimmtudaginn 19. jan. kl. 20.30 í Festi,
Grindavík (litla sal).
5. Föstudaginn 20. jan. kl. 20.30 í Aragerði 7,
Vogum.
Jóhann
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
/
/
/
lllllllllll DAGBÓK
Nýtt veitingahús:
Jónatan Livingston Mávur
Nýtt kaffi- og veitingahús hefur verið
opnað við Tryggvagötuna, þar sem áður
var „Við Sjávarsíðuna". Nafn nýja stað-
arins er Jónatan Livingston Mávur.
f fréttatilkynningu frá forstöðumönn-
um veitingastaðarins segir m.a.:
„Nú þegar tímar bjór/öl-aldar eru að
fara í hönd og uppspretta bjórknæpa -
liggur við - í öllum lausum herbergjum í
miðbænum, að því að heyrst hefur, - er
opnað Café-veitingahús sem hefur það að
markmiði að framreiða fyrsta flokks mat
og bjóða upp á fyrsta flokks þjónustu og
halda uppi afslappandi stemmningu í
kaffihlutanum. Þarna ersem sagt kominn
staður fyrir fólk sem vill komast út, en þó
án þess að lenda í erli veitingahúsanna
eða þurfa að borga stórar fúlgur fyrir
veitingarnar."
Síðan eru nefndar ýmsar veitingar sem
til boða eru og uppákomur. T.d. á
sunnudögum í hádeginu er boðið upp á
„Brunch“ (breakfast-lunch) (á íslensku
„Morghád") undir léttum og lifandi jass-
tónum. Munu Richard Korn bassaleikari
og Reynir Sigurðsson víbrafónleikari
leika á sunnudögum í janúar.
Framkvæmdastjóri er Guðlaug Hall-
dórsdóttir og er hún jafnframt eigandi
staðarins ásamt manni sínum, Guðvarði
Gíslasyni. Yfirframreiðslumaður er
Brynja Gunnarsdóttir. Yfirmatreiðslu-
maður er Elmar Kristjánsson. Fjöldi
starfsmanna er 15.
esfajjs I ■■IgiaM
LESTIINARÁfHLUNl
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miðvikudaga
Gautaborg:
Annan hvern föstudag
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Annan hvern laugardag
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Skip..............20/1
Gloucester/Boston:
Alla þriðjudaga
New York:
Alla föstudaga
Portsmouth/Norfolk:
Alla sunnudaga
SKiPADEILD
f^kSAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVlK
SlMI 698100
A. Á AA A A Á. Á. j
!AKN fRAUSIRA lUJININfjA
Mynd janúarmánaðar í Listasafni íslands:
HJARTAÐ eftir Jón Gunnar Árnason
Listasafn íslands:
Mynd mánaðarins
í Listasafni Islands er vikulega kynnt
mynd mánaðarins. Mynd janúarmánaðar
er Hjartað, skúlptúr eftir Jón Gunnar
Árnason frá árinu 1968. Skúlptúrinn er
unninn úr brotajárni og var keyptur til
safnsins árið 1987.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer
fram í fylgd sérfræðings, alla fimmtudaga
kl. 13:30.
Listasafn (slands er opið alla daga -
nema mánudaga - kl. 13:00-17:00. Að-
gangur og auglýstar leiðsagnir eru ókeyp-
is. Veitingastofa hússins er opin á sama
tíma.
Lögfræðiaðstoð Orators
Orator, félag laganema, veitir ókeypis
lögfræðiaðstoð á fimmtudögum frá kl.
19.30-22.00, í síma 1 10 12.
Digranesprestakall
Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg annað kvöld,
fimmtudag kl. 20:30. Spiluð verður fé-
lagsvist. Kaffiveitingar.
Félag eldri borgara
Opið hús verður í Goðheimum, Sigtúni
3 í dag, fimmtud. 19. jan.
Kl. 14:00 er frjáls spilamennska. Kl.
19:30 - félagsvist. Spilað er 1/2 kort. Kl.
21:00 - dans.
Ásgrímssafn
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaða-
stræti 74 er opið á sunnudögum, þriðju-
dögum, fimmtudögum og laugardögum
kl. 13:30-16:00.
Fréttasendingar til útlanda
Frá ogmeð 1. jan. nk. verða fréttasend-
ingar ríkisútvarpsins á stuttbylgju sem
hér segir:
Til Norðurlanda, Bretlands og megin-
lands Evrópu:
Daglega kl. 12:15-12:45 á 15770, 13660
og 11626 kHz - og
daglega kl. 18:55-19:30 á 13770, 9275,
7935 og 3401 kHz
Hlustendum á Norðurlöndum er þó
sérstaklega bent á 11626 og 7935 kHz.
Þeir geta einnig nýtt sér sendingar á 15770
kHz kl. 14:10 og 9275 kHz kl. 23:00.
Til austurlduta Kanada og Bandaríkj-
anna:
Daglega kl. 14:10-14:40 á 15770 og 17530
kHz - og
daglega kl. 19:35-20:10 á 15460 og 17558
kHz - og
daglega kl. 23:00-23:35 á 9275 og 17558
kHz
Hlustendur í Kanada og Bandaríkjun-
um geta einnig nýtt sér sendingar á 11626
kHz kl. 12:15 og 79335 kHz kl. 19:00.
Að loknum lestri hádegisfrétta á laug-
ardögum og sunnudögum er lesið yfirlit
yfir helstu fréttir liðinnar viku.
Isl. tími er sá sami og GMT.
Frank Shipway hljómsveitarstjóri.
Ralph Kirshbaum sellóleikari.
Áskell Másson tónskáld.
Sínfóníutónleikar í kvöld:
Frumflutt verk
eftir Áskel Másson
Sjöundu áskriftartónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands verða í Háskólabíói
í kvöld, fimmtud. 19. jan. kl. 20:30. Þrjú
verk eru á efnisskránni:
Impromptu, frumflutt verk eftir Áskel
Másson, Sinfónía nr. 5 eftir Schubert og
Sellókonsert eftir Dvorák.
Einleikari verður breski sellóleikarinn
Ralph Kirshbaum og hljómsveitarstjóri
er Frank Shipway, en hann stjórnaði í
fyrra á fernum tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar við góðar undirtektir. Hann
þreytti frumraun sína sem stjórnandi’í
Bandaríkjunum 1980. Nú nýlega stjórn-
aði hann hljómsveitum á öllum Norður-
löndum, Tékkóslóvakíu, Þýskalandi,
Bretlandi og Bandaríkjunum. Auk þess
að stjórna á þessum tónleikum hljóm-
sveitarinnar, mun hann stjórna henni
fyrir Ríkisútvarpið í lok vikunnar.